Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 114. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ráðherra sendur til Baskahéraða Verkfallsmenn hefja vinnu í dag Bilbao, Madrid 15. september. Reuter — NTB. UM 120.000 verkamenn í Baskahéruðum Spánar samþykktu i dag að hætta Verkfall hjáFord Detroit 15. september — Reuter MEIR en 165.000 verka- menn lögðu niður vinnu í Ford-bifreiðaverksmiðj unum öll Bandaríkin í dag og er óttazt, að verkfallið kunni að verða langvinnt og muni valda miklu efna- hagstjóni í landinu. Leið- togi verkamannanna sagði í kvöld, að engar viðræður yrðu fyrr en í næstu viku. Deilan stendur um launa- hækkun og hlunnindi. Júgóslavar létu Carlos óáreittan — segir Bandaríkjastjórn Washington 15. september — NTB BANDARlKJASTJÖRN hefur borið fram mótmæli við Júgó- slavfustjórn vegna þess að hinn illræmdi hermdarverkamaður Ilieh Ramirez Sanches, kunnari undir nafninu Carlos eða Sjakal- inn, var ekki handtekinn er hann dvaldist f Júgóslavfu fyrir skömmu, að þvf er bandarfskur embættismaður upplýsti í Washington f dag. Mótmælin voru afhent 8. september. verkfalli og hefja vinnu aftur á morgun, fimmtu- dag. Um 80.000 verkamenn mættu ekki til vinnu í dag í héraðinu Vizcaya, þriðja daginn í röð, en um 250.000 manns tóku þátt I verkfall- inu í Baskahéruðunum, þegar mest var. Það var háð til að mótmæla þvf, er ungur verkamaður féll í átökum við lögreglu í fyrri viku. Heimildir innan ríkisstjórnarinnar í Madrid hermdu í dag, að Adolfo Suarez forsætisráð- Framhald á bls 22. HANDTAK — Henry Kissinger og Julius Nyerere takast í hendur við upphaf viðræðna þeirra í Dar es Salaam f gær. AP-sImamynd. Nyerere og dr. Kissinger vondaufir um samkomulag Dar es Salaam, Jóhannesarborg, Umtali I5.september-Reyter Henry Kissinger, utanrfkisráð- herra Bandaríkjanna og Julius Nyerere, forseti Tanzanfu luku f dag fyrsta áfanga sáttaferðar Kissingers um suðurhluta Afrfku með fjögurra klukkustunda við- ræðuin f Dar es Salaam. Að þeim loknum voru báðir aðilar von- daufir um að ferð Kissingers bæri tilætlaðan árangur. Nyerere for- seti sagði f kvöfd, að Kissinger, sem skýrði frá fundi þeirra John Vorsters, forsætisráðherra Suður- Afrfku f Ziirich fyrir 10 dögum, hefði ekki tjáð sér neitt sem yki lfkur á samkomulagi f Rhódesfu eða Namibfu. Dr. Kissinger sjálf- ur var ekki alveg eins svartsýnn á blaðamannafundi f kvöld, en sagði, að Ifkurnar á þvf að för sfn bæri árangur væru minni en 50:50. „Menn eru sammála um nokkur atriði. Menn eru mmög ósammála um nokkur atriði. Sú spurning sem við stöndum and- spænis f næstu viku er hvort unnt sé að brúa bilið milli deilu- aðila... Ef ekki væru einhverjar Ifkur á að hrúa megi þetta bil, þá hefðum við ekki farið f þessa ferð,“ sagði Kissinger. Kissinger og Nyerere urðu ás- áttir um að eiga með sér annan fund næsta þriðudag eftir að Kiss- inger hefur heimsótt Zambiu og Suður-Afriku. Kissinger mun ræða við Vorster í Pretóríu um helgina, en talið er, að þá muni Ian Smith forsætisráðherra Rhódesíu ennfremur verða þar til viðræðna við Vorster og herma fregnir frá Rhódesiu að hugsan- lega kunni þeir Smith og Kissing- er að hittast þá. Eftir viðræðurnar