Morgunblaðið - 16.09.1976, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
Yfir 20 stiga
hiti í Mý-
vatnssveit
Björk 15. september
HÉR hefur verið hið mesta blíð-
skaparveður undanfarna daga,
hitar, sólskin og logn. I gær komst
hitinn yfir 20 stig og í dag er
svipað veður og sést ekki ský-
hnoðri á lofti.
Göngur í Mývatnssveit eru ekki
hafnar enn, var þeim frestað
vegna þess að ekki reyndist unnt
að koma fé fyrr til slátrunar á
Húsavík. Slátrun hófst á Húsavík
13. september. Áætlað er að slátra
þar um 46 þús. fjár í haust. Farið
verður í fyrstu göngur í suðuraf-
rétt 18. september og réttað í
Baldursheimsrétt 21. 1 austuraf-
rétt verður lagt af stað 22. sept. og
réttað í Reykjahlíðarrétt laugar-
daginn 25. september.
Kartöfluuppskera reyndist hér
vel i meðallagi, þó má gera ráð
fyrir að þurrkarnir i sumar hafi
verulega dregið úr sprettu. Flest-
ir eru þegar búnir að taka upp
kartöflur.
Berjaspretta er víða fádæma
góð, einkum krækiber. Margir
hafa notað góða veðrið að undan-
förnu til berjatínslu.
Silungsveiði i Mývatni hefur
glæðzt verulega síðustu vikurnar.
Nú er hér fagurt yfir að líta og
hinir fjölbreytilegustu haustlitir
setja svip á umhverfið. Mikil
kyrrð og friður hið efra, en eftir
því sem vaktmenn við jarð-
skjálftamælana segja einhver
ókyrrð hið neðra.
Kristján.
r
— Anægður
Framhald r.f bls. 2
varfærni og án allrar áhættu,“
sagði þessi afdráttarlausi Hol-
lendingur.
Timman sagði okkur, að
næsta verkefni hans yrði
Ólympíuskákmótið i Haifa í
tsrael. „Þau mál eru þó eitt-
hvað ekki alveg á hreinu, en úr
því fæ ég skorið, þegar ég kem
heim til Hollands," sagði
Timman að lokum.
GUÐMUNDUR
TEFLDI FALLEGAST
1 veizlu þeirri, sem mennta-
málaráðherra hélt til heiðurs
keppendum Reykjavíkurskák-
mótsins voru öll verðlaun
afhent. Þar á meðal voru
afhent svonefnd fegurðarverð-
laun, sem sá skákmaður hlýtur,
sem að mati dómnefndar tefldi
fallegustu skákina i mótinu.
Dómnefnd var skipuð þeim
Jóni Þorsteinssyni, fyrrum
alþingismanni og Norðurlanda-
meistara í skák, og Jóni Þ. Þór,
einum skákstjóranna. Þeim
kom saman um, að taflmennska
Guðmundar Sigurjónssonarí
skák hans gegn Vukcevic í
fyrstu umferðinni, en þar hafði
Guðmundur svart, hefði verið
sú fallegasta i mótinu.
— Bullandi tap
Framhald af bls. 40
halda mót sem þetta hérlendis.
„Um framtíð mótsins hafa ekki
verið teknar neinar ákvarðanir
ennþá, og verður það verkefni
annarra manna síðar. Það er
ómögulegt að segja hvað þá verð-
ur ákveðið, þvi þá verða nýir
menn i stjórn. Það má vel vera að
þeir hafi næga bjartsýni til að
bera til að ráðast í mót sem þetta,
en þannig mun aftur verða rennt
blint í sjóinn,“ sagði Guðfinnur.
Guðfinnur sagði okkur 'að
Reykjavíkurmótið 1974 hefði
kostað 2 milljónir og hefði því
kostnaðurinn núna aukizt um
150%. Hann sagði einnig að miða-
verð o.s.frv. hefði ekki hækkað að
sama skapi. Það verður Skáksam-
band Islands sem sér Um næsta
Reykjavíkurskákmót, samkvæmt
venju. Taflfélag Reykjavíkur
annast síðan mótið 1980 ef það
verður þá haldið í núverandi
mynd.
— Sprengju
varpað
Framhald af bls. 40
að viðurkenna verknaðinn, en
að iokum viðurkenndu þeir.
