Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 Sjarmerandi Suður- „W.W. og Dixie“ ★ ★ ★ (W.W. and the Dixie Dancekings“) Nýja Bfó. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Art Carney, Connie van Dyke, Jerry Reed, Ned Beatty. Tónlist: David Grusin. Kvikmyndataka: Jim Grabe. Handrit: Thomas Rickman. Leikstjóri: John G. Avildsen. Bandarfsk, frá 20th Century — Fox, 1975. W.W. Bright ekur djarflega á gljáfægðum bil sfnum (sem er viðhafnarútgáfa af Olds ’55, einn af 50 sérsmíðuðum vegna 50 ára afmælis verksmiðjanna), og lifir i vellystingum á því að ræna bensínsölur S.O.S. olíufé- lagsins. W.W. gerir þetta á sinn einkar viðfellda hátt og fær dælumennina jafnan á sitt band. Allt gengur þvi í haginn uns kvöld nokkurt að hann er á flótta undan lögregluþjóni, og W.W. leitar hælis á skemmti- stað þar sem hljómsveitin „Dixie and the Dancekings" sjá um fjörið. W.W. verður sjaldnast orð vant, og fyrr enn varir er hann kominn upp á sviðið til hljóm- sveitarinnar og þar æxlast svo til að hann gerir þvi skóna að hann sé í Country and Western- tónlistarheiminum í Nashville og áður en yfir lýkur er hann búinn að sannfæra sjálfan sig, hljómsveitina, og síðast en ekki kvik-4 w fflUAdi /íoonj t SÆBJÖRN VALDIMARSSON Burt Reynolds sem W.W. sist lögreglumanninn um að svo sé. Ekki er rétt að rekja sögu- þráðinn öllu lengra, en það er haldið til höfuðborgar þessarar tónlistar, Nashville. Þar gengur á ýmsu við að koma hljómsveit- inni á framfæri, og ekki bætir það úr skák, að SOS-oliufélagið hefur ráðið harðsnúinn lög- reglumann, sanntrúaðan í þokkabót, til að hafa uppi á bensfnsöluræningjanum. Hóp- urinn heldur þá úr bænum — eftir misheppnað bankarán — og felur sig um skeið hjá göml- um negra, sem spilar „Delta- blues" af mikilli innlifun. Hljómsveitin tekur að æfa og semja lög í þessum stíl, og fyrr en varir er haldið aftur til Nashville og framtiðin brosir við „The Dixie Dancekings". Kvikmyndin „W.W. og Dixie“ er gerð í þeim tilgangi einum að skemmta áhorfendum um stundarbil og tekst það með miklum ágætum. Leikstjórinn, John G. Avildsen (JOE, SAVE THE TIGER), hefur tekið efni- viðinn léttum tökum, og mynd- in beinlínis geysist áfram í Olds ’55, með einstaklega „sjarmer- andi“ yfirbragði, skemmtilegu samhengi og I mjög vel endur- sköpuðu umhverfi og tíðar- anda, en myndin á að gerast árið 1957. Reynolds, með ísmeygilegum persónutöfrum sínum, sannar hér að f honum búa afbragðs gamanleikarahæfileikar; oft er hann ekki óáþekkur Clark Cable þegar honum tókst hvað best upp (IT HAPPENED ONE NIGHT, IT STARTED IN NAPLES). Aðrir leikarar standa og vel fyrir sfnu, þá einkanlega þjóð- lagasöngvarinn Jerry Reed sem Wayne og Don Williams f hlut- verki Leroy. Art Carney er all- W.W., Dixie og „danskóngarnir" ð frægum slóðum f Nashville. góður sem hinn strangtrúaði uppljóstrari olfufélagsins, er telur sig eiga f höggi við kölska sjálfan, þó er eins og hann skorti herslumuninn við að framkvæma það sem hann hef- ur f huga. Tónlistin í myndinni er af- bragðsgóð, eins og jafnan þegar David Grusin á í hlut, en auk