Morgunblaðið - 18.08.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGUST 1976
29
VEU/AKANDI
Velvakandi svarar I síma 10-100
kl 14—1 5, frá mánudegi tll föstu-
dags.
% Góðar fréttir
Guðjón Bj. Guðlaugsson
skrifar:
„Nýlega bárust þær
ánægjulegu fréttir á öldum ljós-
vakans, að Samband norðlenzkra
kvenna hefði gert eindregnar og
ákveðnar samþykktir gegn
reykingum. Það er vel að svo fjöl-
menn og virðuleg kvennasamtök
skuli ljá því nauðsynjamáli lið
sem baráttan gegn tóbakinu er og
stuðla á þann hátt að útrýmingu
annarra eiturnautna svo sem
víndrykkju, hassneyzlu og slíkra
lifnaðarhátta.
Þeim einstaklingum og félögum
fjölgar óðum, sem snúast gegn
reykingum g vinna ákveðið á móti
þeim. Fyrst og fremst unglinga-
deild góðtemplarareglunnar, þá
Krabbameinsfélagið, S.D.
Aðventistar, Hjálpræðisherinn,
Fíladelfíumenn og sennilega
fleiri trúfiokkar. En Þjóðkirkjan
kirkja Krists sem stofnun, lætur
sig ekki það mál varða, né bar-
áttuna gegn víninu þö að einstaka
prestar hennar og fylgjendur hafi
vel gert í þeim efnum. Þó hefur
fólk sýnt kirkjunni þá sjálfsögðu
kurteisi og virðingu að neyta
hvorki tóbaks né áfengis innan
veggja hennar, nema þess víns, er
hún treður upp á menn við
altarisgöngur.
Sem betur fer eru reykingar á
->hröðu undanhaldi. Það þykir ekki
lengur fínt að reykja og á mörg-
um stöðum er það algjörlega
bannað, t.d. í bíóum, strætisvögn-
um, langferðabílum, að nokkru i
flugvélum á ýmsum vinnustöðum
og heimahúsum og þeim stöðum
fjölgar stöðugt þar sem ekki er
reykt. Enda á það svo að vera.
Þeir menn, sem ekki reykja,
eiga ekki að þurfa að biðja menn
að reykja ekki upp i vitin á sér,
heldur á reykingafólk að leita
leyfis viðstaddra ef það finnur
ómótstæðilega þörf hjá sér fyrir
að blása eitri út í andrúmsloftið.
Samfélagið hefur sýnt þessum
reykjarstrókum alltof lengi og
alltof mikið umburðarlyndi. En
nú hafa vísindin bent á að tóbaks-
reykurinn er hættulegur þeim
sem i honum eru þó að þeir reyki
ekki. Frumstæðasta krafa
mannsins er hreint loft. And-
rúmsloftið er það fyrsta og síðasta
sem maðurinn neytir í þessu lífi.
Enginn hefur leyfi til að spilla
því.
Þá bárust að þessu sinni góðar
fréttir af útisamkomum um'
verzlunarmannahelgina. Mér er
ljúft að geta þess sem áhorfandi
að bindindismótinu í Galtar-
lækjarskógi, að þar fór allt fram
auðmýkingar... ætli þú kynnist
því ekki nógu fljótt.
— Það er nú meíri paradísin
eða hitt þó heldur." Hann var svo
bitur að ég gat ekki fengið af mér
að fara að spyrja hann nánar út í
það.
— Eilífðar auðmýking.
Christer sagði þessi tvö orð
hægt og hikandi.
— Eftir þvf sem ég fæ best séð
er það aðeins á einu sviði sem
kona Jóns Hallmann hafði tök á
að auðmýkja hann og ræna hann
sjálfsvirðíngu sinni. Hann var
sjúkur og veikur maður og hefur
sennilega ekki verið mikill elsk-
hugi — og þá hafa komið upp
vandamál á því sviði sem ella
hefði getað verið þungamiðjan f
þessu einkennilega hjónabandi.