Ekki gátu þeir gefið neina skýr-
ingu á þessu framferði sínu, en
hafa sjálfsagt þótzt eiga eitt-
hvað sökótt við mig,“ sagði
Daníel, „ég veit varla hvað
svona menn hugsa, en eitt er
víst, að þeir eru ekki meiri
menn en það, að þeir þorðu
ekki að henda sprengjunni inn
nema þegar ég var fjarstaddur.
Enn veit ég ekki, hvort ég geri
eitthvað frekar í málinu."
Daníel sagði, að heimilisfólk-
ið hefði verið í fastasvefni þeg-
ar sprengjunni var kastað inn
um þvottahúsgluggann á neðri
hæð hússins, en þar hefði hund-
urinn verið. Litlar sem engar
skemmdir hefðu hlotizt af völd-
um sprengjunnar.
— Stöðugra verð
Framhald af bls. 2
inn væri þyngri, þegar verð fast-
eignanna væri komið mikið yfir
þetta mark. Stórar eignir hafa
verið mjög þungar til skamms
tíma, en þó virtist aðeins vera
tekin að glæðast salan í þeim.
Einnig kom fram, að staðir eru
misjafnlega eftirsóttir og hvað
snerti 2 og 3 herbergja ibúðirnar
virtist Breiðholt I og Árbær vera
hvað vinsælustu hverfin um þess-
ar mundir en einbýlishús, raðhús
og stórar sérhæðir væru hvað eft-
irsóttastar í gamla Vesturbænum
og Fossvogi. Töluverður munur
gæti verið á verði íbúða eftir
hverfum, og t.d. munað allt að
einni milljón króna á samsvar-
andi 3 herbergja blokkaríbúðum
eftir þvi i hvaða hverfum þær
væru.
Morgunblaðið spurði fasteigna- •
salann, hvort fasteignamiðlun
væri sú gullkista sem ætla mætti
af öllum þeim nýju fasteignasöl-
um, sem sprottið hefðu upp und-
anfarið. Hann kvað naumast hægt
að segja það og ef fasteignadálkar
blaðanna væru grannt skoðaðir
yfir langt tímabil, kæmi fljótlega
í ljós, að mörg þessara fyrirtækja
helltust tiltölulega fljótt úr lest-
inni og forráðamenn þeirra sneru
sér að öðru. Fasteignamiðlun
kostaði gífurlega vinnu og með
þvf móti kæmu töluverðar fjár-
hæðir til fasteignasalanna.
Hinn fasteignasalinn, sem
Morgunblaðið ræddi við, sagði, að
honum sýndist verðlag vera orðið
eitthvað stöðugra en verið hefði,
en hjá fasteignasölu hans væri
nóg að gera, enda alltaf töluvert
um íbúðaskipti hjá fólki. Hann
var spurður, hvort ekki hefði i
sumar verið meira framboð en
eftirspurn, en svaraði þvf til, að
kannski mætti segja að á vissum
eignum hefði verið meira fram-
boð, en þegar um væri að ræða
góðar og eftirsóttar eignir kæmu
alltaf kaupendur um leið. Verðið
á fasteignum hefði heldur þokazt
upp á við í sumar, en hlns vegar
ekki orðið neinar verulegar stökk-
breytingar á því, eins og stundum
hefði gerzt áður. Eftirsóttustu
íbúðirnar væru 3 herbergja og
þyrfti raunar að byggja meira af
íbúðum af þeirri stærð, en af ein-
stökum stöðum i borginni væri
verðið hvað hæst í Fossvogi og
Vesturbæ.
— Guðlaug
Framhald af bls. 2
líða tók á skákina hópuðust
áhorfendur að borði þeirra,
enda var skákin spennandi. Sú
þýzka varð að gefast upp þegar
mát f þremur leikjum var
óumflýjanlegt. Guðlaug hefur
staðið sig mjög vel það sem af
er keppninni og hefur hún unn-
ið tvær fyrstu skákir sfnar, og
er hún ein um það í íslenzku
sveitinni.
Staðan eftir tvær umferðir er
sú, að Vestur-Þýzkaland er í
efsta sæti með 7'/í vinning, Nor-
egur og Danmörk hafa 6!4 vinn-
ing, Island 6 vinninga, Svíþjóð
5 vinninga og Bremen 4V4 vinn-
ing.
