Morgunblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JULI 1976
5
FRA BORGARSTJÓRN:
Reikningar Reykjavíkurborgar 1975:
Hrein eign borgarinnar
jókst um 3 milljarða á árinu
Fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 1975 stóðst í
meginatriðum, sagði Birgir ísl. Gimnarsson borgarstjóri
Við fyrri umræðu reikn-
inga Reykjavíkurborgar
fyrir árið 1975, sem fram
fðr í borgarstjórn í fyrra-
dag, flutti borgarstjðri,
Birgir isleifur Gunnars-
son, greinargott yfirlit um
einstaka þætti ársreikn-
ingsins.
Þar kom fram að endurskoðuð
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar var samþykkt i borgarstjórn
17. apríl sl. Niðurstöður rekstrar-
gjalda vóru 4032 m.kr. og eigna-
breytingagjöld 1961.7 m. kr. og
samtala áætlunarinnar þvi 5.993.6
m. kr. Þá var gert ráð fyrir því að
áhrifi verðlags- og kaupgjalds-
hækkana á rekstur næmu 300 m.
kr., þar af 120 m. kr. vegna launa-
hækkana og 180 m. kr. vegna al-
mennra hækkana. Þessi áætlun
stóðst í meginatriðum.
TEKJUR
Tekjur vóru áætlaðar 5.993.6 m.
kr., en reyndust samkvæmt reikn-
ingi 6.343.7 m. kr. eða 5.8% hærri.
Hér er um að ræða bókfærðar en
ekki innborgaðar tekjur.
REKSTRARGJÖLD
Rekstrargjöld vóru áætluð
4.031.9 m. kr. en urðu 3.947.4 m.
kr. þ.e. 84.6 m. kr. undir áætlun
eða 2%. Gjaldahlið reikninga
borgarinnar ber með sér að hinir
einstöku gjaldaliðir reyndust
mjög nálægt áætlun, nema gatna-
gerð. Hún er 88 m. kr. undir áætl-
un, sem er nánast munurinn á
áætluðum og raungjöldum. Þann-
ig hefur áætlunin staðizt í megin-
atriðum. Þó varð að draga úr
framkvæmdum við gatnagerð
vegna greiðsluerfiðleika.
Yfirfærsla á eignabreytinga-
reikning var áætluð 1961.7 m. kr.
en reyndist 2.396.3 m. kr., eða 435
m. kr. umfram áætlun. Þessi mun-
ur stafar af 350 m. kr. hærri bók-
færðum tekjum og 85 m. kr. lægri
rekstrargjöldum.
Eins og fyrr segir urðu rekstr-
argjöld 2% undir áætlun, þrátt
fyrir verulega verðbólgu og meiri
launahækkanir, en gert hafði ver-
ið ráð fyrir.
EINSTAKIR
GJALDLIÐIR
Stjórn borgarinnar nam í heild-
arkostnaði 18.6%. nam 222.5 m. |
kr. Verður að telja þessa útkomu
allgóða þar sem laun og launa-
tengd gjöld hækkuðu almennt um
28 til 30% milli ára.
Brunamál stóðu nánast áætlun,
þrátt fyrir hækkaðan launakostn-
að.
Fræðslumál fóru 24 m. kr. fram
úr áætlun, en til þeirra var varið
785.5 m. kr. Mestur hluti umfram-
eyðslu kemur fram I liðun um
heilsugæzla í skólum og-rekstri
barna- og gagnfræðaskóla.
Listir, íþróttir og útivera er i
heild í áætlun, þótt misvisun sé á
einstaka liðum. Má þar til nefna
landgræðslu á Hólmsheiði, 8.5 m.
kr., sem fært var undir þennan
lið, en hér var um brýnt verkefni
að ræða, varðveizlu lands og
landsgæða, er auk þess skapaði
mörgum unglingum atvinnu yfir
sumartimann.
Heilbrigðis- og hreinlætismál
reyndust 44 m. kr. eða 11% undir
áætlun. Þessi munur kemur nær
allur fram á hreinlætismálum og
að hluta talinn ávöxtur ákvæðis-
kerfis við sorphreinsun.
Félagsmál tóku til sin 940.6 m.
kr. sem er 4.3 m. kr. umfram
áætlun, sem telja verður óveru-
legt. Reksturskostnaður vistheim-
ila fór nokkuð fram úr áætlun.
Tvö ný heimili tóku til starfa á
árinu, þ.e. dagvistun drykkju-
manna og gistiheimili kvenna.
Fasteignir. Reksturskostnaður
varð nokkuð hærri en leigutekj-
ur, sem eðlilegt væri, að stæðu
undir rekstri. Verðstöðvun og
verðlagsákvæði hafa komið í veg
fyrir að það tækist.
Gatnagerð. Borgarstjóri rakti
sundurliðaðar framkvæmdir
borgarinnar við gatnagerð, sem í
heild vóru nokkuð undir áætlun.