Og ég vænti þess að við getum
tekið hringinn sem ytra tákn þess
sem hafði verið að gerast — á
fimmtudagínn.
Demantarnir Ijómuðu á hendi
Cecilíu, en hann sá nú bregða
fyrir hræðslu I augum hennar.
— Hringurinn! Þér vitið fullvel
að hann hafði pantað hringinn
með margra vikna fyrirvara til að
gefa mér hann á afmælinu mínu.
með mestu prýði. Fyrst og fremst
var háttsemi fólksins og fram-
koma, bæði yngri sem eldri, til
fyrirmyndar, öllum til ánægju,
gæzlan á svæðinu ágæt og varzlan
í hliðinu örugg og röggsöm.
Öllum þátttakendum og starfs-
mönnum á mótinu vil ég færa
beztu þakkir, bæði persónulega,
og sem ritari Umdæmis-
stúkunnar.
Það eru tveir áratugir síðan
Umdæmisstúkan nr. 1 hélt fyrsta
bindindismót sitt með fáum
hundruðum manna. Þá var óvið-
ráðanlegur drykkjuskapur á úti-
hátíðum og samkomum og talinn
óumflýjanlegur hlutur en nú
keppast allir við að banna og
stemma stigu við drykkjuskap á
útihátíðum. Slikur árangur hefur
náðst fyrir fordæmi Umdæmis-
stúkunnar. Góð og árangursrík
samvinna um mótin hefur líka
skapazt milli íslenzkra ung-
templara og Umdæmisstúkunnar.
Á þessum mótum þarf enga lög-
reglu. Mættu skemmtihúsin í
Reykjavik og mörg félagsheimilin
taka sér bindindismótin til fyrir-
myndar. Fækkaði þá slags-
málunum við dansstaðina og
minna yrði að gera hjá lög-
reglunni.
Vín er eitur i hvers manns
beinum.
Guðjón Bj. Guðlaugsson,
Efstasundi 30, R."
Það er rétt hjá Guðjóni, að mjög
víða bárust góðar fréttir um
verzlunarmannahelgina og gilti
það um allar útisamkomur sem
haldnar voru, að þær fóru mjög
vel fram og ölvun hvergi teljandi.
Þetta mega teljast góðar fréttir og
á þeim þarf að vekja athygli, þvi
oftast er nóg af þeim slæmu.
% Á að styója
afbrotamenn?
Kona nokkur hringdi og
sagði að nú væri verið að safna
einhverjum krónum til styrktar
þeim sem lenti í fangelsi erlendis
fyrir smygl:
„Mér finnst skjóta nokkuð
skökku við þegar á að fara að
safna fyrir þá sem hafa gerzt brot-
legir við lög og þvi undarlegra
sem það er að smygla eiturlyfjum.
Það er vissulega ástæða til að
vorkenna þeim sem hefur lent á
glapstigum, en mér finnst samt
engin ástæða til að hvitþvo þessa
menn. Þeir verða aö taka sjálfir
afleiðingum gerða sinna, það er
ekki fyrirsjáanlegt hversu mikilli
sorg og vandræðum maðurinn
hefði valdið ef hann hefði komizt
með þessi fíkniefni undan og þau
komizt í hendur óharðnaðra ung-
linga, og e.t.v. eyðilagt þann
prúða hóp ungs fólks sem við eig-
um hér á landi. Það væri nær að
safna handa þeim sem hafa
ánetjazt fíkniefnum. Eins og ég
sagði áðan er ástæða til að vor-
kenna þeim sem lent hefur á glap-
stigum og ekki aðeins honum
heldur og fjölskyldu hans en samt
finnst mér að hann verði að taka
sjálfur afleiðingum gerða sinna."
D.S.“
Maður skyldi ætla að fullornir
menn viti sjálfir hvað þeir gera
en margir leiðast út í alls kyns
glæpi án þess að hafa nokkru
sinni ætlað sér að koma nálægt
slíku og skylda okkar hlýtur að
vera að hjálpa þeim sem þannig
er ástatt fyrir. En með hvaða
hætti sú hjálp á að vera er flökið
mál og hitt er rétt að hver maður
á að taka sjálfur afleiðingum af
því sem hann gerir.
