Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 Stórmarkaðir og áhrifþehraá smásöluverzlun Á UNDANFÖRNUM árum hafa risid upp aðallega í Reykjavík og nálægum byggðum, það sem í daglegu tali er nefnt stðrmarkaðir. Þessar verzlanir hafa tekið upp ýmsar nýjungar í verzlunarháttum og hefur það m.a. ieitt til frekari samkeppni um vöruverð. Tilkoma þessara stórverzlana hefur einnig leitt til þess að margar minni verzlanirnar missa hluta umsetningar sinnar til þeirra stðru og eiga þær, sem ekki geta lagað sig að þessum breyttu verzlunarháttum, í nokkrum erfiðleikum. Sú þrðun er jafnvel að byrja hér að stðru verzlanirnar taki algerlega við allri sölu á nýlenduvörum og að hverfaverzlanir verði smám saman óþarfar eins og er að gerast vfða á Norðurlöndum. Sumir halda því þó fram, að „kaupmaðurinn á horninu“ verði aldrei ðþarfur, en til að kynna þessi mál nokkuð fyrir lesendum sínum hefur Morgunblaðið rætt við nokkra forráðamenn stórverzlana og eigendur smærri verzlana. „Mikil tilbreyting frá þeirri litlu — segir nýr framkvæmdastjóri í Kaupgarði „JÁ, ég ætla að fá tvo kassa af þvl ..., — láttu mig hafa fimm ..., nei, það á ég til ...“ sagði Finnur Magnússon, sem er framkvæmda- stjóri f Kaupgarði, en hann var að tala við einhvern sölumanninn þegar blaðamaður leit inn til hans einn morguninn, nú fyrir helgina, og við hófum spjallið á vöruúrvalinu: „Verzlun í dag verður að vera með fjölbreytt vöruúrval, við verðum að vera með fleiri merki en eitt, þvf einn viðskiptavinur- inn biður um þetta merki og ann- ar um hitt. Við höfum yfirleitt föst viðskipti við heildsalana og þeir hringja margir reglulega og bjóða vörur sínar og sumir koma hingað f hverri viku. Suma verð- um við aftur að hringja í sjálfir." Síðan rakti Finnur hvernig starfseminni í Kaupgarði er hátt- að: „Við höfum opið frá 9—18 og til kl. 10 á föstudagskvöldum og rætt er um það að hafa lokað á laugar- dögum eitthvað áfram. Þessar stóru búðir hafa haft nokkuð sam- ræmi í opnunartima sínum og má segja að hér sé um að ræða tvo hópa af verzlunum, Hagkaup, Vörumarkaðinn og SS-búðirnar í Glæsibæ og Austurveri annars vegar, og okkur hér og búðirnar í Breiðholti hins vegar. Hjá Kaupgarði vinna 5 heils- dagsmanneskjur og ein bætist við á hádegi á fimmtudögum og önn- ur kl. 16 á föstudögum og eru út vinnuvikuna. Enda bvggjast bess- ir markaðir algerlega á helgarum- ferðinni, þess á milli er mjög lítil sala. Þá er tfminn notaður til þess að kaupa inn, en það er mjög tímafrekt og mikil vinna við að merkja og raða upp, og þetta er stærsti munurinn sem maður finnur frá hverfaverzlununum, en ég hef mest unnið f þannig búðum fram að þessu.“ Það kom upp úr kafinu, að Finnur hefur fengizt við verzlun- arstörf á Isafirði, Keflavík og síð- ast í Reykjavík og hann á sfna eigin búð í gamla bænum í Reykjavík. „Það er mikill munur á þessum búðum og ég er svo nýkominn hingað, að ég er rétt að byrja að fá nokkra reynslu, en eins og ég sagði er næstum allt steindautt nema rétt fyrir helgarnar, annars er þetta bara reytingur. Ég hef ekki orðið var við mik- inn mun á viðskiptavinum í þess- um tveim tegundum verzlana, en mikill munur er að sjálfsögðu á innkaupaaðferðum, hér koma menn einu sinni í viku og gera stórinnkaup. Það mætti kannski segja, að heldur minna væri um eldra fólk, það er ekki vant þessu kjörbúða- fyrirkomulagi, og maður hefur orðið var við að því finnist eins og það sé hálfpartinn að stela þegar það tekur sjálft vörurnar úr hill- unum.“ Þá snerum við talinu að verð- lagsmálunum: „Ég hef ekki verið hér lengi og held ég megi segja, að ekki hafi verið tekin nein viss stefna f verð- lagsmálunum hér. Vissir vöru- flokkar hafa verið teknir út úr og gefinn 10% afsláttur og í ráði er að taka upp þá stefnu að hafa að meðaltali 10% lægri álagningu en tíðkast á allri nýlenduvöru. Stjórn Kaupgarð hf. kemur sam- an öðru hverju til að leggja svona meginlinur i stjórn fyrirtækisins og get ég nefnt sem dæmi, að við auglýsum fyrir um það bil 2% af heildarsölunni, þegar söluskattur- inn hefur verið dreginn frá. En það sem gerir okkur kleift að lækka álagningu er þessi mikla velta, hraðinn er það mikill, að fjármagnið f umferð hér er langt- um meira en f nokkurri venju- legri búð og það er eitt af aðalatr- iðum sem stórmarkaðirnir byggj- ast á. Það eru til dæmi þess að þær búðir sem hafa tekið upp þetta kjörbúðarfyrirkomulg, þ.e. ef þær hafa getað