Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMbER 1976 39 Keflvíkingar börðust hetjulega en urðu að þola 0-3 tap I Hamborg Frá Helmut Forscher í Hamborg: Keflvíkingar mega sannarlega una vel við árangur sinn í fyrri leiknum i bikarkeppni bikarhafa i knattspyrnu gegn vestur-þýzka liðinu Hamborg SV. Úrslit i leiknum, sem fram fór i Hamborg í gaer, urðu 3—0 fyrir Þjóðverjana, en eftir gangi leiksins hefði ekki verið ósanngjarnt að vest- ur-þýzku mörkin hefðu verið fleiri. Keflvikingar léku varnarleik frá upp- hafi til enda og hver einasti leikmað- ur liðsins barðist af miklum dugnaði og hörku. Fremstur í flokki var þó Þorsteinn Ólafsson, markvörður, sem kom frá Sviþjóð til þess að taka þátt i þessum leik. Hvað eftir annað varði hann stórkostlega vel, og bjargaði hann liði sinu frá enn stærra tapi. Fyrirfram höfðu leikmenn Hamborg- ar-liðsins gert sér vonir um stórsigur i þessum leik, jafnvel metsigri i UEFA- bikarkeppninni Þessar vonir þeirra fengu byr undir vængi þegar það frétt- ist að Keflvíkingar hefðu verið meðal neðstu liðanna í islenzku 1 deildar keppninni i knattspyrnu, en hins vegar runnu tvær grímur á menn, þegar fréttist um úrslit i landsleikjum íslend- inga við Hollendinga og Belgiumenn. Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir Ham- borgarliðið. þar sem ekki voru liðnar nema sjö minútur, er Þorsteinn hafði tvivegis orðið að sækja knöttinn í mark sitt Það var þegar á 5. minútu, að Hamborg SV átti prýðilega sókn sem lauk með skoti. Lenti það í varnar- manni Keflvíkinga og af honum hrökk knötturinn út á völlinn, þar sem Zacyk kom aðvifandi og átti auðveldan leik að skjóta i Keflavikurmarkið Aðeins tveimur mínútum síðar tókst Hamborg SV að splundra vörn Kefla- víkurliðsins og Reimann skoraði annað mark leiksins. En þar með var lika draumurinn búinn. Keflvíkingar virtust smátt og smátt losna víð skrekkinn sem ein- kenndi leik þeirra fyrstu minúturnar og Æfingar hjá Erninum ÆFINGAR hefjast hjá Borðtenn- isklúbbinum Erninum þriðjudag- inn 21. september n.k. Æfinga- tímar verða bjá klúbbnum mánu- daga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 18.00. Skráning fer fram mánudaginn 20. septem- ber í Laugardalshöllinni frá kl. 18.00. Æfingagjöld þarf að greiða við skráningu. mjög góð barátta náðist upp í liðinu, barátta sem hver einasti leikmaður var vel virkur i FFemstir í flokki voru þó, auk Þorsteins markvarðar, þeir Einar Gunnarsson, Guðni Kjartansson og Gísli Torfason. Meginhluta leiksins var knötturinn á vallarhelmingi Keflvíkinga, þar sem Þjóðverjarnir reyndu að komast að marki þeirra, en Keflvíkingar að hrein- sa frá. Knattspyrnan sem hinum rösk- lega 8.000 áhorfendum var boðið upp á, var þvi ekki margra fiska virði, enda fór svo undir lokin, að