Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 14

Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 íslandsklukkan sló á 100 ára afmæli leiklistar á Sauðárkróki LEIKLISTIN stendur traustum fótum í menningarlifinu á Sauðárkróki og þar hefur leiklistargyðjan nú verið blótuð í 100 ár. Stórhugur hefur ráðið rikjum meðal leikfólks á Sauðárkróki og gleggsta dæmið um það er uppfærsla Leik- félags Sauðarkróks á íslandsklukkunni eftir Halldór Laxnes til að minnast þessara tímamóta. Engan veginn auðveldasta verkefnið fyrir áhugamannaleikfélag úti á landsbyggðinni, en Sauðárkróksleikarar vildu gera eitthvað veglegt eitthvað í anda upphafsmannanna bjartsýnu og því varð íslandsklukkan fyrir valinu. í þessari sýningu taka þátt 32 leikfélagar undir stjórn Gísla Halldórssonar, sem leikstýrði verkinu. Áður en lengra er haldið er rétt að það komi fram að allir þeir leikarar, sem blaðamaður Morgun blaðsins hitti að máli að lokinni frumsýningunni lögðu á það ríka áherzlu að þáttur Gísla Halldórs sonar við uppsetningu Íslands klukkunnar væri ómetanlegur. Ungir leikarar og eldri á Sauðár króki lögðu saman hönd á plóginn í þessu verki. Má nefna af þeim eldri Eyþór Stefánsson og Kristínu Sölva dóttur og af þeim yngri t.d. Kristínu Dröfn Árnadóttur sé lék Snæfríði íslandssól með miklum sóma. S m spil leikhóps LS var mjög skemmti- legur og það varð ekki svo gjörla séð að þarna væru að ferðinni áhuga- leikarar, sem vinna erfiðan vinnudag áður en þeir geta farið að sinna þessu áhugamáli sínu, leiklistinni. Þeir eru aðeins eitt dæmið um hið mikla starf sem áhugaleikfélög um allt land inna af hendi. Sjálfsagt hefðu þó atvinnugagn- rýnendur getað séð ýmsa vankanta á þessari sýningu, en til hvers? Til þess að eyðileggja þá Ijúfu stemmningu sem var I Félags heimilinu Xifröst fimmtudaginn 21. október? Þau hafa ekki pappira upp á leikhæf ileika sína, en til hvers pappíra? í aðalhlutverkum íslands- klukkunnar á Sauðárkróki voru Haukur Þorsteinsson sem Árni Magnússon, Kristln Dröfn Arnadóttir sem Snæfrfður Björnsdóttir Eydalfn, Hafsteinn Hannesson sem Jón Hreggviðsson, Knútur Ólafsson sem dómkirkjupresturinn, Olafur Matthíasson sem jungkærinn I Bræðratungu, Kristján Skarphéðins- son sem Eydalín lögmaður, Jón Ormar Jónsson sem Jon Grinvicensis og Kári Jónsson sem Jón Marteinsson og Jón Þeófflus- son. Leikmynd gerði hagleiksmaður- inn Jónas Þór Pálsson. Að f rumsýningunni lokinni var leikurum klappað lof i lófa lengi vel . . . á frumsýningunni.. . Kristin Dröfn Árnadóttir sem Snæfriður íslandssól og Haukur Þorsteins- son i hlutverki Árna Magnússonar i íslandsklukkunni (Ijósm Stefán Pedersen) Kristján Skarphéðinsson, sem Fydalín lögmaður Systkinin Hafsteinn og Helga Hannesdóttir í hlutverkum sínum i íslandsklukkunni, sem Jón Hreggviðsson og kona Arnæus- ar Leikarar, leikstjóri og þeir aðrir sem þátt taka i sýningu Leikfélags Sauðárkróks á íslandsklukkunni og þeim og leikstjóra færðir fallegir blómvendir. Lesin voru árnaðar- skeyti og Sæmundur Friðriksson færði Leikfélaginu fyrir hönd bæjar- stjórnar 100 þúsund króna gjöf. Vilhjálmur Hjálmarsson mennta málaráðherra var viðstaddur sýninguna og þakkaði leikurunum fyrir ánægjulega kvöldstund. Vigdls Finnbogadóttir leikhússtjóri Leik- félags Reykjavikur flutti stutta tölu og Kári Jonsson mælti nokkur orð fyrir hönd Leikfélags Sauðárkróks. Þakkaði Kári öllum sem hönd lögðu á plóginn en þó sérstaklega Glsla Halldórssyni leikstjóra og Knúti Ólafssyni sem er eini leikarinn I þessu verki, sem ekki er I LS. H:nn er meðlimur I Leikfélagi Skagafjarð- ar og búsettur I Varmahllð. Hann þurfti þv! að sækja æfingar um lang- an veg og aka I u.