Morgunblaðið - 12.09.1976, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.09.1976, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976 S AMSÆRIÐ The Parallax Vlew, am. 1974. Leikstjóri: Alan J. Pakula. Kvikmvndataka: Gordon Willis. The Parallax View kom mér skemmtilega á óvart, bæði hvað varðar efni og ekki síður uppbyggingu og stíl. Pakula sýnir hér sína bestu hæfileika sem kvikmyndagerðarmaður, en þetta er fjórða mynd hans sem leikstjóra (Pakula framleiddi áður flestar af myndum Roberts Mulligans (The Nickel Ride), sem fjallað var um sl. sunnudag). The Parallax View er byggð upp sem fyrsta flokks sakamála- mynd og fjallar um atburði, sem ameríska þjóðin og hinn vestræni heimur hafa mikið velt fyrir sér, en það eru ástæðurnar að baki hinna tíðu morða á þekktum stjórnmála- mönnum og efasemdirnar um sannleiksgildi þess úrskurðar að aðeins einn vitfirringur hafi framið glæpinn. The Parallax View gerist þrem árum eftir að frambjóðandi i forsetakosning- um var myrtur á opinberum stað. Sérstök nefnd hefur skilað áliti, þar sem morðinginn er talinn hafa verið einn að verki og var hann drepinn strax eftir verknaðinn. Joe Frady er blaðamaður, sem staddur var á morðstaðnum ásamt fleira fólki, en á þessum þrem árum hefur það gerst, að vitni að morðinu hafa verið að hrökkva upp af. Öll virðast þau hafa dáið eðlilegum dauðdaga, en Frady fer að efast og snýr sér að því að komast að hinu sanna i málinu. Þessi eftirgrennslan leiðir hann að The Parallax Corporation, sem virðist vera einskonar leitar- og æfingastöð fyrir leigumorðingja. Frady Diario Segreto da un Carcere Femminile, (tölsk, 1972. Leikstjóri: Rino Di Silvestro. Þegar ítalir taka að sér að blanda saman mafíumynd og pornómynd má með sanni segja að útkoman verði eitt allsherjar spaghettiklám. Þegar Eng- lendingar hafa síðan talað inn á myndina og gert hiut leik- stjórans, sem aldrei hefur verið mikill, að engu er þetta orðið að allsherjar skrípaleik. Það heyrist stundum minnst á kvik- myndaeftirlit, en sjaldnast nema þegar einhver djörf kyn- lífsmynd á í hlut. En hvernig væri, að þetta eftirlit setti sér einhverjar lágmarksgæða- kröfur? Spurningin snýst nefnilega alls ekki um djarfar kemst þar inn sem tilvonandi leigumorðingi undir fölsku nafni. Þarna rekst hann á náunga sem hafði verið staddur á morðstaðnum fyrir þremur árum og Frady veitir honum eftirför en blandast þá inn í tilræði við annan stjórnmála- mann, sem nærri kostar hann lífið. En þó Frady telji sjálfan sig snjallann, sér fyrirtækið við honum og áður en hann veit af er hann orðinn flæktur i annað morð á forsetaframbjóðanda og í þetta sinn situr hann fastur í netinu. Morðinginn er einn af öryggisvörðunum, sem Parallax fyrirtækið leigir út og þar sem öryggisvörðunum hafði tekist að króa Frady af á morðstaðn- um, meðan morðið var framið geta þeir nú snúið sér að því fyrir opnum tjöldum að útrýma honum og fullnæja þannig rétt- lætinu í augum hinna fjarlægu og saklausu áhorfenda. Hringn- um er lokað og enginn er til frásagnar um hið sanna og nefndin, sem er skipuð til að rannsaka morðið, kemst að þeirri niðurstöðu að Frady hafi verið veill á geðsmunum og framið morðið einn. Punktur. Parallax merkir sjónarhorn, sem þýðir breytta afstöðu hlut- ar i umhverfi sínu, sé hann skoðaður undir tveimur sjónar- hornum. Pakula leggur mikið upp úr þessum skilningi og t.d. opnar hann myndina á fornu ættartákni indíána, sem ber við himin, en siðan hreyfir hann vélina aðeins til vinstri og þá kemur i ljós turn, með fram- andlegum blæ, The Space Needle Tower í Seattle, þar sem fyrra morðið er framið. Það eru fáir hlutir í reynd það sem þeir sýnast vera og Pakula kemur tvívegis inn á það að kynlífsmyndir, heldur um klámfengin vinnubrögð og getuleysi og smekkleysi þeirra, sem sjá fram á fljóttekinn gróða með slfku samsulli. Það er ekki eitt einasta atriði í þessari mynd, sem hugsandi manni dettur i hug að leiða hugann að eitt augnablik. Það eru hins vegar til þær kynlífs- myndir, sem fjalla um kynlíf á skynsamlegan hátt og af ein- hverju raunsæi, því óneitan- lega er þetta einn stærsti þáttur mannlegs eðlis. Það eru leifar af Viktoríu-hugsunarhætti að álíta, að nakinn mannslíkami sé klám, en það er hins vegar klám, þegar hann er notaður á svo aumkunnarverðan hátt, sem í þessari mynd. „löggæsla“og „öryggi" sé aðeins hula, sem skipulögð glæpastarfsemi starfar bak við. The Parallax Corporation er mjög óljós stofnun, Pakula ger- ir hana ógnvekjandi og á sama tíma óskiljanlega, ástæðurnar að baki morðanna koma hvergi fram og Pakula gerir stofnun- ina með þessu að tákni þeirrar meinsemdar, þeirra spillingar- afla, sem sýkja