þeir voru farnir að púa og baula á knattspyrnumenn- ina, og um miðjan seinni hálfleik tóku margir að tygja sig heim á leið. Af og til í leiknum áttu Keflvikingar sóknir, en þær voru næsta tilviljunar- kenndar Það þýddi þó ekki, að þær væru hættulausar. Þannig tókst Einari Gunnarssyni að snúa á vörn Hamborg SV, þegar röskar 30 minútur voru liðnar af fyrri hálfleik Nálgaðist Einar mark Þjóðverjanna og var kominn inn í vítateiginn. er einn af varnarmönnum Hamborg SV náði honum og skellti honum flötum. Þarna var varla um neitt annað að ræða en vítaspyrnu en tékkneskur dómari leiksins leiddi þetta atvik hjá sér. Þar með fór hættulegasta færi ÍBK i fyrri hálfleik í súginn. Seinni hálfleikur i leiknum í Ham- borg var hinum fyrri slakari. Þjóðverj- arnir sóttu alltof þröngt og auðveldaði það Keflvikingum vörnina Fór sýni- lega að gæta leiða í þýzka liðinu og virtist það ekkert hressast við það, er Hidien skoraði þriðja mark þeirra á 77 mínútu leiksins. Þvert á móti dofnaði enn yfir leik þess, og Keflvíkingar fóru að ná skárri sóknum en þeir höfðu gert fram til þess i leiknum. Aldrei var þó um neina hættu við þýzka markið að ræða utan einu sinni — á lokaminútu leiksins er Steinar Jóhannsson komst skyndilega í færi. eftir misheppnaða sendingu Danans Björmose i þýzka liðinu til markvarðar síns. En þá höfðu Þjóðverjar heppnina með sér og tókst að bjarga á elleftu stundu Beztu menn Keflavikurliðsins i leik þessum voru sem fyrr greinir þeir Þor- steinnÓlafsson, Einar Gunnarsson, Guðni Kjartansson og Gisli Torfason Varla eiga Keflvíkingar möguleika á að komast áfram í keppninni, þótt búast megi við þvi, að þeir verði enn erfiðari fyrir Þjóðverjana í leiknum i Reykjavík en þeir voru í þessum leik, en sá leikur mun fara fram 29 september Einn leikmanna ÍBK, liðsins, Steinar Jóhannsson, fékk gula spjaldið í leik þessum, er honum lenti illa saman við einn af leikmönnum Hamborg SV. Leikurinn var lengst af prúðmannlega leikinn, en dómarinn sem var frá Tékkóslóvakiu, þótti ekki standa sig sem skyldi Einar Gunnarsson, fyrirliði Keflvfkinganna barðist mjög vel f leiknum í gærkvöldi og stöðvaði ófáar sóknir Þjóðverjanna. 29 sóknir fóru forgörðum EINS og fram hefur komið I blað- inu töpuðu Islendingar fyrir Sviss f þriðja landsleik þjóðanna I handknattleik f fþróttahúsinu á Akranesi. Leikurinn var af- spyrnu lélegur og er varla fleiri orðum á hann eyðandi en þegar hefur verið gert. Þ6 er rétt að geta þess að 29 sóknir fslenzka liðsins fóru forgörðum og þar af tapaði Viðar Símonarson fyrirliði og leikreyndasti maður liðsins boltanum 12 sinnum. Svisslendingar spiluðu hraðan og skemmtilegan handbolta og gerðu mörg faileg mörk. Beztu menn þeirra voru fyrirliðinn Zuliig og Jehle en þeir gerðu rúmlega helming af mörkum Svisslendinga. En hér fer á eftir gangur leiksins f stuttu máli. 1 STUTTU MALI Gangur leiksins Mfn. tsland 4. Geir 6. 