Morgunblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JULl 1976
3
Félag einstæðra
foreldra kaupir hús
FÉLAG einstæðra foreldra vinn-
ur nú að því að kaupa húseignina
Skeljanes 6 C Skerjafirði og sam-
kvæmt upplýsingum formanns fé-
lagsins, Jóhönnu Krist jónsdóttur,
verður gengið frá húskaupunum
eftir helgina. Hefur félagið að
sögn Jóhönnu notið mjög vinsam-
legrar fyrirgreiðslu frá hendi
Reykjavfkurborgar I sambandi
við þessi kaup.
Ástæðan fyrir því að Félag ein-
stæðra foreldra kaupir þetta hús,
sagði Jóhanna að væri vegna þess
að félaginu hefði verið lofað lóð í
öðrum áfanga að byggð í Eiðis-
granda. Öllu skipulagi þar og
framkvæmdum hefur seinkað
mjög m.a. vegna ágreinings milli
Reykjavíkur og Seltjarnarnes-
Harður árekstur
og fjórir slasaðir
MJÖG harður árekstur varð
klukkan 16,15 við gatnamót
Höfðabakka og Vesturlandsvegar
og voru ökumenn beggja bíla,
sem þar rákust saman, svo og
tveir farþegar í öðrum, fluttir f
slysadeild Borgarspftalans, en
áverkar fólksins reyndust ekki
alvarlegir. Annar bfllinn, sendi-
kaupstaðar. Þess vegna sá félagið
sér ekki annað fært en leggja út i
þessa fjárfestingu.
-1 húsi þessu verður svokölluð
neyðarþjónusta fyrir fólk, sem er
einstætt og á börn. Húsnæðis-
vandi þessa ákveðna þjóðfélags-
hóps er mikill, en þetta hús,
Skeljavegur 6, er stórt og gefur
ýmsa möguleika. 1 því eru 14 til
16 herbergi auk kjallara, þar sem
unnt verður t.d. að koma upp ein-
hverri aðstöðu fyrir börn, auk
þess sem félagið sjálft getur þar
fengið félagslega aðstöðu.
Nauðsynlegt mun verða að
framkvæma ýmsar endurbætur á
húsinu og viðgerðir. Er stefnt að
því að hefja þær sem fyrst, svo að
unnt verði að taka húsið í notkun
að einhverju leyti í haust.
ferðabfll, mun vera mjög mikið
skemmdur.
Tildrög slyssins voru þau, að
sandflutningabíl var ekið Höfða-
bakkann og út á Vesturlandsveg í
veg fyrir sendibifreið, sem var á
leið austur. Ökumaður sendi-
ferðabílsins beygði undan vöru-
bílnum og tókst honum að forðast
mestu hörkuna í árekstrinum, en
hliðar bilanna skullu þó saman.
Eins og áður sagði slösuðust báðir
ökumenn og tveir farþegar i
sendibílnum.
Mismunandi raforku-
verðshækkun á land-
inu — mest nyrðra
NÝLEGA var þess getið að
iðnaðarráðuneytið hefði heimilað
Rafmagnsveitu Reykjavfkur að
hækka gjaldskrá sína um 11%. 1
B-deild stjórnartfðinda er aug-
lýsing um hækkun raforkuverðs f
smásölu og eru þar tilfærðar
gjaldskrárhækkanir hjá hinum
ýmsu rafveitum og er heimiluð
hækkun allt frá 10% og upp f
20% eftir þvf hver rafveita á I
hlut.
Vatnsleysustrandarhrepps um
allt að 10%, Rafveitu Njarðvíkur
um allt að 10%, Rafveitu Sand-
gerðis um allt að 10%, Rafveitu
Grindavíkur um allt að 10%, Raf-
veitu Borgarness um allt að 12%,
Rafveitu Húsavíkur um allt að
15%, Rafveitu Akureyrar um allt
að 20%, Rafveitu Sauðárkróks
um allt að 20%, Rafveitu Isafjarð-
ar um allt að 11% og Rafveitu
Patreksfjarðar um allt að 11%.
Starfsmenn Landhelgisgæzlunnar ganga um borð f Ægi.
Land-
helgis-
gœzlan
50ára
f GÆR var öllum yfirmönnum
Landhelgisgæzlunnar og eigin-
konum þeirra boðið um borð í
varðskipið Ægi þar sem haldið
var upp á fimmtfu ára afmæli
Gæzlunnar. Þar komu saman á
þriðja hundrað manns, bæði
yfirmenn eins og fyrr sagði og
starfsmenn flugvéla, ásamt
nokkrum starfsmönnum í
landi. Ráðherrunum Geir Hall-
grfmssyni og Ólafi Jóhannes-
syni ásamt eiginkonum var
og boðið og flutti Ólafur
Jóhannesson ávarp, þar sem
hann óskaði starfsmönnum
Landhelgisgæzlunnar til ham-
ingju með daginn og þakkaði
fyrir vel unnin störf í þorska-
strfðinu. Hann lfkti þvi við
ævintýri hve stækkun fiskveiði-
landhelginnar hefði verið
mikil á sfðustu 25 árum og
sagði að nú hefði brautin verið
rudd, 200 mflur væru viður-
kennd staðreynd.
- y*■*
Sigurður Árnason skipherra tekur á móti Baldri MöIIer ráðune.vtis
stjóra og konu hans.