0 1 árslok 1975 vóru malbikaðar
götur í borginni 217.3 km en
ómalbikaðar götur 34.1 km, þar af
eru 19.3 km bráðabirgðagötur,
sem eiga að leggjast niður skv.
skipulagi.
0 Á árinu vóru malbikaðar 7.6
km gatna, eða 62.533 ferm. Malar-
götur, sem eftir er að malbika,
eru 14.8 km en vóru árið áður 14.9
km eða 5.9%.
• Gangstéttarframkvæmdir
urðu mestar f Breiðholti. AHs
vóru steyptir eða malbikaðir
16.045 fcrm af gangstéttum og
stfgum.
• Holræsaframkvæmdir urðu
langmestar í nýju hverfunum, að-
allega f Breiðholti II. Skildinga-
neshverfi, við Hafnarfj.veg, Nóa-
tún, f Vatnagörðum og Elliðaár-
vogi. Samanlögð lengd holræsa i
árslok nam 336.5 km, þar af lögð
1975 12.4 km.
BORGARSTOFNANIR
Borgarstjóri rakti siðan afkomu
einstakra borgarstofnana: Á-
haldahúss, Vélamiðstöðvar, Mal-
bikunarstöðvar, Grjótnáms, Pípu-
gerðar, Byggingarsjóðs, Húsa-
trygginga, Vatnsveitu, Rafmagns-
veitu, Hitaveitu, Reykjavikur-
hafnar, Bæjarútgerðar Reykja-
víkur og Strætisvagna Reykjavík-
ur. Rúm blaðsins leyfir ekki að
þær niðurstöður séu raktar að
þessu sinni, utan þess að geta
þess, hvar erfiðleikarnir eru
mestir. Rekstrartap BÚR nam
111.7 m. kr. (afskrf. 61.0 m. kr.).
Gjöld umfram tekjur hjá SVR
námu 205 m. kr. eða 42% af veltu,
en sama hlutfall 1974 var 48%.
Framlag borgarsjóðs á árinu nam
370 m. kr., er notað var til rekstr-
ar- og vagnkaupa.
LOKAORÐ
BORGARSTJÖRA
Að siðustu sagði Borgar-
stjóri: „Eins og ég benti á i upp-
hafi máls míns er nú í fyrsta
skiþti birt i reikningum borgar-
innar samandregið yfirlit yfir
eignir og skuldir borgarsjóðs og
fyrirtækja hans í árslok. Segja
má, að hér komi fjárhagsstaða
Reykjavíkurborgar skýrast fram,
og mun ég því fara nokkrum orð-
um um einstaka liði yfirlitsins.
Handbært fé i bönkum og sjóð-
um nam um áramót 118.6 m. kr.,
og er það álíka upphæð og árið
áður. Þegar haft er í huga, að hér
er um að ræða fé, sem notað er til
að greiða daglegan reksturskostn-
að, og að launagjöldin ein námu á
fimmta milljarð á árinu 1975, er
auðséð, að vandasamt er að stýra
fjármálunum þannig, að hvorki sé
of eða van. Óþarflega mikið hand-
bært fé hefur i för með sér vaxta
tap, en skortur þess vaxtakostnað
úr hófi fram, ef lán e,ru ekki fáan-
leg án íþyngjandi Vaxta. í rekstri
sveitarfélags líkt og í rekstri fyr-
irtækja er stöðugt glímt við þessi
vandamál. Einkennandi fyrir
rekstur islenzkra sveitarfélaga er,
að tekju- og gjaldastraumarnir
falla illa saman. Framkvæmdir
hljóta alltaf að vera í háinarki
yfir sumartimann, en einmitt þá
Birgir tsl. Gunnarsson borgar-
stjóri.
mánuði eru tekjurnar minnstar.
Með góðri aðstoð viðskiptabanka
borgarinnar, Landsbanka Islands,
og hliðrun framkvæmda tókst að
halda greiðslustöðu borgarinnar í
viðunandi horfi á árinu 1975,
þrátt fyrir erfiðari innheimtu en
oft áður.
Aukning eftirstöðva gjalda er
bein afleiðing tregari innheimtu
og var 1.8 milljarður þannig
bundinn um áramót og hafði auk-
izt um 560 m. kr. á árinu, sem er
verulega meira, en áætlað hafði
verið, og er hér um að ræða helztu
skýringu þess, að ekki tókst að
standa við framkvæmdaáætlun að
fullu. Liðurinn skuldunautar
hefur aukizt um 1.2 milljarða á
árinu, og hef ég fyrr í ræðu minni
útskýrt ástæður þess nokkuó.
Birgðir eru að verðmæti um 1
miiljarður og hafa aukizt um 370
milijónir á árinu, og er þar að
verulegu leyti um að ræða aukn-
ingu á efnisbirgðum Hitaveitu
vegna framkvæmdanna í grann-
sveitarfélögum.
