Morgunblaðið - 12.09.1976, Síða 25

Morgunblaðið - 12.09.1976, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976 25 eftir GÍSLA J. ÁSTÞÓRSSON EINS OC MÉR SÝNIST Tunglið, tunglið taktu mig Það var nú einmitt það sem við þörfnuðumst mest: að fá hingað óboðinn villuráfandi norsara að stofna hér útibú fyrir kringluleitan prakkara austan frá Kóreu sem hefur safnað um sig hirð af meira eða minna brengluðu fólki úti í Bandaríkjunum og hamast nú við að flytja boðskap sinn út eins og hverja aðra sekkjavöru. Að Vísir upplýsti fyrir nokkrum dögum þá hafa meira að segja einhverjar burðarþolslitlar sálir hér heima þegar gengið þeim norska á hönd, hafa „séð Ijósið" eins og það hét hér áður fyrr og heitir sjálfsagt enn þá og hafa enda af miklum eldmóði þegar tekið tii við að koma meistaranum á prent, að við, spillta fólkið hérna úti í buskanum, megum þó fá svo- litla nasasjón af guðdómnum. Meistarinn heitir eftir á að hyggja því göfuga nafni Moon og er raunar nákvæmlega eins og tungl í fyllingu á öllum Ijós- myndum sem maður sér af honum, þó að moon þýði lík- lega illu heilli alls ekki tungl á móðurmáli hans eins og það gerir á enskunni. Moon þessi er í meira lagi þriflegur Kóreu- maður og eins og klipptur útúr tískublaði fyrir sterkríka brodd- borgara og fjáður er hann líka orðinn ef ekki vellauðugur, enda eru blessaðir fáráðarnir sem hafa látið glepjast af fyrir- heitum hans einkanlega notað- ir til þess að betla fé af mönn- um, svo að Tunglkallinum hús- bónda þeirra megi auðnast að frelsa okkur öll áður en hann verður kvaddur til sinna heim- kynna efra að uppskera verð- skuldaða dýrð fyrir framtakið Það er verst að eftir öllum sólarmerkjum að dæma er það einkanlega kornungt og óharðnað fólk sem agentar Moons kappkosta að koma klónum i, og eru Ijótar sögur af því vestan um haf hvernig ungu nýliðarnir afneita fyrst foreldrum sinum og umhverfi og glata siðan þá verst lætur bæði dómgreind og vilja,kyrj- andi bábilju hins himneska (og stríðalda) herra síns. Hann er að eigin sögn hvorki meira né minna en umboðsmaður guðs hér á jörðinni, hægri hönd Frelsarans. Þannig skil ég það sem ég hef lesið mér til um hann, sem er allnokkuð, en á undanförnum mánuðum hefur hann og hreyfing hans gengið Ijósum logum í erlendum blöð- um, á Englandi til dæmis þar sem útsendarar hans hafa þótt litlir aufúsugestir og í Frakk- landi þar sem eitthvað af ung- mennum hafði tekið Tunglsýk- ina þegar í vor. Nú er hann sem fyrr segir byrjaður að þreifa fyrir sér hér og virðist því miður ekki hafa gripið í tómt. En mikil börn mega þær manneskjur vera og mikið að- þrengdar sem horfa framan í ásjónu mister Moons og þykj- ast eygja þar undir harðsnyrtu hvapinu loforð um himnariki. Mikið masað, lítið sagt Eins og menn rekur væntan- lega minni til (þó að engan veginn yrði árangurinn minnis- stæður í sjálfu sér ) þá hóaði Sjónvarpið saman núna í ágúst ýmsum málsmetandi mönnum sem eiga víst að vita öllu meira en við hin um það árlega mis- rétti sem á sér stað þegar yfir- völd okkar eru að leggja á okkur skattabaggana. Blaða menn voru þarna f haugum sem spyrjendur og til andsvara voru allskonar stjórar af öllum breiddum og lengdum með sjálfan fjármálaráðherrann S broddi fylkingar; og þar að auki hafði Jónas Haralz verið kvaddur til leiks, þó að mér þætti hann að visu svona hálf- partinn eins og fimmta hjól á