Morgunblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK
142. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 3. JULÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ali með
blóðtappa
Los Angeles, Kalifornfu,
2. júlf — Reufer.
MUHAMMAD AIi, heims-
meistari í hnefafeik, þunga-
vigfar, liggur nú I St. Joseph’s
sjúkrahúsinu f Santa Monica I
Kalifornfu vegna innvortis
meiðsla f fðtleggjum eftir
keppnina við japanska glfmu-
kónginn Antonio Inoki f fyrri
viku. Er AIi allur marinn á
leggjunum, og segja læknar að
hann sé með blóðtappa og
innblæðingu, auk þess sem
æðar hafi slitnað.
Ali lætur krankleikann ekki
á sig fá, og sagði hann við
blaðamenn í dag að sjúk-
dómurinn kæmi ekki f veg
fyrir keppni hans við Ken
Norton f september, eins og
fyrirhugað er. „Ekkert getur
orðið til þess að fresta keppn-
inni við Norton,” sagði Ali.
„Ég er ólmur f að berjast við
hann. Svo eyðilegg ég
(George) Foreman, og sfðan
dreg ég mig f hlé“.
Þegar AIi keppti við Inoki f
Japan í fyrri viku, gerði
Japaninn mikið af því að
liggja á bakinu á gólfinu og
sparka í fótleggi AIis. Hafa
meiðslin orðið meiri en f
fyrstu var talið.
Sprenging í
lögreglustöð
25 fórust,
30 særðir
Buenos Aires, 2. júlí
— Reuter,
25 LÖGREGLUMENN tórust og 30
særðust þegar öflug sprengja sprakk
I öryggisdeild rikislögreglunnar i
Buenos Aires i Argentinu i dag.
Sprengjan sprakk i matsal stofnunar-
innar þegar um 100 lögreglumenn
voru að snæða hádegisverð.
Jorge Saullo lögregluforingi var á
leið til matsalarins þegar sprengjan
sprakk. Hann sagði við fréttamenn:
„Það var ógurleg ringulreið á öllu;
hróp, reykur og blóð út um allt. Það
hljóta að hafa verið um 150 manns
þarna inni að meðtöldu þjónustufólki
og gestum." Sagðist Saullo reikna
með að sumir þeirra sem særðust
ættu skammt ólifað, þvi þeir væru
ilta slasaðir.
Öryggisdeild rikislögreglunnar er i
næsta húsi við aðallögreglustöðina i
Buenos Aires, og eru þessi tvö hús
jafnan undir ströngu eftirliti, og er
sagt að þeirra sé betur gætt en
nokkurra annarra húsa i borginni.
Engu að siður hefur tekizt að koma
plastprengju fyrir í matsalnum.
Sprengingin varð aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að tilkynnt var
að 17 vinstrisinnaðir skæruliðar
hefðu verið felldir i átökum við sveit
hermanna i einu úthverfa borgarinn-
ar. Öryggisdeildin hefur meðal ann-
ars það verkefni að yfirheyra skæru-
liða þá, sem handteknir eru.
Gffurlegir hitar eru nú f Evrópu og er allt að skrælna úr þurrki. A
myndinni er slökkviliðið f Amsterdam, HoIIandi að sprauta vatni á
trjágróður á einu af aðaltorgum borgarinnar. AP-mynd.
Vatnsskömmtun undirbúin í Englandi
Neyðarráðstafanir stjórnarinnar
vegna langvarandi þurrka og hita
London, 2. júlf — AP
BREZKA rfkisstjórnin hefur
farið þess á leit við þingið að það
veiti henni vald til að hafa stjórn
á vatnsnotkun f landinu, en mjög
hefur gengið á vatnsbirgðirnar
eftir margra mánaða þurrka og
hita.
Umsókn þessi kemur fram i
stjórnarfrumvarpi, sem lagt var
fyrir Neðri málstofuna i dag,
föstudag. Verði frumvarpið sam-
þykkt eins og vænta má, fær
stjórnin heimild til að fyrirskipa
vatnsskömmtun á þeim svæðum,
sem harðast hafa orðið úti, en það
eru aðaljega suður- austur- og
suðvesturhéruð landsins. Þá gæti
ríkisstjórnin einnig bannað alla
ónauðsynlega vatnsnotkun, eins
og til vökvunar garóa, bílaþvotta
og fleira.
John Silkin skipulagsmálaráð-
herra sagði við fréttamenn þegar
frumvarp stjórnarinnar var lagt
fram: „Ég vil ekki ýkja vanda-
málið en yfirborð vatna og fljóta
hefur lækkað óeðlilega mikið, og
það veldur óvissu um framtíðina.
Með tilliti til þess er rétt að vera
við því búin að mæta hugsanleg-
um erfiðleikum siðar á árinu.“
Landbúnaðarsérfræóingar hafa
sagt að full áhrif þurrkanna komi
ekki i ljós fyrr en um uppskeru-
leytið í haust. Undanfarnir 14
mánuðir hafa verið þeir heitustu
og þurrustu í Bretlandi frá því
mælingar hófust fyrir 249 árum
að sögn brezku veðurstofunnar. I
suð-austurhéruðunum, kornbúri
þjóðarinnar, hefur úrkoman það
sem af er þessu ári aðeins mælzt
12,7 sentimetrar í allt, en til
samanburðar má benda á að i
janúarmánuði einum i fyrra
mældist úrkoman 15,25 senti-
metrar.
Búizt er við að afgreiðslu frum-
varps ríkisstjórnarinnar verði
hraðað í báðum deildum þingsins,
og sennilega verður það sam-
þykkt innan hálfsmánaðar.
Sveitarstjórnir víða i suður-
sveitum Englands hafa varað
íbúana við of mikilli vatnsnotkun,
og segja að verði ekki farið spar-
lega með það geti vatnsbólin
tæmzt á nokkrum dögum.
