Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 UmHORP Umsjón ERNA RAGNARSDÓTTIR. Spjallað við Einar Guð- finnsson frá Bolungarvík EINAR Guðfinnsson heitir tvítugur Vestfirðingur, fæddur og uppalinn I Bolungarvík. Einar á sæti i stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sem fulltrúi Vest- firðinga. Hann var stúdent frá Menntaskólanum á ísafirði 1975, annað árið sem sá menntaskóli útskrifar stúd- enta. Einar hefur unnið sem blaðamaður á dagblaðinu Vísi í sumar og vetur. Við ræddum um landsbyggðina, menntaskólann á ísafirði, starf Einars og það sem honum er efst í huga þessa dagana. f MENNTASKÓLA ÍSAFJARÐAR Það kom af sjálfu sér að fara í Menntaskólann á ísafirði, þar sem Bolungarvík er næsti bær við ísafjörð. Það er reyndar aðeins 20 mín. akstur þarna á milli, en sam- göngur eru ótryggar að ég sá mér ekki fært að búa heima hjá mér og þurfti því að leigja mér herbergi. Menntaskólinn eignaðist síð- an ágæta heimavist. Heima- vist eykur kynni nemenda innbyrðis og kennara og nemenda, sem aldrei yrðu jafn mikil með öðrum hætti. Mér líkaði allvel við skólann en óneitanlega var mér félagslífið ofarlega í huga þann tíma sem ég var þar. Afskipti mín af þeim málum hófust af alvöru eftir fyrsta árið. Þarna voru og eru ýms- ir klúbbar og félög starfandi og þótt starfsemi þeirra hafi kannski ekki alltaf verið með miklum blóma — frekar en hjá öðrum félögum yfirleitt í Jandinu — þá var þarna góður kjarni sem vann stöð- ugt og fékk miklu áorkað. Þetta var mjög samhentur hópur og þrátt fyrir ólíkar skoðanir á landsmálum þekktist ekki pólitískur klofn- ingur. Ég hafði einna mest afskipti af málfundaklúbbn- um og stóðum við m.a. fyrir ýmiss konar kennslu og upp- fræðslu í ræðumennsku, fundarsköpum og almennri félagsfræðslu. SÓLRISUHÁTfÐ „Sólrisuhátíðin" svokall- aða upphófst á ísafirði á þessum árum. Það var yfir- lýst markmið hátíðarinnar að skapa tengsl mílli bæjarbúa og skólans. Ýmsum lista- mönnum var boðið, bæði aðkomnum og ísfirzkum og var haldin almenn skemmt- un. Þarna gafst tækifæri til að kynnast og kynna lista- fólk staðarins, og þekkja verk annarra. Það má segja að hátíðin sé „innblásin" af listahátíðinni, sem haldin er hér á landi annað hvert ár. Nafn sitt dregur hátiðin af því að hún er haldin á þeim tíma árs, þegar loks er farið að sjást til sólár eftir myrkur skammdegisins. Þegar fyrsta hátíðin var haldin buðum við Jökli Jakobssyni að taka þátt í hátíðarhöldun- um. Á leið okkar um bæinn varð fyrir okkur risastórt skilti, sem við höfðum kom- ið fyrir hátt á végg Alþýðu- hússins og á stóð: „Sólrisu- hátíð" Jökull hrópaði upp yfir sig: Þetta hlýtur að vera „the house of the rising sun"! Þessi hátíð var mjög vel sótt og þrátt fyrir að ýmsir hafi verið efagjarnir í fyrstu, þá er „sólrisuhátíð" nú fastur liður í bæjarlífinu ár hvert. Á þennan hátt skapast hefðir og venjur, bæði vilj- andi og óafvitandi. Telurðu að hefðir hafi eitthvert markmið í sjálfu sér? Þær hafa reynzt nauðsyn- legar til að koma félagslífinu á skrið. Þá má náttúrlega segja að við hefðum alveg eins getað setzt niður og bara rabbað saman. En ég held að ef félagslíf eigi að vera lifandi, þurfi það að hafa eitthvert