Morgunblaðið - 16.09.1976, Side 37

Morgunblaðið - 16.09.1976, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 37 VELVAKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 10—11 f.h. frá mánudegi (il föstudags. 0 Eitt núll aftan af? Jóhann Siggeirsson hringdi og kom með eftirfarandi hug- mynd eða fyrirspurn: „Ég hef búið hér í Reykjavik siðast liðin 40 ár og er nú orðinn ellilifeyrisþegi, eða næstum því það. Er ekki kominn timi til þess að við tökum eitt núll aftan af gjaldmiðli okkar, aftan af seðlunum? Hefur engum dottið þetta í hug? Þegar ég fór fyrst á ævinni til Parísar fékk ég fyrir 50 kr. íslenzkar 5000 franka — fimm þúsund franka. Bæði Frakkar og Italir hafa felit niður eitt núll og mér finnst að við ættum að athuga þetta vandlega hér. Getur Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri sagt til um hvort þetta muni vera hægt eða ekki. Ég minnist þess líka að þegar ég fór til Danmerkur fyrir allmörgum árum greiddi maður 3—4 kr. fyrir eina danska krónu. Jóhann Siggeirsson, Hagamel 25, R.“ Þessari hugmynd Jóhanns er hér með komið á framfa'ri og það væri kannski ólíkt þægilegra ef mynt okkar væri ekki með þess- um svimandi uppha'ðum, svo að sumir eru farnir að tala um að gefa út fimmtíu þúsund króna seðla. 0 Vantar fréttir. Kona nokkur hringdi og sagðist vera á þeirri skoðun að það vantaði mjög fréttir frá Suður-Ameríku, m.a. í Morgun- blaðinu. Hún sagðist m.a. sakna greina um stjórnina i Chile og fleira og henni fyndist eins og alltaf væri verið að tala um sum lönd í fréttunum en ekki væri minnzt á önnur. Þessu til skýringar ma'tti segja að þau lönd eru náttúrlega mest i fréttum sem eitthvað er að gerast í en það má samt vera að sumum finnist ekki vera sagt nógu mikið frá ýmsum löndum. 0 Fyrirmynd og ekki fyrirmynd Nokkuð hefur verið rætt að undanförnu um skemmtanahald ungmenna á höfuðborgarsvæðinu m.a. vegna lokunar Tónaba'jar og að þau hafi ekki skemmtistaði til að fara á þegar þau eru á vissum aldri. Einn sem kallar sig gamlan táning ritar eftirfarandi um þessi mál: „Ka'ri Velvakandi. Tilefni skrifa minna er bréf sem birtíst í dálki þínum hinn 10. september s.l. er D.B.P. undirritar. Mig langar til þess að benda höfundi þess bréfs á eina stað- reynd, en hún er það fordæmi, sem sá aldurshópur er D.B.P. talar um, þ.e. 17—20 ára, hefur gefið. Tökum sem da>mi Tónaba'. Menning sú er þar rikir er ekki góð fyrirmynd um það hvernig unglingar skemmta sér. Fyrir utan þennan stað hangir hópur ungmenna og er með alls kyns háreysti og ölvun er nokkuð áberandi, því eflaust er kalt að hanga úti við til lengdar. Ekki er mér kunnugt um ástand þess fólks sem innan dyra er og vil ég því ekkert fjölyrða um það. Unglingar fengu gullið ta'ki- fa>ri til þess að sýna hvað í þeirn bjó er Tómstundahöllin var tekin í gagnið. Hvað sýndi sú tilraun? Að mínum dómi ekkert annað en það að unglingar (auðvitað ekki allir, en yfir heildina) eru ekki nógu þroskaðir til þess að skemmta sér á heilbrigðan hátt. Á þessum stað var t.d. mjög illa gengið um. Sýndi þessi reynsla mjög vel að ungt fólk kann ekki að meta það sem að þeim er rétt. Því segi ég við ykkur, upprennandi æska, sýnið gott forda'mi en þá munuð þið uppskera eins og þið sáið. Virðingarfyllst, Gamall táningur." Þetta voru hugleiðingar til ykkar, sem eruö á aldrinum 17—20 ára ög unglinga yfirleitt. Eins