vagni, úrþví umræðan átti þó i orði kveðnu að snúast um skattamál. Bankastjórinn var þar að auki hvergi sjáanlegur þegar samkoman hófst, rétt eins og hann hefði þurft að þjóta á afvikinn stað einmitt þegar hann Eiður okkar var að bjóða gestina velkomna. Til viðbótar var maðurinn svo settur einn við borð þegar hann loksins skilaði sér, eins og hann væri með hettusótt eða mislinga eða annan smitandi sjúkdóm eða hefði jafnvel stungist á höfuðið ofan i grútartunnu; kannski var hann samt bara ekki nógu fínn til að sitja hjá hinum stjórunum, nú eða þá of finn. Þetta var allavega allt frem- ur dularfullt og ankannalegt með Jónas, sem og staðsetn- ing fyrrgreindra kollega minna úr blaða- og útvarpsheiminum. sem hafði verið tildrað upp á einhverskonar palla andspænis skattaséniunum: maður upp af manni langleiðis upp i þak- sperrurnar þar sem maður á annars von á þvi að finna bara auðn og tóm eða i mesta lagi einn og einn Ijósameistara á svona sjónvarpsslóðum. Kol- legar minir voru þarna eins og hænur á priki er ég hræddur um, og ef ég hefði ekki kann- ast við flestar ásjónurnar og stjórnendur þáttarins lika full vissað okkur um að þetta væru ósviknir fréttamenn, þá hefði ég haldið að þarna væri kom- inn blandaður kór vestan frá Þingeyri sem hefði lent í hrakningum á leiðinni suður og því ekki unnist timi til að fara i sparigallann. Það var hinsvegar ekki ein- ungis sviðsetningin sem ég ætlaði að koma að í þessu spjalli heldur líka og ekki síður þeirri dapurlegu staðreynd að þegar ráðherrann og skatta- mennirnir og Jónas útskúfaði voru loksins búnir að Ijúka sér af, þá vissi maður nákvæmlega jafn mikið um skattamálin eins og þegar ballið byrjaði, eða réttara sagt jafn latið. Þeir sem þraukuðu þessa sjónvarpssýn- ingu á enda hefðu rétt eins getað farið í háttinn. Þeir hefðu líka rétt eins getað verið að gapa á eitt af þessum af- burðaviturlegu sjónvarps- stykkjum sem sumir af brodd- unum hjá sjónvarpinu virðast hafa svo miklar mætur á, þar sem andagiftin er svo ómælan- lega hrikaleg að meira að segja leikararnir hafa ekki hugmynd um hvað er að ske, hvað þá áhorfendur. íslenskum stjómmálamönn- um einkanlega virðist fyrir- munað að svara jafnvel ein- foldustu spurningum vafninga- laust og embættismönnum hér sem annars staðar hættir til þess af eðlishvöt liggur mér við að segja að hafa fyrirvarana svo marga og rækilega í svör- um sínum að þau týnast í um- búðunum. Viðkvæðið hjá báð- um þessum aðilum er: „Jú, ég skal fúslega reyna að svara þessari spurningu þinni, en fyrst langar mig að víkja fáein- um orðum að öðru atriði." í skattaþættinum sem hér er til umræðu var „vikið að öðrum atriðum" svo viðstöðulaust að manni lá við að öskra. En hitt skal fúslega játað að sumir voru sekari um þetta en aðrir og einn þó miklu verstur. Það er freistandi að kenna sjónvarpsmönnunum um þegar sjónvarpsþáttur fer svona úr böndum, en það væri ekki rétt- látt. Það má guð vita að frétta- mennirnir á sjónvarpinu eru búnir að reyna sitt ýtrasta öll þessi ár, og varla geta þeir rokið á gesti sína og tekið þá kverkataki. Erlendir starfs- bræður þeirra sumir hverjir hafa að visu lært þá list að hafa hemil á málóðum stjóm- málamönnum, en erlendis viða er sjónvarpið líka langtum eldra. Ég hafði eitt sinn þá ánægju að sjá fréttamann hjá BBC taka Callaghan núverandi for- sætisráðherra til yfirheyrslu, og þó að