Nugent lávarður formaður
nefndar þeirrar, sem hefur yfir-
umsjón með öllum vatnsveitum
landsins, lýsti ánægju sinni yfir
frumvarpi ríkisstjórnarinnar í
dag, en sagði: „Það verður erfitt
að láta birgðirnar endast til
hausts. Ef til vill komumst við hjá
skömmtun ef aðgát er höfð. Við
verðum að fara sparlega með
hvern dropa."
Svipaða sögu er að segja úr
flestum löndum á meginlandi
Evrópu, og vökvun garóa og
önnur ónauðsynleg vatnsnotkun
hefur þegar verið bönnuð í ýms-
um héruðum Hollands, Sviss,
Noregs, Frakklands, Danmerkur
og Ungverjalands. Þá hefur verið
tilkynnt að strangara eftirlit eða
skömmtun verði tekin upp viða í
Evrópu ef þurrkarnir halda
áfram og ekki fer að rigna. í
Frakklandi hefur Valery Giscard
Framhald á bls. 31.
Gíslarnir grétu þegar
égför
Kampala og Port Louis, 2.JÚIÍ —AP,
Reuter.
ENN sitja 110 tnanns f gíslingu á
Entebbe-flugvelli I Uganda — 12
manna áhöfn frönsku breiðþot-
unnar, sem palestinskir skærulið-
ar rændu yfir Grikklandi á
sunnudag, og 98 Gyðingar, sem
með þotunni voru, en 148 aðrir
farþegar eru komnir til Parfsar.
Voru þeir leystir úr gfslingu í
gær.
Idi Amin, sem verij) hefur milli-
göngumaður milli'' flugræningj-
anna og fulltrúa þeirra rikja, sem
ræningjarnir krefjast að láti
segir Idi
Amin
lausa skæruliða, er þar gista i
fangelsum, hefur nú hætt ifiilli-
göndunni. Hann för frá Uganda i
dag flugleiðis til Port Louis á
Mauritius, þar sem haldin er ráð-
stefna Einingarsamtaka Afriku,
OAS. Hefur Amin verið forseti
þeirra samtaka undanfarið ár, en
lætur af því embætti þvi forseta-
embættið er jafnan skipað full-
trúa þess lands, sem ársþing sam-
takanna er haldið í.
Flugræningjarnir krefjast þess
að alls verði 53 skæruliðar og
skemmdarverkamenn látnir laus-
ir. Eru 40 þeirra í haldi i ísrael,
sex í Vestur-Þýzkalandi, fimm i
Kenya, einn i Frakklandi og einn
í Sviss. Israelsstjórn, sem fram til
þessa hefur jafnan neitað að
semja við flugræningja, hefur nú
skipt um skoðun og reynir að
semja við þá með milligöngu
franskra yfirvalda. Hvilir mikil
leynd yfir þeim samningaumleit-
unum, en israelska stjórnin hefur
Framhaíd á bls. 31.
Byltingin kæfð
í Súdan
Kaíró, 2. júlí — AP, Reuter.
FYRIR dögun í morgun hófu sveitir
úr Súdansher tilraun til byltingar, og
var barizt af hörku fram eftir degi,
aðallega í höfuðborginni Khartoum.
12 klukkustundum eftir að tilraunin
var gerð tilkynnti ríkisstjórnin að
byltingin hefði verið bæld niður, og
að hersveitir tryggar Nemery forseta
landsins hefðu yfirbugað byltingar
menn.
Jaafir al-Nemery forseti var rétt ný-
kominn heim til Súdan að loknu
þriggja vikna ferðalagi til Bandarikj-
anna og Frakklands þegar byltingin
hófst. Fréttir bárust seint af atburðun-
um, því útvarpsstöðvar landsins
þögnuðu. Þegar útvarp hófst á ný
Stjórnar-
kreppa á
Spáni
Madrid, 2. júlí
— AP, Reuter.
SAUTJÁN manna nefnd ráðgjafa
Spánarkonungs kom saman til
fundar f Madrid í dag til að ræða
tillögur um nýjan forsætisráð-
herra eftir að Carlos Arias
Navarro fékk lausn frá embætti í
Framhald á bls. 31.
undir kvöldið með tilkynningu rikis
stjórnarinnar um að byltingartilraunin
hefði verið kæfð, var aðeins sagt að
..sveitir vopnaðra manna" hefðu staðið
að tilrauninni, og að barizt hefði verið á
götum höfuðborgarinnar í margar
klukkustundir. Er þetta þriðja tilraunin,
sem gerð hefur verið til að steypa
Nemery forseta af stóli á sjö ára valda
ferli hans.
Stundarfjórðungi áður en byltingir:
hófst hafði Nemery forseti lent á flug
vellinum við Khartoum, og þangað
bárust honum upplýsingar um atburð-
ina í höfuðborginni. Hélt hann þá þeg-
ar til borgarinnar, og að sögn útvarps-
ins þar tók hann strax við yfirumsjón
gagnaðgerða
Nemery komst til valda með
byltingu, sem hann stóð fyrir í mai
1969 Rúmum tveimur árum síðar, í
júlí 1971, gerðu kommúniskir yfir
menn i hernum tilraun til að steypa
honum af stóli Tókst þeim að hand-
taka Nemery, og héldu honum i þrjá
sólarhringa. eða þar til hersveitum for
setans tókst að leysa hann úr haldi. Lét
Nemery þá taka 14 menn af lifi fyrir
tilræðið Önnur og verr skipulögð til
raun til byltingar var gerð í september í
fyrra, en byltingin var kæfð á tveimur
tímum Þá lét Nemery taka 1 5 manns
af lífi.