Morgunblaðið - 03.07.1976, Side 32

Morgunblaðið - 03.07.1976, Side 32
AUGLÝSINGASÍMÍNN ER: 22480 JM«rguni>l«ttib AUGLÝSINGASÍMENN ER: 22480 JM«r0unii[at>ib LAUGARDAGUR 3. JULt 1976 11% út- svar ef óskað er Félagsmálaráðuneytið ákveður árlega svo sem kunnugt er, hvort sveitarfélög megi leggja á 11% útsvar eða hvort þau skuli leggja á 10%, svo sem kveðið er á um f skattalögunum. Hallgrímur Dal- berg, ráðuneytisstjóri, sagði í samtali við Mbl. í gær, að þau sveitarfélög, sem sótt hefðu um að leggja á 11%, hefðu fengið heimild til þess. Ekki var í gær handbær listi yfir þau sveitar- félög, sem þegar hafa fengið þessa heimild. Náttúruverndar- nefnd Eyjafjarð- ar klofnaði Akureyri, 2. júlí Á FUNDI náttúruverndarnefnd- ar Eyjafjarðar um málarnám í landi Möðruvalla, sem haldinn var í gær, klofnaði nefndin um málið. Minnihlutinn, sem var for- maður nefndarinnar, Ófeigur Ei- ríksson bæjarfógeti, vildi leyfa vegagerðinni malartökuna með skilyrðum, en meirihlutinn, Hjörtur Eldjárn og Helgi Hall- grímsson, neituðu og bentu Vegargerðinni á að halda áfram að taka möl sunnar á melunum, sem í reynd þýðir, að túnið á næsta bæ við Möðruvelli verður lagt undir malarnám. Ekki er vitað, hver næstu skref verða i máli þessu. — St. Eir. Miðbænum lokað Tveir íbyggnir persónuleikar. - Ljósm rax Verður gjald- eyrisskammt- urinn aukinn? EKKl er útilokað að yfirvöld muni fallast á einhverja rýmk- un á núgildandi gjaldeyrisregl- um I þá veru að auka gjald- eyrisskammtinn sem skemmti- ferðamenn fá til utanlands- ferða, að því er Björgvin Guð- mundsson, formaður gjald- eyrisnefndar, tjáði Morgun- blaðinu I gær, en sem kunnugt er hefur þessi skammtur verið óbreyttur allt frá 1964. Björg- vin tók hins vegar fram, að þarna væri fyrst og fremst um pólitíska ákvörðun að ræða og minnti á að viðskiptaráðherra hefði lýst þvf yfir, að ekki væri óhugsandi að einhverjar breyt- ingar yrðu gerðar á gjaldeyris- reglum. Aftur á móti lægi ekk- ert fyrir um það hvenær breyt- ing af þessu tagi tæki gildi, ef af henni yrði né heldur hversu slfk rýmkun kynni að verða mikil. Þá staðfesti Björgvin að fyrir dyrum stæðu viðræður milli Félags ísl. ferðaskrifstofa og gjaldeyrisyfirvalda um gjald- eyrisreglurnar. Björgvin dró í efa staðhæfingar um að unnt væri að bjóða kynnisferðir í ís- lenzkum krónum innan ramma núverandi gjaldeyrisreglna. Hann benti einnig á í þessu sambandi, að af hálfu forráða- Framhald á bls. 31. Tveimur sleppt — vegna Spánarmálsins FlKNIEFNADÓMSTÓLLINN hefur nú leyst úr gæzluvarðhaldi þá tvo menn, sem setið hafa inni undanfarið í tengslum við hass- smyglið frá Marokkó til Spánar fyrir skömmu. Var annar leystur úr gæzluvarðhaldi í fyrrinótt en hinn um miðjan dag í gær. Rann- sókn málsins er þó hvergi nærri lokið, að sögn fíkniefnalögregl- unnar, heldur verður áfram unn- ið að málinu. Hreinn varpaði 19.97 m HREINN Halldórsson, KR, setti glæsilegt Islandsmet á Ólympfumótinu sem fram fór á Laugardalsvellinum í gær- kvöldi. Varpaði hann 19,97 metra og bætti þvf eldra met sitt verulega, en það var 19,53 metrar, sett fyrr í sumar. Hreinn átti einnig annað kast f keppninni I gærkvöldi sem var lengra en gildandi Islandsmet, eða 19,63 metra. 1 upphitun- inni varpaði Hreinn svo tvíveg- is vel vfir 20 metra. Allgóður árangur náðist f fleiri greinum á Ólympfumótinu, en sagt verður nánar frá þvf sfðar. LÖGREGLAN hefur gert þær ráð- stafanir, að loka miðbænum á kvöldin fyrir allri umferð, nema menn geti fært rök fyrir því að þeir eigi erindi inn í Austurstræti og þær götur, sem verið hafa í svokölluðum ,,rúnti". Er þetta gert vegna þess að á þessum göt- um hefur verið stanzlaus straum- ur bíla og t.d. á Hótel Islands- lóðinni hafa menn setið og haft í frammi hávaða og alls kyns læti. Þá hefur og