Callaghan yrði sifellt ófrýnilegri á svipinn, þá komst hann ekki upp með múður. Hann var þá fjármálaráðherra eins og hann Matthias okkar M., og í hvert skipti sem hann reyndi að setja sig í ræðu- mannslegar stellingar og byrja að vella langlokur, þá eins og seildist BBC-maðurinn i hnakkadrambið á honum og eins og hristi úr honum óknytt- Framhald á bls. 37 Ljósm. Mats Wibe Lund þeirri braut að ná samkomulagi við Sovétríkin á þeirri forsendu, að Sovétmenn mundu svíkja alla samninga. Þeir hafa hvatt Vestur- landaþjóðir til þess að halda vöku sinni, að draga ekki úr vígbúnaði heldur þvert á móti. Þetta gera þeir auðvitað af eiginhagsmuna- ástæðum vegna þess að því meiri viðbúnað sem Sovétmenn þurfa að hafa á vestur landamærum sín- um, þeim mun minni herafla geta þeir staðsett við kínversku landa- mærin. En hér fara eiginhags- munir Kínverja og hagsmtinir Vesturlandaþjóöa saman. Rök Kínverja verka á báða bóga. Kínverjar hafa alveg sérstak- lega vakið athygli á flotauppbygg- ingu Sovétmanna á Kolaskaga og í N-Atlantshafi. Einmitt vegna þess hvöttu þeir eindregið til þess, þegar raddir heyrðust hér á ís- landi um að varnarliðið ætti að hverfa á brott og ísland að ganga úr Atlantshafsbandalaginu, að Is- lendingar héldu áfram varnar- samstarfi sínu við Bandaríkja- menn og þátttöku sinni í Atl^nts- hafsbandalaginu. Dagblað Alþýð- unnar í Peking, aðalmálgagn Kommúnistaflokksins í Kína, hef- ur hvað eftir annar birt ítarlegar greinar og ritstjórnargreinar um umsvif sovézka flotans hér á N- Atlantshafi. Af þeim skrifum, sem sum hver hafa birzt í Morg- unblaðinu er t.d alveg ljóst að viðhorf Dagblaðs alþýðunnar í Peking og Morgunblaðsins til þessara flotaumsvifa er svo til ná- kvæmlega það sama. Þýðing Maós fyrir Vesturlönd var í því fólgin, að hann hvatti þá sem vakandi voru til aukinnar árvekni og vakti þá sem höfðu sofnað á verðinum. Menn hljóta að leggja við hlustir, þegar einn af páfum kommúnistahreyfingar- innar varar við heimsvaldastefnu Sovétríkjanna. En hér kemur einnig meira til. Utvarðasveitir Sovétríkjanna Sovétríkin hafa að því leyti til haft sterkari aðstöðu til þess að halda uppi útþenslu sinni en t.d. nýlenduveldi síðustu aldar, að þau hafa haft á að skipa í flestum löndum heims harðsnúnum og vel skipulögðum útvarðasveitum, sem hafa kerfisbundið unnið að þvl að vinna þessi lönd innan frá, með því að berjast fyrir fram- gangi stefnumála, sem þjónuðu hagsmunum Sovétríkjanna. Þess- ar útvarðasveitir eru kommún- istaflokkar víða um lönd, sem ganga undir mismunandi nöfn- um. Slfka útvarðasveit hafa Sovétmenn jafnan haft hér á landi, þótt hún hafi tekið veruleg- um breytingum í tlmans rás. Kommmúnistaflokkur Islands, upp úr 1930, sfðan Sósfalistaflokk- urinn og loks Alþýðubandalagið hafa bráðum f hálfa öld haldið uppi baráttu fyrir framgangi stefnumála, sem að vissu marki gátu átt sér innlendar forsendur en hlutu þó að lokum að þjóna hagsmunum Sovétríkjanna og heimsvaldastefnu þeirra. Sam- skipti Kommúnistaflokksins og Sósfalistaflokksins við Moskvu voru mjög náin og vafalaust yrði það merkileg saga, ef sögð væri. Það var fyrst eftir hina frægu ræðu Krúsjeffs um Stalín 1956, sem eitthvað tók að draga úr sam- skiptum Sósíalistaflokksins við Sovétrfkin en þau færðust i þess stað yfir til A-Þýzkalands. Sam- band Sósfalistaflokksins við kommúnistaflokkinn I A- Þýzkalandi