Morgunblaðið - 19.06.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1976 . ff'H O v.’» > ‘ 7
Landið og
pólitíkin
Okkur fslendinga
greinir á um margt og
flest verður okkur að
pólitfsku bitbeini en þó
má segja, aö Björn Th.
Björnsson, listfræðing-
ur, ryðji nýjar leiðir í
pólitískum skætingi f
blaðaviðtali sem við
hann birtist fyrir rúmri
viku í tilefni þess, að
Alþýðubandalagið mun
efna til sumarferðar
fyrir flokksmenn f
næstu viku. Sama dag
efnir Landsmálafélagið
Vörður til hinnar hefð-
bundnu sumarferðar
sinnar og hyggjast þess-
ir tveir aðilar sækja á
svipaðar slóðir að þessu
sinni. Af því tilefni
segir listfræðingurinn í
blaðaviðtali: „Nú ætlar
fhaldið að skrölta
þennan sama dag sömu
leið f nokkrum bflum
með tvær heitar
máltfðir mönnum til af-
þreyingar f stað þess að
nota tfmann til að vitja
söguslóða og upplifa
landið. Þar sem ekki
tókst að fella rfkis-
stjórnina á landhelgis-
svikum og fá kosningar
ættu nú vinstri menn að
fylkja sér f þessa glæstu
sumarferð og sýna hug
sinn um leið og þeir
hitta þar baráttufélaga
sfna á góðri stund.“
Þeim mönnum er
sannarlega vorkunn,
eins og Birni Th.
,Björnss.vni. sem ekki
geta ferðazt um land
sitt og notið einstæðrar
náttúru þess og fegurð-
ar án þess að Ifta á slfkt
ferðalag sem pólitískt
áróðurstæki og bágt er
sálarástand þeirra, sem
ekki geta unnað öðrum
þess að skoða land sitt
án þess að hreyta í þá
hina sömu pólitískum
skætingi.
Tilmæli
fréttastjóra
sjónvarps?
í nýútkomnu hefti af
tímaritinu Frjáls
Verzlun segir m.a. svo:
„Vegna fjölda upp-
sagna hjá sjónvarpinu
er þess að vænta, að ný
andlit birtist á skjánum
eftir sumarleyfi og
fram á næsta vetur. Hjá
fréttastofunni stendur
til að ráða nýjan starfs-
kraft og hefur verið
unnið úr fyrirliggjandi
umsóknum. Þegar
sfðast fréttist stóð valið
raunverulega milli
tveggja, þeirra Sig-
rúnar Stefánsdóttur,
ritstjóra íslendings á
Akureyri, og Einars
Karls Haraldssonar,
fréttastjóra Þjóð-
viljans. Hann ku hafa
sótt um fyrir tilmæli
fréttastjóra sjónvarps-
ins og er þvf harla lík-
legur sem næsti frétta-
maður sjónvarps."
Væntanlega ber séra
Emil Björnsson, frétta-
stjóri sjónvarps, þessa
staöhæfingu tímaritsins
til baka. Það er að sjálf-
sögðu útilokað að frétta-
stjóri sjónvarpsins hafi
óskað eftir því sérstak-
lega við fréttastjóra
Þjóðviljans, að hann
sækti um það starf, sem
þarna er um að ræða.
Þvf verður ekki trúað
að þeir starfshættir
tfðkist hjá sjónvarpinu,
sem er opinber stofnun,
að starfsmenn séu
ráðnir með þeim hætti
sem þarna greinir frá.
En hér er um svo alvar-
lega staðhæfingu að
tefla, að nauðsynlegt er, I
að fréttastjóri sjón- |
varpsins beri hana til !
baka.