HÖGNI HREKKVÍSI
,Það bíður einn hérna frammi með umkvörtun
83? SlGeA V/GGA £ ‘í/íVXfcAU
Tveir menn hætt komnir
er bíll féll ofan í skurð
Akureyri 16. ágúst.
UM ÞESSAR mundir er verið að
skipta um jarðveg I mörgum
hinna eldri gatna á Akureyri,
meðal annars til að endurnýja
leiðslur, undirbúa malbik og
lagningu hitaveitukerfis. Meðal
þessara gatna er Helgamagra-
stræti og þar er nú skurður eftir
endilangri götunni mest allri, 5
metrar á breidd og 2,5 metrar á
dýpt.
í morgun var verið að moka möl
af vörubil ofan i skurðinn og stóð
vörubíl'linn á skurðbakkanum
meðan bílstjórinn og annar mað-
ur unnu að þvi að moka mölinni
með krana, sem er áfastur við
bílinn. Þá varð það óhapp skyndi-
Iega, að bakkinn brast undan öðru
afturhjóli bílsins svo að billinn
rann ofan í skurðinn og báðir
mennirnir með. Það vildi þeim til
happs að þeir lentu ekki undir
bilnum, en hins vegar grófust
þeir í mölina upp fyrir mitti, og
gátu sig hvergi hreyft. Þeim varð
fljótt hjálpað upp úr skurðinum
og voru ekki taldir meiddir að
neinu ráði eftir óhappið. Bílnum
var siðan náð upp með aðstoð
kranabils, en skemmdir á honum
eru ekki fullkannaðar.
Sv. P.
AUGLÝSINGASLMINN ER:
22480
3H#rjjmnl>!aÍ>ib
©
Skrifstofa mín verður lokuð
frá og með 1 8. ágúst til og með 1 . september.
Einar Viðar hrL
Túngötu 5.
Canon
' irr
er „alvöruvél
Þar sem við höfum margra ára reynslu í sölu skólareikna
viljum við benda kaupendum á nokkur atriði við val véla
1. Að varahluta og viðgerðaþjónusta sé fultnægjandi.
2. Að rekstur vélanna sé ódýr (s.s. rafhlöður).
3. Að vélin nýtist alla skólagönguna.
4. Að straumbreytir sé fáanlegur (f. mikla
notkun).
5. Að vélinni fylgi ábyrgð.
6. Siðast en ekki síst gerið verð og gæða
samanburð. Það ódýrasta er ekki ætið ódýrast!
SKÓLAFÓLK, GERIÐ
SAMEIGINLEG INNKAUP
HJÁ OKKUR VERÐUR ÞAÐ
MUN HAGKVÆMARA,
Skrifvélin HF.,
Suðurlandsbraut 12
Sími 85277 P.h. 1232
V® VlÁ íKK\, l VifNN/ SÆÍ6ÆT/ o£\ \MA ÍKKI átffr
ÍKKI tíáAtiÉfriX 06 WK/ V/NPíA. Nl/ SNVRÍWÖ^O
íKKI 61?A V/ENN' MV/VSÓó 0& iKKl V)ÖL 0á)0G SKK| 06
Wv(M\ $E\9l Ké SÍ/óA. Vó KÁfr BKKI 6&A JíKKi lCxGMU.
WBWl WL)ó$mi 06VKK\ Wí&mLQVOó/Vú MAÍT£KK/ 6EVA
íKKI WtfXjWNAWGWElAAK, WÚN HÁ /WlNN\ WALNAW 06 íKKl
SKKí VA MaMl\ 06 KKK/ úKbTA^
W40l\K 06 im ÍON6V06LA
Ý/WÖNG 06 ÍKKI SAOMA-
9ÓT. Vú KIÁÍTBKKL