frumsaminnar tónlistar er mik- ið flutt af „bluegrass“-tónlist og slögurum frá þessu tfmabili (.Johnnv B. Goode", „Blue Suede Shoes“ o.fl.). Þeim félögum Avildsen, Reynolds og Grusin hefur því tekist ætlunarverk sitt; að gera Warren Beatty. EKKIER ALLT SEM SÝNIST HÁSKÓLABÍÓ: SAMSÆRIÐ („The Parallax View“) + it Vel gerð og stílhrein mynd um brennandi spurningu í huga samtfðarinnar; hverjir eru það sem stjórna á bak við tjöldin, og hvers má réttlætið sín í rauninni í nútfmaþjóðfé- lagi? Pakula hefur fullkomið vald á því að halda athygli áhorf- andans vakandi yfir upplýs- inga- og gagnasöfnun blaða- PuwwWl PWmb Pmonts MAmtJ.PAmAPfímcrm THi PAIALLAX VlíEW HUME CRONYN WILLIAM DANIELS and PAULA PRENTISS MusiC Scoreð by MICHAEL SMALL Executive Producer GABRIEL KATZKA Screenplay by OAVID GILER and L0RENZ0 SEMPLE Jr Produced and Directed by ALAN J PAKULA R 1 ^ANAVtSlON * ’ECHNlCOlOP* A Paramounl Ptclure SAMSÆRI mannsins, láta hann „finna“ eftirvæntingu og spennu góðs fréttamanns sem kominn er á sporið. Þessir kostir, öðrum fremur, hafa ráðið því að Pakula var treyst fyrir því erfiða verkefni að leikstýra myndgerð bókar- innar ALL THE PRESI- DENTS MEN, eftir Washing- ton POST-blaðamennina Carl Bernstein og Bob Woodward. Hún þykir'ein athyglisverðasta mynd þessa árs. ágætisskemmtimynd af gamla skólanum um ómótstæðilegan bragðaref, sem tekst að snúa á alla og koma öllum í gott skap og aka siðan blistrandi á braut í myndarlok, með tvírætt bros á vör... Hér hefur ekki þurft að grípa til neinna bellibragða til að hafa ofan af fyrir áhorfendum, „W.W. og Dixie“ er blessunar- lega laus við allt ofbeldi, brennivínsþamb og klámkjaft- æði; er gerð af heilbrigðum hugsunarhætti og býr yfir sér- stökum töfrum í anda gaman- mynda fjórða áratugarins. S.V. N1 F LA F1 ESl KVIKMYNDAHATIÐIN I New York er tvlmælalaust að verða einn merkasti viðburður ( kvik- myndaheiminum. Hún er hald- in árlega frá 1. til 17. október, og eru þá frumsýndar jafnan fjölmargar kvikmyndir, bæði bandarlskar og engu sfður myndir úr öðrum heimshlut- um. Kvikmyndahátíðin f Cannes er ennþá kunnari, en frekar fyrir magn en gæði. Að þessu sinni verða allmarg- ar forvitnilegar myndir sýndar þar vestra, og er byrjað að til- kynna nöfn nokkurra þeirra. Þ.á.m. er nýjasta mynd Frakk- ans Eric Rohmer, THE MARQUIS OF O, sem hann gerði reyndar í Þýskalandi fyr- ir Þjóðverja; Rohmer hefur tvisvar áður átt myndir á hátíð- inni, þ.e. MY NIGHT AT MAUD’s, 1969, og CHLOE IN AFTERNOON, árið 1972. Hin umdeilda mynd Japanans Nagisha Oshima, EMPIRE OF THE SENSES, verður og frum- sýnd í Bandaríkjunum á þess- ari hátið, sömuleiðis hið nýja, rúmlega fimm klukkustunda verk Bernardo Bertolucci, 1900. Að baki þeirri myndar standa þrjú bandarísk kvik- myndaver, Paramount, 20th Century-Fox og United Artists. Þau eru í vandræðum með myndina, sem bæði er talin of „rauð“ og löng til að hún geti notið vinsælda vestan hafs. Meira frá hátíðinni slðar. Alþýðusamband Austur- lands mótmælir lagasetn- ingu í kjaradeilu sjómanna SVOFELLD ályktun var sam- þykkt á fundi stjórnar Alþýðu- sambands