Morgunblaðið - 16.09.1976, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
Fjölbrautarskóli Suðurnesja sóttur heim
(Jr kennarastofunni, Jón Böðvarsson skóla-
meistari lengst til vinstri, Ingólfur Halldórsson
yfirkennari andspænis honum. (Ljósm. Frið-
þjófur).-
„Hinn mikli
einhugur sem
ríkt hefur um
skólann það jákvæðasta”
FJÖLBRAUTARSKÓLI Suður-
nesja, sem settur var f fyrsta
skipti á laugardaginn, er fyrsti
skólinn sinnar tegundar, þar sem
undir einni stofnun eru mennta-
skóli, framhaldsdeildir, iðnskóli
og fyrsta stig vélstjórakennslu.
Reyndar var ætlunin að f skólan-
um yrði einnig fyrsti bekkur fisk-
vinnsluskóla, en Iftill áhugi var á
þeirri námsbraut meðal skóla-
fólks á Suðurnesjum og varð þvf
ekki af þvf að slfk námsbraut yrði
f skólanum f vetur. Fjölbrautar-
skóli Suðurnesja er sennilega
margþættasta skólastofnun á
framhaldsstigi hér á landi, þar
sem hann býður upp á samtals 11
mismunandi námsbrautir og er
iðnbraut þó aðeins talin ein braut
f heild.
Nemendur Fjölbrautarskólans
verða í vetur liðlega tvö þúsund
og fastir kennarar verða 9, en auk
þess verða stundkennarar við
skólann og aðrir i hálfu starfi.
Skólameistari Fjölbrautarskóla
Suðurnesja er Jón Böðvarsson
fyrrum kennari í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Yfirkennari er
Ingólfur Halldórsson, sem síðustu
ár hefur verið skólastjóri Iðn-
skóla Suðurnesja. Morgunblaðið
fylgdist lítillega með kennslu og
því undirbúningsstarfi sem enn
er verið að vinna í skólanum á
þriðjudaginn, en þá var fyrsti
kennsludagurinn í skólanum. Þó
mikið væri að gera þá gáfu þeir
Jón Böðvarsson og Ingólfur Hall-
dórsson sér tíma til að rabba stutt-
lega við Morgunblaðsmenn og
voru þeir fyrst spurðir hvernig
hefði gengið að ráða kennara og
hvort nemendur væru eingöngu
af Suðurnesjum.
— Það gekk vel að fá kennara
hingað að skólanum þegar við
höfum í huga þann stutta tíma,
sem við höfðum, svöruðu þeir Jón
og Ingólfur. — Við fórum í raun-
inni ekki að hugsa okkur til
hreyfings fyrr en aðrir skólar
voru búnir að ráða í kennarastöð-
ur. Þegar þetta er haft í huga þá
verður ekki annað sagt en okkur
hafi gengið vel og nokkrir kenn-
arar skólans hafa áður verið
kennarar hér f Keflavík og sér-
greinakennarar við Iðnskólann
færast nú yfir til Fjölbrautarskól-
ans. Það var aðeins f íslenzku,
sögu og félagsfræði sem fáar um-
sóknir bárust um kennarastöður.
— Um nemendur er það að
segja að þeir eru nær eingöngu af
Suðurnesjum, en þó er hér einn
Isfirðingur, Eyfirðingur og einn
nemandi frá Raufarhöfn. Þar með
eru þau upptalin, sem ekki eru af
Suðurnesjum. Þeir nemendur
sem ekki búa í Keflavík eru flutt-
ir á milli með skólabílum og eru
tveir bflar í þessum ferðum, en
auk þess fer sérstakur bíll í Hafn-
ir og flytur hann alla nemendur
þaðan til og frá Keflavik, en þar
er enginn skóli.
SAMVINNA ALLRA
SVEITARFÉLAGA
A SUÐURNESJUM
Það eru öll sveitarfélögin á Suð-
urnesjum, sem standa að Fjöl-
brautarskólanum, Miðneshrepp-
ur, Keflavfk, Njarðvík, Vatns-
leysustrandarhreppur, Grindavík,
Gerðahreppur, Hafnarhreppur .
