Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 13 stofnun hingað til teljum við vera hversu fáir sóttu um skólavist á vélstjórabraut og að aðeins þrfr sóttu um að komast i fiskvinnslu- brautina og var það of lftið til að hægt yrði að hafa þá námsbraut í skólanum f haust. ÞARER BEKKUR BANNORÐ Þeir Jón og Ingólfur benda á eitt atriði sem sé sérstakt við Fjöl- brautarskóla Suðurnesja. I fyrsta lagi að skólinn sé stofnaður út frá iðnskóla, en ekki frá bóknáms- skóla eins og venjan sé. I Hafnar- firði og Reykjavfk eru. t.d. starf- andi iðnskólar sem sjái um alla iðnfræðslu, en í Keflavík er eng- inn sérstakur iðnskóii lengur heldur er iðnbrautin hluti þess náms sem fram fer í Fjölbrautar- skólanum þar. Kennslan f Fjölbrautarskólan- um á Suðurnesjum fer fram á þremur stöðum. I húsnæði iðn- skólans gamla, gagnfræðaskólans og í leiguhúsnæði við Hafnargötu, en þar fer verklegt iðnnám fram. Möguleiki er sfðan á að íþrótta- kennsla fari fram þegar i vetur f fþróttahúsinu í Njarðvfkum, en í framtíðinni er fyrirhuguð bygg- ing íþróttahúss fyrir ofan fþrótta- völlinn í Keflavfk, á milli gagn- fræðaskólans og iðnskólans. Mötuneyti hafa nemendur í Skátaheimilinu í Keflavik, en einnig geta nemendur fengið mat í mötuneyti frystihússins. Að lokum spyrjum við þá Jón og Ingólf við hvaða skóla þeir hafi helzt miðað þegar þeir undir- bjuggu kennsluna fyrsta veturinn f Fjölbrautarskólann á Suðurnesj- um. Svöruðu þeir þvf til að kennt væri eftir svipuðum kerfum og í Menntaskólanum í Hamrahlfð og Flensborgarskólanum í Hafnar- firði. — Bekkjakerfið er óhugs- andi að nota f f jölbrautarskóla að okkar mati, sögðu þeir Jón og Ingólfur. Ef áfangakerfið er hins vegar notað, eins og hér verður, þá verða nemendur ekki bundnir á sama bás allan námstímann, en geta farið á milli brauta eins og e.t.v. er heppilegra fyrir þá. Brynja og Margrét sem stunda nám f uppeldis- og hjúkrunar- sviði. irnar í Fjölbrautarskólanum á Suðurnesjum og þar er við stjórn einn nemendanna, Kristinn Arn- ar Guðjónsson úr Keflavík. Reyndar er bóksalan f skólanum arfur frá menntadeild gagnfræða- skólans, en í haust þurfti að stækka bóksöluna mjög vegna þess hve mun fleiri greinar eru kenndar í Fjölbrautarskólanum en var í menntadeildinni áður. Að því er stefnt að allar bækur, sem kenndar verða í skólanum, verði seldar í bóksölunni og þegar má fá flestar þeirra þar. — Það hefur verið mikið að gera hér í bóksölunni undanfarna daga, sagði Kristinn Arnar, er Morgunblaðið ræddi við hann á þriðjudaginn. — Við seldum t.d. fyrir um hálfa milljón á mánudag- inn og reikningar, sem við erum búnir að fá, eru talsvert á aðra Framhald á bls. 31 Samræmum aðgerð- ir í loðnuveiðum ÞAÐ gladdi mig mikið að lesa grein Hjálmars Vilhjálmssonar f Morgunblaðinu 3. þessa mánaðar, þar sem hann færir sterk rök að þvf, að dælan f Ioðnubátunum sé nokkurs konar útungunarvél. Ég, sem að sjálfsögðu er leikmaður f þessum málum, hef fylgzt með loðnuveiði hér fyrir austan og við Eyjar löngu áður en farið var að nota dælur og það er.ekkert vafa- mál