Morgunblaðið - 19.06.1976, Page 32
hAdrvstttæki hf.
K>D{>[I>[I>4f4«4«4*
SKÚLAGÚTU BH - S:135BO
LAUGARDAGUR 19. lUNÍ 1976
JCI.YSINGASIMIXN KR:
22480
Heita vatnið eykst
enn á Laugalandi
Akuroyri IX. júní.
ENN hefur heita vatnið á Lauga-
landi aukizt í borhulu númer 3.
Úr henni koma nú 45 Iftrar á
sekúndu af 95 stiga heitu vatni,
sem fæst á 1490 metra dýpi. Eitt-
Vorkálfa-
stíll í um-
ferðinni
31 árekstur varð f umferð-
inni i Reykjavfk f gærá einum
mesta góðviðrisdegi ársins, en
að sögn lögreglunnar er þelta
sami árekstrafjöldi og er á
mestu hálkudögum að vetrar-
lagi. Þorsteinn Jónsson
lögregluþjónn tjáði okkur að
þetta væri fjöldinn á tíniabil-
inu frá kl. 8 í gærmorgun tii kl.
8 i gærkvöldi en hann kvað
furðulegt, að stundum, þegar
gott veður gerði, ,,vrðu bil-
stjórar í umferðinni eins og
kálfar á vori“. Enginn alvar-
legur árekstur varð þó í gær og
engin slvs hlutust af.
hvert samhengi er milli rennslis
úr henni og fvrstu holu, þvf að
þar hefur rennsli lítillega minnk-
að með auknu rennsli í holu nr. 3.
Ilins vegar hefur rennsli úr
fvrstu holu ekki verið mælt
nákvæmlega nýlega.
Borinn er nú á 1525 metra dýpi
og mun bora nokkra daga i viðbót,
sennilega niður á a.m.k. 2000
metra en jarðfræðingar eru von-
góðir um enn meira vatn á u.þ.b.
1800 metra dýpi. Um frekari
dýpkun holunnar er ekkert
ákveðið á þessu stigi málsins.
Ekki verður byrjað á lagningu
aðveitu- eða dreifikerfis í sumar
en hins vegar verður unnið að
teikningum, mælingum og hönn-
un verksins þannig að útboð geti
farið fram um næstu áramót.
Einnig er ráðgert að skipta um
jarðveg í ýmsum götum í sumar
til undirbúnings hitaveitulögn ef
fjármagn fæst. Ingólfur Árnason,
formaður hitaveitunefndar Akur-
eyrar, sagði í dag að nefndarmenn
væru prýðilega ánægðir með
þann árangur sem þegar hefur
fengizt af borunum og væru mjög
bjartsýnir á framtíðina. —Sv.P.
Rekstrarskjöl kirkju-
jarða urðuð á haugunum
KOMIÐ hefur f Ijós að í bruna
Landlæknishússins f hinni svo-
kölluðu Bernhöftstorfu hefur
evðilagzt og týnzt mikið af skjöl-
um varðandi rekstur ýmissa
kirkjugarða, aðaliega á tímabil-
inu frá 1900—1940. Þegar hreins-
unarmenn hreinsuðu rústirnar
eftir brunann var skjölum þess-
Aðalgeir Kristjánsson með slitrur
af kirkjujarðaskjölum, en hann
kvað þau mjög fúin og illa farin
eftir óhirðuna.
Ljósmynd Iflbl. RAX.
um mokað með krana á bfla og
flutt á haugana en þegar upplýst-
ist að hér væri um merk söguleg
gögn að ræða fóru Þjóðskjala-
safnsmenn þegar á haugana, en
urðu of seinir, þvf búið var að
urða megnið af því sem barst
þangað af skjölum þessum.
Skjöl þessi, sem heyrðu til
kirkjumálaráðuneytinu, hafa
verið þarna í óhirðu síðustu ára-
tugi, en samkvæmt upplýsingum
Baldurs Möllers ráðuneytisstjóra
mun engínn núlifandi maður hafa
vitað um þessi gögn Því, sem
bjargað varð, hefur nú verið
komið til Þjóðskjalasafnsins, að
sögn Baldurs, til lagfæringar og
meðferðar. Hluti skjalanna, sem
þarna hafa farið forgörðum, er
frá siðustu öld, en skjalatap þetta
á að sögn Þjóðskjalasafnsmanna
eftir að koma mörgum illa í sam-
bandi við rannsóknir og sögurit-
un.
Aðalgeir Kristjánsson á Þjóð-
skjalasafninu var einn þeirra,
sem fór að leita að þessum gögn-
um á haugunum, en hann kvað þá
hafa fundið mjög lítið því að búið
hefði verið að urða það' méð
margs konar drasli þegar þeir
komu. „Og þetta gerist á sama
tíma,“ sagði Aðalgeir, „og verið er
að afhenda okkur handrit erlend-
is frá“.
Fjölmenn 17. júnfganga f
Reykjavfk á leið til Lækjartorgs
um Bankastræti.
