Morgunblaðið - 18.08.1976, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1976
25
félk í
fréttum
+ Sú leggjalanga Twiggy sem
einu sinni var átrúnaðargoð og
fyrirmynd ungra stúlkna um
vfða veröld hefur átt dálftið
erfitt uppdráttar um nokkra
hrfð enda er sú tlzka sem hún
var fulltrúi fyrir löngu fyrir bí.
Twiggy hefur reynt að þreifa
fyrir sér á öðrum sviðum og þá
einkum með söng en við mis-
jafnar undirtektir. Nú er þð
komin á markaðinn breiðskffa
með söng hennar og öilum til
mikillar furðu hefur henni ver-
ið vel tekið.
„Ég býst ekki við að ná hátt á
vinsældarlistanum,“ segir
Twiggy, „og söngkona í fremstu
röð verð ég lfklega aldrei, en ef
ég fengi tækifæri til að syngja
með reglulegum rokkurum er
ég viss um áð ég kæmist langt.“
Söng-
konan
Twiggy
Allir
í takt
+ Þessi skemmtilegi takt-
mælir er eitt af listaverkum
franska súrrealistans Man Ray
og var það sett upp f sambandi
við mikla garðyrkjusýningu
sem haldin var f Hamborg árið
1973. Verkið átti að fjarlægja
að sýningunni lokinni en Ham-
borgarbúum þótti svo mikil
eftirsjá að þvf að ákveðið var að
láta það standa áfram á sfnum
stað, borgarbúum til augnaynd-
is, enda Þjóðverjar ákaflega
taktvfsir menn.
+ Söngvarinn Alice Cooper
varð að aflýsa mikilli hljóm-
leikaferð sem til stóð að fara til
Bandaríkjanna og er ástæðan
sögð vera alvarlegur blóðskort-
ur. Cooper hefur ekki tamið sér
sem hollasta lifnaðarhætti og
jafnvel áhorfendum hans duld-
ist það ekki lengur, þrátt fyrir
mikinn farða, að hann gekk
ekki heill til skógar.
Austfirðingar
Sölumaður frá okkur
verður staddur:
aðSINDRABÆ HÖFN, HORNAFIRÐI.
miðvikudaginn 1 8. og fimmtudaginn 1 9. ágúst
VALHÖLL ESKIFÍRÐI föstudaginn 20 og
laugardaginn 21. ágúst.
VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM sunnudaginn
22. og mánudaginn 23. ágúst.
HERÐUBREIÐ SEYÐISFIRÐI þriðjudaginn
24. ágúst með sýnishorn af áklæði, kögri og
galloni.
Tökum aö okkur klæðningar
Fljót og góð þjónusta
Verzlunin
Húsmunir
Hverfisgötu 82, Reykjavfk,
sími 13655.
SAPAFRONT + ál-forma-kerfið (profílsystem) er hentugt bygg-
ingarefni fyrir íslenzkar aðstæður. Einangraðir álformar I út-
veggi, glugga og útihurðir. Óeinangraðir álformar innanhúss.
Útlitið er eins á báðum gerðunum. í sérstökum leiðbeininga-
bæklingi eru upplýsingar um burðarþol, varmaleiðni og hljóð-
einangrun álformanna, ennfremur vinnuteikningar, sem léttir
arkitektinum störfin. Ál-formarnir eru rafhúðaðir í ýmsum
litum. Lagerlitir eru: Natur og KALCOLOR amber. Hurðir og
glugga úr ál-formum þarf ekki að mála, viðhaldskostnaður er
því enginn.
Byggingarefni framtíðarinnar er SAPAFRONT +
AU ORMA - HANDREÐ
‘iin11(ii111iiii11nTniTir » n
i I7H M
E •• ■•■•••• 1 E —: :—: LJ—:—1 •
SAPA — handriðið er hægt að fá í mörgum mismunandi
útfærslum, s.s. grindverk fyrir útisvæði, iþróttamannvirki o.fl.
Ennfremur sem handrið fyrir veggsvalir, ganga og stiga.
Handriðið er úr álformum, þeir eru rafhúðaðir í ýmsum litum,
lagerlitir eru: Natur og KALCOLOR amber.
Stólparnir eru gerðir fyrir 40 kp/ m og 80 kp/ m.
Með sérstökum festingum er hægt að nota yfirstykkið sem
handlista á veggi.
SAPA — handriðið þarf ekki að mála, viðhaldskostnaður er þvi
enginn eftir að handriðinu hefur verið komið fyrir.
| Gluggasmiðj an
Gissur Símonarson Siðumúla 20 Reykjavik — Simi 38220