Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 180. tb. 63. árg. MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Stjórnmálaleiðtogar ræða efnahagsmálafrumvarpið, sem nú liggur fyrir danska þinginu og ráða mun úrslit- um um það hvort minnihlutastjórn Anker Jörgensens verður áfram við völd, eða hvort haldnar verða kosning- ar í haust. (Talið frá vinstri): Svend Haugaard, Poul Schliitter, Per Hækkerup og Anker Jörgensen. Flokksþing repúblíkana: Ford hefur tryggt sér útnefninguna ekki væri vitað á hvorn veginn atkvæði 92 fulltrúa mundu falla. Samkvæmt niðurstöðum þess- ara kannana mun Reagan ekki hljóta útnefningu enda þótt hon- um takist að fá á sitt band alla þá fulltrúa á þinginu, sem enn hafa ekkert látið uppi um afstöðu sína. Atkvæðaveiðar hafa sett mikinn svip á flokksþingið síðan það hófst i gær, en þó hafa full- Framhald á bls. 18 Kansas-borg — 17. ágúst — Reuter FORD Bandarfkjaforseti hefur tryggt sér nægilegt atkvæðamagn á flokksþingi repúblikana f Kan- sas-borg til að hljóta útnefningu flokksins sem frambjóðandi f for- setakosningunum, að þvf er fréttamenn þriggja helztu sjón- varpsstöðva f Bandarfkjunum töldu f kvöld. Skoðanakannanir sem fram fóru á flokksþinginu í dag benda allar til þess, að Ford hafi nú tryggt sér meira en þau 1130 at- kvæði, sem nauðsynleg eru til að hljóta útnefningu i fyrstu at- kvæðagreiðslu. Fréttastofa CBS komst að þeirri niðurstöðu að Ford væri öruggur um 1.137 at- kvæði, Reagan hefði 1.038, en af- staða 84 fulltrúa á þinginu væri óljós. Fréttastofur ABC og NBC sögðu báðar, að Ford ætti 1.132 atkvæði. ABC taldi Reagan hafa tryggt sér 1.052 atkvæði, en 75 fulltrúar hefðu ekki enn látið i ljós afstöðu. NBC taldi Reagan öruggan um 1.035 atkvæði, en Líf dönsku stjóm- arirmar á bláþræði Skyndiverkföll í mótmælaskyni við efnahags- málafrumvarpið Kaupmannahöfn — 17. águst — frá fréttaritara Mbl., Lars Olsen. LtNURNAR f dönskum stjórn- málum skýrðust ekki f dag. Á aukafundi Þjóðþingsins var lagt fram málamiðlunarfrumvarp stjórnarinnar og litlu miðflokk- anna þriggja, og þykir það benda til þess að dagar rfkisstjórnar Anker Jörgensens séu senn tald- ir. Enn er þó ekki útséð um, að meirihlutafylgi við tillöguna ná- ist á þinginu, og er búizt við þvf að umræður um hana standi langt fram á nótt. t dag hefur verið efnt til skyndiverkfalla vfðsvegar um landið f mótmælaskyni við efna- hagsmálafrumvarpið, sem felur f sér takmarkanir á launahækkun á ýmsum opinberum gjöldum. Foringi dönsku verkalýðshreyf- ingarinnar, Thomas Nielsen, og einn áhrifamesti leiðtogi iðnaðar- manna, Paulus Andersen, formað ur samtaka málmiðnaðarmanna, hafa báðir lýst yfir andstöðu við frumvarpið, og segja, að það brjóti í bága við samningsbundin réttindi launþega. Þessi skoðana- ágreiningur stjórnar sósialdem- ókrata og verkalýðshreyfingar- innar vekur athygli, þar sem hreyfingin hefur stutt stjórnina með ráðum og dáð fram að þessu. Meginþættir frumvarpsins miða að þvi, að laun hækki ekki meira en sem nemur sex af hundraði á næstu tveimur árum, en auk þess er þar gert ráð fyrir álöguhækkunum, sem nema munu fimm milljörðum danskra króna, verði frumvarpið sam- þykkt. Þá er gert ráð fyrir tveggja milljarða króna sparnaði í opin- berum rekstri á næsta ári og þriggja milljarða sparnaði á sama útgjaldalið reikningsárið 1978-79. Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að hafa bætandi áhrif á skuldajöfnuð við útlönd, sem Framhald á bls. 18 Gerald Ford. Ronald Reagan. 1800 fórust í jarðskjálftanum í Mindanao: Náttúruhamfarirnar ekki keðju- verkandi að sögn vísindamanna Manila — Peking — 17. ágúst — Reuter — AP. BJÖRGUNARSVEITIR leita nú þeirra, sem grafnir eru undir rústum f Cotabato-borg á eynni Mindanao f Filipseyjaklasanum, en talið er, að a.m.k. 1800 manns hafi farizt f skjálftanum, sem þar varð f nótt, og mældist hann 7.8 stig á Richterskvarða. Ellefu kippir komu á eftir jarðskjálftan- um, en þeir voru allir mun væg- ari. Kínverjar hafa greint frá þvi, að í kjölfar skjálftans mikla. sem þar varð f gær, og mældist 7.2 stig á Richterskvarða, hafi jarðhrær- ingar verið annað slagið í allan dag. Ljóst er að mikill ótti hefur gripið um sig meðal fbúa f borg- inni Chengtu, en þeir eru um 3 milljónir. Fréttastofa Nýja Kína hefur skýrt frá því, að upptök skjálftanna séu við borgina Mien- yang, sem er um það bil 10( kílómetra suðvestur af Chengtu Áreiðanlegar fregnir fara ekk af tjóni á mönnum eði mannvirkjum, en fréttastofai Framhald á bls. 18 Bankahvelfing Société Générale í París rœnd með sama hœtti og í Nizza Parfs — 1 7. ágúst — Reuter LÖGREGLUYFIRVÖLD f París skýrðu frá þvf I dag, að nú um helgina hefði verið brotizt inn í öryggishvelfingu útibús Societé Générale bankans á eyju Sankti Loðvfks f miðri borginni. Svo virðist sem hér sé um að ræða endurtekningu á bankaráninu mikla f útibúi sama banka f Nizza f sfðasta mánuði, og telur lögregl- an, að þjófamir kunni hafa borið enn meira úr býtum að þessu Fengur „holræsa- rottanna”talinn nær 2 milljarðar króna sinni. Margt bendir til þess að hér sé um að ræða sömu bankaræn- ingjana og voru að verki I Nizza. Þá hurfu um 50 milljónir franka úr hólfum eða serrV nemur um 1.850 milljörðum Isl. króna, I öryggisgeymslu bankans, og hafa þjófarnir ekki fundizt, þrátt fyrir vlðtæka leit. Societé Générale-útibúið er eini bankinn á eynni, en þar eru margir þekktir stjórnmálamenn og auðkýf ingar búsettir Starfsmenn bankans skýrðu frá þvi i dag, að litlu hefði munað, að þjófarnir hefðu verið staðnir að verki Gæzlumaður heyrði grunsamlegan hávaða i kjall- aranum þegar hann var á eftirlits- Framhald á bls. 18 Veróir laganna ásamt fréttamönnum við bankaútibú Societé Generale f Parfs skömmu eftir að uppvfst varð um ránið f gærmorg- un. (AP-mynd).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.