8. 9. Geir 12. Ágúst 14. 15. Bjarni 16. 17. Þorbjörn 18. 21. Viðar 23. 24. ólafur 1:6 1:1 1:2 2:2 3:2 3:3 4:3 4:4 5:4 5:5 6:5 6:6 7:6 Sviss Zullig(v) Jehle Zullig (v) Hottiger 25. 7:7 Zullig 27. 7:8 Jehle 28. Viðar (v) 8:8 28. 8:9 Jehie 29. Björgvin 9:9 30. 9:10 Jehle HALFLEIKUR 31. Bjarni 10:10 34. 10:11 Jehle 36. Geir 11:11 37. Geir 12:11 38. Viðar (v) 13:11 40. Björgvin 14:11 45. 14:12 Affolder 46. Viðar (v) 15:12 48. 15:13 Zuliig 49. 15:14 Schár 52. Björgvin 16:14 53. 16:15 Schár 54. 16:16 Zullig (v) 55. 16:17 Maag 57. 16:18 Maag 58. 16:19 Jehle 58. Viðar (v) 17:19 59. Viðar (v) 18:19 60. 18:20 Graber MÖRK ÍSLANDS: Viðar Símonar- son 6, Geir Hallsteinsson 4, Björg- vin Björgvinsson 3, Bjarni Guðmundsson 2, Agúst Svavars- son 1, Ölafur Einarsson 1, Þor- björn Guðmundsson 1. MÖRK SVISS: Ernst ZUUig 6, Robert Jehle 7, Max Schar 2, Peter Maag 2, Konrad Affolder 1. Hottiger 1, Urs Graber 1. BROTTVÍSANIR AF VELLI: Jehle, Sviss, i 2 mín., Arni Indriðason 2 mín., Ólafur Einars- son 2 mín., Þorbjörn Guðmunds- son 2 mín., Geir Hallsteinsson 2 min., Viggó Sigurðsson 2 min. MISHEPPNUÐ VITAKÖST: Svisslendingar áttu eitt mis- heppnað vitakast, en Islendingar ekkert. DÓMARAR: Sviarnir Bromann og Lövenius. Þeir voru mjög ákveðnir og ráku fullmikið útaf. HG. Zullig íþróttafélagið Þór, Vestmannaeyjum óskar eftir að ráða þjálfara i handknattleik, nk. keppnistimabil, en félagið leikur í 3. deild. Bjóðum upp á 1. flokks þjálfunaraðstöðu. Allar nánari upplýsingar,[jefur: Jón Kristjánsson, heimasimi 35716, vinnu- simi 17165. Evrópukeppni meistaraliða Milec: Stal Mielec (Póllandi) — Rcal Madrid (Spáni) 1—2 (0—I) Mark Mielec: Sekulski Mörk Real Madrid: Santiilana, Del Bosque. Nikósfa: Omonia (Kýpur) — Paok (Grikkiandi) 0—2 (0—I) Mörk Paok: Koudas, Sazafis. Ferencvaros (Ungverjalandi) — Jeuesse Esch (Luxemburg) 5—1 (3—1) Mörk Ferencvaros: Nyilasi 2, Magyar, Onhausz, Ebedli. Mark Esch: Giulani. Dinamo Kiev (Sovétrikjunum) — Partizan (Júgóslaviu) 3—0 (1—0) Mörk Dinamo: Onischenko, Troshkin og Biokhin (v) GSKA' (Búlgarfu) — St. Etienne (Frakklandi) 0—0 Viking (Noregi) — Bantik Ostrava (Tékkóslóvak.) 2—1 (2—1) Mörk Vikings: Valen, Johannessen Mark Ostrava: Slany. Glasgow Rangers (Skotlandi) — Ziirich (Sviss) 1—1 (1—1) Mark Kangers: Parlane Mark Zurich: Cuccinotta. WAC Vín (Austurríki) — Borussia Mönchengladbach (V- Þýzkal.) 1—0 Mark WAC: Daxbacher. Evrópukeppni bikarhafa Belfast: Carrick Rangers (N-trlandi) — Aris Bonnevoie (Lux- emb.) 3—1 (0—0) Mörk Rangers: Prenter 2 og Connor. Mark Aris: Pissinger. Galati: CSU Galati (Rúmeniu) Boavista Porto (Portúgal) 2—3 (0—2) Mörk Galati: Marinescu, Cramer Mörk Boavista: Olteanu (sjálfsmark), Aibertion, Mane. Sliema Wanderes (Malta) — Turun Palloseura, Finnlandi 2—1 MTK Budapest, (Ungverjalandi) — Sparta Pragh (Tékkóslv.) 