og kom fram í dálkunum hér er ykkur að sjálfsögðu heimilt að skrifa urn þessi mái, þetta eru ykkar mál sem verið er að fjalla um og því er nauðsynlegt að þíð sjálf leggið orð I belg. Sjálfsagt er það svo, að hvort sem staðurinn heitir Tónaba'r eða Tómstunda- höll er ekki alltaf ha'gt að búast við fullkomnustu umgengni. Til eru einhverjir sem koma óorði á allan hópinn og þeir geta verið örfáir, svo sem mun hafa verið stundum við Tónaba', að þar hafi fáeinir unglingar verið með ærsl og læti og skemmt fyrir öðrum. Það er því kannski ástæða til að hvetja ykkur til að hrista af ykkur slyðruorðið, unglingar góðir, og sýna hvað í ykkur býr. Látið ykkur sjálfum detta eitthvað í hug sem þið getið drepið tímann með en ekki alltaf að bíða eftir þvi að aðrir geri eitthvað fyrir ykkur. ur, var það ekki? Reyndu að gera þér þá sögu i hugarlund ef hún væri færð til nútíðarinnar. Held- urðu að slfk saga sé með öllu fráleit nú? Þú segir þetta vera óifkt mér. Hugsaðu þig um og þá muntu komast að þvf að ég hitti nagiann á höfuðið. Strit heillar ævi hefur leitt mig inn á þá braut sem Poe — sagnameistarinn mikli — hefði auðveldlega getað séð fyrir. Ég hef — svo að ég yitni f Snoopy — skrifað sjálfan mig út f horn og Poe einn getur bjargað mér þaðan. Hann rétti Jack örkina. — Guð minn góður! Þegar ég hugleiði málið er þetta alls ekki Ifkt Jamie. Hann hefur aldrei fyrr dulið meiningu sfna, hann hefur alltaf talað hreint út. Eg hélt hann væri að gefast upp vegna vinnuálags. Ekki hvarflaði að mér ... Ekki fyrr en þér kom- uð. Hann rétti Jack annað blað. — Hér er meira. — Get ég fengið Ijósrit af þeim? — Sjálfsagt. Hann leit á klukkuna. — Frú Groves, ráðskona mfn, væntir þess að þér snæðið hádeg- isverð hjá okkur og það geri ég HOGNI HREKKVÍSI ©1976 McNaughtSynd.lnc. Ég segi þer satt. Hann greip hér risahumar.“ Kindaskrokkar Enn þá óbreytt verð 1. verðflokkur.....549 kr. kg. 2. verðflokkur.....498 kr. kg. Sagað og pakkað Heimsending 200 kr. Góð matarkaup 1 kg egg ....................... 395 kr. kg Hvalkjöt nýtt .................. 330 kr. kg Reykt hvalkjöt ................. 490 kr. kg Kálfahryggir ................... 300 kr. kg Kálfakótelettur ................ 370 kr. kg Kálfalæri ...................... 370 kr. kg Svínalifur ...................... 220 kr. kg Nautahakk ...................... 670 kr. kg Nautahakk 1 0 kg................ 600 kr. kg Kindahakk ...................... 570 kr. kg Saltkjötshakk ................... 570 kr. kg Lambasvið ...................... 290 kr. kg Nýr Lundi ..................... 100 kr. stk. Úrvals nautasnichel ........... 1250 kr. kg Nautagullash .................. 11 50 kr. kg Nautamörbrá ................... 1620 kr. kg Nautafillet ................... 1 620 kr. kg Nauta Roast-Beef .............. 11 80 kr. kg Nauta T. Bone ................... 980 kr. kg Nautagrillsteik ................ 655 kr. kg Úrvals hænur .................... 590 kr. kg 10 stk. í kassa ................ 500 kr. kg Beztu kjúklingarnir ............ 1050 kr. kg 1 0 stk. i kassa ................ 850 kr. kg Úrvals kjötvörur 1. flokks hráef ni í yðar þjónustu alla daga Sendum í Reykjavík, I Kópavog, Hafnarfjörö | og póstkröfu um allt land ■ Ds=i®)Troöi]OE)®TrtB{i)aRí] ■ Laugalæk 2, REYKJAVIK, simi 3 5o 2o | ___________________________I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.