i dag sagði Nyerere að hann væri jafnvel von daufari en áður um að hraða megi því að Namibía hljóti sjálfstæði á friðsamlegan hátt. Helztu ágrein- Framhald á bls 22. Miki fær gálgafrest Breytingar á stjórn og flokksforystu Tókýó 15. seplember — AP. TAKEO Miki, forsætisráðherra Japans, útnefndi f dag nýja ríkis- stjórn og forystu f stjórnarflokkn- um, Frjálslynda demókrata- flokknum f þeim tilgangi að reyna að koma mikilvægum laga- frumvörpum gegnum þingið og sameina hinn sundraða flokk sinn fyrir kosningar f lok ársins. Ekki er gert ráð fyrir, að hin nýja rfkisstjórn muni halda velli leng- ur en út desembermánuð, þegar boðað verður til nýrra kosninga. Sovétríkin efla njósnir um NATO-heræfingarnar Brdssel 15. september — Reuter SOVÉTRlKIN styrkja nú mjög eftirlitssveitir sínar bæði f lofti og á sjó f Norðurhöfum til að fylgjast náið með hinum miklu heræfingum Atlantshafsbanda- lagsins, sem færast að strönd- um Noregs f kvöld, að þvf er heimildir innan NATO hermdu f dag. Sovétmenn eru með tvii beitiskip af Kresta-gerð, búir eldflaugum, fimm njósnaskip tundurduflaslæðara og tvö önn ur skip á svæðinu, að sögn heimildanna. Stórar langdræg- ar njósnaflugvélar af Bjarnar- gerðinni fljúga ennfremur yfir NATO-flotann. sem þátt tekur í æfingunum, en þær nefnast Tramwork ’76 og eru einar mestu heræfingar sem nokkurn tfma hafa farið fram f 27 ára Sovézk sprengjuflugvél af Bjarnar-gerð við Island. Varnarliðsfiug- vél fylgist með. sögu bandalagsins. I flotanum eru 257 herskip, en þátt taka einnig um 900 flugvélar. Alls taka um 80.000 hermenn þátt f æfingunum. Tilgangur Team- work ’76 er að sýna Sovétríkj- unum, að Noregur, einn veik- asti hlekkur NATO, myndi fá mikinn og skjótan liðsauka, ef til strfðs kæmi. Æfingarnar ná hápunkti á mánudag, þegar um 7000 bandarfskir, brezkir og hollenzkir sjóliðar ganga á land f Norður-Noregi, þar sem aðrar NATO-sveitir verða til að veita mótspyrnu. NATO-heimildirnar herma, að Sovétmenn muni að öllum likindum auka eftirlit með æf- ingunum, er „árásarsveitirnar” nálgast Noregsströnd. Er æf- ingar voru haldnar undan Noregi í fyrra flugu sovézkar orustuþotur lágt yfir herskip bandalagsins og sovézkar þyrl- ur sveimuðu í aðeins fárra metra hæð yfir þeim. Banda- lagsherinn heldur uþþi svipuð- um aðferðum, er Sovétherinn æfir sig í þeim tilgangi að reyna Framhald á bls 22. Miki — gerir málamiðlun. Breytingar Mikis á stjórninni og flokksforystunni cru liður f mála- Framhald á bls 22. Sprenging Sandefjord 15. september — Reuter GlFCRLEG sprenging í stærstu málingarverksmiðju Noregs í Sandefjord olli miklum eldsvoða f verksmiðjunni f kvöld og var óttazt að allmargir hefðu farizt f eldinum, að þvf er talsmaður fyr- irtækisins skýrði frá. Við eldinn urðu fleiri sprengingar f ýmsum efnum, sem notuð eru við fram- leiðsluna. lm 100 fjölskyldur f nágrenni verksmiðjunnar voru fluttar á brott. Björgunarmenn gátu ekki í kvöld farið inn á verk- smiðjusvæðið vegna óskaplegs hita. Um 100 nianns voru að störf- um á næturvakt er sprengingin varð. Síðar í kvöld var talið ljóst að enginn hefði farizt en nokkrir slasazt alvarlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.