að loðnumagnið hefur aukizt við tilkomu dælunnar. Ég spyr ráðherra sjávarútvegs- mála: Er ekki raunhæfara að banna hrognaskiljarana um borð f bátunum á meðan við erum að fá reynslu af áhrifum sumarveiða á loðnustofninn? Mér hefur skilizt að sumarveiðar á loðnu séu svo mikilvægar að ég kem ekki auga á að það sé réttlætanlegt að gera nokkuð sem geti spillt þeim. Ég vona að Hjálmar og aðrir fiski- fræðingar fylgi þessu vel eftir og stoppi æðubunuganginn og stjórnleysið Adam var ekki lengi f Paradfs. I morgunblaðinu 4. þessa mánaðar, bls. 2 segir Trausti Éinarsson verkfræðingur takið eftir hjá Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins, að loðnan hrygni ekki nema á Faxaflóasvæðinu! Veit Trausti ekki, • að loðnan er mis- munandi langt komin með undir- búning hrygningar þegar hún kemur að landinu. Mikið af loðnunni hrygnir við og fyrir austan Eyjar, eða hvað skyldi hún gera þegar hún fer ekki vestur fyrir Eyjar? Það er rétt að lonu- veiðar takmarkast af bræðslugetu verksmiðjanna en það er vægast sagt hlægilegt að Trausti skuli halda þvf fram að það muni veiðast minna þó nokkur skip hafi verið seld úr landi. Veit ekki hægri höndin hvað sú vinstri gerir A loðnuvertíð hér i Vestmanna- eyjum var farið að hirða hrogn f hrognaskiljara vertíðina 1974. Þá kom það fyrir að sumt af þeim hrognum sem komu úr bátunum voru í smá boltum og stffluðu skiljarana. Þá var hér staddur f Eyjum Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur. Var hann kallaður til og að sögn Friðriks Jessonar fiskisafnsvarðar skoðaði Eyjólfur þessa bolta f smásjá og kom þá í ljós að þetta voru frjóvguð hrogn. Loðnan var ekki veidd f Faxaflóa. Ég spyr? Lesa ekki fiskifræðingar og aðrir fræðingar starfsbræðra sinna? Ingólfur Theódórsson netagerðarm. Vestmannaeyjum. 9 Magnari sem er 30 wött musik með innbyggðu fjögurravíddakerfi fyrir fjóra hátalara. Mjög næmt út- varpstæki með FM bylgju ásamt lang- og miðbylgju. ^ Plötuspilari fyrir allar stærðir af plötum Sjálfvirkur eða handstýranlegur með vökvalyftu. Allir hraðar, 33, 45 og 78 snúningar Nákvæm stilling á armþyngd, sem er mikilvægt til að minnka slit á nál og plötu. Segul bandstæki með algerlega sjálfvirkri upptöku Gert bæði fyrir Standardspólur og CrO^ spólur Upptökugæði ein- stök, ekki er heyranlegur munur á gæðum hvort spiluð er plata eða segulbandsspóla Tveir hátalarar fylgja 20 wott hvor, einnig fylgja tveir hljóðnemar ásamt CrOp casettu Til er folk, sem heldur að þvi meir sem hljómtæki kosta, þeim mun betri séu þau. Að vissu leyti er þetta rétt, ef orðið ..betra" þýðir að þér getið spilað fyrir allt nágrennið án bjögunar <32SS32> framleiðir einnig þannig hljómtæki.En við höfum einnig á boðstólum hljómtæki sem uppfylla allar kröfur yðar um tækmleg gæði Lausnin er: SHC 3100 sambyggðu hljómtækin. Þér fáið sambyggt mjög vandað tæki, sem hefur að geyma allar kröfur yðar. Verð: 99.950.- NÓATÚNI, SÍMI 23800\BUÐIRNAR KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 1 9800 , CROWN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.