amerískt þjóð- líf. Starfsemi stofnunarinnar beinist að sálfræðilegum könnunum og stjórn á hegðun fórnarlambanna. Pakula gefur okkur ótvírætt í skyn, hvað hann er að fara, þegar hann lætur Frady gangast undir til- raun hjá fyrirtækinu. Honum eru sýndar allskyns myndir, sem allir kannast við úr dag- lega lífinu undir fyrirsögnum eins og ást, hatur, fjölskylda, heimili, ég, hamingja o.s.frv. og viðbrögð hans könnuð. En það er einmitt þessi tilraun, sem þjóðfélagið gerir á hverjum einstaklingi á hverjum degi árið um kring. Það eru æði margar Parallax-stofnanir í nú- tíma þjóðfélagi, sem reyna að stjórna sem flestum ein- staklingum og þar eru auglýs- ingar, skemmtanaiðnaðurinn og pólitíkusar fremstir i flokki. Það er ef til vill ekki að furða, þó sumir þegnar þjóðfélagsins ruglist i því, hverju þeir eigi að trúa. Samsærið er algjört og samsærismennirnir ókunnir. Það er þess vegna ekki hægt að líta á The Parallax View sem skýringu á einstökum morðum, sem framin hafa verið á þekkt- um stjórnmálamönnum i Bandarikjunum I seinni tíð, heldur er hún táknmynd í miklu víðari skilningi. Hún vekur athygli á þeirri af- skræmingarmynd, sem þjóð- félagið birtir af sjálfu sér á hverjum degi. Myndstíll Pakula er mjög fágaður og minnir jafnvel stundum á stíl Kubricks. Tón- listin er mjög góð en hún minnir einnig á Kubrick, því ákveðið stef í myndinni er til- brigði út af upphafsstefi Strauss í Also Sprach Zarathustra. öll uppbygging er mjög stílhrein og sparsöm, eins og t.d. kaflaskiptingin þar sem Paula Prentiss kvartar yfir því við Beatty, að það eigi að myrða hana, og síðan er klippt beint á lffvana andlit hennar i líkhús- inu. Þessi sparsemi skapar hreinleika í stíl, sem er því miður alltof sjaldséður f kvik- myndum. Eins og áður sagði vann Pakula mikið með Mulligan og þá sem framleið- andi. Pakula gerir hins vegar sína fystu mynd Pookie (öðru nafni The Sterile Cuckoo) árið 1969, síðan Klute 1971 og þá Love and Pain 1972. Mismunur- inn á myndum Pakula og Mulligans er efnislegur grund- vallarmunur, þó að báðir fjalli um menn sem af einhverjum ástæðum lenda upp á kant við kerfið. Persónur Mulligans draga sig inn i heim eigin ímyndunarafls, en persónur Pakula berjast út á við, uns yfir lýkur. Báðum tekst þó jafnvel að skapa hina leyndu ógn, sem þeir telja felast i nútfma þjóð- félagi. |^jj kvik-'f w mijndc ■ ■ /íðon l 1 SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON Atriðl úr myndinni THE PARALLAX VIEW Þeir gömlu góðu dagar Let The Good Times Roll, am. 1973. Leikstjórar: Sid Levin og Robert Abel. Það verður að segjast um þessa mynd, að hún er allmiklu betri en Elvis on Tour, þó að báðar myndirnar fjalli um svipað efni og þrátt fyrir það að höfundarnir eru mikið til þeir sömu. Þar sem ef til vill skilur á milli til að byrja með, er að Let the Good Times Roll sýnir fleiri en einn aðalskemmtikraft, sem gefur myndinni meiri fjöl- breytileika, auk þess sem hér er notað meira af gömlum myndum, ljósmyndum, frétta- kvikmyndum, sjónvarpsefni og kvikmyndum, sem óneitanlega vfkkar svið myndarinnar og þar við bætist að þetta efni er notað á miklu hugmyndarikari hátt en í Elvis on Tour. Einnig er ,,split-screen“ tæknin (skipting myndflatarins í tvær eða fleiri myndir) miklu betur notuð hér en í fyrri myndinni, bæði hvað varðar fjölbreytileika og takt- skyn. Þetta kemur þó dálitið spánskt fyrir sjónir, þegar það er haft f huga að stjórnandi klippingarinnar i Elvis on Tour var enginn annar en Martin Scorsese einn yngsti og eftir- tektarverðasti kvikmyndaleik- stjóri Bandaríkjamanna f dag (Mean Streets, Alice Does Not Live Here Any More og Taxi Driver, myndir sem allar hafa vakið mikla athygli en enn sem komið er, hefur engin þeirra verið sýnd hér). Sid Levin stjórnar hins vegar klipping- unni I Let the Good Times Roll. En það sem orsakar höfuð- mismuninn á þessum tveim myndum er, að þessi mynd leitast við að tengja rokk- hljómleikahaldið f dag við hápunkta f sögu rokksins fyrir 20 árum, þar sem f Elvis on Tour er aðeins leitast við að endur-vekja ímynd eins manns. Og hér skilur einnig á milli f tónlistinni. Þó tónlistin f báðum myndum sé nú flutt, 15—20 árum eftir blómaskeið rokks- ins, og f báðum tilfellum bæði báett að hljóðfæraskipan og upptökutækni, virðist tónlistin f Let the Good Times Roll vera miklu nær upphafinu en tónlist Presleys og sá sem einna best virðist hafa geymt neista rokks- ins í öll þessi ár er tvímælalaust Chuck Berry. Fyrrverandi áhangendur rokksins verða tæplega fyrir vonbrigðum með þessa mynd, auk þess sem hún er fyndin á köflum og hin ágætasta dægra- stytting.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.