Austurlands og full- trúa aðildarfélaga þess á Reyðar- firði 10. þ.m. „Fundur haldinn í stjórn Al- þýðusambands Austurlands með fulltrúum sjómanna frá aóildarfé- lögum þess á Reyðarfirði 10. sept. 1976 fordæmir harðlega þau bráðabirgðalög sem ríkisstjórnin hefur nú sett um sjómannakjör. Lagasetning þessi er ósvífin árás á sjómannasamtökin, sérstaklega þegar þess er gætt að yfir hafa staðió viðræður milli samningsað- ila um lausn þess mikla vanda sem sjómenn og útvegsmenn stóðu í og ekkert lá fyrir um að verkföllum yrði beitt. Fundurinn bendir á að það er ekki nýtt að launamál sjómanna eru lögbund- in á svívirðilegan hátt og þá ein- göngu með hagsmuni útvegs- manna fyrir augum. Þau vinnu- brögð sýna ljóslega hug ríkis- stjórnarinnar til sjómanna og fjöl- skyldna þeirra. Fundurinn hvetur sjómenn til að láta sér lagasetningu þessa að kenningu verða og þjappa sér saman svo þeir standi sem einn maður um kjör sín. Þá mótmælir fundurinn harðlega því gjörræði ríkisstjórnarinnar að rifta með valdi hagstæðari kjarasamning- um sem gilda nú á mörgum stöð- um þar sem hvorugur samnings- aðilja hefur sagt upp samningum. Fundurinn beinir því til sjó- manna hvort nú sé ekki ástæða til sameiginlegs átaks til að hrinda þessari lagasetningu með þvf að sigla öllum fiskiskipum f land og sýna þeim í mjúku stólunum að þeir sem vinna hörðum höndum fyrir gjaldeyri í þjóðarbúið geti líka ráðið hvað svo sem öllum lagasetningum liður.“ FrítlailkynnlnK frá AlþýAusambandi Austurlands. — Myndlist Framhald af bls. 15 legri meðhöndlun efniviðarins. Er ástæða til að óska Bjarna til hamingju með þennan árangur. — Málverkin eru hér miklu síðri og sundurlausari, gætir hér meira hiks og stefnuleysis. Bjarni hefur ekki náð að beizla innri llfæðar hins vandmeðfarna sviðs olíumálverksins, formin eru ein- att óyfirveguð, litirnir grunnfær- ir og utangátta, festast einhvern veginn ekki við léreftið — svifa utan þess. Þó eru hér undantekn- ingar og bendi ég þá öðru fremur á mynd nr. 15, „Morgundögg”, sem ég álít bera af málverkum á sýningunni. Myndin er vel byggð upp og mjög óvenjuleg frá hendi Bjarna, hér sjáum við tvær ein- mana mannverur á ávölum, tangamynduðum fleti er liðast um hálfan myndflötinn, en í bak- grunninum sér í himin eða haf. Eitthvað i þessari mynd grípur skoðandann, og það er einmitt leyndardómur listarinnar. Óhlut- lægu myndina „Sumar“ (12) myndi margur óhlutlægur málar- inn þykjast fullgóður af er nafn- kenndari hefur orðið í röðum mál- ara, sama er að segja um myndina „Kyrrð” nr. 16. Bjarni hefur sett andlit inn i sum óhlutlæg málverk og eina pastelmynd, og í öllum tilvikum rjúfa þau myndheildina að mínu mati. Hér gildir að velja og hafna og slík vinnubrögð eru einungis á færi þrautreyndra kunnáttu- manna, og jafnvel í þeirra hönd- um mistekst slikt ósjaldan. Kæmi ekki til hin ágæta röð pastelmynda og fyrrgreind mál- verk væri sýningin stórum veik- ari, en ofanskráðar myndir komu uadirrituðum skemmtilega á óvart og þær réttlæta fyllilega að þeim sé gaumur gefinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.