Sérstæðir um-
gengnishættir
Það er nánast dagleg-
ur viðburður, þegar I
ekið er um höfuð- |
borgarsvæðið, að bfl-
rúðu er rennt niður og I
einhverju drasli, sem |
ökumaður og farþegi
vill losna við, er hent út I
um rúðuna út á stein- |
steyptar akbrautir eða
grænar eyjar á milli ak- |
brauta. Engin orð þarf |
að hafa um þetta fram- J
ferði, en það vekur sér- I
staka athygli ef athugað |
er hvaða fólk er í þess-
um bifreiðum. að þar er |
yfirleitt um að ræða |
kornungt fólk, sem
virðist ekki geta haft |
fvrir þvf að taka drasl i
úr bflum sínum og
koma þvf fyrir þar sem |
það á heima en notar i
götur og gangstéttir og
græna bletti sem ösku- |
hauga. Umgengnis- i
hættir af þessu tagi eru
fordæmanlegir og raun- |
ar svo mjög, að full i
ástæða er til að beita
fjársektum við slfku at- |
hæfi ekki síður en við i
öðrum brotum, sem '
menn gera sig seka um f |
umferðinni. ■
DODGE CHARGER '74
Glæsileg bifreið, Dodge Charger 1974, er til sölu.
Bifreiðin er mjög vel með farin, ekin 15 þús. mílur
(mest erlendis).
Litur hvítur, vinyl toppur, sjálfskipting, vökvastýri, 8
cyl., 318 cub.
Bifreiðin verður sýnd í dag og á morgun að Melhaga
4. Frekari upplýsingar í síma 14088.
„Hugmyndagos”
á Kröflusvæðinu
Mvvafnssveit 18. júnf
AÐ UNDANFÖRNU hefur þess
verið getið í fréttum fjölmiðla
að nú væri aftur að aukast jarð-
skjálftavirkni við Kröflu sam-
kvæmt jarðskjálftamælum. Sí-
endurtekið hefur verið, t.d. í
útvarpsfréttum, að landið við
Kröflu sé að lyftast, mikið gas
sé í einni borholu og
almenningur hér sé jafnvel far-
inn að verða var við jarð-
skjálfta. Talað er um breyt-
ingar f sprungum suður frá
Kröflu og þá er og getið um að
hraunkvikan undir jarðskorp-
unni sé að færast í átt að
Bjarnarflagi. Huggulegt ef satt
reynist fyrir þá sem þar vinna.
Nú er það svo, að fólk sem les
og heyrir slíkar fréttir, ekki sizt
það sem í fjarlægð býr, óttast
sem vonlegt er, að nú sé senn að
hefjast gos alveg á næstunni.
Ég vil spyrja þá sem bezt ættu
að vita: Er einhver meiri hætta
nú á auknum jarðskjálftum og
jafnvel gosi en verið hefur? Eg
hefi spurt ýmsa sem hér búa
hvort þeir hafi orðið varir við
jarðskjálfta að undanförnu en
enginn telur sig hafa orðið þess
varan. Þá hef ég kannað hjá
þeim sem gæta jarðskjálfta-
mælanna í ReynihUð og þeir
segja að þar sé einnig mjög
rólegt nú. Nú dettur auðyitað
engum annað í hug en sjálfsagt
og skylt sé að hafa fulla gæzlu
hér og fylgjast vel með öllum
breytingum sem orðið geta, svo
unnt sé að gera viðeigandi ráð-
stafanir ef hætta er á ferðum á
þessu svæði. Jafnfráleitt er lika
að vera að blása út og endur-
taka fréttir sem byggðar eru á
hæpnum forsendum og geta aó
sjálfsögðu orðið til þess að
valda hræðslu hjá fólki að
ástæðulausu. Slíkt ber auðvitað
að varast þvf hugmyndagos er
allt annað en hraungos.
— KRISTJAN
Sumarbúðirnar
Kópaseli
Sumarbúðirnar sem eru fyrir börn á aldrinum
6 til 10 ára hefjast n.k. mánudag og verða
námskeiðin sem hér segir:
1 námskeið 21 . til 30 júní
2. námskeið 1 . til 1 0 júlí.
3. námskeið 1 1 . til 20. júlí.
4. námskeið 21. til 30. júlí.
Daggjald verður kr. 900
Systkina-afsláttur veittur.
Innritun og allan nánari uppl í síma
41 570, Álfhólsvegi 32 á skrifstofutíma.
