Morgunblaðið - 03.07.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JULl 1976
Tvísýnir leikir um helgina
þótt toppliðin mætist ekki
NÚ UM helgina fara fram fjórir leikir
í 1. deildar keppni íslandsmótsins í
knattspyrnu, og þrír (eikir í 2. deildar
keppninni, auk fjölmargra leikja i 3.
deildar keppninni og i yngri aldurs-
flokkunum. Knattspyrnuáhugamenn
um land allt ættu þvi að fá nóg við
sitt hæfi um helgina, jafnvel þótt
tæpast sé hægt að tala um að þessi
umferð bjóði upp á leiki milli „topp-
liðanna".
Einn leikur fer fram í 1 deildinni í
dag og hefst hann kl 14.30 á Akra-
nesi Eru það FH ingar sem fara þang
að í heimsókn, og má búast við tvísýn-
um leik Staða þessara liða í deildinni
er- reyndar nokkuð misjöfn Akurnes
ingar eru nálægt toppnum, en FH
ingar við botninn, en Akurnesingar
hafa jafnan átt í erfiðleikum með FH
inga og nægir að nefna úrslitin í leik
liðanna í fyrri umferðinni, en þá varð
markalaust jafntefli
Tveir leikir fara fram annað kvöld, og
hefjast þeir báðir kl 20 00 í Keflavík
leika Í^K og Þróttur og á Laugardals
vellinum leika Valur og UBK. í Keflavík
má búast við miklum baráttuieik
Keflavíkurliðið virkar ekki sannfærandi
um þessar mundir, og vist er að Þrótt-
ur, sem nú er neðsta liðið i 1 deild.
ætti að geta velgt því verulega undir
uggum. Þróttararnir hafa nú stigið yfir
erfiðan þröskuld — að fá sitt fyrsta
stig i deildinni — og þeir verða að
berjast harðri baráttu ef þeir ætla að
forðast fallið Fyrri leik liðanna, sem
fram fór á Laugardalsvellinum, lyktaði
með sigri ÍBK, 2— 1
Líklegt verður hins vegar að teljast
að Valsmenn hafi betur í viðureign
sinni við Breiðabliksmenn á Laugar-
dalsvellinum Fyrri leik liðanna, i Kópa
vogi, lauk með sigri Valsmanna 4—2,
og enn er Valur eina liðið í 1 deild
sem ekki hefur tapað leik og er ekki
sennilegt að Breiðablik verði fyrst til
þess að leggja Valsmenn i sumar
Á mánudagskvöld kl 20.00 leika
svo KR og Fram á Laugardalsvellinum
Leik liðanna i fyrri umferð lauk með
jafntefli, 1 — 1, og búast má við jöfn-
um leik einnig að þessu sinni
2. deild
Emn leikur fór fram i 2 deild i
gærkvöldi og áttust þá við lið ÍBÍ og
Völsunga í dag verða þrir leikir Kl
1 6 00 leika Haukar og ÍBV i Hafnar-
firði, kl 1 4 00 leika Reynir og Ármann
á Árskógsstrandarvelli og kl 16 00
leika Selfoss og Þór á Selfossvellinum
Hel/ta spurningin i sambandi við 2.
ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU
STAÐAN í 1. deildinni f knatt-
spyrnu er nú þessi:
Valur 8 6 2 0 28:6 14
VIkingur9 6 1 2 12:8 13
Fram 9 5 2 2 11:9 12
Akranes 8 5 12 12:10 11
KR 9 2 4 3 12:10 8
UBK 8 3 1 4 8:11 7
ÍBK 9 3 15 13:14 7
FH 9 1 3 5 5:16 5
Þróttur 9 0 1 8 5:22 1
Markhæstir f 1. deildinni eru
eftirtaldir:
Guðmundur Þorbjörnsson Val9
Hermann Gunnarsson Val 9
Ingi Björn Albertsson Val 6
Teitur Þórðarson í A 6
Hinrik Þórhallsson UBK 4
Jóhann Torfason KR 4
Björn Pétursson KR 3
Ólafur Júliússon ÍBK 3
Sigþór Ómarsson ÍA 3
Í einkunnagjöf blaðamanna
Morgunblaðsins hafa eftirtald-
ir leikmenn fengið flest stig,
leikjafjöldi f svigum:
Karl Þórðarson, ÍA 26(8)
Ásgeir Elíasson, Fram 25(9)
Einar Þórhallsson, IIBK 23 (8)
Hermann Gunnarss Val 23(8)
Ottó Guðmundsson KR 23 (9)
Einar Gunnarsson, ÍBK 22(91
Guðmundur Þorbjörnsson,
Val 22 (8)
Magnús Bergs, Val 22(8)
Atli Eðvaldsson, Val 21(8)
Diðrik Ólafsson, Víking 21(9)
Eiríkur Þorsteinss. V. 21(9)
Helgi Helgason, Víking 21(8)
JónPétursson, Fram 21(9)
Óskar Tómasson, Víking 21 (9)
Árni Stefánsson, Fram 20(8)
Jón Gunnlaugsson, ÍA 20 (8)
Olafur Ranivalsson, FH 20 (9)
Magnús Guðnfundss. KR 20 (9)
Karl Þórðarson — stighæstur f
einkunnagjöf Morgunblaðsins.
