Morgunblaðið - 18.08.1976, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1976
Heimsmeistarinn í karate
með sýningu í Laugardalshöll
ÞAÐ var ekki mikill glæsibragur
yfir mörkunum fjórum sem skor-
uð voru f leik lA og KR á Laugar-
dalsvellinum I gærkvöldi. Öll
voru þau fremur klaufaleg og
áttu aðdraganda f mistökum
annaðhvort varnarmanna eða þá
markvarðar. En þessi mörk telja
jafnt og önnur, og það voru Akur-
nesingar sem skoruðu þrjú
þeirra, þannig að þeir fá stigin
tvö sem um var keppt og halda
þvf vel stöðu sinni við toppinn.
Sigur Skagamanna f þessum leik
var Ifka næsta sanngjarn þar sem
þeir voru lengst af betra liðið á
vellinum og þeim tókst að skapa
sér bæði fleiri og hættulegri tæki-
færi en KR-ingum. Er KR-liðið
greinilega ekki eins sterkt um
þessar mundir og það var um
tfma f sumar, enda hrjá meiðsli
leikmenn, og tveir þeirra leik-
manna sem verið hafa fastamenn
f liðinu f sumar voru f jarverandi f
leiknum f gærkvöldi, Björn
Pétursson og Hálfdan Örlygsson.
Þá bætti það ekki úr skák fyrir
KR í leiknum í gærkvöldi, að ein-
um leikmanna þeirra, Hauk Otte-
sen, sem kom inn á sem varamað-
ur snemma í leiknum, var visað af
leikvelli. Braut Haukur illa af sér,
en þó alls ekki það alvarlega að
hann ætti brottrekstur fyrir.
Annars er það ljóður á ráði KR-
inga að þurfa ævinlega að kenna
dómurum og linuvörðum um ef
illa gengur. Slíkt kann ekki góðri
Iukku að stýra. Orsakanna þarf að
leita til annars.
Litlu munaði að KR-ingar
fengju góða byrjun f leiknum í
gærkvöldi, þar sem Jóhann Torfa-
son átti skot f þverslá Akranes-
marksins þegar á 1. mínútu leiks-
ins. Færið sem Jóhann komst í
var galopið og hálfgerður klaufa-
skapur hjá honum að nýta það
ekki betur. Það voru varnarmenn
Akurnesinga sem áttu alla sök á
því að færi þetta skapaðist, og
Hörður markvörður átti svo loka-
orðið með því að hika í úthlaupi.
En Skagamenn voru ekki jafn-
óheppnir þegar þeir fengu sitt
fyrsta færi í leiknum á 4. mínútu.
Þá hafði Karl Þórðarson leikið
upp hægri kantinn og þaðan gaf
hann knöttinn fyrir markið þar
sem hans barst til Teits Þórðar-
sonar. Skot Teits var algjörlega
misheppnað, og vakti það mikla
furðu þegar Magnús Guðmunds-
son missti knöttinn undir sig og í
markið.
Fleira sögulegt gerðist tæpast í
fyrri hálfleiknum en strax á 6.
N.K. FMTASKVÖLD gefst fs-
lenzku fþróttaáhugafólki einstætt
tækifæri til þess að kynnast
fþrottagrein sem Iftt er kunn hér-
lendis, er heimsmeistarinn í
karate, Japaninn Tanaka, heldur
sýningu f LaugardalshöIIinni.
Þótt fþróttagrein þessi hafi verið
stunduð nokkuð hér á landi und-
anfarin ár, hefur ekki farið mikið
fyrir henni opinberlega, og helztu
kynni sem fólk hefur haft af
fþróttinni eru kvikmyndir, þar
sem fallegustu hliðar fþróttarinn-
ar eru ef til vill ekki dregnar
fram. Karate-fþróttin er ævaforn
fþrótt f Japan, og hefur verið
mjög vináæl þar alla tfð. Iþróttin
hefur sfðan verið að breiðast út
smám saman, og er nú mikið iðk-
uð víða um lönd.
Það er Þorsteinn Viggósson,
veitingamaður í Kaupmannahöfn,
sem á mestan heiður af þvi að fá
Tanaka hingað, en Þorsteinn er
sjálfur karate-maður í fremstu
röð og einn fárra sem hlotið hafa
svart belti í Danmörku. Auk
heimsmeistarans koma hingað sjö
aðrir karate-menn frá Danmörku
og taka þátt í sýningunni í Laug-
ardalshöllinni, auk þess sem þar
mun fara fram úrslitakeppni ís-
landsmeistaramótsins i karate.