var mjög náið um skeið sérstaklega á sfðari hluta sjötta áratugsins og fyrri hluta þess sjöunda. All f jölmennur hóp- ur núverandi áhrifamanna f Al- þýðubandalaginu hlaut menntun sína i A-Þýzkalandi á þessum ár- um og leiðtogar Sósfalistaflokks- ins tóku persónulega ákvörðun um hverjum skyldi hlotnast námsstyrkur í A-Þýzkalandi. Sam- bandið við Moskvu og A- Þýzkaland helzt enn og hin síð- ustu ár hefur einnig komizt á eitt- hvert samband milli forystu- manna Alþýðubandalagsins hér og kommúnista f Rúmenfu. Þessar útvarðasveitir Sovétríkj- anna hér á íslandi, sem annars staðar, hafa kerfisbundið haldið uppi baráttu fyrir stefnumálum, sem þjónað gætu hagsmunum Sovétrlkjanna. Tvennt skiptir Sovétríkin mestu vegna flotaum- svifa þeirra á N-Atlantshafi. I fyrsta lagi, að bandaríska varnar- liðið hverfi á brott frá íslandi þannig, að ekki verði hægt með jafn tryggum hætti að fylgjast með ferðum sovézka flotans á haf- inu milli Islands, Noregs og Grænlands og betri aðstaða skap- ist til þess að leggja pólitiskan þrýsting á íslenzk stjórnvöld með sovézka flotann f nánd. I öðru lagi, að Island hætti þátttöku f Atlantshafsbandalaginu og ein- angrist þar með hér norður í Atlantshafi. Ef þetta tvennt gerð- ist hefði Sovétríkjunum opnast greiðari leið suður f Atlantshaf. Og þetta tvennt hefur verið mesta og helzta baráttumál Sósialista- flokksins og Alþýðubandalagsins í aldarfjórðung. Um það bil, sem fleiri og fleiri Vesturlandabúar sofnuðu á verð- inum og stórir hópar æskumanna snerust á sveif með vinstri mönn- um, sem héldu því fram, að þessi varúðarstefna gagnvart Sovétríkj- unum væri ekkert annað en „kaldastríðsáróður“ kapítalista, kom Maó til sögunnar. Maó sundr- aði útvarðasveitum Sovétmanna á Vesturlöndum og stöðvaði vissan straum æskufólks til þeirra. Boð- skapur hans, bæði um hina innri uppbyggingu þjóðfélagsins og um hættuna af heimsvaldastefnu Sovétmanna hafði djúpstæð áhrif á ákveðna hópa æskufólks, sem höfðu verið vaxtarbroddurinn f útvarðasveitum kommúnista t.d. hér á Islandi. Alþýðubandalagið hér fær ekki lengur þá endurnýj- un úr hópi æskufólks, sem hver stjórnmálaflokkur þarf á að halda. Sú vinstri sinnaða æska safnast saman í samtökum af þvf tagi, sem efndu til mótmælastöðu og útifundar fyrir framan sovézka sendiráðið á dögunum til þess að mótmæla innrás Sovétríkjanna f Tékkóslóvakíu fyrir átta árum. Mao-Tse-tung og kinverskir kommúnistar hafa átt ríkan þátt f að opna augu vinstri sinnaðrar æsku fyrir hættunni frá Sovét- rfkjunum og þar með lagt sinn skerf af mörkum til þess að víð- tækari samstaða en nokkru sinni fyrr gæti skapast í framtíðinni um þær ráðstafanir, sem nauðsyn- legar eru til þess að sporna gegn þessari sovézku heimsvaldastefnu og einangra um leið þá, sem enn kjósa að skipa sér f sveit með útvörðum Sovétríkjanna á tslandi og annars staðar. Það er einnig til marks um hve útbreiddar áhyggj- ur vegna heimsvaldastefnu Sovét- ríkjanna eru orðnar að ein af ástæðunum fyrir þvf að ítalski kommúnistaforinginn Berlinguer styður aðild Italfu að Nato er sú að hann óttast skyndiinnrás Sovétrikjanna í Júgóslavíu, þegar Titó hverfur á braut og telur að þá verði sjálfstæði ítalfu ógnað. Kannski geta þeir Alþýðubanda- lagsmenn eitthvað lært af Berlinguer þótt þeir hafi ekki viljað taka Mao sér til fyrirmynd- ar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.