ris eins og t.d. þessi hátíð í tilefni vorsins. Þetta er líka spurning um að skapa eitthvað og fá útrás fyrir athafnaþrána. SKÓLINN OG BÆJARBÚAR Eins og ég gat um áðan varðandi markmið „Sólrisu- hátíðarinnar'' þá tel ég óhætt að segja að Mennta- skólinn sé í traustum sam- skiptum við bæjarbúa og hefur það sínar ástæður, jafnframt því að markvisst er unnið að því af hálfu skól- ans. Nemendum gefast margs konar tækifæri til að vinna með náminu — og auðvelt er að fá íhlaupa- vinnu, t.d. við uppskipun. Skólaböll sem slik voru ekki mjög tíð, nema fjáröfl- unarböllin sem voru öllum opin. Við sóttum mest hina almennu dansleiki kaupstað- arins og nærliggjandi sveita. Síðasta veturinn einbeitti ég mér meira að náminu en á því ári gáfum við út nokk- ur tölublöð af Vesturlandi. Fékk ég þá mína fyrstu nasasjón af blaðamennsku. Þegar kom að hausti var ég enn óákveðinn og þjáðist talsvert af námsleiða — fyr- irbæri sem eldri menn skilja ekki né vita hvað er. BLAÐAMAÐUR Á VlSI Mig langaði að reyna mig við blaðamennskuna en taldi að til slíkra starfa þyrfti meiri speking en mig. Ég áræddi þó að tala við Þor- stein Pálsson, ritstjóra Visis, með þeim afleiðingum að ég byrjaði að vinna hjá blaðinu í september. í vetur ætla ég auk þess að sækja tíma í félagsfræðum og hagfræði. A VISI... annað að láta sér það lynda að vera höfð í upplýsinga- svelti. Manni finnst stund- um að það séu ákveðnir menn sem leggja ákveðin blöð í einelti og hreinlega neiti þessum blöðum um upplýsingar. Á hinn bóginn er skilningur mjög að aukast á tilgangi blaðanna, flestir eru almennilegir og koma til móts við okkur — hitt eru undantekningar. „ÆSIFRÉTTIR" Það sem áður hét upp- sláttur og æsifrétt er nú talið „normalt". Þetta kemur til af bættri aðstöðu og menntun blaðamanna og hönnuða blaðanna. Það þarf að gera grein eða frétt þannig úr garði að nún verði lesin, með góðum myndum, sem segja oft meira en mörg orð, með fyrirsögnum, sem grípa auga og athygli lesandans, með millifyrirsögnum þar sem sláandi hlutir koma fram. Allt helzt þetta í hend- ur við meiri samkeppni milli blaðanna um lesendurna og Nú ert þú orðinn ein- hvers konar reykvískur „dreifbýlingur" — hvað með byggðapólitík okkar íslendinga? Ef þú hittir mann utan af landi, þá fer hann strax að tala um ýmsan vanda sinnar heimabyggðar, jafnfram þvi sem hann leitar fregna um hvað muni vera í þinni heimasveit. Þetta er kallað „lókal patríótismi" og er heldur lágkúrulegt fyrirbæri af sumum talið Þetta er þó ekki aðeins ofur eðlilegt og mannlegt heldur beinlínis lífsnauðsynlegt. Vandamál hans byggðarlags er kannski það, að 10 milljónir kr. til eða frá gætu ráðið því, hvort þar er byggð, sem framleiðir verðmæti eða eyðiþorp. Þetta er spurningin um hvort ráðamenn skilja ein- falda hluti. Dýpkunarskip í hálfan mánuð gæti skipt sköpum fyrir eitt sjávarpláss — fyrir marga kannski ómerkilegt mál, en fyrir þær 1—2000 manneskjur, sem þarna búa, skiptir þetta þó meira Um blaðamanna- ífSólrisuhátíð Margir segja að ég hafi verið heppinn að byrja þetta starf einmitt núna. Það eru umbrotatímar ! blaða- mennskunni — ekki ein- göngu hér á landi heldur um allan heim. Ég held að við séum að