— Framhalds-
rannsókn
Framhald af bls. 2
Að sögn Haraldar er framburð-
ur manna nokkuð misjafn, sumir
segja, að þetta hafi átt sér stað í
einhverjum tilfellum, en ekki
hafi verið um venju að ræða, en
aðrir hafa sagt við yfirheyrslurn-
ar, að þarna hafi verið um ein-
hvers konar hefð að ræða og þetta
hafi tfðkast f einhverjum mæli
hjá flestöllum tollvörðum. Hins
vegar hafa hinir yfirheyrðu allir
þvertekið fyrir, að tollverðir hafi
gert skipverjum einhvern greiða
fyrir gjafir þessar, svo sem að
hleypa i gegn ótollafgreiddum
varningi.
— Blómabærinn
Hveragerði
Frani hald af bls. 21
málum háttað, er dýrmætasta orkan
látin fara upp í loftið, vegna þess að
hún er of heit til upphitunar og þar
af leiðandi verður vatnið dýrara fyrir
okkur. Það sem hér þyrfti að gerast,
er að þessi dýrmæta orka verði fyrst
nýtt til iðnaðar eða raforkufram
leiðslu og síðan fengjum við af-
gangsvatnið. Ég vil í því sambandi
benda á, að raforkuver og annar
iðnaður mundi skila nákvæmlega
jafn heitu vatni og við fáum núna.
Með þessu fyrirkomulagi mætti stór-
lækka hitakostnað hjá okkur og jafn-
framt nýta orkuna, sem ég tel
hörmulega illa nýtta með þessu fyrir
komulagi. En þetta sagði ég nú fyrir
1 5 árum og segi enn.”
Og með þessum orðum Hans lét-
um við heimsókn okkar til Hvera-
gerðis lokið að þessu sinni og héld-
um aftur til Reykjavíkur.
— S-Afríka
Framhald af bls. 1
ingsefnin milli þeirra Kissingers
virðast vera þessi ef marka má
blaóamannafundi þeirra beggja I
kvöld: Tanzaníustjórn er þeirrar
skoðunar, að aðeins Suður-Afrika
og sjálfstæðishreyfing Namibíu,
SWAPO, eigi að fá aðild að ráð-
stefnu um framtíð svæðisins, en
Kissinger segir að „allir gildir
hópar“, þ.e. einnig aðrir hópar en
SWAPO, ættu að taka þátt I ráð-
stefnunni. Tanzaníustjórn telur,
að flestir hinna 250.000 hvftu fbúa
Rhódesíu myndu kjósa að flytjast
úr landi eftir að meirihlutastjórn
blökkumanna hefði tekið völd og
hvetja ætti þá til að gera slfkt, en
Kissinger lítur svo á, að hvítu
ibúarnir eigi að dvejast áfram f
landinu og halda öllum réttindum
sínum. Tanzanfustjórn telur, að
Bandarfkjastjórn sé með fhlutun
Kúbumanna í Angóla og hugsan-
lega útbreiðslu kommúnisma á
heilanum, og heldur þvf fram, að
skæruliðar í suðurhluta Afríku
séu ekki kommúnistar, en
Kissinger heldur því fram að
Bandaríkjastjórn sé andvæg
fhlutun erlendra aðila, burtséð
frá því hvort hún sé frá kommún-
istum eða ekki.
Verkföll biakkra og kynblend-
inga í Suður-Afriku breiddust út f
dag, en engin alvarleg átök urðu,
svo vitað se. Hins vegar sagði yfir-
maður óeirðalögreglunnar, að
tveir menn hefðu beðið bana f
Soweto í nótt, —annar barinn til
dauða af öðrum blökkumönnum,
en hinn skotinn til bana af lög-
reglu. Yfirmenn öryggismála
komu saman í dag til að bera
saman bækur sfnar um hvernig
stöðva megi kynþáttaóeirðirnar f
landinu.
