Morgunblaðið - 12.09.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976
3
Flugránið á La Guardia:
Lögreglumaður beið
og 3 slösuðust
TWA-vélin hefur sig á loft frá Keflavikurflugvelli I gær.
bana
— er sprengja
ræningjanna
sprakk á
flugstöð á
Manhattan
New York, Montreal, Gander
11. sept. Reuter
TWA-vélin lagði upp kl. 22.45
(að fsl. tfma) I gærkvöldi,
föstudag, frá La Guardiavelli (
New York. Talsmaður TWA
sagði að allir sem um borð fóru
hefðu gengizt undir strangt
vopna- og öryggiseftirlit og
væri þvf óskiljanlegt, hvernig
ræningjarnir hefðu komizt
óáreittir með allt sitt hafurtask
inn f vélina.
f vélinni sem var af gerðinni
Boeing 727 og átti að fara til
Chicago voru 85 farþegar og sjö
manna áhöfn. Skömmu eftir
flugtak tilkynntu sex menn að
þeir ætluðu að ræna vélinni og
hótuðu áhöfn að vélin yrði
sprengd f loft upp ef ekki yrði
farið að fyrirmælum þeirra.
Mennirnir sex voru allir með
sprengjubelti utan um sig, en f
fréttum er hvergi talað um að
þeir hafi haft skotvopn.
Kl 1 f nótt (sömuleiðis að fsl.
tfma) lenti vélin þvf næst á
Mirabelflugvelli við Montreal
þar sem hún tók eldsneyti og
hafði um tveggja stunda við-
dvöl á vellinum.
Nokkru eftir að vélin fór f
loftið frá La Guardia sprakk
sprengja f farangursrými á
aðalflugafgreiðslunni' á
Manhattan. Lögreglunni var
vfsað á að sprengja væri þar
sem spryngi á hverri stundu og
fóru iögreglumenn þegar á
staðinn. Fannst sprengjan f
innsigluðum hraðsuðupotti og
þegar lögreglumennirnir voru
að reyna að gera hana óvirka
sprakk hún f höndum þeirra og
lézt einn lögreglumannanna
samstundis og þrfr munu hafa
særzt en ekki er vitað hversu
alvarlega.
Ræningjarnir
reynast vera Króatar
Þegar vélinni var rænt var
með öllu óljóst hverjir stóðu að
ráninu en hjá sprengjunni var
einnig átta síðna b'réf frá
ræningjunum og kom þá í ljós
að þeir kváðust vera úr sam-
tökum sem berjast „fyrir
frjálsri Króatíu" i Júgóslavíu.
I bréfinu kröfðust
ræningjarnir þess að texti
bréfsins yrði birtur í heild i
The New York Times, The Los
Angeles Times, The Chicago
Tribune, Washington Post og
The International Herald
Tribune. Vildu ræningjarnir að
þriðji hluti bréfsins kæmi á for-
síðu viðkomandi blaða. I bréf-
inu sagði að markmið sam-
takanna væri að draga upp
nákvæma og sannverðuga
mynd af þeirri ruddalegu
kúgun sem Króatar væru
beittir í Júgóslaviu. Ákveðið
hefði verið að ræna bandarískri
vél vegna þess að Bandaríkja-
menn styddu júgóslavnesku
stjórnina leynt og ljóst með
efnahags- og fjárhagsaðstoð.
Þvi væri þetta eina gerlega
leiðin til að höfða til banda-
rísku þjóðarihnar og mótmæla
frekari aðstoð „við heimsvalda-
sinnana í Belgrad". Hópurinn
hét því að beita ekki ofbeldi ef
hægt væri að komast hjá því, en
hins vegar yrði ekki hikað við
það, ef kröfum þeirra yrði ekki
framfylgt.
Maður sem nafngreindi sig
ekki og hringdi til Reuter-
skrifstofunnar I New York
sagði að þetta væri upphaflega
sameiginleg áætlun króatiskra
þjóðernissinna og áhangenda
PLO. PLO hefði stutt Króatana
til að grípa til aðgerða i þeirri
von að það neyddi TWA til að
hætta flugi til Israels. PLO
hefði og lagt fram beiðni, við
Líbýustjórn um að hún fjár-
magnaði starf króatisku skæru-
liðasamtakanna. Hann sagði
síðan að samstarf milli PLO og
Króatanna hefði farið út um
þúfur þegar í ljós hefði komið
að þeir siðarnefndu ætluðu
aðeins að nota málið sér til
framdráttar en láta málstað
PLO lönd og leið.
33 farþegum sleppt
úr vélinni á Gander
Eftir tveggja stunda veru á
flugvellinum við Montreal lagði
vélin síðan upp á ný og stefndi
til Gander á Nýfundnalandi.
Skömmu eftir lendingu þar var
32 farþegum leyft að fara úr
vélinni og siðan var dyrum
lokað. Nokkru siðar var svo ein-
um manni til viðbótar leyft að
fara út. Reynt var að ná sam-
komulagi við ræningjana um,
að sleppa fleiri farþegum en
það tókst ekki.
Skömmu eftir að Boeing 727
vélin lagði upp til Gander
ákvað TWA að senda aðra vél
af gerðinni Boeing 707 til liðs
við hina, þar sem flugstjóri
vélarinnar sem var rænt, hefur
ekki þjálfun í flugi yfir Atlants-
haf og auk þess er Boeing 707
bæði langfleygari og stærri.
Lenti sú vél á Gander skömmu
á eftir hinni og reyndi flug-
stjóri stærri vélarinnar að fá
ræningjana til að samþykkja að
skipt yrði á vél, en þeir voru
ófáanlegir til þess. Var þá
ákveðið að Boeing 707 vélin
fylgdi hinni eftir og leiðbeindi
henni og gerði flugáætlun og
slíkt til að ferðin yfir Atlants-
haf gæti gengið áfallalaust fyr-'
ir sig.
Ræningjarnir munu hafa orð-
að það skömmu eftir að lent var
I Gander að þeir ætluðu að fara
til Islands, en Reuterfréttastof-
an sagði að augljóst væri að það
væri aðeins áfangi á lengri leið.
Einn farþeganna, sem sleppt
var á vellinum I Gander, sagði
að í hópi flugræningjanna væri
ein kona. Allir væru ræningj-
arnir með sprengjubelti utan
um sig, en ekki hefði nein
skelfing gripið um sig. Konan
hefði veitt flugfreyju aðstoð við
að róa og sefa farþega eftir að
ljóst hefði verið að vélinni
hafði verið rænt.
Flugumsjónarmaður í
Montreal sem talaði við flug-
stjóra vélarinnar, sem rænt var,
hafði það eftir honum að ræn-
ingi stæði fast við hann með
sprengjubelti um sig miðjan og
Framhald á bls.47
Með ÚTSÝN tll annarra landa
Vikuferðir til
L0ND0N
Brottför
alla laugardaga
frá
1. nóv.76
til
31. marz '77
VERÐ FRA
KR. 39.100,-
Í£> Q
Helgarferðir til
GLASGOW
hálfsmánaðarlega frá
24. sept. til 18. des
VERÐ FRÁ KR. 31.900
Costa del Sol
FUENGIROLA
Næsta brottför 13. sept.
Fáein sæti laus.
TORREMOLINOS
Brottför 19. sept. — uppselt.
26. sept. nokkur sæti laus.
10. okt. 3 vikur — hásumarauki
AUSTU RSTRÆTI 17
Ferðaskrifstofan
___ _ w
SIMI 26611