Morgunblaðið - 12.09.1976, Page 22

Morgunblaðið - 12.09.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1976 Vandi banka- kerfisins verður ekki leystur nema með sameiningu banka — Hvor oru holztu vandamál, sem hankarnir oiga við art oija? —1 Vandamálin eru ekki þau, sem mest er um (alað, segir Jónas Haralz. Þau eru af allt öðrum toga spunnin, en á þessu er því miður lítill skilningur, nema innan bankanna sjálfra. Samkvæmt mírini reynslu er ekki um það að ræða, að bankarnir starfi undir óeðlilegum póli- tískum áhrifum eða að stjörnmálamenn reyni að misnota bankana. Það er heidur ekki svo, að bankarnir hafi veitt mikið af lánum til sla-mra viðskiptamanna. Það verður að líta á starfsemi bankanna í heild. Þvi miður geta mistök alltaf átt sér stað og margt má betur fara í bönk- unum eins og í öðrum stofnunum, en það má ekki draga víðtækar ályktanir á grundvelli fárra dæma, sem ekki gefa rétta mynd af starfsemi bankanna yfir- leitt. Jafnframt er sú hætta þá fyrir hendi, að athyglin beinist frá þeim vanda, sem raunverulega er við að etja. Sá vandi snertir að mínum dómi annars vegar skipulag bankanna, bæ'ði banka- kerfisins i heild og innra skipulag bank- anna, og hins vegar margvísleg skaðleg áhrif verðbólgunnar á starfsemi bank- anna, á innlán þeirra, útlán og fjárhag. — Ilvað or alhugavort við skipulag bankakerfisins? — I upphafi, þegar íslenzku bankarnir voru aðeins tveir, voru þeir alhliða bank- ar, sem störfuðu í þágu allra atvinnu- greina, allra landshluta og alls almenn- ings, eftir þvi sem unnt var. Þeir bankar, sem síðar voru stofnaðir, áttu hins vegar að þjóna sérstökum hagsmunum eða sér- stökum hópum manna. Þróunin hér á landi hefur með þessum hætti gengið í gagnstæða átt við það, sem orðið hefur erlendis, þar sem bönkum hefur fækkað og þeír bankar, sem áður voru sérhæfðir, hafa tekið að starfa á alhliða grundvelli. Bankar hér á landi eru of margir til þess að hagkvæmur rekstur náist, flestir þeirra eru of smáir og fjárhagssnauðir til þess að geta stundað alhliða banka- starfsemi, þar á meðal erlend viðskipti, og tekizt á við meiri háttar verkefni. Þá gera mismunandi sjónarmið og tilgangur bankanna það að verkum, að samkeppni verður ekkí eðlileg. Sérhæfðir bankar safna sparifé frá öllum almenningi, en reyna siðan að beina þvi sparifé inn i sérstaka farvegi. Þeir ieggja sig ékki eftir viðskiptum við atvinnugreinar, sem eru mjög áha-ttusamar eða fjármagns- frekar, eins og á við um sjávarútveg og innflutning nauðsynja eins og olíu, járns, timb.urs, fóðurvöru o.s.frv. Þeir hafa heldur ekki áhuga á viðskiptum við meiri háttar iðnfyrirtæki, né ráða við slik viðskipti. Þeir bankar, sem starfa á alhliða grundvelli, verða eins og áður að sinna þessum jatvinnugreinum og þess- um viðskiptum, sem hafa grundvallar- þýðingu fyrir þjóðarbúskapinn, en á sama tíma seilast sérhæfðu bankarnir æ lengra til innlána og freista þess að ná þeim viðskiptum, sem eru bönkunum þægilegust og hagkva'must. Sameining banka — Hvaða leið tolur þú færa til þess að leysa þotta vandamál bankakerfisins? — Að vissu marki getur samvinna á milli bankanna komið að gagni. Slik sam- vinna hefur farið vaxandi á undanförn- um árum. Bankarnir halda reglulega fundi sín á milli og hafa stofnað með sér samtök, Samband