Marteinn Geirsson, Fram20 (9)
Sigurður Indriðason, KR 20 (8)
II deild
Staðan f 2. deild islandsmóts-
ins f knattspyrnu er þessi:
ÍBV 7 7 0 0 26-5 14
Þór 7 4 2 1 14-6 10
Haukar 7 3 2 2 17-13 8
Armann 7 3 2 2 11-8 8
KA 8 3 2 3 17-18 8
ÍBl 7 2 3 2 9-10 7
Völsungur7 1 2 4 5-10 4
Selfoss 7 115 12-24 3
Reynir 7 1 0 6 9-27 2
Markhæstir
Markhæstir f 2. deildar
keppninni eru eftirtaldir:
Gunnar Blöndal, KA 8
Örn Óskarsson, ÍBV 8
Tómas Pálsson, ÍBV 7
Jón Lárusson, Þór 6
Loftur Eyjólfsson, Haukum . 5
Sigurlás Þorleifsson, ÍBV 4
LYMPIULEIKAR
deildar leikina er sú hvort Haukar
megna að stöðva sigurgöngu Eyja-
manna sem verið hefur óslitin í 2.
deildar keppninni i sumar
3. deild
Eftirtaldir leikir í 3. deild fara fram
um helgina:
Laugardagur
Varmárvöllur: Afturelding — Bolung-
arvík kl 1 6 00
Sandqerðisvöllur Reynir — Grettir kl
16 00
Grundarfjörður Grundarfjörður —
HSS kl. 16 00
Ólafsvík Víkingur — Skallagrímur kl
16 00
Stykkishólmur Snæfell — USVH kl
16 00
Sauðárkrókur: UMSS — KS kl. 1 6 00
Blönduós: USAH — Árroðinn kl
16 00
Vopnafjörður Einherji — Valur kl
16 00
Neskaupstaður Þróttur — Huqinn kl.
16 00
Eskifjörður Austri — KSH kl. 1 6 00
Sunnudagur:
Þorlákshöfn. Þór *— Hekla kl. 20.00
Fellavöllur: Leiknir Grettir kl
14 00
Njarðvík Njarðvik — Grótta
Grenivík Magni — Leifur
Mánudagur:
Grindavík: Grindavík — Fylkir kl
20 00
Garðsvöílur: Víðir — Stjárnan kl
20 00
Þá fara fram á morgun tveir leikir í
1 deild kvenna Fram og Víðir leika á
Framvellinum kl 14 00 og FH og
UBK leika á Kaplakrikavelli kl 1 4 00
KUBA TEKUR
SÆTI URUGUAY
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Kúbu-
menn taki þátt i lokakeppni
knattspyrnunnar á Ólympíu-
leikunum í Kanada í stað Urú-
guay, en Uruguay-menn lentu í
útistöðum við framkvæmdanefnd
keppninnar og alþjóða knatt-
spyrnusambandsins. Kúba leikur
í riðli C með Póllandi íran og
Nígeríu og mun leika fyrsta
knattspyrnuleik keppninnar við
Pólland. Fer sá leikur fram á
Ólympíuleikvanginum í Montreal
18. júli.
ALLIR BEZTU MEÐ
í KALOTTKEPPNINNI
ALLT bezta frjálsfþróttafólk landsins verður meðal keppenda í
Kalott-keppninni sem fram fer á Laugardalsvellinum n.k.
þriðjudag og miðvikudag. Allt fram til þessa hefur margt af
bezta frjálsfþróttafólki landsins dvalizt erlendis við æfingar og
keppni, en það mun allt koma heim nú fyrir eða um helgina til
þess að taka þátt f keppninni. Má þar nefna Agúst Asgeirsson,
Sigfús Jónsson, Vilmund Vilhjálmsson, Óskar Jakobsson og
Lilju Guðmundsdóttur.
Stjórn Frjálsfþróttasambands tslands hefur gengið endanlega
frá vali fslenzka landsliðsins f Kalott-keppninni, og verður það
skipað 17 stúlkum og 24 karlmönnum. Er þetta fjölmennasta
landslið sem Island hefur til þessa teflt fram f frjálsfþrótta-
keppni.
Meðfylgjandi mynd er af tveimur af fslenzku landsliðs-
konunum, Ingunni Einarsdóttur og Marfu Guðjohnsen. Ingunn
gegnir mjög mikilvægu hlutverki í landskeppninni og keppir
hún alls í sex greinum: 100 metra hlaupi, 200 metra hlaupi, 400
metra hlaupi, 100 metra grindahlaupi og báðum boðhlaupunum.
Marfa keppir f langstökki og f boðhlaupi.