Veltufjármunir hafa i heild
aukizt um 65% frá fyrra ári og
nema 5.5 milljörðum. Samanburð-
ur við skammtímaskuldir, sem
námu 1.7 milljarði, sýnir, að
greiðsluhæfni borgarinnar og
fyrirtækjanna í heild er því
nægjanleg og raunar langt
umfram það. Fastafjármunir
nema nú 20.7 milljörðum og hafa
aukizt um 3.2 milljarða á árinu.
Langmestur hluti þessarar aukn-
ingar stafar frá stækkun veitu-
kerfis Hitaveitunnar. Rétt er að
vekja athygli á, að nokkurs mis-
ræmis gætir í uppfærslu fast-
eigna til eignar. í flestum tilfell-
um eru fasteignir bókfærðar á
fasteignamatsverði, en í öðrum
tilfellum er notað kaupverð með
eða án afskrifta. Telja verður því
raunverulegt verðmæti nokkru
hærra en fram kemur í yfirlitinu.
Liðurinn „lóðir og lönd“ sýnir
hins vegar allar lóðir á matsverði.
Til mótvægis hækkunar
erlendra langtima-skulda vegna
gengislækkana er sýndur í yfirlit-
inu eignfærður gengismunur að
upphæð 785 m. kr„ en hann verð-
ur afskrifaður um leið og lán
greiðast niður. Gengistap Hita-
veitu s.l. tvö ár, sem nemur um
840 m. kr„ er talið með fastafjár-
munum, þar eð veitukerfi Hita-
veitunnar er endurmetið árlega
og afskrifast því gengismunurin í
jafnhliða kerfinu sjálfu.
Yfirlitið sýnir, að langtím; -
skuldir nema um 7 milljörðun ,
þar af eru rúmir 5 milljarðar ei-
lent lánsfé. Stærsta hluta þess a
fjár hefur verið aflað til stækL-
unar veitukerfa Rafmagnsveit í
og Hitaveitu, og eru skuldir þes: -
ar sýndar i reikningum þessar i
fyrirtækja. Framkvæmdir Ra -
magnsveitu og Hitaveitu koma t I
góða bæði Reykvíkingum o;
þjóðarbúinu ' í heild, en þes: i
mikla erlenda skuldsetning geri •
fyrirtækin mjög viðkvæm fyri ■
brotsjóunum, sem yfir haf i
gengið i íslenzku efnahagslifi, o;
verður því ætíð að vera vel á
verði, ef tryggja á fjárhagslegt
sjálfstæði.
Hrein eign borgarinnar og
fyrirtækja hennar nemur nú 18.3
milljörðum og jókst um 3.1 millj-
arð á árinu.
Eftir framsöguræðu borgar-
stjóra, Birgis ísleifs
Gunnarssonar, tók Sigurjón
Pétursson (ABL) til máls. Hann
átaldi mjög harðlega að skýrsla
endurskoðunardeildar Reykja-
víkurborgar hefói ekki legið
frammi um leið og reikningar
borgarinnar. Þá væri ekki boðlegt
að reikningar Reykjavíkurborgar
bærust borgarfulltrúum í hendur
aðeins tveim dögum fyrir fund í
borgarstjórn. Sigurjón sagði að
nú væru bókfærðir margir liðir
sem ekki hefðu verið bókfærðir
áður og hljóðuðu þeir upp á tugi
milljóna. Hlutverk endurskoð-
unardeildarinnar væri að veita
aðhald i slíku, því liðir sem þessir
kæmu einkennilega fyrir sjónir.
Hins vegar sagðist hann nú sjá
að auðvelt væri að láta áætlanir
standast þegar ekki væru kosn-
ingar. Þessir reikningar bæru
með sér að áætlun hefði nokkurn
vegin verið fylgt þó undantekn-
ingar væru þar á. Sigurjón sagði
að viðhaldskostnaður væri mjög
hár, ennfremur varzla borgar-
landsins og stjórnun borgarinnar.
Björgvin Guðmundsson (A)
sagði að Reykvikingar bæru enn á
herðum sér kosningavíxil Sjálf-
stæðisflokksins frá 1974 og hefði
hann nú hækkað úr 600 milljón-
um í 690 milljónir. Björgvin sagði
að áberandi væri hversu mjög
fjárhagsáætlun borgarinnar hefði
Framhald á bls. 25
y 0000
EIGENDUR
Volkswagen-, Golf-, Passat- og Audi
Verkstæði okkar verður lokað vegna
sumarleyfa frá 12. júlí til 11. ágúst.
Þeir, sem þurfa 1000 km uppherslu og skoöun
á nýjum bílum, hafi samband viö söludeild okkar.
Símar: 21240 og 11276.
Viljum vekja athygli viöskiptavina okkar á því,
aö eftirtalin Volkswagenviögeröarverkstæöi verða
opin á þessum tíma: Bílaverkstæði Jónasar,
Ármúla 28, sími 81315 og Vélvagn, bílaverkstæði,
Borgarholtsbraut 69, Kópavogi, sími 42285.
★ SMURSTÖÐ okkar verður opin eins og venjulega ★
HEKLA
ICrVLM HF.
Laugavegi 170—172 — Slmi 21240