íslenzkra viðskipta- banka, sem koma fram sem sameiginleg- ur fulltrúi bankanna ba-ði á innlendum og erlendum vettvangi. Bankarnir hafa gert með sér samkomulag um starfshætti tíl þess að stuðla að þvi, að samkeppni þeirra á milli fari fram á heilbrigðum grundvelli. Sameiginlegri þjónustu hef- ur verið komið á fót, svo sem giróþjón- ustu, ásamt póstinum, og rafreikniþjón- ustu. Margvisleg samræming á starfsemi bankanna fer einnig fram á vegum Seðlabankans. Ég tel hins vegar ekki, að unnt sé að leysa vandann með þessum hætti, heldur verði sameining banka að koma til og þá það jafnframt, að allir bankarnir starfi á alhliða grundvelli, taki að sér verkefni í öllum atvinnu- greinum og slundi allar tegundir banka- viðskipta, þar á meðat erlend viðskipti. Ég tel eðlilegt, að ríkisbankarnir verði tveir en ekki þrír og einkabankarnir tveir en ekki fjórir. Það gefur nokkra hugmynd um erfiðleikana á heilbrigðu skipujagi i ríkisrekstri yfirleitt, að ekki skuli hafa reynzt unnt að framkvæma umba-tur af þéssu tagi, þrátt fyrir að tillögur hafa legið fyrir um það í heilan áratug, en svo langt mun bráðum liðið siðan Jóhannes Nordal setti fyrst fram slíkar hugmyndir. Það virðist ógerlegt að koma sameiningu rikisbanka í kring vegna þröngsýni og skammsýni sér- stakra hópa, sem vega þungt á hinum pólitisku metaskálum. Ef bankakerfið væri rekið á einkagrundvelli, eins og víðast er gert erlendis, hefði slík samein- ing átt sér stað fyrir löngu. Slæm afkoma bankanna ásamt ófullnægðum þörfum atvinnulífsins hefðu ráðið úrslitum í þessu efni í stað þeirra sjónarmiða, sem stjórnmálamenn teljá sig þurfa að taka tillit til. — Hver er veikleikinn í innra skipu- lagi bankanna? — Segja má, að um sé að ræða vaxtar- verki vegna stækkunar bankanna og samfélagsins alls. Bankarnir voru áður litlar stofnanir. Það var auðvelt fyrir einn eða fáa menn að hafa yfirsýn um öll málefni þeiri a, taka allar ákvarðanir og tala við aila viðskiptamenn. Sá tími er löngu liðinn, a.m.k. að því er varðar stærri bankana. Það er nauðsynlegt að koma á skipulagi, sem byggir á almennri — segir Jónas Haralz, bankastjóri Landsbankans í viðtali við Morgunblaðið stjórnun. 1 Landsbankanum höfum við reynt að koma á slíku almennu skipulagi smátt og smátt á undanförnum árum. En það er erfitt vegna þess, að viðskipta- mennirnir átta sig illa á þessum breyt- ingum og starfslið bankanna er ekki undir þær búið. Mönnum finnst enn, að fáir bankastjórar geti sinnt öllum við- skiptamönnum og tekið allar ákvarðanir. Afleiðingin er sú, að ekki reynist unnt að sinna almennri yfirstjórn sem skyldi. Þetta stuðlar að þvi, að ýmislegt fer verr úr hendi en æskilegt væri og þörf er á. Gömlu aðferðirnar duga ekki lengur og ný vinnubrögð eru ekki enn komin í þeirra stað í jafn ríkum mæli og nauðsyn bæri til. Umbætur í Landsbanka — Hvað hefur Landsbankinn gert til þess að mæta þessum nýju viðhorfum f starfsemi bankanna? — Landsbankinn hefur meðal annars eflt hagdeild sina. 1 henni fer fram könnun á fjárhag fyrirtækja og lánsfjár- þörf þeirra. Skýrslur hagdeildar eru not- aðar við ákvarðanatöku um lánveitingar. Ætlunin er að halda lengra áfram á þessari braut, svo að hagdeildin hafi beinni og varanlegri samskipti við þau fyrirtæki, sem skipta við bankann, en