Ný fjölfræðibók AB:
Plönturíkið
Deilt um sölu Gás-
eyrar við Eyjafjörð
í auglýsingu ráðuneytisins seg-
ir, að samkvæmt heimild í Orku-
lögum nr. 58, 29. apríl 1967, hafi
ráðuneytið heimilað eftirtöldum
rafveitum að hækka smásöluverð
raforku samkvæmt núgildandi
gjaldskrá, frá og með 1. júli 1976:
Rafveitu Hafnarfjarðar um allt að
11%, Rafveitu Keflavikur um allt
að 10%, Rafveitu Gerðabæjar um
allt að 10%, Rafveitu Voga- og
Innlendir dagpen-
ingar 4.750 kr.
FERÐAKOSTNAÐARNEFND
hefur ákveðið dagpeninga fyrir
rfkisstarfsmenn, sem takast á
hendur ferðalög innanlands f
sambandi við vinnu sfna. Þurfi
ríkisstarfsmaður að kaupa gist-
ingu og fæði, fær hann á sólar-
hring 4.750 krónur. Til kaupa á
gistingu greiðist á sólarhring
1.750 krónur.
Til kaupa á fæði hvern heilan
dag, minnst 10 tíma ferðalag, eru
greiddar 3.000 krónur og til
kaupa á fæði i hálfan dag, minnst
6 tíma ferðalag, greiðast 1.500
krónur.
Aður hafði verið getið í Morg-
unblaðinu ákvörðunar ferða-
kostnaðarnefndar dagpeninga
fyrir ríkisstarfsmenn, sem ferðast
á vegum ríkisins erlendis, og jafn-
framt hafði verið skýrt frá
ákvörðun nefndarinnar um kiló-
metragjald.
JÚNf-BÓKlN f Bókaklúbbi AB
er sjötta Fjölfræðibók AB,
PLÖNTURfKIÐ eftir Ian Tribe í
þýðingu Jóns O. Edwalds lyfja-
fræðings. Bókin er eina rit sinnar
gerðar á fslenzkum bókamarkaði:
yfirlit yfir plönturíkið, allt frá
bakteríum til blómplantna. Hér
er plönturíkið kynnt á nýstár-
legan hátt frá ýmsum sjónarhorn-
um — fjallað um margvfslega
nytsemi plantnannaf-og um skað-
semi sumra þeirra.
Þessari bók er ætlað að leiða
tvennt í ljós: annars vegar fjöl-
breytnina í líkamsgerð innan líf-
veruhóps sem telur að minnsta
kosti 300.000 tegundir og hins
vegar hyersu plöntur hafa leyst
ýmis sömu undirstöðuvandamálin
á margvíslegan máta. Þessi við-
horf^ til plantnanna eru skoðuð
hvort fyrir sig í bókinni og er sinn
helmingurinn helgaður hvoru
efni.
„Plöntur njóta ekki verðugrar
athygli," segir höfundurinn í for-
Akureyri, 2. júlí —
NÝVERIÐ var gengið frá sölu á
svonefndri Gáseyri, sem er skiki
úr landi jarðarinnar Gása f Glæsi-
bæjarhreppi. Búið var að ganga
frá sölu á landi þessu til aðila á
Akureyri, en þá kom hrepps-
nefnd Glæsibæjarhrepps til skjal-
anna og taldi sig eiga forkaups-
rétt að þessu landi og var þá
kaupunum rift og keypti hrepps-’
mála bókarinnar. „Þegar frá eru
taldir áhugamenn um ræktun
garðagróðurs og skrautblóma
veitir almenningur þeim tak-
markaðan gaum og hlutur þeirra
er harla lítill ef miðað er við þann
órafjölda fróðleiksbóka og kvik-
mynda sem völ er á um dýrin.
Þetta misræmi má eflaust rekja
til þess að mannskepnan sjálf er
hluti dýraríkisins. Vonandi
verður þessi litla bók til þess að
draga eitthvað úr þessu mis-
ræmi."
Höfundurinn, dr. Ian Tribe, er
visindamaður og kennari við
Háskólann í Liverpool.
Plönturíkið er 159 blaðsíður og
prýdd fjölda litmynda. Setningu
annaðist Prentsmiðja G. Bene-
diktssonar. Prentun og band er
unnið hjá Arnoldo Mondadori i
Verona.
nefndin eyrina á 13 milljónir
króna, sem er margfalt Votmúla-
verð.
Hér er ekki um gróið land að
ræða, heldur berar sandeyrar.
Heyrzt hefur að hreppsnefndin
greiði 17% forvexti af eftirstöðv-
um kaupverðsins. Ekki er vitað
hvað hreppsnefndin hyggst gera
við land þetta, en möl hefur verið
seld úr þessari eyri. Þá má geta
þess að silungur veiðist við eyr-
ina. Ekki er vitað til að hrepps-
nefndin hafi leitað álits umbjóð-
enda sinna á kaupum þessum né
heldur borið þau undir sýslu-
nefnd, svo sem gert var um Vot-
múlann. Hinir upphaflegu kaup-
endur véfengja forkaupsrétt
hreppsnefndarinnar og hafa nú
höfðað mál til riftunar á kaupum
Athugasemd
I tilefni af frásögn Morgunblaðs-
ins í gær af kjaramálum opin-
bera starfsmanna hefur Guð-
mundur Skaftason tjáð blaðinu,
að hann kannist ekki við i simtali
við blaðamann að hafa látið í ljós
nokkra skoðun á málflutningi
aðila að málunum, hvorki aðildar-
félaga né fjármálaráðherra.