Félagsmálastofnun
Kópavogskaupstadar.
—
'
NORRÆNA HÚSIÐ mm
ISLENSK
NYTJALIST
opid frá 14-22
5.-20. JÚNÍ1976
húsgögn wefnaður keramik auglýsingateiknun
fatnaður Ijósmyndun lampar silfur textíl
200 munir, 50 hönnuðir og framleiðendur. Finnskir
gestir, Vuokko og Antti Nurmesniemi. Tízkusýning-
ar á Vuokko ifatnaði undir stjórn Vuokko.
Guðspjall dagsins: Lúk 16,
19—31. Ríki maðurinn og
Lazarus.
Litur dagins er græhn:
Táknar vöxt, einkum vöxt
hins andlega Iffs.
DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11
árd. Séra Guðmundur
Þorsteinsson prestur Árbæjar-
prestakalls messar. Séra Þórir
Stephensen.
DÓMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti. Lágmessa kl. 8 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lág-
messa kl. 2 síðd.
ASPRESTAKALL Safnaðar-
ferð í Þjórsárdal á sunnudag-
inn kl. 8 árd. og verður þá farið
frá Sunnutorgi. Messa í Stóra-
Núpskirkju kl. 2 síðd. Séra
Grímur Grímsson.
FRÍKIRKJAN Reykjavík.
Messa kl. 11 árd. Séra
Þorsteinn Björnson.
HALLGRlMSPRESTAKALL.
Messa kl. 11 árd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson. Messa kl. 10
árd. í Landspítalanum. Séra
Karl Sigurbjörnsson.
KIRKJA Öháða safnaðarins.
Messa kl. 11 árd. Séra Emil
Björnsson.
FlLADELFÍUKIRKJAN
Almenn samkoma kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
ARBÆJARPRESTAKALL
Guðþjónusta í Dómkirkjunni
kl. 11 árd. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
HATEIGSKIRKJA Lesmessa
kl. 10 árd. Séra Arngrímur
Jónsson. Messa kl. 2 síðd. Séra
Jón Þorvarðsson.
NESKIRKJA Messa kl. 11 árd.
Séra Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
LAUGARNESKIRKJA. Messa
kl. 11 árd. (Ath. breyttan
messutíma). Fermdar verða:
Klara Iaguessa og Karen
Iaguessa frá Bandarfkjunum.
Séra Garðar Svavarsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Guðþjónusta kl. 11 árd. (Ath
breyttan messut(ma). Séra
Arelíus Níelsson. Soknarnefnd-
in.
BREIÐIIOLTSPRESTAKALL
Messa kl. 11 árd. í Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
GRUND — elli og hjúkrunar-
heimili. Messa kl. 10 árd. Séra
Lárus Halldórsson.
FELLA- OG HÓLASÓKN. Guð-
þjónusta í Fellaskóla kl. 11 árd.
Séra Hreinn Hjartarson.
BUSTAÐAKIRKJA. Guðþjón-
usta kl. 11 árd. Séra Olafur
Skúlason.
grensAskirkja. Messa kl.
11 árd. Séra Halldór S. Gröndal
KÓPAVOGSKIRKJA. Messa kl.
11 árd. Séra Jónas Gíslason
lektor messar. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
GAULVERJABÆJARKIRKJA.
Guðsþjónusta kl. 2 sfðd. Sókn-
arprestur
BERGÞÓRSHVOLSPRESTA-
KALI, Messa í Krosskirkju kl. 2
síðd. Séra Páll Pálsson.
nnud. 20. júní kl. 14—16.
fið meðferðis teikningar.
TILBOÐ - SAMNINGAR
húsbyggjendum að
kostnaðarlausu
Óameiginlegur vöru- Sérhæfðir á sviði bygg-
sýningarsalur og sölu- ingariðnaðar. Allt frá
skrifstofa um 40 fyrir- steinsteypu — upp í
tækja teppi.
Gjörið svo vel — Allt á einum stað
IÐNVAL
Byggingaþjónusta
Bolholti 4 Reykjavík.