Morgunblaðið - 18.08.1976, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1976
Á góðviðrisdögum er jafnan mikið að gera hjá garðyrkjumönnum, svo sem þessi mynd, sem tekin er
fyrir utan skála Páls Michelsens, ber með sér.
yunyu
af okkur dauðum
afþreyjandi umhverfi, en eins
og plássið hefur þróazt siðustu
árin þá er hér vart neitt sem
laðar að. Jafnvel ferðamenn
eru farnir að forðast þorpið
vegna þess að hér er allt í
megnasta ólagi.“
Aðspurður um hvort illa væri
að garðyrkjumönnum búið I
Hveragerði kvað Páll svo vera
og væri það jafnvel á tilfinn-
ingu hans að yfirvöld vildu þá
feiga. Sagðist Páll ekki geta
skilið hvers vegna, því staður-
inn byggðist i upphafi í kring-
um garðyrkjuna og væri hún
reyndar enn einn aðal máttar-
stólpi tilveru byggðarinnar.
Að lokum sagðist Páll oft
hafa undrazt það að enginn
skyldi hafa komið auga á, að
Hveragerði gæti orðið ein af
dýrustu perlum þessa lands ef
rétt væri á haldið. „Ef ég mætti
ráða setti ég verndarlög yfir
Hveragerði og gerði þennan
stað að blóma- og heilsuræktar-
bæ, sem allir hefðu unun af að
sækja heim. Ég er sannfærður
Framhald á bls. 23
Staldrað við hjá
Páli Michelsen
í Hveragerði
ORKUKOSTNAÐUR þrengir
mjög að garðyrkjumönnum í
Hveragerði, sagði Páll Michel-
sen, er blaðið ræddi við hann
fyrir nokkru. Sagði Páll að ef
ekki yrðu breytingar á í þeim
efnum og hitaveitan í Hvera-
gerði jafnframt færð í viðun-
andi horf, þá yrði smátt og
smátt gengið af honum og koll-
egum hans í Hveragerði dauð-
um.
Páll Michelsen hefur stundað
garðyrkjustörf í Hveragerði í
35 ár, þar af hefur hann rekið
eigið fyrirtæki í um 20 ár. Þeg-
ar við hittum hann að máli var
hann heldur óhress yfir hag
garðyrkjumanna í Hveragerði.
Hann sagði að nú á tímum yrðu
þeir að spara við síg hverja
einingu af orku vegna hins háa
verðs á þeim framleiðsluþætti.
„Það er alltaf verið að tala um
ódýra orku hér á landi, en hvar
hún er veit ég ekki. Garðyrkju-
mönnum finnst það skrítið aó
hiti og ljós skuli vera það dýrt
að atvinnuvegurinn geti ekki
notað það sem hann þyrfti af
þessari orku.“
„Það er af sú tið er maður
slökkti ekki ljós á eftir sér. og
ég er farinn að draga saman
seglin hvað varðar opnunar-
tíma. Það er hreint og beint of
kostnaðarsamt að hafa opið á
kvöldin eins og við höfum áður
gert og því felldi ég niður þann
þátt þjónustu minnar nú í
sumar."
„Mér finnst það einkennilegt
að flutt sé inn frá útlöndum
tómatar, agúrkur, rósir, nellik-
ur og fleira sem við gætum
ræktað hér, ef orkan væri ekki
svona dýr. Fengjum við orku á
„Straumsvíkurverði“ gætum
við haft þessa sömu vöru á boð-
stólum allt árið, ef marka má
hinar ýmsu tilraunir sem hafa
verið gerðar í Garðyrkjuskóla
ríkisins. Þannig kæmi lægra
orkuverð einnig f veg fyrir
óþarfa gjaldeyriskaup."
Auk hins háa orkuverðs kvað
Páll þá Hvergerðinga búa við
ófremdarástand i hitaveitumál-
um, og væri það garðyrkjunni
nokkuð viðkvæmt. „Hitaveitan
hefur, auk þess að vera senní-
lega sú dýrasta á landinu, alltaf
verið í megnasta ólagi. Frá-
gangur hennar hefur sennilega
ekki verið of vandaður i upp-
hafi og tíðar kísilstíflur gera
það áhættusamt að treysta á
hana. Verst af öllu í hitaveitu-
málunum er að síendurtekin
loforð um úrbætur eru aldrei
efnd.“
Páll sagði ennfremur að
tengja mætti hitaveitumálin al-
mennu framtaksleysi í þorpinu.
„Hér virðist mér allt illt gert, af
vanefnum og alltaf til bráða-
birgða. Félagslíf er hér mjög
dauft og samstaða engin, enda
hér ákaflega blandað fólk. Það
er eins og hver höndin sé uppi á
móti annarri. Það vantar að
betrumbæta bæinn til að laða
hingað meira fólk, á kvöldin og
um helgar. Það er t.d. stutt fyr-
ir íbúa höfuðborgarsvæðisins
að skreppa i þetta rólega og
Páll Michelsen ásamt eiginkonu sinni á heimili þeirra hjóna.
Hringbraut 121 Sími 28601
Tiniman teflir
fjöltefli á
Eskifirði og
Reyðarfirði
Eskifirði 16. ágúst
HOLLENZKI stórmeistarinn Jan
Timman teflir fjöltefli á vegum
Skáksambands Austurlands í Val-
höll á Eskifirði miðvikudaginn 18.
ágúst kl. 20 og í barnaskólanum á
Reyðarfirði fimmtudaginn 19.
ágúst kl. 20.
Skáksveit ÚlA sigraði í þriðja
riðli undanrása á skákþingi UMFÍ
1976, en keppnin fór fram á Sel-
fossi í júní. UÍA hlaut átta vinn-
inga, UMSK 714, HSK hlaut 7
vinninga og í fjórða sæti varð UV
með 114 vinning. Tvær efstu sveit-
irnar komast í úrslit, en þau fara
fram í Kópavogi á næstunni.
Vonir standa til að skáksveit
Landsbankans komi til keppni við
Skáksambahd Austurlands í
haust.
Ævar.
Nýr prófess-
or við KÍ
FORSETI Islands hefur að tillögu
menntamálaráðherra skipað Þóri
Ólafsson, menntaskólakennara
prófessor í eðlis- og efnafræði við
Kennaraháskóla íslands frá 1. ág-
úst 1976 að telja.