Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 7
MORG.UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGUST 1976 7 Skattamál og Þjóðviljinn í forystugrein Þjóðvilj- ans í gær er fjallað um skattamál og þar segir m.a.: „Þegar minnzt er á óréttlætið í skattamálum, er eins og flestir hafi gefið upp vonina um, að hægt sé að breyta einhverju. Við þvl er heldur ekki að búast, að ráðamenn Islenzks þjóðfélags í dag muni breyta þessu kerfi. Það framsóknar — fhald, sem nú ræður rfkjum, hef- ur aldrei fengizt til að breyta skattalögunum launafólki f hag, því það samkeppnisþjóðfélag, sem er ástfóstur ráða- manna, byggir á því, að hver reyni af fremsta megni að skara eld að sinni köku og um leið frá náungans köku. Skatt- svikin eru skilgetið af- kvæmi þess hagkerfis, sem við búum við." Og ennfremur segir f sömu forystugrein: „Það eru bein tengsl milli fyrr- greindra löggiltra skatt- svikara og ráðamanna fslenzka stjórnkerf isins. Stærsti stjórnmálaflokkur landsins telur einmitt þessa löggiltu aðila, vera máttarstólpa þjóðfélags- ins." Það fer illa á þvf, þegar kommúnistar reyna með þessum hætti að slá sjálfa sig til riddara sem sér- staka málsvara þeirra, sem greiða skatta sfna skilvfslega f þessu þjóð félagi, en beina þeim ásökunum að öðrum, að þeir séu sérstakir fulltrúar skattsvikara. Sannleikur- inn er sá, þegar litið er yfir hálfan annan áratug, að þeir fjármálaráðherrar, sem á þessu tfmabili hafa setið af hálfu Sjálfstæðis- flokksins, fyrst Gunnar Thoroddsen, sfðan Magnús Jónsson og nú Matthfas Á. Mathiesen, hafa allir beitt sér fyrir mjög róttækum umbótum á skattalöggjöfinni, sem einmitt hefur komið launafólki til góða og þá ekki sfzt láglaunafólki, sem óhætt er að fullyrða, að greiðir f dag ekki háa beina skatta, enda athyglisvert, f umtali manna á meðal um skattamál, að fólk með lágar tekjur og miðlungs- tekjur, kvartarekki undan of háum, beinum skött- um, þótt allir gagnrýni skattamisréttið, sem aug- Ijóslega viðgengst. Hins vegar hefur engri rfkisstjóm og engu lög gjafarþingi áratugum saman tekizt að búa svo um hnútana, að skattsvik væru óframkvæmanleg, en þær umbætur, sem fjármálaráðherrar Sjálf- stæðisflokksins hafa beitt sér fyrir f skattamálum, hafa þó hvað eftir annað stuðlað að bættu siðgæði f þessum efnum og á þann hátt dregið úr skattsvik um. Á það er Ifka ástæða til að minnast, að það eru ekki nema tæp tvö ár liðin frá þvf, að Alþýðubanda lagið átti aðild að rfkis- stjóm á íslandi um nær þriggja ára skeið og fer ekki sögum af þvf, að ráð- herrar Alþýðubandalags- ins á þeim tfma eða flokkurinn, sem slfkur, hafi beitt sér fyrir umbót- um f skattamálum, eða komið fram með tillögur f skattamálum, sem útilok- að gætu með öllu skatt- svik eða löglega hagnýt- ingu galla f skattlöggjöf- inni til þess að komast hjá eðlilegum skattgreiðslum. í þessum efnum fer bezt á þvf, að menn horfist f augu við þá staðreynd að hér er við ramman reip að draga, en samt sem áður má ekki láta deigan sfga. í forystugrein Þjóðviljans, er sagt að skattsvik séu skilgetið afkvæmi þess hagkerfis er við búum við. Ástæða er til að minna á að f því ríki heims, sem býr við hvað frjálsast hag- kerfi, eru skattsvik svo til óþekkt og skattasiðferði á mjög háu stigi, þ.e. f Bandaríkjunum. Nýjustu afrek Novosti í viðtali við Morgun- blaðið f gær skýrir Ey- steinn Þorvaldsson, for- maður íslenzka Júdósam- bandsins, frá þvf, að það hafi komið f Ijós á auka- þingi evrópska júdósam- bandsins f Montreal fyrir skömmu, að hin svo- nefnda APN—fréttastofa eða Novosti fréttastofan, sem m.a. rekur útibú hér á íslandi og er alþekkt víða um heim sem mið- stöð fyrir sovézkar njósn- ir, hafi gert forseta evr- ópska júdósambandsins upp orð f sambandi við ferð fslenzka júdólands- liðsins til Kiev fyrr á þessu ári og sagði forseti Evr- ópu-sambandsins f sam- tali við Eystein Þorvalds- son, að ummæli þau, sem Novosti hafði eftir honum f opinberri yfirlýsingu hér á landi, væru alger upp- spuni. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á þess- um upplýsingum Eysteins Þorvaldssonar vegna þess að þær eru sönnun þess, sem Morgunblaðið hefur hvað eftir annað haldið fram um eðli og starfsað- ferðir þeirrar sovézku ár- óðurs- og njósnastofnun- ar, sem enn helzt uppi að reka starfsemi hér á landi og hlýtur nú að verða áleitin sú spurning, hve- nær fslenzk stjórnvöld, gera ráðstafanir til að loka starfsemi þessarar skrifstofu hér. NÚGETAALLIR eignast glæsilega Stereo-samstæðu Þessi glæsilega samstæða kostar aðeins 82.130. SM 2100 stereosamstæðan er búin eftir- farandi: Stereo útvarpstæki með langbylgju. mið- bylgju og FM bylgju. Stereo magnara sem er 2x14 wött sinus við 4 ohm. 35 wött mússik power. Á tækinu eru stillingar fyrir bassa, diskant og loudness. Tíðnisvið 8HZ—50Khz. Plötuspilarinn er með vökvalyftum arm, sem fer sérstaklega vel með plötur og reimdrifnum disk. ____ EF Hátalarnir eru stórir 38 sm x 21,5 x 16 sm. Þeir eru búnir stórum 1 6 sm bassahá- talara og 5 sm milli og hátiðni hátalara. Við tækið má tengja heyrnartæki og seg- ulbandstæki. Athugið að við fengum takmarkað magn af þessu ágæta tæki á þessu lága verði. Góðir greiðsiuskilmálar. Árs ábyrgð. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. B.ergstaðastræti 10 A Öími 16995. Al vegg-og þakklœðning veggklæðninga frá A/S NORDISK ALUMINIUMINDUSTRI. Fæst í mörgum litum. Hafið samband við sölumann í símum 22000 og 71400. V V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.