Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGUST 1976 Klúbbmálið: Ovíst hvenær lögtaks- gerðir ná fram að ganga EINS og áður hefur komið fram I fréttum hafa tvö lögtök verið gerð og eitt uppboð' ákveðið á eignum Sigurbjörns Eirfkssonar veitinga- manns I Klúbbnum vegna skulda hans við rfkissjóð og gjald- heimtu, en skuldirnar eru til- komnar vegna veitingarekstur „Afiinn aðallega á síðum dagblaðanna” — ÞESSI rosalegi afli tog- aranna hérna úti af Vestfjörð- um undanfarna daga er fyrst og fremst á sfðum dagblaðanna, sagði Jón Páll Halldórsson á tsafirði er Morgunblaðið hafði samband við hann f gær. — Aflinn hefur að vlsu verið sæmilegur og nokkur skip hafa fengið stór höl, en þar með er ekki sagt að aflinn hafi verið með afbrigðum góður. Skipin hafa fyllt sig á vikutlma og þannig kom Framnesið til Þingeyrar f morgun með full- fermi sagði Jón Páll. Sigurbjarnar. Morgunblaðið hef- ur kannað hvað Ifði þessum gerð- um og kom þá f Ijós, að Ingi Ingimundarson hrl., lögmaður Sigurbjörns, hefur áfrýjað þeim til hæstaréttar. Voru öll þrjú mál- in þingfest fyrir hæstarétti hinn 3. maí s.l. og þá gefinn frestur til 1. október n.k. Að sögn Björns Helgasonar hæstaréttarritara er alls óvfst hvort hægt verður að taka málin fyrir þá og það getur því liðið ennþá langur tími áður en þau komast i málaröðina hjá hæsta- rétti. Þar bíða ætíð mörg mál af- greiðslu og geta liðið margir mán- uðir og jafnvel ár áður en úr- skurður hæstaréttar liggur fyrir. Þegar úrskurðurinn liggur fyrir, fara málin aftur heim í hérað og líður þá enn nokkur timi þar til gerðirnar ná fram að ganga. Björn Helgason hæstaréttarrit- ari veitti Mbl. þær upplýsingar, að þegar búið væri að þingfestá mál lægi næst fyrir verjendum málanna að útbúa ágrip um málið með öllum skjölum, sem það Framhald á bls. 18 Utanríkisráðherra í op- inbera heimsókn til 2ja Austur-Evrópuríkja A þessari mynd má sjá kolsvartan reykjarmökkinn sem steig upp af vörugeymslu SlS, en litla myndin sýnir leifar kútsins sem sprakk. Mildi að ekki fór verr: Sprenging inni við Sundin „ÞAÐ ER mesta mildi að ekki skuli verr hafa farið,“ sögðu slökkviliðsmenn sem við rædd- um við á þaki vörugeymslna SÍS inni við Sundin f gær. Þar kom upp eldur þegar gaskútur sem verið var að vinna með sprakk f loft upp. Er það ef til vill kraftaverk að ekki urðu al- varleg slys á mönnum þvf kút- urinn sundurtættist og flugu brotin f allar áttir sum allt að 200 metrum. Einn maður slas- aðist og það var Ólafur Sig- tryggsson, en hann var að vinna með kútinn. Brenndist hann á höndum og fótum af eldinum en þó ekki alvarlega. Ekki urðu miklar skemmdir á þakinu þar sem slökkviliðinu tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins. Brot úr kútnum skildu eftir sig nokkrar skemmdir og Framhald á bls. 18 EINAR Ágústsson utanrfkisráð- herra er nú á förum til útlanda, þar sem hann mun fyrst sitja fund utanrfkisráðherra Norður- Nýr yfirmaður á KeflavíkurflugveDi SlÐAR í þessum mánuði tekur nýr flotaforingi við störfum yfir- manns á Keflavíkurflugvelli af Harold G. Rich, sem nú er yfir- maður á vellinum. Nýi flotafor- inginn heitir Karl J. Bernstein og tekur hann við störfum 24. ágúst nk. landa f Kaupmannahöfn, en fara sfðan f opinbera heimsókn til Tékkóslóvakfu og Ungverjalands. Hefst hin opinbera heimsókn f Tékkóslóvakfu hinn 22. ágúst og stendur f hálfan þriðja dag. Hið sama er áð segja um heimsókn ráðherrans til Ungverjalands. I fylgd með Einari Ágústssyni verður Hörður Helgason, skrif- stofustjóri í utanríkisráðuneyt- inu, en ennfremur verða sendi- herrar íslands í viðkomandi lönd- um með, Árni Tryggvason í Tékkóslóvakíu og Hannes Jóns- son í Ungverjalandi. Eiginkonur Einars Ágústssonar og Harðar Framhald á bls. 18 Skattskrá Suðurlands lögð fram í gær, Norðanlands vestra á morgun: Energo Projekt greiðir rúmar 27 millj. kr. í gjöld SKATTSKRÁIN f Suðurlands- kjördæmi var lögð fram f gær og eiga þá aðeins