Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. AGUST 1976 LOFTLEIDIR Tt 2 11 90 2 11 88 Hjartans þakkir til allra þeirra sem heiðruðu mig með heim- sóknum, gjöfum og skeytum á sjötíu og fimm ára afmæli mínu 3. ágúst s.l. Guð blessi ykkur oll Gís/i I/agnsson Mýrum Fjölmenni á Hólahátíð Bæ, Höfðaströnd 15. ágúst. HÓLAHÁTtÐIN var haldin I garr, 15. ágúst. Dumbungsveður var eftir mikla rigningu nóttina áður, en þó var hátfðin það fjölmenn að Hóladómkirkja var fullskipuð. Hátíðin fór fram eftir áður aug- lýstri dagskrá en þar voru 11 hempuklæddir prestar, auk fleiri presta sem ekki voru í embættis- skrúða, með vigslubiskup Hóia- stiftis í fararbroddi. F'ormaður Hólafélagsins, séra Arni Sigurðsson, stjórnaði hátíð- inní, sem var í kirkjunni eftir messu og þar fór einnig fram altarisganga. Kirkjukór Sauðár- króks söng undir stjórn hins kunna söngstjóra Jóns Björnsson- ar. Kristján Jóhannsson Konráðs- sonar frá Akureyri söng einsöng, en hann er á leið til Ítalíu til náms. Söngmálastjóri lék einleik á kirkjuorgelið og Haraldur Sig- urðsson bókavörður flutti erindi um bókaútgáfu Guðbrands Þor- lákssonar. Þá voru veitingar bornar fram heima á Hólum. Á eftir Hólahátíð var aðalfund- ur Hölafélagsins í samkomusal Hólaskóla. í stjórn þess voru nú kosnir: Séra Arni Sigurðsson for- maður, frú Margrét Árnason, Hól- um, séra Gunnar Gíslason, Björn Fr. Björnsson kennari og séra Sig- fús Árnason, Míklabæ. Farið er nú að vinna af alvöru að skipulagi Hóla, en það verk annast verkfræðiskrifstofa Guð- mundar G. Þórarinssonar í Reykjavík. I tengslum við Hólahátíðina var vígður hlaðinn garður kringum kirkjugarðinn og viðbótagrafreit- ur. Er þetta hið fallegasta mann- virki. Björn. Svanur: Aðalvél- in bræddi úr sér ÞEGAR flutningaskipið Svan- ur var að leggja af stað til Finnlands frá F’axaflóahöfn- um um verzlunarmannahelg- ina kom það fyrir, er skipið var komið skammt áleiðis, að aðal- vél skipsins bræddi úr sér. Skipið snéri þegar við og komst til Reykjavíkur með eig- in afli. Samkvæmt upplýsing- um Sigurðar Grétarssonar hjá skipamiðlun Þorvaldar S. Jónssonar hefur verið unnið að viðgerð síðan óhappið varð og er gert ráð fyrir að Svanur haldi af stað á ný í dag. Verður fyrsti viðkomustaður skipsins í Englandi. AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 2Ror0unbIabib Útvarp Reykjavík AtlÐMIKUDtkGUR 18. ágúst MORGUNNINIM 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 (og forustugr. dagb.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Ragnar Þorsteinsson les „(Itungunarvélina“ eftir Nikolaj Nosoff (8). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Kirkjutónlist kl. 10.25: Hans Helmut Hahn dómorgarleik- ari frá Rothenburg leikur á orgel Dðmkirkjunnar I Reykjavlk verk eftir Scheidt, Buxtehude, Waiter og Liszt. Morguntónleikar kl. 11.00: Maurizio Pollini leikur Pfanósónötu nr. 1 I ffs-moll op. 11 eftir Schumann / David Glazer og Kammer- sveitin I Wiirtemberg leika Klarinettukonsert f Es-dúr eftir Franz Krommer; Jörg Faerber stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan „Blómið blóðrauða" eftir Johannes Linnankoski Axel Thorsteinsson les (12). 15.00 Miðdegistónleikar Búdapestkvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 5 I A- dúr op. 18 eftir Beethoven. Christop Eschenbach og Ffl- harmóníusveitin I Vfn leika Pfanókonsert f F-dúr (K382) eftir Mosart; Wilhelm Briickner-Rúggeberg stjórn- ar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Lagið mitt Anne-Marie Markan kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 17.30 Minningar Austur- Skaftfellings, Guðjóns R. Sigurðssonar Baldur Pálmason les þriðja og sfðasta hlua. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVOLDIÐ 19.35 Akurinn er frjór sem fyrr Einar Jónsson fiskifræðing- ur flytur erindi. 20.00 Einsöngur: Jón Sigur- björnsson syngur lög eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, Þórarinn Jónsson og Markús Kristjánsson. Ól- afur Vignir Albertsson leik- ur á pfanó. 