Helga Bachmann
í hlutverki
Fjallkonunnar
á Austurvelli.
Forseti Islands, herra Kristján
Eldjárn, leggur blómsveig að
styttu Jóns Sigurðssonar á
Austurvelli. Geir Hallgrfmsson
forsætisráðherra stendur við hlið
forsetans.
Ljósmvndir Mbl. Ól.K.M.
Skipavélaverksmið j a
reist á Ólafsfirði
Samsetning 700—2000 ha hollenzkra bátavéla
VÉLSMIÐJAN N'onni á Ólafsfirði
hefur næstu daga byggingu verk-
smiðjuhúss þar en fyrirtækið
mun á næsta ári hefja sam-
setningu hollenzkra báta- og
skipavéla, 700—2000 hestafla af
tegundinni Brons, en t.d. eru
bátarnir Helga II. og Höfrungur
II. með 750 ha Brons-vélar. Þá
hefur Magnús Gamalfelsson út-
gerðarmaður á Ólafsfirði pantað
2000 ha Brons-vél f nýja skut-
Áróðurspési Fylkingarinnar
kennslubók í gagnfræðaskóla
Sjá frásögn á bls. 13
_ og forystugrein á miðopnu
Sl. haust var pési, er nefnist
„Verkalýðsbaráttan, 1. hefti“,
tekinn til kennslu f samfélags-
fræði í framhaldsdeildum
gagnfræðastigs í Víghólaskóla f
Kópavogi. Utgefandi pésans er
„Fylkingin, baráttusamtök
sósfalista". Að fyrirmælum
kennarans var nemendum gert
að kaupa pésa þennan og var
hann notaður við kennslu og
tekinn til prófs.
0 Nemendur mótmæltu við
skólastjóra án árangurs
0 Foreldrar kvörtuðu við
skólanefnd Kópavogs
0 Skólanefnd sendi greinar-
gerð til menntamálaráðu-
neytis í október sl.
0 í menntamálaráðuneytinu
dagaði málið uppi.
Frásögn af máli þessu, með
viðtölum við nokkra nemendur,
skólastjóra, fræðslustjóra í
Kópavogi og menntamálarláð-
herra er á bls. 13 í Morgun-
blaðinu í dag og jafnframt er
um það fjallað í forystugrein.
togarann, sem er verið að smfða á
Akureyri fyrir Ólafsfirðinga.
Þorsteinn Jónsson, forstjóri
Nonna, sagði í samtali við
Morgunblaðið að aðeins ætti eftir
að undirrita samkomulag milli
Nonna og Brons-vélaverk-
smiðjanna í Hollandi, en hann
kvað Nonna fá mjög hag-
stæð kjör í sambandi við þessa
framleiðslu og t.d. þarf Nonni
ekki að greiða hollenzku verk-
smiðjunum hlutina í vélarnar
fyrr en 6 mánuðum eftir að þær
eru seldar. Á næstunni munu tals-
menn Nonna ræða við fslenzk
stjórnvöld um tollamál i þessu
sambandi o.fl. þar að lútandi. Eig-
andi Nonna er auk Þorsteins
Einar Þórarinsson verkstjóri á
Ólafsfirði. Er þetta í fyrsta skipti
sem íslenzkt fyrirtæki hefur slíka
framleiðslu, en samkvæmt upp-
lýsingum Þorsteins getur orðið
um mjög mikinn gjaldeyrissparn-
að að ræða í þessu sambandi auk
þess að þegar í byrjun munu 15
menn á Ölafsfirði fá fasta Vinnu
við vélasamsetninguna, en í haust
munu 3—4 menn frá Qlafsfirði
fara til Appingedam í Hollandi til
þjálfunar fram á næsta vor en
síðan munu þeir koma heim um
svipað leyti og verksmiðjuhúsið á
að vera tilbúið. Þá er einnig
reiknað með að hollenzkur verk-
fræðingur komi með þeim og
dvelji i eitt ár á Ólafsfirði, meðan
verið er að koma framleiðslunni
yfir byrjunarörðugleikana.
„Við munum flytja inn í pörtum
stærstan hlutann af því sem í
vélarnar fer og ef þokkalegur
vinnuhraði næst, “ sagði Þor-
steinn i spjalli við Mbl., „munum
við ná talsverðri lækkun á þess-
Framhald á bls. 18
ICECAN er
kominn i lag
Srotlice um helgina?
VIÐGERÐ á Icecan lauk f gær-
morgun samkvæmt upplýsingum
Sigurðar Þorkelssonar forstjóra
sfmatæknideildar. „Við tjöldum
því sem til er núna,“ sagði hann,
„með lánslinunum frá Varnarlið-
inu og i gegnum Scotice höfum
við nú tvær tallínur til London og
eina auka telexrás. Það er reiknað
með að viðgerðarskip verði komið
að Scotice í kvöld og það má því
búast við eðlilegu sambandi á ný í
fyrsta lagi á sunnudag."