fbúar f Norður- landskjördæmi vestra eftir að fá skattskrána, en hún verður vænt- Gamla járnbrautin varðveitt í Árbae ÖNNUR eimreiðin, sem var notuð við grjót- og malarflutn- ing við hafnargerðina f Reykja- vfk á árunum 1913 til 1917 og aftur seinna er nú til sýnis í Árbæjarsafni. Að sögn Nönnu Hermanns- son, safnvarðar f Árbæ, var eimreiðin flutt þangað 1961, og hefur síðan staðið þar undir beru lofti þar til f vetur, að reist var hús utan um hana. Vélin var illa farin og orðin Ijót, en var tekin f gegn f vor og er nú skfnandi falleg, nýmáluð og pússuð. Þegar Mbl.menn komu í Ár- bæ var verið að setja upp sýn- ingu í kringum eimreiðina, ver- ið að útbúa kort með leiðinni, sem lestin fór, setja upp mynd- ir tengdar járnbrautum o.s.frv. Það var vorið 1913, að fyrstu vélarnar 1 járnbrautina komu hingað til landsins, en það var danskur verkfræðingur, sem flutti þær hingað gagngert til að flytja uppfyllingarefni f hafnargarðana. Tvær eimreiðir voru notaðar við grjót- og mal- arflutning við hafnargerðina í Reykjavík og báru þær nöfnin Minör og Pionér. Páll Ásmundsson stendur hér við eimreiðina, Pionér, sem hann stjórnaði f 15 ár. Arið 1913 hófst svo sjálf hafnargerðin og lá járnbrautar- sporið frá öskjuhlíð og Skóla- vörðuholti og niður að höfn, utan við meginbyggð bæjarins. 1 grennd við Miklatorg var svo reist bækistöð járnbrautarlest- Framhald á bls. 18 anlega lögð fram samtfmis f Siglufirði og á Sauðárkróki á morgun. Alls var lagt á 7042 ein- staklinga f Suðurlandskjördæmi og 447 félög, samtals 1.441.133.845 krónur. Sá einstak- lingur sem greiðir hæst gjöld f Suðurlandskjördæmi f ár er Árni Sigursteinsson bifreiðastjóri á Selfossi 4.3 milljónir. Hæst gjöld félaga greiðir Energo Projekt við Sigöldu, rúmar 27.3 milljónir króna. Að sögn skattstjórans á Hellu, Hálfdáns Guðmundssonar, voru útsvör lögð sér á í nokkrum hreppanna á Suðurlandi, þannig að skattskráin fyrir Suðurland gefur ekki fullkomna mynd af gjöldum allra framteljenda. TIu hæstu gjaldendur á Suður- landi: Árni Skgursteinsson, bifreiða- stjóri, Selfossi, 4.301.034 Sigfús Kristinsson, húsasmíða- meistari, Selfossi, 3.710.925 Magnús Sigurðsson, héraðs- læknir, Eyrarbakka, 2.567.977 Brynleifur Steingrimsson, hér- aðslæknir, Selfossi, 2.518.022 Bragi Einarsson, garðyrkju- maður, Hveragerði, 2.462.416 Sigurður Guðmundsson, Húsa- smíðameistari, Selfossi, 2.410.176 Rafn Thorarensen, iðnrekandi, Hellu, 2.388.143 Sigurbjörn Eirfksson, bóndi Stóra-Hofi, 2.329.422 Framhald á bls. 18 Helgi M. Bergs kjörinn bæjarstjóri á Akureyri Akureyri 17. ágúst. Á FUNDI bæjarstjórnar Akur- eyrar í dag fór fram kjör bæjar- stjóra fyrir tímabilið 1. septem- ber 1976 til loka kjörtfmabils nú- verandi bæjarstjórnar. Fimm umsækjendur voru um starfið, en kosningu hlaut Helgi M. Bergs, hagfræðingur. Hann hlaut sex at- kvæði, en fimm atkvæðaseðlar voru auðir. Áður en gengið var til kosn- ingarinnar kvaddi sér hljóðs Gísli Jónsson, einn af bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Flutti hann eftirfarandi yfirlýsingu, sem undirrituð var af öllum viðstödd- um bæjarfulltrúum flokksins. Hann kvað yfirlýsinguna einnig hafa verið borna undir alla kjörna bæjarfulltrúa flokksins, aðalmenn og varamenn, sem til náðist, og formann Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og hlotið samþykki þeirra. Yfir- lýsingin var svohljóðandi: „Þegar ljóst var að Bjarni Einarsson myndi láta af bæjar- stjórastarfi á þessu ári, töldum við bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins ástæðu til að athuga gaumgæfilega hvort ekki væri unnt að ná breiðri samstöðu um kjör eftirmanns hans, svo sem verið hafði í tvö skipti þegar Bjarni var kosinn. Fulltrúar meirihluta bæjarstjóijnar virtust okkur sama sinnis. Samkomulagsvilja okkar sýnd- um við sjálfstæðismenn í verki m.a. með því að kjósa óumbeðið og skilyrðislaust forsetaefni Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.