Heimsmeistarakeppni í karate
er haldin annað hvert ár og varð
Tanaka meistari f fyrra. Hann
hefur auk þess tvívegis orðið jap-
anskur meistari í þessari fþrótta-
grein. Hann hefur haft aðsetur í
Danmörku að undanförnu og
kennt þar íþróttina, og á hann
örugglega verulegan þátt í þvf að
Danir eiga nú harðsnúið lið
karatemanna óg voru nokkrir
Danir t.d. f fremstu röð í síðustu
heimsmeistarakeppni.
sýningin í LaugardalshöIIinni
hefst kl. 21.15 á fimmtudaginn og
mun standa í nærfellt tvær
klukkustundir. Er fyllsta ástæða
til þess að hvetja fólk að láta ekki
þennan íþróttaviðburð fram hjá
sér fara.
Pétur Pétursson stekkur hærra en Stefðn Orn og skallar knöttinn f
mark KR-inga hálfvegis aftur fyrir sig.
Landsliðið hom-
kerling mótahaldsins
EINS OG skýrt hefur verið frá I
Morgunblaðinu fer fram n.k. laug-
ardag landsleikur I knattspyrnu
milli íslands og Luxemborgar á
Laugardalsvellinum. Leik þessum
var fyrst og fremst komið á I þeim
tilgangi að Islenzka landsliðið
fengi verkefni og æfingu fyrir hina
erfiðu leiki sem liðið á nú fram-
undan I undankeppni heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu, en
leikið verður við Belglumenn 5.
september og Hollendinga 8. sept-
ember á Laugardalsvellinum. Vlst
er að landsliðið hefur ekki haft
mikinn tíma né tækifæri til þess
að búa sig undir þessa leiki, og þvl
ekki nema gott eitt um það að
segja að fá Luxemburgara til
þessa leiks, og að öllu jöfnu eiga
þeir að vera mjög svipaðir að
styrkleika og við, þannig að æfing
sú sem fslenzka landsliðið hefði
getað fengið út úr leik þessum
hefði átt að vera hin æskilegasta.
Hitt hlýtur að vekja mikla furðu
hvernig að málum er staðið hjá
KSÍ. Leikjaprógrammið hefur
aldrei I sumar verið stlfara en
einmitt þessa viku, og þeir leik-
menn, sem koma til með að skipa
landsliðið á laugardaginn, hafa
flestir leikið nokkra erfiða leiki á
fáum dögum, og ekki er unnt að
hafa eina einustu samæfingu hjá
landsliðinu fyrir leikinn á laugar-
daginn. Þannig voru leikir um slð-
ustu helgi, á mánudagskvöld,
þriðjudagskvold, á miðvikudags-
kvöld. tveir á fimmtudagskvöld og
á föstudagskvöld munu Breiðablik
og KR leika I Bikarkeppni KSÍ.
Verði leikmenn úr þeím félögum
valdir til leiksins við Luxemburg á
laugardaginn mun ekkí einu sinni
llða sólarhringur milli leikja hjá
þeim
Það er mjög erfitt að sjá tdgang
I þvl hjá KSÍ að ráða hingað sér-
stakan landsliðsþjálfara. eins og
gert var að þessu sinni, þegar
mótafyrirkomulag er slðan þannig
að útilokað er að hafa landsliðsæf-
ingar, og ekki er heldur unnt að
sjá að landsliðsnefnd geti valið
liðið sem á að leika við Luxemburg
fyrr en að loknum leiknum á föstu-
dagskvöldið — nokkrum klukku-
stundum fyrir landsleikinn. Eini
tfminn sem ætlaður er fyrir lands
liðsæfingar I sumar virðist vera
fjórir dagar I byrjun september og
gefur auga leið hversu mikið er
hægt að gera á þeim tlma til þess
að tryggja að Islenzka landsliðið
nái beztri hugsanlegri útkomu I
leikjum slnum við Belglumenn og
Hollendinga, en úrslit I þeim leikj-
um hljóta að skipta Islenzka knatt-
spyrnu höfuðmáli, a.m.k. út á við.
Mikil framför hefur orðið á
mótahaldi KSÍ á undanförnum ár-
um, og þegar á heildina er litið
verður ekki annað sagt en fram-
kvæmd íslandsmótsins hafi orðið
þeim sem hlut áttu að máli við
skipulagningu þess til hins mesta
sóma. Er af sem áður var er mót á
vegum KSÍ fóru jafnvel fram I
hrlðarveðri á jólaföstu. En við
skipulagninguna hefur greinilega
verið gjörsamleg horft framhjá
hagsmunum landsliðsins. Það er
hornreka mótakerfisins og þrátt
fyrir það framtak stjórnarinnar að
ráða sérstakan landsliðsþjálfara,
mun það verða ofan á að leik
mönnum er smalað saman til leikj-
anna án þess að nokkur tlmi sé til
samæfinga eða undirbúnings, sem
hingað til hefur þó verið talið for-
senda árangurs. Samkvæmt móta-
skrá KSÍ á slðasti leikur Islenzku
knattspyrnunnar að fara fram 12.
september og má mikið vera ef
ekki hefði verið unnt að teygja
aðeins meira fram I september-
mánuð til þess að gefa landsliðinu
rýmri æfingatlma, jafnvei þótt
fljótlega komi að Evrópubikarleikj-
um þeirra þriggja Islenzku liða
sem taka þátt I Evrópubikarkeppn-
inni.
stjl.
mínútu seinni hálfleiks juku
Skagamenn forystu sina. Þá var
knötturinn sendur fyrir KR-
markið, þar sem Magnús náði til
hans en hélt honum ekki. Náði
Jón Gunnlaugsson að senda inn á
Pétur Pétursson sem slðan skall-
aði I KR-markið, 2:0.
