Morgunblaðið - 16.09.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
19
BBLF er með framhjóladrif og
sterka, endingargóða og líflega 50
eða 75 ha, vatnskælda vél, sem er
óvenju sparneytin. Benzíneyðsla
7—8 I á 100 km. Uppherzla einu
sinni á ári eða eftir 15 þús km
akstur. Ársábyrgð, óháð akstri.
BBLF er rúmgóður 5 manna bíll
með stórt farangursrými (allt að
1000 I). Stórar lúgudyr að aftan,
sem auðvelda hleðslu.
BBLFer fallegur og hagkvæmur
fjölskyldubfll.
Komið, skoðið og kynnist BBLF
Sýningarbílar á staðnum.
BBLF®
HEKLAhf
Laugavegi 1 70—1 72 — Simi 21 240
— VESTU R-ÞÝZK
GÆÐAFRAMLEIÐSLA
ÍSLENZK F0T 76:
Milljónasala hjá
framleiðendunum
EINS og fram hefur komið var
haldin fatakaupstefna samhliða
sýningunni lSLENZK FÖT ’76.
Mbl. hafði f gær samband við
nokkra aðila sýningarinnar og
spurðist fyrir um sölu á fram-
leiðslunni að þessu sinni.
Fyrst höfðum við samband við
Halldór Einarsson hjá HENSON
sportfatagerðinni. „Það gekk allt
mjög vel að þessu sinni hjá okk-
ur“, sagði Halldór, og taldi hann
sýninguna vafalaust eiga sinn
þátt I þvl. Hefði fyrirtækið náð
sér í fleiri og fjölbreyttari sam-
bönd. Þannig sagði Halldór, að
hingað til hefði hann selt sina
framleiðslu svo til eingöngu til
sérverzlana með íþróttavöru, en
nú hefði komið fram mikill áhugi
meðal kaupfélaga og annarra
verzlana úti á landsbyggðinni að
hafa íþróttaföt á boðstólum, og
yrðu fljótt sendar tilraunasend-
ingar I þvl skyni. Þá sagði Hall-
dór, að hann mundi brátt hefja
framleiðslu á leikfimibolum, sem
stúlkum væri skylt að mæta I I
skólum, en hingað til hafa sllkir
verið fluttir inn. Sagði Halldór
hér vera um að ræða ca. 5000 boli
á ári. Sagðist Halldór hlakka til
næstu sýningar, en þar mundi
hann reyna að vanda betur til
umgjarðarinnar.
Hjá Prjónastofu önnu Þórðar-
dóttur fengum við þær upplýsing-
ar, að um eðlilega sölu hefði verið
hjá þeim að ræða. Hörður Sveins-
son frkvstj. sagði söluna nema um
2 mánaða framleiðslu.
Ásta Kristjánsdóttir hjá Nær-
fatagerðinni Ceser sagði, að I
þetta sinn hefði hennar fyrirtæki
slegið öll fyrri met. Sagðist hún
hafa gert samninga sem tæki
fram I janúar eða febrúar n.k. að
framleiða upp f með núverandi
afköstum. „Þannig verð ég að af-
greiða pantanirnar I mörgum
smáslöttum til að allir fá eitthvað
hverju sinni," sagði Asta.
Elgur hf. gerði mun betri samn-
inga að þessu sinni en áður, að
sögn Þorsteins Þorvaldssonar.
Bein sala hjá þeim nemur um 2
mánaða framleiðslu, að sögn Þor-
steins, en hann sagði, að margir
hefðu keypt af þeim til að prófa,
og því taldi hann áhrifin eftir að
verða meiri en það sem nú liggur
fyrir.
„Jú, ég held að við höfum selt
um 5000 pör af skóm á þessari
fatakaupstefnu," sagði Ofeigur
Hjaltested hjá Iðnaðardeild SlS,
þegar við ræddum við hann. „Það
er erfitt að segja, hve langan tíma
tekur að framleiða 5000 pör af
skóm. Það fer allt eftir breidd og
gerð, o.s.frv. Við verður þó að
afhenda þetta verzlunum fyrir
jólin og þýðir það að verzlanirnar
verða að hafa fengið skóna I síð-
asta lagi um 10. desember," sagði
Öfeigur.
Framleiðendur voru yfirleitt
tregir til að gefa upp nokkrar
tölur um sölu á kaupstéfnunni að
þessu sinni. Þótt það sé þeim ef til
vill feimnismál, þá hafa margar
milljónir skipt þar um hendur,
eins og einn viðmælenda komst að
orði.
OKKUR ÞYKIR ÞAÐ LEITT
en vegna gífurlegrar eftirspurnar,
sem fór þegar í stað fram úr bestu
vonum, getum við ekki afgreitt fleiri
EPC REIKNIVÉLAR
að sinni. Þar sem fyrsta sendingin
er gjörsamlega
UPPSELD
Að sjálfsögðu verðum við áfram með
sýningarvélar í söludeild okkar að
Hverfisgötu 33, fyrir þá, sem vilja
kynna sér kosti og hið ótrúlega verð
þessara nýju véla. En, sem sagt, því
miður, getum við ekki afgreitt fleiri
EPC reiknivélar, þar til næsta sending
kemur til landsins, innan skamms.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
' ■ « ' 4? Hverfisgötu 33
tN Simi 20560
A • x
1^^^ JA „ Þaó er einhver
1 /\ f _ djöfullinn
I JML 1 að fólk.inu «
1 Reykjavik
VIÐTAL VIÐ ÁSTU R. JÖHANNESDÓTTUR OG HJALTA J. SVEINSSON
Reykjavíkurskákmótið:
„Friðrik sigur-
vegari mótsins”
„Friðrik er hinn raunveru-
legi sigurvegari 1 þessu Reykja-
vfkurskákmóti, þótt Timman
hafi verið jafn honum. Sam-
kvæmt Sonnenborg—Berger
stiganum er Friðrik sigurveg-
arinn, þvf hann gerði jafntefli
við Tukmakov og sigraði Naj-
dorf, en fyrir þeim tapaði
Timrnan," sagði Jóhann Þórir
Jónsson f viðtali við Mbl. f gær.
Friðrik sigraði Inga R. I bið-
skak þeirra, sem var tefld f gær
og hlaut þvf sama vinninga-
f jölda og Timman. Eftirfarandi
leiki léku þeir f gær:
42 h4 — a5, 43. Dg5+ — Kg7,
44. De5+ — Kg8, 45. d6 — cxd6,
46. cxd6 — Dcl+, 47. Kh2 —
Dc8, 48. De7 — Df8, 49. De6+
— Kg7, 50. d7 &— f3, 51. De5 +
— gefið.
Helgi og Tukmakov gerðu
jafntefli, og þar með deilir sá
síðarnefndi 3—4 sætinu með
Najdorf. Þeir léku eftirfarandi
leiki:
41. Df5 — Hc8, 42. Hxc8 —
Dxc8+, 43. Kh7 — Df+, Jafn-
tefli.
Lokastaðan I Reykjavíkur-
skákmótinu varð því sem hér
segir:
I.—2. Frtðrik ogTlmman. llv. 3.-4. Naj-
dorf og Tukmakov, 10,5v. 5.—6. Guðmund-
ur og Antoshin, 9v. 7.—8. Keene og
Westerinen, 8,5v. 9. Ingi R. Jóhannesson,
8v. 10. Matera, 7,5v. 11. Vukcecic, 6v. 12.
Margeir, 5v. 13.—15. Björn, Haukur og
Helgi, 4,5v. 16. Gunnar, 2v.