20.20 Sumarvaka a. (Jr dagbók prestaskóla- manns Séra Gfsli Brynjólfsson segir frá námsárum Þorsteins prests Þórarinssonar I Beru- firði; — þriðji hluti. b. Reykjavfk I ljóði Jóhanna Norðfjörð leikkona les kvæði eftir ýmis skáld. c. Suðurganga Hjörtur Pálsson les sfðari hluta frásögu eftir Frfmann Jónasson fyrrum skólastjóra, sem segir frá gönguferð úr Skagafirði til Reykjavfkur fyrir meira en hálfri öld. d. Kórsöngur: Tónlistarfé- lagskórinn o.fl. syngja lög eftir Ólaf Þorgrfmsson 21.30 (Ttvarpssagan: „Stúlkan úr Svartaskógi" eftir Guð- mund Frfmann Gfsli Halldórsson leikari les (13). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Kvöldsagan: „Marfumyndin" eftir Guðmund Steinsson Kristbjörg Kjeld leikkona les (5). 22.45 Djassþáttur f umsjá Jóns Múla Árnason- ar. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Mm MIÐVIKUDAGUR 18. ágúst 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Pappfrstungl Bandarfskur myndaflokkur. Afmæli Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.05 Spánn Svipmyndir af byggingum, þjóðarsiðum og þjóðlffi á Spáni. Þýðandi og þulur Ingí Karl Jóhannesson. 21.30 Hættuleg vitneskja Breskur njósnamyndaflokk- ur f sex þáttum. 3. þáttur. Efni annars þáttar: I Ijós kemur. að Laura er f vitorði með njósnurunum, sem bfða f bátnum. Annar þeirra hefur gætur á húsi Kirbys, sem kemur óvænt að honum. Kirby gengur illa að seija upplýsingarnar, en nær loks sambandi við franskan njósnara. Kirby heldur til fundar við hann og kemur að honum látnum. Þýðandi Jón O. Edwald. 21.55 List í nýju ljósi Fræðslumyndaflokkur frá BBC í f jórum þáttum. 1 fyrsta þætti eru skoðuð málverk frá ýmsum tfmum. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. 22.25 Ðagskrárlok. Sýnum við fiskrannsóknum nœgan sóma ? „AKURINN er frjór sem fyrr“ nefnist erindi er Einar Jónsson fiskifræð- ingur flytur í hljóðvarpi kl. 19.35 í kvöld. „Ég ætla aóallega að tala um hafið,“ sagði Ein- ar, „þessa auðlind okkar, sem er allt í kringum okkur. Allir vita að það er hreinasta gullkista og einnig að nú eru fisk- stofnarnir illa á sig komnir. Ég tel að þessu megi breyta við með réttri stjórn, en rétta stjórn kallar líka á rann- Þetta eru þau Prunella Ransome og John Gregson, sem leika aðalhlutverkin f „Hættuleg vitneskja". sóknir. Ég er með smá- þanka um að hafrann- sóknir okkar séu ekki nógu öflugar og bendi í því sambandi á að við verjum aðeins 0,5% þjóðartekna til rann- sókna í þágu atvinnuveg- anna. Til samanburðar má geta þess að Finnar, sem teljast miklir skuss- ar í þessum efnum, verja 0,9% þjóðartekna til slíkra rannsókna og Sví- ar um 1,5%, sem er þrisv- ar sinnum meira en við“. Þá held ég að það séu óeðlilega fáir, sem starfa að þessum málum og er það enn eitt dæmið um að við sýnum þessum mál- um ekki nægan sóma.“ Einar er nýkominn heim úr námi, en hann hefur lagt stund á fiski- fræði undanfarin ár í Vestur-Þýzkalandi. Hann sagði að sér hefði ekki enn tekizt að fá fast starf hér á landi, en sem stæði væri hann að vinna við mengunarrannsóknir í Skerjafirði á vegum Reykjavíkurborgar og nærliggjandi sveitar- félaga. Kl. 21.30: Hœttuleg Kl. 21.30 í kvöld verður sýndur 3. þáttur brezka njósnamyndaflokksins Hættuleg vitneskja. í síð- asta þætti kom i ljós að Laura er í vitorði með njósnurunum. Kirby hélt til fundar við franskan njósnara, sem hann hyggst selja upplýsingar, vitneskja en kom að honum látn- um. Nýr frœðslumyndaflokkur í KVÖLD hefst nýr fræðslumyndaflokkur í fjórum þáttum frá BBC. Myndaflokkurinn nefnist List í nýju ljósi og við hringdum í Óskar Ingimarsson þýðanda og spurðum hann um efni þáttanna. „Þetta er allnýstárleg- ur myndaflokkur,“ sagði hann. „í þessum fyrsta þætti kynnir maður að nafni John Berger gömul málverk frá ýmsum tím- um. Hann útskýrir hvernig gildismat fólks hefur breytzt með til- komu tækninnar, s.s. ljós- mynda- og kvikmynda- véla. Nú er einnig hægt að gera eftirprentanir og eftirmyndir og við það breytist viðhorf manna til myndlistarinnar. Og yfirleitt kemur hann al- mennt inn á það hvernig fólk lítur á ými^legt í sambandi við list, t.d. mismuninn á þvi hvernig börn og fullorðnir líta á list og listsköpun."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.