borið á talsverðum drykkjuskap á meðal fólks. Sendiráðið fær ekki að ræða einslega við Sævar Ciecielski SAKADÓMUR Reykjavfkur hef- ur hafnað beiðni ræðismanns bandarfska sendiráðsins um að hann fái að ræða einslega við einn sakborninga, Sævar Viðræðunum við Elkem lokið í bili VIÐRÆÐUR við Elkem Spiger- verket A/S, sem fram fara á veg- um iðnaðarráðuneytisins, ganga eðlilega að sögn Jóhannesar Nor- dals, sem er formaður íslenzku viðræðunefndarinnar. Þessum áfanga viðræðnanna, sem fram hefur farið f Reykjavfk að þessu sinni, er nú lokið og fara Norð- mennirnir utan f dag. Ekki hefur verið ákveðið um framhald við- Framhald á bls. 31. Ciecielski, í morðmáli Guðmund- ar Einarssonar, en Sævar situr f gæzluvarðhaldi vegna þessa máls, svo sem kunnugt er. Sævar Ciecielski verður 21 árs hinn 6. júlf og getur þá valið um, hvorn rfkisborgararéttinn hann vill, fslenzkan eða bandarfskan. Fyrsti sendiráðsritari sendiráðs Banda- rfkjanna sagði f gær, að sendiráð- ið stæði f viðræðum við utanrfkis- ráðuneytið vegna þessa máls, en Pétur Thorsteinsson, sendiherra sagði f gær að utanrfkisráðuneyt- ið gæti ekki breytt úrskurði dóm- stóla í málum sem þessum. Ræðismaður Bandaríkjanna, Charles Mirzevski, sem er starfs- maður bandaríska sendiráðsins, fór nýlega fram á að fá að ræða við Sævar á grundvelli þess að hann væri bandarískur rikis- borgari. Örn Höskuldsson, rannsóknardómari í þessu saka- máli, sem um ræðir, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að ræðis- manninum hefði ekki verið neitað Framhaid á bis. 31. Ný könnun á vöruverði: Minni verðmunur í þétt- býli og dreifbýli en ætlað var Einnig minni verðmunur nú milli hverfis- verzlana og stórverzlana en í fyrri könnun STARFSMENN verðlagsskrifstof- unnar hafa f annað sinn gert verð- könnun i verzlunum og er þessi könnun töluvert vfðtækari en hin fyrri, þar eð nú var kannað verð á 25 vörutegundum í 64 verzlunum vfðs vegar um land. Helztu niður- stöður þessarar könnunar eru þær, að nú virtist vera minni verðmunur milli hverfisverzlana og stórmarkaðanna en var f fyrri könnuninni að því er Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, skýrðs Morgunblaðinu frá f gær, og einn- ig kom f ljós að minni verðmunur var milli verzlana á þéttbýiis- svæðinu og f dreifbýlinu en ætlað hafði verið. Georg sagði, að ein ástæðan fyrir því hversu þessi verðmunur væri Iftill væri vafa- laust minni veltuhraði og þar af leiðandi eldra verð hjá verzlun- um I dreifbýlinu en tfðkaðist hér f verzlunum á þéttbýlissvæðinu. Sé litið yfir lista þann sem verð- lagsskrifstofan hefur látið frá sér fara um vöruverð á einstökum tegundum í þeim verzlunum, sem teknar voru inn í þessa könnun af þéttbýlissvæðinu, kemur I ljós að vöruverð er oftast lægst hjá einni verzlun — Kostakaupum í Hafnarfirði — eða alls í átta til- fellum. 1 fjórum tilfellum er vöru- verð lægst hjá Hagkaup, þrívegis Framhald á bls. 19 Lokuðu veginum til Stykkishðlms í mótmælaskyni ÁTTA vörubifreiðastjórar lok- uðu f gær veginum frá Kerl- ingarskarði að Stykkishólmi. Vegurinn hefur verið illfær vegna lélegs viðhalds að sögn fréttaritara Mbl. í Stykkis- hólmi f sumar og hefur hann sjaldan eða aldrei verið hefl- aður. Vörubifreiðastjórarnir lýstu því yfir klukkan 18 f gær, er þeir lokuðu veginum, að þeir myndu ekki opna hann að nýju, fyrr en hefill væri byrj- aður að hefla. Einn slfkur kom 10 mfnútum sfðar. Vörubifreiðastjóramir, sem um ræðir hafa undanfarið unnið að vikurflutningum um veginn fyrir Stykkishólms- hrepp og hefur hann verið mjög holóttur og illfær f allt sumar. 1 gær tóku þessir bfl- stjórar sig til, en þá var tals- verð umferð um veginn og lok- uðu honum eins og áður segir. Stóð lokun vegarins yfir f 10 Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.