Morgunblaðið - 29.10.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976
5
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22
LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SÍMI FRÁ SKIPTIBOROI 28155
Áfengisvarnanefndir á Snæfellsnesi:
Telja áfengisverð
vera 50% of lágt
Stykkishólmi, 26. okt. 1976.
SERA Hjalti Guðmundsson sem
um 11 ára skeið hefir verið
sóknarprestur í Stykkishólmi, en
nú á förum héðan til starfa við
Dómkirkjusöfnuðinn í Reykja-
vfk, kvaddi söfnuð sinn hér við
guðsþjónustu 1 Stykkishólms
kirkju 24. þessa mánaðar. Minnt
ist um leið ánægjulegrar starfs
þjónustu sinnar hér. Lárus Kr
Jónsson safnaðarfulltrúi flutti
séra Hjalta kveðjur sóknarbarna.
Séra Hjalti hefir sem fyrr segir
starfað hér 1 11 ár og verið mjög
virkur 1 tónlistarlffi bæjarins,
bæði sem stjórnandi Karlakórs-
ins og félagi Lúðrasveitarinnar.
Norrœna
húsið
Vegleg-
ar gjafir
NORRÆNA húsinu hafa ný-
lega borizt mjög veglegar gjaf-
ir erlendis frá en greint var
frá þeim á stjórnarfundi húss-
ins, sem nýlega var haldinn i
Reykjavfk. Fyrst má nefna
gjöf frá Danska tónskáldasam-
bandinu en formaður Sam-
bandsins, Per Nörgaard, og út-
gefandi þess, Dan Fog, hafa
fyrir hönd Sambandsins gefið
Norræna húsinu allar nótur og
hljómplötur, sem það hefur
gefið út. Má ætla að gjöf þessi
sé milli 40 — 50 þúsund
danskra króna virði.
A fundinum færði formaður
stjórnar Norræna hússins, pró-
fessor Gunnar Hoppe, rektor
við Stokkhólmsháskóla, hús-
inu gjöf frá ríkisbókaverði
Svia, Uno Willers, útgáfu
Peringskiölds af Heimskringlu
í tveimur bindum, prentaða í
Stokkhólmi 1679. Það er elzta
útgáfa Heimskringlu, sem
Norræna húsið hefur eignazt.
Eintakið er mjög fallegt og vel
varðveitt, en þurfti lítils háttar
viðgerðar við, og lét gefandinn
sjá um hana, áður en gjöfin
var afhent.
Tónleikar
FINNSKI fiðluleikarinn Hel-
ena Lehtelá-Mennander og
Agnes Löve pfanóleikari halda
tónleika í Norræna húsinu á
laugardag kl. 16:00.
Helena Lehtelá-Mennander
nam fiðluleik við Síbelíusar-
akademínuna i Helsingfors og
framhaldsnám i Paris 1965
undir handleiðslu prófessors
Buoillon. Þá hefur hún einnig
numið við Tschaikovskytón-
listarskólann í Moskvu. Agnes
Löve nam við Tónlistarskólann
I Reykjavík og síðar í Tón-
listarháskólanum í Leipzig og
tók þaðan einleikarapróf eftir
7 ára nám. Hefur hún m.a.
leikið einleik með Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Kvikmynd um
Victor Sparre
A SUNNUDAG kl. 16.00
verður sýnd 1 Norræna húsinu
kvikmynd um norska list-
málarann Victor Sparre.
Sýning á verkum hans stend-
ur nú yfir þar og var lista-
maðurinn viðstaddur opnun
hennar og flutti fyrirlestur s.l.
sunnudag. Var þá fyrrnefnd
kvikmynd sýnd og vegna mik-
illar aðsóknar verður hún nú
endursýnd.
Þá hefir hann verið bæði kennari
og prófdómari við skólann.
Héðan fylgja honum og fjöl-
skyldu hans bestu árnaðaróskir.
Félag áfengisvarnanefnda í
Snæfellsness- og Hnappadais-
sýslu komu saman á fund í
Stykkishólmi í okt. þar sem rædd
voru áfengismál sýslunnar og
áfengisvarnir. Björn Stefánsson
erindreki mætti á fundinum.
A fundinum voru þessi mál
einnig rædd með tilliti til lands-
ins í heild og þess ástands sem
alltaf fer versnandi í þessum mál-
um, bæði hvað lögbrot og glæpi
snertir, svo og viðhorfin til æsk-
unnar.
Eftirfarandi samþykktir voru
gerðar:
1. Fundurinn skorar á Áfengis-
varnarráð að vinna að því að flutt
verði á Alþingi frumvarp til laga
um bann við innflutningi alls kon-
ar áfengis,. Einnig bann við
bruggun og sölu áfengis og komi
slík lög til framkvæmda svo fljótt
sem verða má.
2. Þá vekur félagið athygli
stjórnvalda á því að verðhækkun
á áfengi og tóbaki stuðla mjög að
þvi að draga úr ofneyslu þessara
efna og bendir á að miðað við
ýmsar almennar neysluvörur
vantar meira en 50% á að áfengi
hafi hækkað i samræmi við þær
undanfarinn áratug.
3. Fundurinn skorar á Alþingi
að samþykkja tillögu milliþinga-
nefndar um að öll áfengiskaup
skuli skráð á nafn.
4. Fundurinn skorar á við-
skiptaráðuneytið að taka nú þeg-
ar af frílista bruggtæki þau og
ölgerðarefni sem vitað er að
Framhald á bls 39
„Vitneskja veitir öryggi’
Ráðstefna á vegum
Blindrafélagsins
A VEGUM Blindrafélagsins,
Hamrahlfð 17, Reykjavfk, verður
haldin ráðstefna dagana 29. og 30.
okt. 1976 um brunavarnir. um-
ferðarmál og hjálp f viðlögum.
Ráðstefnan verður undir kjör-
orðunum „VITNESKJA VEITIR
ÖRYGGI“.
Framsögúmenn verða m.a. frá
slökkviliði og umferðardeild
lögreglunnar í Reykjavík. Um 40
manns munu sækja ráðstefnuna,
þar af um helmingur blindur eða
sjónskertir.
Að loknum framsöguerindum
starfa umræðuhópar, sem síðan
skila niðurstöðum til almennrar
umræðu svo sem venja er.
Þess er vænst að ályktanir ráð-
stefnunnar geti orðið grundvöllur
áframhaldandi fræðslu og starf-
semi blindra og sjónskertra hér á
landi.
Hvfti stafurinn, sem blindir
nota er þeir fara ferða sinna úti
við, er þýðingarmikið hjálpartæki
og auðkenni blindra og verður
sérstaklega fjallað um hann á ráð-
stefnunni.
Framhald á bls. 39
Nýkomio
FLAUELS BLUSSUR — DOMU- OG
HERRAPEYSUR — GALLABUXUR —
BOLIR — SKYRTUR —
HERRALEÐURJAKKAR — HERRA-
FÖT — DÖMUFÖT —
ULLARFRAKKAR — KULDAJAKKAR
Hér er aðeins eitt af okkar
nýju fatasniðum
í svart/hvítu
Við eigum nu til fjölbreytt úrval af
fötum í mörgum litum
Komið og skoðið