Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. AGUST 1976 5 Júdósambandið hefur ekki krafizt mótmæla „ÞAÐ HEFUR ekkert verið leitað til okkar um það,“ sagði Hörður Helgason, skrifstofustjóri I utan- rfkisráðuneytinu, er Mbl. spurð- ist f gær fyrir um það, hvort ráðu- neytið mundi hafa afskipti af framkomu Rússa við fslenzku júdókeppendurna, sem heimsóttu Sovétríkin fyrr á árinu. Hörður kvað engar óskir um mótmæli eða nokkuð slfkt hafa komið fram. Eysteinn Þorvaldsson, formað- ur Júdósambands íslands, sagði f viðtali við Morgunblaðið í gær, að Júdósambandið hefði ekki krafizt þess að mótmælt yrði við sovézk stjórnvöld. Eysteinn sagði að afrit Timman teflir á Eskifirði HOLLENZKI stórmeistarinn Jan Timman tefiir fjöltefli á vegum Skáksambands Austurlands f Val- höll á Eskifirði miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 20 og f Barna- skólanum á Reyðarfirði fimmtu- daginn 19. ágúst klukkan 20. Skáksveit Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands sigraði í þriðja riðli undanrása á Skákþingi UMFÍ 1976, en keppn- in fór fram á Selfossi í júní. í fyrsta sæti var ÍJÍA með 8 vinn- inga, í öðru sæti UMSK með 7'A vinning, í þriðja sæti HSK með 7 vinninga og f fjórða sæti UV, Ungmennafélagið Víkverji, með \'A vinning. Tvær efstu sveitirnar komast í úrslit, sem fara fram í Kópavogi á næstunni. Vonir standa til, að skáksveit Landsbankans komi til keppni við Skáksamband Austurlands í haust. af greinargerð sambandsins hefði verið sent menntamálaráðuneyt- inu og hann sagðist vita að menntamálaráðuneytið hefði sent hana áfram til utanríkisráðuneyt- isins. Eysteinn sagði að ástæðan fyrir því, að Júdósambandið hefði sent menntamálaráðuneytinu afrit af skýrslu sinni, væri að komið hefðu fram óskir frá Iþróttanefnd Sovétríkjanna um að gerður yrði samningur milli íslands og Sovét- ríkjanna um íþróttasamskipti. Þessi nefnd hafi verið hin sama og dreifði óhróðrinum um ís- lenzku júdókeppendurna í gegn- um APN-Novosti og því sagðist Eysteinn hafa talið rétt að menntamálaráðuneytið vissi um þetta framferði áður en samning- urinn um íþróttasamskiptin yrði gerður. Væri þá unnt að taka slikt sem þetta með til athugunar. Þá var einnig afrit af greinargerð Júdósambandsins sent til ISÍ og UMFÍ. Sömuleiðis til sovézkra yf- irvalda í gegnum sendiráð Sovét- ríkjanna á íslandi. Dýrmætri rafsuðuvél stolið MJÖG verðmætri rafsuðuvél var stolið í fyrrinótt, þar sem hún stóð fyrir framan verkstæði Aðal- brautar á Ártúnshöfða. Vélin er af gerðinni Dell 200 og er á hjól- um. Slíkar vélar kosta nokkur hundruð þúsund krónur. Þeir, sem geta veitt upplýsingar um þennan þjófnað, eru beðnir að hafa strax samband við rannsókn- arlögregluna. Sovézki bryndrekinn Kiev a siglingu skammt undan Islandsströndum. Sovézka flugmóðuskipið Kiev 1 grennd við Island HIÐ nýja flugmóðurskip Rússa, Kiev, sem sigldi inn á Miðjarðarhaf 18. júlf sl., hélt út á Atlantshaf 31. fyrra mánaðar. Skipið hefur að undanförnu verið I grennd við tsland á leið til flotastöðvar Sovétmanna á Kola-skaga, að þvf er talið er. Skip þetta er hið fyrsta f röð flugmóður- skipa, sem talið er að Sovétmenn hyggist smfða, en til þessa hafa þeir ekki átt slfk skip. Það er búið mjög fullkomnum vopnum, þ.á.m. 30 YAK- 36 orrustuvélum, sem geta hafið sig lóðrétt til lofts og 25 þyrlum sem búnar eru vopnum gegn kafbátum. Skipið er um 35000-40000 tonn að stærð og er talið geta náð a.m.k. 30 hnúta hraða. Á leið skipsins fram hjá Bretlandseyjum fylgdu brezk herskip þvf og Nimrod-þotur brezka flughersins flugu fyir það. t einni Nimrod-vélanna ver varnamálaráðherra Breta. Roy Mason, sem vildi sjá skipið eigin augum. Eftir flugferðina lét ráðherrann þau orð falla, að skipið væri nýr kapituli f stækkun Sovétflot- ans. ö/Kuf glæsilegt úrval! \\\t tU sKólans teinum staÓ, þúþarftetíó að leita ','ðat Bókaverzlun SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Austurstræti 18, sími 13135

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.