Hneisa hjá handknattleiksiandsliðinu
- TAPAÐI AFTUR FYRIR BANDARÍKJAMÖNNUM 20-22
íslenzka handknattleikslands-
liðið sem nú er í keppnisferðalagi
i Bandaríkjunum virðist vera
gjörsamlega heillum horfið, þar
sem það tapaði í fyrrinótt öðru
sinni fyrir bandaríska landsliðinu
á fáum dögum, að þessu sinni með
tveggja marka mun, 20—22, eftir
að Bandarikjamenn höfðu haft yf-
ir í hálfleik 12—9. Urslit í þessum
tveimur leikjum verða að skoðast
sem mjög alvarlegt áfall fyrir ís-
lenzkan handknattleik, þar sem
til þessa hefur verið næsta auð-
velt að ráða við Bandarfkjamenn i
þessari íþróttagrein og lslending-
ar oftast unnið landsleiki við þá
með miklum markamun. Er
greinilegt að hæpinn ávinningur
hefði verið að því að senda ís-
lenzka liðið í keppnisferð þessg,
þar sem tvö töp í röð fyrir Banda-
Zy 7p£VU-LION—AVAWAVX STUDIOS
fía/i /e12'+nTTt-
ni> HRt-M OLimP/J-
U-l></)r/A í fi/nSTé/l -
Dsi/n fív -
K/ÖíJLC/r/rJ t
flc/L/i£ D£ ,
COL/OCSKT/M (fA/lo*l
01 !//,/>( ZFT//1 /?a
e//J/n/rr bess//t
LCl/t/ie Ý/íffJ
hI/ILD///A. )
/t£//n/iL/)/iPt /M//S.
ne ej/irg/s/
OCr //OG l//f/t/)
Léro //ocLe//i>-
/a/ga/X tff/t/tó//-
J//// /tnfn
knsv/teJ/sm /i -
j'/4í-2>/d <oo-
■p/t/i’/s, se/Ti
T/*.//*. <//4L/-iO.
/////TOL7> OSOOA/I (u.s.e.) S/1///Í CJL-L- o G- S£TT/
OLy/nr/ J/ncr 't Tst/t /s /neri> n, £-<£/-<t s/'/Sd /
P4S ro'tse/ . íroVrf/é n’Jt/ST/ ■pb T>/F/L c/st y
senn l£/2>í>o 7-/L. TT///sst n l«?/*<u//u/n
ostso/t/J sro/Ln. /.c)9/r> oe- eoTnn s/’/rm ,
C/&//J m>ts/zt> g/J//<j/J sn/i m.e. pólæw /
■p//, es fUiFJ) t Lnn.£TT/t ( Sr£LL///SU UT/rt.
s Ln /V/í oe t/mcpA /--r-T-/ / G „ S
t/u// stvop/ sL/tz/A ee j/U// /e.TL/ns/
T>0/VA /IA/L////K
U*»U enW/
Sjun/nkte (//n
,//Uo/ir
oSconA /tereu
■K/J/Z JJT/t Ul ssa
s//ee.r SLÁ//A
/n£Q //€//£>/////!
ríkjamönnum koma örugglega til
með að spilla áliti íslenzks hand-
knattleiks út á við.
1 leiknum í fyrrinótt höfðu
Bandaríkjamenn betur frá upp-
hafi til enda. íslenzka liðið sýndi
álíka lélegan leik og það gerði í
fyrri leik sínum og var sama
hvort um var að ræða sókn eða
vörn.
Viðar Símonarson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari, skoraði flest
marka íslenzka liðsins, sex tals-
ins. Pálmi Pálmason skoraði einn-
ig 6 mörk, Ágúst Svavarsson skor-
aði 4, Þórarinn Ragnarsson 2,
Geir Hallsteinsson 1 og Steindór
Gunnarsson 1.
u
PEör SUPF0RT
fl P/JD/t/JU/r\ S£ttU AcþsofiLGG-
SA/nrcttL fl/ZdGA/r>/)/Z/vn //ý S/tA
fteolu/x eess (s2//s,jt» srAt/r-
fi/t/J/A, s£/y\ slA//J j/y'/LDj Á,
Sx/lþu yeAA /nrót/i o« tsst/a
tr/A/fij a rre/t <f ua/UA/z , óau/v/g
Ö9 SLAt/Z <7 £r/ FALL/J) /
UUo/tfl 'ATT///A íí/Tl UAA,
Y'/t/l/ t/U/t S//es>T.
BJARIMI FIMMTI
BJARNI Stefánsson, KR, varð í
fimmta sæti í 400 metra hlaupi
Bislet-mótsins i Ósló í fyrrakvöld og
hljóp á 49,0 sek., sekúndubroti betri
ttma en hann fékk á sama móti
kvöldið áður. Var hlaupið hjá Bjarna
í fyrrakvöld mjög svipað því sem
verið hafði fyrri keppnisdag hans.
Hann fylgdi fyrstu mönnum mjög vel
eftir til að byrja með en varð siðan
að gefa eftir í lokin. Tveir hlauparar
frá Trinidad urðu fyrstir á 46,5 sek.
og 46.7 sek., Lars Nielsen frá Dan-
mörku varð þriðji á 48,1 sek. og Jan
Torgersen frá Noregi varð fjórði á
49,0 sek.