Skömmu síðar gerðu Skaga-
menn svo út um leikinn og var
aðdragandi þess marks sá, að
Ólafur Ólafsson hugðist skalla
knöttinn til Magnúsar mark-
varðar en tókst ekki betur til en
svo að Pétur Pétursson komst inn
á milli og skoraði með föstu skoti
3:0.
Mínútu síðar skoruðu KR-ingar
sitt eina mark, og kom það eftir að
Jóni Gunnlaugssyni hafði mistek-
izt að hreinsa frá. Skot kom á
Akranesmarkið sem Hörður hálf-
varði, en knötturinn hrökk til
Jóhanns Torfasonar sem var I
opnu færi og skoraði.
Þegar á leikinn leið varð stöð-
ugt meiri þungi I sókn Skaga-
manna, enda þeir orðnir einum
fleiri en KR-ingarnir. Oft skall
hurð nærri hælum við KR-
markið, sérstaklega á lokamlnút-
um leiksins, er Akurnesingarnir
fengu hvað eftir annað opin færi.
Sem fyrr greinir á KR-liðið við
erfiðleika að etja um þessar
mundir. Tveir leikmanna liðsins,
Guðmundur Yngvason og Guðjón
Hilmarsson, urðu að yfirgefa völl-
inn I fyrri hálfleik vegna meiðsla.
í stað annars þeirra kom korn-
ungur piltur, Magnús Jónsson, og
verður ekki annað sagt en að
hann hafi átt afbragðsgóða byrj-
un sem meistaraflokksmaður.
Bæði var að hann hafði betri
boltameðferð en flestir félagar
hans, og eins barðist hann af
dugnaði og útsjónarsemi. Þar er
mikið efni á ferð. Hjá Skaga-
mönnum var annar ungur piltur
'einna athyglisverðastur I þessum
leik. Sá heitir Pétur Pétursson —
efnilegur piltur sem hefur næmt
auga fyrir því sem er að gerast á
vellinum og möguleikum sem
skapast bæði fyrir sjálfan sig og
samherjana. —stjl.
LIÐ KR: Magnús Guðmundsson 1, Guðjón Hilmarsson 1, Sigurð-
ur Indriðason 3, Ottó Guðmundsson 1, Ólafur Ólafsson 2, Halldór
Björnsson 3, Stefán Örn Sigurðsson 2, Örn Guðmundsson 2,
Jóhann Torfason 2, Guðmundur Yngvason 1, Birgir Guðjónsson
2, Haukur óttesen (varam.) 1, Magnús Jónsson (varam.) 3.
LIÐ ÍA: Hörður Helgason 2, Andrés Ölafsson 2, Björn Lárusson
3, Þröstur Stefánsson 3, Jón Gunnlaugsson 2, Jóhannes Guðjóns-
son 2, Karl Þórðarson 2, Pétur Pétursson 3, Teitur Þórðarson 2,
Jón Alfreðsson 2, Arni Sveinsson 3, Guðjón Þórðarson (varam.)
1.
DÓMARI: Valur Benediktsson 1.
Jack Nicklaus heldur
sýningu á Nesvellinum
EINN snjallasti fþróttamaður
heims, bandaríski golfleikarinn
Jack Nicklaus, kom hingað til
lands f einkaþotu sinni f gær, og
mun hann dvelja hérlendis um
hrfð. Mun þetta ekki vera f fyrsta
sinn sem Nicklaus kemur hingað
til lands, en fremur hljótt hefur
verið um ferðir hans til þessa,
enda mun Nicklaus fyrst og
fremst koma hingað til þess að
njóta friðar og næðis, en af slfku
hefur hann ekki mikið að segja á
ferðalögum sfnum og keppni er-
lendis. Nicklaus er mikill áhuga-
maður um laxveiðar og mun
stunda þær meðan á dvöl hans
stendur hér.
Jack Nicklaus hefur fallizt á að
halda golfsýningu hér að þessu
sinni, og verður hún á Nesvellin-
um n.k. sunnudag, eftir kl. 13.00.
Mun Nicklaus að mestu hættur að
halda slfkar sýningar, en féllst á
að sýna snilli sfna heflendis, gegn
þvf að ágóði af sýningunni rynni
til Ifknarmála. Aðgöngumiðar á
sýningu Nicklaus verða seldir f
Nesklúbbnum og f Leikfanga-
landi f Veltusundi.
Fjögur ódýr mörk er
ÍA vann KR 3-1