1 umtali í Rhódesíu hófu hvftir
stjórnmálamenn úr stjórnar-
flokknum, Rhódesíufylkingunni,
ársþing sitt f dag. Miklar varúðar-
ráðstafanir hafa verið gerðar
vegna flokksþingsins, þar sem
Smith forsætisráðherra mún
reyna að fá 600 flokksbræður sína
til að faliast á grundvallaratriði
þeirra tillagna, sem fram hafa
komið um lausn Rhódesiumálsins,
að því er fréttaskýrendur telja.
Talið er, að sundrung innan
flokksins muni koma glögglega
fram f keppni um leiðtogaembætt-
ið. Desmond Frost, hægri maður,
hefur í fyrsta sinn I mörg ár feng-
ið keppinaut um embættið frá
W.N.Knox, sem talinn er hófsam-
ur og eiga mikia möguleika á að
sigra í leiðtogakjörinu.
— Njósnir
Framhald af bls. 1
að afla upplýsinga um rafeinda-
útbúnað Sovétmanna og hern-
aðaraðferóir.
Landamæri Noregs og Sovét-
ríkjanna eru 190 km löng. Atl-
antshafsbandalagið Iftur svo á,
að Sovétríkin myndu reyna að
ná á sitt vald norðurhluta Nor-
egs, ef styrjöld brytist út til
þess að bæta stöðu sjó- og flug-
hers síns við átök i Norðurhöf-
um. Norðmenn vilja ekki leyfa
kjarnorkuvopn í Noregi eða
veita NATO heimild til að hafa
her að staðaldri í landinu.
Norðmenn hafa sjálfir á að
skipa 5000 manna herliði við
sovézku landamærin, en Sovét-
menn hafa hins vegar um tíu-
sinnum fjölmennara herlið hin-
um megin landamæranna.
— Spánn
Framhald af bls. 1
herra myndi senda innan-
ríkisráðherrann, Rodolfo
Martin Villa, til Baska-
héraðanna nú í vikulokin í
þeim tilgangi að reyna að
lægja ólguna þar. Þá yrðu
lögreglustjórar í þessum
héruðum kvaddir til
Madrid til að fá ný fyrir-
mæli um, hvernig megi
bezt hafa hemil á ástand-
inu.
Verkfallið í Vizcaya f dag leiddi
til þess, að loka varð miklu ríkis-
reknu stálverksmiðjur f Altos
Hornos svo og skipasmíðastöðvun-
um í Bilbao. Upphaflega átti verk-
fallið aðeins að standa á mánu-
dag, en það var framlengt til að
mótmæla meintum þjösnaskap
lögreglunnar við aðgerðir gegn
mótmælendum. Lögreglan skaut
á einn mann og særði hann alvar-
lega I Bilbao fyrir tveimur dög-
um. Góðar heimildir í Madrid
hermdu í dag, að borgarstjórar 15
borga f Baskahéruðunum hefðu
gengið á fund yfirmanns alríkis-
lögreglunnar, Emilio Rodriguez
Roman, f gær og beðið hann um
að stöðva ruddaskap lögreglunnar
þar.
— Miki
Framhald af bls. 1
miðlunaráætlun, sem ætlað er að
bægja frá til bráðabirgða flokka-
dráttum meðal frjálslyndra
demókrata á meðan sérstakur
fundur japanska þingsins fjallar
um lög um útgáfu skuldabréfa til
að vega á móti halla f rfkisfjár-
málum og um hækkun járnbraut-
arfargjalda og símgjalda. Meir en
2/3 hlutar þingflokks Frjálslynda
demókrataflokksins hafa hvatt
hann til að segja af sér, og halda
andstæðingar hans þvl fram að
hann skorti forystuhæfileika til
að koma flokknum út úr núver-
andi kreppu og jafnframt að
hann einblíni um of á rannsókn
Lockheedmútumálsins, sem ýms-
ir forystumenn hans eigin flokks
hafa drcgizt inn f, þ.á m. Kakuei
Tanaka, fyrrum forsætisráðherra.
Annar þáttur málamiðlunarinn-
ar milli Mikis og andstæðinga
hans er, að forsætisráðherrann
verður nú að kalla saman lands-
þing flokksins í októbermánuði,
og er búizt við því, að þar muni
fjandmenn hans láta til skarar
skriða og reyna að bola honum úr
embætti.