verið hefur. Þá höfum við leitazt við að veita útibúunum hér i Reykjavík og út um land heimild til útlána upp að vissu marki, án þess að leita samþykkis banka- stjórnar, en jafnframt höfum við aukið eftirlit með útibúunum. Ákveðnar regl- ur hafa verið settar um útlán yfirleitt og útibússtjórar og bankastjórar verða að fara eftir þeim reglum. Á undanförnum árum hefur verið miðað við að útlán fari ekki yfir ákveðið mark og hefur þetta verið gert með samningum við Seðla- bankann. Það tókst vel að framkvæma þetta i fyrra en hefur gengið mun erfið- ar í ár. 1 Landsbankanum hafa banka- stjórar orðið að draga úr viðtölum við almenning og fela sérstökum aðstoðar- mönnum sínum að annst þau undir sinni yfirstjórn að verulegu leyti. Auk þess er lögð áherzla á, að viðskiptamenn hafi beint samband við þau útibú í Reykja- vík, sem þeir eru í viðskiptum við. Landsbankinn hefur einnig tekið upp einfalt form á útlánum fyrir einstakl- inga, hin svonefndu sparilán. Ekki þarf að tala við bankastjóra til að fá slik lán, aðeins að sýna fram á það með reglu- bundnum sparnaði, að lántakandi sé trausts verður. 1 Landsbankanum hefur lengi verið starfandi endurskoðunardeild, sem fylg- ist nákvæmlega með öllum rekstri bank- ans. Til viðbótar henni er nú komin starfsemi bankaeftirlitsins, sem Seðla- bankinn annast. Eftirlitið með útibúun- um, starfsemi endurskoðunardeildar og bankaeftirlitsins veitir mikla tryggingu fyrir þvi, að ekki sé um að ræða óeðlileg og vafasöm útlán. Umbætur á innra skipulagi bankanna munu gera bankaviðskipti öruggari og þægilegri fyrir viðskiptamennina og veita bankastjórninni betri aðstöðu til þess að hafa nægilega yfirsýn yfir mál- efni bankans í heild. — Hvert er hlutverk bankaráðanna í fslenzkum bönkum? — 1 lögum ríkisbankanna er það skýrt tekið fram, að bankastjórnin ráðstafi fé bankans. Bankaráð fjallar því ekki um einstök útlán. Hlutverk bankaráðs er þó sízt veigaminna af þessum sökum. Það er hin almenna yfirstjórn bankans, sem mótar stefnu hans og fylgist með fram- kvæmd hennar, auk þess sem það velur bankastjórn, útibússtjóra og nokkra helztu embættismenn bankans. Banka- ráðið fylgist stöðugt með þróun bankans og því eru veittar allar þær upplýsingar um einstök mál, sem það fer fram á. Gagnkvæmt traust og góð samvinna á milli bankaráðs og bankastjórnar er ein meginforsenda heilbrigðrar bankastarf- Fjármálavald á of fáar hendur? — Er ekki hætta á því að fjármálavald safnist á of fáar hendur ef bönkum er fækkað? — Fjórir bankar, tveir ríkisbankar og tveir einkabankar, er nægilegur fjöldi banka til þess að heilbrigð samkeppni þróist. Þar að auki koma sparisjóðirnir til sögunnar. Þá gætu stærri bankar tek- ið að sér verkefni, sem minni bankarnir ráða ekki við nú. Það yrði mun meira jafnræði milli bankanna, ef fjórir tiltölu- lega öflugir bankar væru í landinu, og þetta væri til bóta fyrir viðskiptamenn- ina. — Hvað um valddreifinguna? — Litlum bönkum, sem eru litils megnugir, fylgir litið vald. Það er litlu að dreifa. Sameining banka mundi fela i sér aukið vald og um leið aukna sam- keppni, sem kemur i veg fyrir misnotk- un valdsins. Vel þróað útibúakerfi stuðl- ar jafnframt að eðlilegri dreifingu fjár- máiavaldsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.