nálgast einhvers konar byrjun á alvörublaða- mennsku. Það eru ekki leng- ur fluttar hráar og yfirborðs- kenndar fréttir, né er hægt að segja blöðunum fyrir verkum á sama hátt og áður — þó gætir þess enn að- eins. Blöðin hafa yfirleitt mikið breytzt. samkeppni við aðra fjölmiðla og fjölbreyttari athafnir fólks. Við sjáum hvað flest blöð erlendist hafa gjarnan hrópandi fyrirsagnir og stór- ar myndir. Hér er slíkt ennþá af mörgum talið eyðsla á rými pg prentsvertu. Kannski erum við enn að nýta rýmið eins og við gerð- um þegar við skrifuðum á kálfskinn. BLAÐAMAÐUR ER FJÁRFESTING „SUMAR AÐFERÐIR BLAÐAMANNA" Þeir eru til sem óar við að blöðin knýi á og eru þeir farnir að láta frá sér heyra. Nefna má í því sambandi ummæli eins embættis- manns þjóðarinnar um að honum væri farið að óa við sumum af aðferðum blað- manna. Við á Vísi ræddum ummæli hans mikið og velt- um fyrir okkur hvað átt gæti verið við. Við komumst að því að við höfðum ekki að- hafzt neitt það sem rangt gæti talizt, aðeins leitazt við að fá fram sannleikann. Á hinn bóginn má segja að slík ummæli stappi í okkur stál- inu, frekar en hitt. Höfuðveikleiki blaðanna er hvað þau eru fjárvana og veik gagnvart ráðandi mönnum og verða hvað eftir Starfsaldur blaðamanna er yfirleitt ekki hár hér á landi samanborið við erlend blöð. Það er ekki nærri nógu mikið tillit tekið til þeirrar reynslu se.m gamlir blaða- menn hafa öðlazt. Eins eru mannaskipti of tíð. Undirrót- in er allt of lág laun blaða- manna. Það er líka erfitt að hækka um launaflokka inn- an blaðanna, nema þá að verða ritstjórar — gallinn er bara sá að ekki geta allir orðið ritstjórar. Margir nota blaðmennskuna sem stökk- pall yfir í eitthvert annað starf með þeim afleiðingum að blöðin slíta aldrei barns- skónum. Hvernig sem leysa má þetta vandamál þá tel ég alls ekki ráðlegt að blöðin verði einhvers konar ómagi á ríkis- valdinu. Það er vissulega góð fjár- festing að launa blaðamenn vel, sem skilar sér í bættum afköstum og betra starfi. máli en hvort náttfarar fremji einu innbrotinu fleira eða færra. Hér er reyndar komið að máli sem ungir sjálfstæðis- menn hafa gert að sínu aðal- máli — en þeir eldri hafa gleymt — það er dreifing valdsins og efling stjórn- sýslumiðstöðva heima ! hér- aði. Það verður aldrei svo, að við getum öðlazt fullan skilning fólks sem býr fjarri okkur. Þess vegna er eðlileg- ast að við séum sjálfir í að- stöðu til að vinna að okkar máiefnum. Þetta eru hlutir sem mér ekki gleymast þótt ég sé her i Reykjavík um stundarsakir. Ég hef í hyggju að snúa heim þegar ég hef aflað mér nægilegrar þekkingar og reynslu sem ég tel bezt koma mér og mínu byggðarlagi. Það hefur aukizt áhugi á þvi að flytjast úr Reykjavík og út á land og það mun verða algengara að ungt fólk hverfi til baka þeg- ar það hefur aflað sér menntunar, svo fremi að því verði gefinn kostur á að nýta menntunina. Það er náskylt valddreifingu að veita fólki aðstöðu til að starfa i sinu heimahéraði. í framhaldi af tali okkar um fjölmiðla og byggðar- lög, hvað um frjálst út- varp? Ja, ég ætlaði nú einu sinni sjálfur að setja upp útvarpsstöð. Á ísafirði vor- Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.