í hinni nýju ríkisstjórn Mikis
eru 21 ráðherra, þar af sjö úr
fyrri stjórn hans. Þeirra á meðal
eru tveir helztu keppinautar hans
um leiðtogaembættið, Takeo Fuk-
uda, 71 árs, varaforsætisráðherra
og yfirmaður Efnahagsáætlana-
stofnunarinnar, og Masyoshi
Ohira, 66 ára, fjármálaráðherra.
Forsætisráðherrann, sem er 69 á-
ra að aldri, heldur þó einnig eftir
helztu stuðningsmönnum sinum,
— Osamu Inada, dómsmálaráð-
herra, sem stýrir Lockheedrann-
sókninni, Toshio Komoto, ráð-
herra með málefni utanrikisvið-
skipta og iðnaðar, og Ichitaro Ide,
ríkisstjórnarritara. Málamiðlun
var gerð við val nýs aðalritara
Frjálslynda demókrataflokksins í
stað Yasuhiro N:kasone, sem
stutt hefur Miki. Forsætisráð-
herrann vildi sjálfur fá Raizo
Matsuno, sem verið hefur í Fuk-
uda-armi flokksins, en þó velvilj-
aður Miki, en í staðinn varð fyrir
valinu Tsuneo Uchida, 69 ára að
aldri, sem er efnahagssérfræðing-
ur flokksins og hefur verið í
Ohira-arminum.
Zentaro Kosaka, 64 ára, tekur
við utanríkisráðherraembættinu
af Kiichi Miyazawa, en Kosaka
var utanríkisráðherra 1960—62
og hefur verið einn helzti sér-
fræðingur flokksins í utanríkis-
málum. Hann sagði á blaða-
mannafundi í dag, að hann hygð-
ist halda áfram að framfylgja
„friðsamlegri utanríkisstefnu"
Japans. Fréttaskýrendur telja, að
Kosaka muni reyna frekar að
bæta sambúðina við Kínverja og
jafnframt versnandi sambúð við
Sovétríkin.
Takeo Miki tók við embætti for-
sætisráðherra er Tanaka varð að
segja af sér vegna fjármála-
svindls árið 1974. Hann hefur
sjálfur óflekkað mannorð og nýt-
ur almenningshylli vegna ákveðni
í Lockheedmútumálinu, en hann
heldur því fram að nákvæm rann-
sókn á því sé nauðsynleg ef koma
á umbótum innan flokksins.
— Umhorf
Framhald af bls. 28
um við nokkur áhugasöm
um þetta, glugguðum í fag-
rit og pöntuðum sendi og
móttakara, sem hefði nægt
fyrir ísafjörð. Tækin eru svo
lítil að auðveldlega má bera
þau á sér. En tækin voru
gerð upptæk í tolli. Ef nægi-
leg alvara hefði verið í þessu
hjá okkur hefðum við reynt
að smygla þeim — við vor-
um hvort sem er að brjóta
lög.
Þetta sýnir hvað málið er í
rauninni einfalt, og satt að
segja er svona útvarpsstöð
bráðnauðsynlegur hlutur í
skólum og stofnunum. Mér
finnst það vera liður í vald-
dreifingu, að byggðirnar
geti haft stjórn á eigin út-
varpsstöðvum um landið.
Eins og ég sagði áðan þá er
ekki hægt að ætlast til að
þeir sem fjarri búa sýni
áhuga eða setji sig inn í
málefni okkar og öfugt.
Ég sé ekkert sem mælir á
móti útvarpsstöðvum víða
um land. Sagt er að þær
muni komast í hendur þeim
efnameiri — má þá ekki
segja að við ættum að hafa
eitt ríkisdagblað með einni
ríkisdagblaðanefnd, sam-
bærilega við útvarpsráð. Ég
tel það jafnfráleitt fyrirbæri
og eitt allsherjarríkisútvarp
fyriralla landsmenn.
— Kristþór
Minning
Framhald af bls. 30
stjörnunnar? Geislaþræðir ná
langt líka út 1 myrkrið og verða
bjartastir f svartasta skammdegi,
jafnvel aðeins í minningum að
skýjabaki, þegar hægt er að
syngja:
Ný dimmir á heiðum og daprast
í sveitum
og deyja blóm
"Yertu sæll, vinur og bróðir!
Þökk fyrir ljós þinnar leiðar.
Árelíus Nfelsson.