Sagði Jón Böðvarsson skólameist-
ari að það ánægjulegasta við
stofnun skólans og fyrstu starfs-
dagana hefði verið hinn mikli ein-
hugur, sem hefði rfkt um skólann
meðal fólks á Suðurnesjum. —
Það hefur verið eindreginn vilji
fólks hér um slóðir að allt fram-
haldsnám á Suðurnesjum yrði I
einum og sama skóla, sagði Jón
Böðvarsson. — Ég vil að það komi
sérstaklega fram hversu mikið
starf Ingólfur Halldórsson hefur
innt af hendi til að koma þessum
skóla á laggirnar. Hann hefur
unnið sleitulaust að því að fella
iðnnám á Suðurnesjum inn f Fjöl-
brautarskólann og hefur þá um
leið unnið að þvf að hans eigin
skóli yrði lagður niður. Þetta er
örugglega einstakur þáttur í
skólasögunni, segir Jón og brosir
til kollega síns hinum megin við
borðið.
— Það lakasta við þessa skóla-
Odýrara að vera við nám er
einn kosturinn við skólann
Krakkarnir úr Grindavfk f einni
stofunni f Fjölbrautarskólanum,
venjan hefur verið sú að þau hafa
sótt framhaldsnám út fyrir Suð-
urnes, en með tilkomu Fjölbraut-
arskólans verður breyting á.
FYRSTA skóladeginum f Fjöl-
brautarskóla Suðurnesja var að
ljúka þegar Morgunblaðið bar
þar að garði á þriðjudaginn og
allstór hópur Grindvfkinga beið
eftir að skólabfllinn æki þeim
heim. Þau tóku þvf fúslega þegar
Morgunblaðið bað þau að hinkra f
nokkrar mfnútur og við spurðum
fyrst hvernig þeim litist á skól-
ann að fyrsta deginum loknum.
— Jú, þakka þér fyrir, svaraði
einn strákurinn úr Grindavfk. —
Mér Ifzt bara vel á þetta, námið,
kennaraana, stelpurnar og yfir-
leitt allt.
Grindvfkingar hafa hingað til
þurft að fara f önnur byggðarlög
tíl að sækja framhaldsnám og þvf
er tilkoma Fjölbrautarskólans f
Keflavfk mikið hagsmunamál fyr-
ir þá. — Krakkar úr Grindavfk
hafa þurft að fara til Reykjavfkur
eða f héraðs- eða menntaskóla úti
á landi hafi þau ætlað sér I fram-
haldsnám, sögðu Grindvfkingarn-
ir. — Einn aðalkosturinn við að
hafa skóla sem Fjölbrautarskól-
ann hér er að það verður miklu
ódýrara fyrir okkur að þurfa ekki
að fara lengra en f Keflavfk.
— Annars hefur maður mest
snúizt f kringum sjálfan sig f dag
og kennslan er rétt að byrja, en
það á öruggiega eftir að breytast
og dagarnir verða tæplega eins
léttir og þessi, sögðu Grindvfking-
arnir að lokum.
Kristinn Guðjónsson f bóksölunni, þar sem veltan var hvorki meira né
minna en hálf milljón á þriðjudaginn.
MÖRG NÝ
ANDLIT
Þær Brynja Hjaltadóttir og
Margrét Hreggviðsdóltir eru báð-
ar úr Keflavik og stunda nám i
uppeldis- og hjúkrunarsviði. Að
námi loknu ætla þær sér að fara í
hjúkrunarskólann, komist þær að.
Fyrir þær er breytingin með til-
komu Fjölbrautarskólans ekki
ýkja mikil, þvf þær voru áður í 5.
bekk framhaldsdeildar og halda
áfram námi í sama skóla. Það ber
þó að taka fram að sjötti bekkur
hefur ekki verið í Keflavík í
nokkur ár vegna lítils áhuga og
þær þurftu því ekki að skipta um
skóla, þótt skólinn skipti um nafn.
— Þetta virðist ætla að verða
ágætt, sögðu þær Brynja og
Margrét.
— Það er miklu fleira fólk hér á
göngunum en var áður og mörg
ný andlit, sem við þekkjum ekk-
ert, en við eigum örugglega eftir
að kynnast þessum krökkum áður
en lagt um líður.
SELDU FYRIR
HÁLFA MILLJÓN
Aeinumdegi
Bóksala hefur verið sett á lagg-