stækkað eitt- hvað við sig og aukið vöruval, þá hefur velta þeirra margfaldazt, á stuttum tfma jafnvel og á þennan hátt hafa margir kaupmenn reynt að fylgja eftir þvf sem stórmark- aðirnir eru að gera. Nú, annað sem markaðirnir hafa fram yfir aðra er, að aðstæð- ur eru oft betri, stórar lóðir eru fyrir hendi sem gera þeim kleift að hafa mörg bílastæði en það geta kaupmenn víða í gamla bæn- um alls ekki boðið upp á. Hins vegar bjóða þeir oft upp á per- sónulega og skemmtilega þjón- ustu sem náttúrlega er ekki hægt í stórbúðum," sagði Finnur Magnússon að lokum. Finnur Magnússon framkvæmdastjóri Kaupgarðs Kjartan Magnússon f Kjartansbúð „Held að smærri búð- irnar geti lifað þótt þær stóru séu vaxandi" - segir Kjartan í Kjartansbúð KJARTAN Magnússon rekur Kjartansbúð f Efstasundi 27 og er hann jafnframt aðaleigandi hennar. Kjartan hefur verið við- riðinn ýmis verzlunarstörf f um 30 ár en áður hét Kjartansbúð Jason og Co og eigandi hennar ásamt Kjartani var þá Jason Sigurðsson. Árið 1960 hætti Jason og tók þá Kjartan einn við rekstr- inum og breytti nefninu f Kjartansbúð. Við hófum umræð- urnar með spjafli um þróunina f verzlunarmálum, hvort stórmark- aðirnir kæmu smátt og smátt f stað litfu verzlananna: „I Noregi náðu stórbúðirnar um það bil 60% af allri sölu í ný- lenduvörum, en sfðan stofnuðu smákaupmennirnir, ef við getum kallað þá það samband sfn á milli og náðu við það aftur um 20% sölunnar og mér finnst ekkert ólíklegt að þróunin hér geti orðið svipuð, þ.e.a.s., að þótt stórmark- aðirnir nái einhverri sölu frá okk- ur, þá er það alveg eins líklegt, að við fáum hana til baka með tíman- um. Við höfum Ifka okkar sam- band, IMA, til að auðvelda okkur innkaup og fleira og nú eru f því sambandi eitthvað milli 30 og 40 kaupmenn, en þegar við byrjuð- um vorum við 16, fyrir um sjö árum að mig minnir. I gegnum IMA höfum við samið við nokkra heildsala t.d. um lengri greiðslu- frest og það er ekki síður hagur heildsalans en okkar, þá heldur hann frekar f viðskiptin. Það er mjög misjafnt að semja við þá, sumir eru hræddir við það að geta ekki gefið meiri afslátt en vana- legt er. Nú, Innkaupasambandið hefur líka flutt beint inn og það er að sjálfsögðu hagstæðara. Ég held að þessi samtök geti orðið til þess að tryggja enn frekar fram- tíð þessara litlu búða.“ Kjartan var fremur bjartsýnn á tilveru litlu búðanna: „Ég held, að þær litlu geti lifað áfram þótt þær stóru séu vaxandi, fólk getur ekki alltaf henzt á milli á bflum og gert þessi stórinnkaup og hérna í þessu hverfi býr líka margt fólk og hér er mikið verzl- að.“ Hverjar eru að þfnu mati helztu ástæður þess að fólk leitar i stóru búðirnar? „Aðallega þær, að þar fæst flest sem þarf til heimilisins, þangað fer fólk eftir vinnu, t.d. á föstu- dögum, og kaupir svo gott sem allt sem það þarf til vikunnar. Þeir auglýsa lfka alltaf öðru hverju einhverja verðlækkun þ.e. á ein- hverjum tilteknum vöruflokkum og það hefur sitt að segja. Fólk fer nokkuð eftir því. En annars er vöruverð hjá þeim ekki alltaf lægra en hjá okkur, veltuhraði þeirra er svo mikill, að t.d. þegar verðbólga er mikil eins og nú hef- ur verið og pantanir seljast til- tölulega fljótt hjá þeim, þá eru nýjar pantanir á nýju og hærra verði og þá kemur að því að við verðum lægri. Nú, ástæða þess að þeir geta verið með lægra vöruverð er t.d. sú að veltan er svo mikil hjá þeim að þeir geta lækkað álagningu þar sem svo mikið vörumagn skilar fljótt fjármagni fyrir kostnaðin- um.“ Þá minnist Kjartan þeirra daga, er vöruvalið var ekkert: „Það er allmiklu fjölbreyttara vöruúrval nú en áður var, t.d. strax eftir stríðið. Þá vorum við f mestu vandræðum með að fylla hillurnar og settum t.d. f þær þvottaefni og annað, sem maður hefur nú á bak við og nú vantar mann alltaf hillupláss, og pláss fyrir lagerinn. Við erum hér tvö og opnunar- tími er þessi venjulegi, frá 9—18 og til kl. 19 á föstudögum. Á föstu- dögum hef ég einnig dreng til sendiferða, en ég geri nókkuð af þvf að senda fólki vörur heim og drengurinn fer hér í nágrennið á sendisveinahjóli upp á gamla móðinn. Hitt sem er lengra í burtu keyri ég út. Annars er salan hér nokkuð jöfn, það er rólegt á morgnana, en svo verður ös rétt fyrir hádegi og aftur mikið að gera í eftirmiðdaginn og fram að lokun. Einnig er alltaf meira að gera á föstudögum og nú sem Framhald á bls. 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.