Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 13
MORG.UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGUST 1976 13 Verðlaunahús í Kópavogi Garðurinn að Fögrubrekku 47. Eigendur eru Hildur Kristinsdóllir og Gunnar S. Þorleifsson. FEGRUNARNEFND Kópavogs hefur nú afhent verðlaun og viðurkenningar fvrir fagra og Rein við Hlfðarveg hlaut verð- laun fyrir fagran garð og snyrtilegt hús. Eigandi er Agústa Björnsdóttir. snyrtilega garða og fieira árið 1976. 1 dreifibréfi sem fegrunar- nefndin sendi til allra Kópa- vogsbúa segir að þau áhrif, sem umhverfi mannsins hafi á hann sjálfan sé mikilvægur þáttur f mótun og innri gerð einstak- linganna og þar af leiðandi þjóðfélagsins í heild. Því hvet- ur fegrunarnefndin fólk til að reyna eftir megni að snyrta og fegra umhverfið — því okkur Ifður óumdeilanlega betur í umhverfi, sem er snyrtilegt, gróðurríkt og fagurt. Eins og undanfarin ár veitti Fegrunarnefndin verðlaun og viðurkenningar fyrir fegurstu garða ásamt íbúðarhúsi og einnig listaverk i garði íbúðar- húss og litaval á húsum. Þá var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir snyrtilegan frágang iðnað- arhúss og lóðar. Rotary- og Lionsklúbbar Kópavogs lögðu til tvenn verð- laun og Fegrunarnefndin önn- ur tvenn. Eftirtalin hús hlutu verðlaun og viðurkenningu í ár: Fagra- brekka 47, Borgarholtsbraut 32, Birkihvammur 1, Rein við Hlíð- arveg. Ennfremur hlutu eftir taldar garðar viðurkenningu: Borgar- holtsbraut 30, Holtagerði 41, Hlégerði 23, Digranesvegur 62. Þá voru veittar viðurkenn- ingar fyrir litaval á íbúðarhús- um og urðu þessi hús fyrir val- inu: Nýbýlavegur 45A og Digra- nesvegur 14. Skeifan, Smiðjuvegi 6, hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilegt hús og lóð. Þessar myndir tók Friðþjófur ljósmyndari af nokkrum hús- anna, sem hlutu viðurkenn- ingu. Borgarholtsbraut 32. Eigendur Gyðrfður Pálsdóttir og Björgvin Ólafsson. Holtagerði 41. Eigendur Inga Thorlacius og Ingvar Þorgilsson. Skeifan við Smiðjuveg 6 hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilegan frágang iðnaðarhúss og lóðar. r Attræður í dag: Jón Guðmundsson rafvirkjameistari í dag verður Jón Guðmundsson, rafvirkjameistari, áttræðUr. Foreldrar hans voru þau hjónin Guðmundur Sigfreðsson, bóndi að Króki á Rauðasandi, og kona hans Guðrun Thoroddsen. Jón ólst upp á mannmörgu og myndarlegu heimili foreldra sinna, en ungur að aldri fór hann á sjóinn svo sem venja var í þá tíð í hans sveit. En hugur Jóns stóð annað og hóf hann nám í menntasetri þeirra Vestfirðinga, Núpi í Dýrafirði. Leið hans lá síðan suður á bóginn til Reykjavíkur, þar sem hann lauk námi í húsasmíði. Ekki lét Jón hér við staðar numið heldur hóf nám í rafvirkjun og lauk hann því námi nokkrum árum síðar í Kaupmannahöfn. Raforka og rafvæðing hefur síð- Hagdeildir vinnuveitenda funda hér DAGANA 10.—11. ágúst s.l. héldu hagdeildir vinnuveitendasam- banda á Norðurlöndum fund í Reykjavík, þar sem rætt var um efnahagsmál og stöðu þjóðarbú- skaparins á Norðurlöndum. Einn- ig var fjallað um kjaramál og stöðu atvinnuveganna. Fundir þessir eru haldnir ár- lega og var þetta í fyrsta sinn, sem slíkur fundur er haldinn hér á landi. Fundinn sátu rúmlega 20 manns. an verið Jóni einkar hugleikin og hefur hann starfað að þeim mál- um alla tíð síðan. Fyrstu árin starfaði Jón hjá Ormssonbræór- um og setti hann m.a. upp vélar fyrir vatnsaflsstöðvar víða um landið. Um árabil var Jón raf- stöðvarstjóri á Isafirðt en hóf síð- an störf hjá Rafmagnsveitum ríkisins og starfaði þar unz hann lét af störfum fyrir aldurs sakir fyrir nokkrum árum. Jón er tvíkvæntur og var fyrri kona hans Guðný Jónsdóttir og áttu þau eina dóttur: Torfhildi Gróu. Árið 1936 giftist Jón Lauf- eyju Gísladóttur og áttu þau sjö börn: Hörpu, Guðrúnu, Ferrier, Elsu, Björgu, Helgu, Líneik og Guðmund Hannes. Heimili þeirra var rómað fyrir gestrisni, enda var þar oft mannmargt. Laufey lést árið 1974. Á þessum merku tímamótum í ævi hins síunga tengdaföður míns færi ég honum innilegar árnaðar- óskir og þakkir fyrir vinsemd og skilning. Megi heill og hamingja fylgja honum um ókomna fram- tíð. Jón tekur á móti gestum á heimili sínu í dag. b.H. Ristarbrotnaði ÍSLENZK kona Ragnhildur Rodal að nafni, sem lengi hefur búið erlendis kom að máli við Morgun- blaðið í gær og sagði sinar farir ekki sléttar. Sagðist hún hafa verið á gangi niður Laugaveginn, þar sem verið var að skipta um gangstéttarhell- ur. Er hún gekk meðfram vinnu- stæðinu datt ein hellan niður og lenti á Ragnhildi með þeim afleið- ingum að hún ristarbrotnaði. Ragnhildur sagði, að sér fyndist það vitavert kæruleysi af verk- stjórum og öðrum þeim sem sæju um svona framkvæmdir, að girða ekki vinnusvæðið af. — Svona nokkuð þekktist hvergi nema á íslandi, sagði hún. Iþróttaviðburður í fyrsta sinn á íslandi! Karate-judo í Laugardalshöllinni 9 % Tanaka Sensei ð verðtaunapallin- um eftir sigurinn á heimsmeistara- mótinu f Los Au^eles t 975. Tanaka Sensei 6 dan, tvívegis japanskur meistari og heimsmeistari árið 1975 i karate, stýrir flokki úrvals karatemanna í Laugardalshöllinni 19. ágúst nk. kl. 21.15. Judosýning undir stjórn landsliðsþjálfarans Murata 4 dan. Jafnframt ve>í, - úrslitakeppni jslandsmóts Karate- félags Reykjavikur og sýning félagsmanna undir stjórn Kenichi Takefusa, 3 dan. Einstakt tækifæri til að sjá fullkomnasta sjálfsvarnar- kerfi heims. Aðeins þessi eina sýning á fimmtudagskvöldiö í Laugardalshöllinni Bura Sensei, 4 dan. brýtur 15 þakhellur með berum hnefum. Handknattleiksdeild Leiknis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.