3— 1 Lokomotiv Leipzig (A-Þýzkal.) — Hearts (Skotlandi) 2—0 (0—0) Mörk Lokomotiv: Sekora og Fritsche. Bodöe Glint (Noregi) — Naplcs (Italiu) 0—2 (0—1) Mörk Naples: Speggiori tvö. Rapid Vfn (Austurrfki) — Atletico Madrid (Spáni) 1—2 (1—0) Mark Rapid: Krankl. Mörk Atletico: Cano, Ayaia. Iraklis (Grikklandi) — Apoel (Kýpur) 0—0 Cardiff Cily (Wales) — Dinamo Tbilisi (Sovétr.) 1—0 (0—0) Mark Cardiff: Alston. Southamton (Englandi) — Oiympque Marseille (Frakklandi) 4— 0 (3—0) Mörk Southamton: Waldren, Channon 2 og Osgood. AIK (Sv(þjóð) — Galalasary (Tyrklandi) 1—2 (0—1) Mark AIK: Walgrenn. Mörk Gaiatasary: Azdenak og Under. Anderlecht (Beigiu) — Roda (Hollandi) 2—1 (0—1) Mörk Anderlecht: Vercauteren, Rensenbrink. Mark Roda: Toonstra. Bohemians Dublin (Irlandi) — Esbjerg (Danmörku) 2—1 (1—0) Mark Bohemians: Ryan og sjálfsmark. Esbjerg: H. Nielssen. UEFA-bikarkeppnin Austría Salxburg (Austurrfki) — Adanasport (Tyrkl.) 5—0 (2—0) Mörk Austria: Schwarz 3 og Haider 2. Manchester City (Engiandí) — Juventus (ltaiiu) 1—0 (1—0) MarkCity: Kidd. Derby County (Englandi) — Finn Harps (lrlandi) 12—0 (9—0) Mörk Derby: Hector 5, James 3. George 3, Rioch. Queens Park Rangers (Englandi) — Brann (Noregi) 4—0 (2—0) Mörk Q.P.R.: Bowles 3 og Masson. Ujpest Dozsa (Ungverjai.) — Atietico Bilbao (Spáni) 1—0 (0—0) Mark Ujpest: Dunai. Eintracht Braunswich (V-Þýzkal.) —Holbæk (Danmörku) 7—0 (2—0) Mörk Einstracht: Frank 3, Stolzenburg 2, Gersdorff, Hollmann. Hibernian (Skotlandi) —Sochaux (Frakkiandi) 1—0 (1—0) Mark Hibs: Brownlie. Næstved (Danmörku) —Moienbeek (Belgíu) 0—3 (0—1) Mörk Molenbeek: Boskamp og Wellens 2 Tirgu Mures (Rúmeníu) — Dinamo Zagreb (Júgóslav.) 0—1 (0—0) Mark Dinamo: Jurishic. Dynamo Bucharest (Rúmeníu) — AC Milan (ltal(u) 0—0 Kuopion Pailoseura (Finnlandi) — Öster (Svlþjóó) 3—2 (0—1) Mörk Palloseura: Törnroos, Rissanen tvö. Mörk Öster: Strömberg, Ejderstedt. FC Magdeburg (A-Þýzkal.) — Cesena (Italíu) 3—0 (2—0) Mörk Magdeburg: Steinbach og Streich 2 Shakhtyor (Sovétr.) — DyanmoBerlín (A-Þýzkal.) 3— 0 (I—0) Mörk Shakhtyor: Rogovsky, Sokolovsky og Starukhin. Slavia Prag (Tékkóslóvakíu) — Akademik Sofia (Búlgar(u) 2—0 (0—0) Mörk Slavia: Herda og Radolsky. AEK AÞenu (Grikklandi) Dynamo Moskvu (Sovétrfkjunum 2—0 (1—0) Mörk AEK: Nicoloudis, Papaioannou. Fcyenoord (Hollandi) —Djurgaarden (Sviþjóó) 3—0 (1—0) Mörk Feyenoord: Schneider, Kreuz og Vreysen. Celtic (Skotlandi) — WislaKrakow (Póllandi) 2—2 (1—0) Mörk Celtic: McDonald, Dalglish. Mörk Wisla: Kimiecik og Wrobel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.