þ.b. 20 minútur til hverrar æfingar. Leikurum og gest- um var boðið I kaffihóf að lokinni sýningu LOSNAREKKI VIÐ PÚKANN Hafsteinn Hannesson leikur Jón Hreggviðsson í uppfærslu Leikfélags Sauðárkróks á jslandsklukkunni. Hafsteinn er enginn nýliði á leiksvið- inu þvi hann hefur verið meðal leik enda LS siðan 1951. — Þetta byrjaði allt með þvi að ég var að dindlast við að visa til sætis á leik- sýningum og 1 5 ára gamall fékk ég hlutverk i Skuggasveini, segir Haf- steinn i viðtali við Morgunblaið. — Ekki var það nú stór hverk, ég lék púka i þessu verki, en siðan hef ég ekki losnað við þennan púka immér að hafa stöðugt gaman af að vera á leiksviði Frá þvi 1958 hefur Hafsteinn leik- ið i öllum leikritum, sem Leikfélag Sauárkróks hefur tekið til sýningar að Músagildrunni undanskilróknum árið 1960. Ekki var Hafsteinn þó langt unan þvi þá var hann einn af senumönnunum. — Nei ég hef aldrei farið i leik- skóla. það var ekki hægt á sinum tima, segir Hafsteinn — Að visu fór ég á smánámskeið á vegum Verka- kvennafélagsins. sem fékk hingað Ragnhildi Steingrimsdóttur til að halda þetta námskeið og leikstýra einu verki. Annars er Gisli Halldórs- son minn skóli. Hann hefur kennt mér það sem ég kann í þessu, það er góður skóli held ég. Ég reyni að gera eins og Gisli segir mér, það er gott að vinna með Gísla og við I Leikfél- agi Sauðárkróks eium honum mikið að þakka. HÉLT AÐ SKRATTINN SJÁLFUR VÆRI KOMINN í BAKARÍIÐ í kaffihófi að lokinni frumsýningu Leikfélags Sauðárkróks á íslands- klukkunni voru tveir góðir og gamal- reyndir meðlimir Leikfélagsins gerðir Gísli Halldórsson leikstjóri að heiðursfélögum. Þeir Guðjón Sigurðsson bakarameistari og Þórður P. Sighvats. Báðir hafa þeir starfað ótullega að leiklistarmálum á Króknum, Guðjón sem leikari i háa herrans tið og Þórður sem sviðs- maður allt fram til þessa dags. Guðjón hefur frá mörgu skemmti legu að segja og látum við hér fylgja með eina stutta gamansögu, en sjálf- sagt hefur hann ótal fieiri sögur að segja frá ferli sinum sem áhugaleik- ari á Sauðárkróki. —Við vorum að sýna Nýársnótt- ina og ég lék Svart, kolbikaðan ófögnuð, sem kom fram i upphafi verksins og svo ekki aftur fyrr en I lokin. Ég man að við höfðum útbúið hálfgerðan stökkpall fyrir mig og þegar ég flaug inn á sviðið með óhljóðum miklum varð allt vitlaust í húsinu og einhver sagði mér seinna að honum hefði ekki brugðið eins illa i annan tima. En það var ekki þetta sem ég ætlaði að minnast á. (Grein: Ágúst Ingi Jónsson — Þar sem ég hafði nóg að gera í bakaríinu og stutt er frá félags- heimilinu og þangað, þá brá ég mér oft eftir fyrstu atriðin og í bakaríið til að gera upp skúffuna, en var svo komin tímanlega til baka fyrir lok leiksins. Einhverju sinni er ég stóð þarna kolsvartur og heldur óásjá- legur við kassann labbaði góður vinur minn framhjá, var það Jóhann Hafstein alþingismaður og fyrrver- andi forsætisráðherra. — Sagði hann mér daginn eftir að honum hefði heldur betur brugðið í brún er hann sá sjalfan skrattann standa við búðarborðið í bakaríinu. Sagðist Jóhann hafa flýtt sér sem mest hann mátti í burtu og ef til vill ekki nema eðlilegt þvi ekki vissi hann að ég var þarna kominn á milli atriða í leikriti og í þessu líka gerv- inu, segir Guðjón og hlær innilega. ÆVINTÝRI UPP Á EINA MILLJÓN. Helga Hannesdóttir hefur verið formaður Leikfélags Sauðárkróks síðastliðin 2 ár og meðan hún hefur setið við stjórnvölinn hefur félagið tekið fjögur verk til sýningar, þ.e. íslandsklukkuna, Storminn, Ærsla drauginn og Sjóleiðina til Bagdad. Sjálf leikur Helga l íslandsklukkunni konu Arnæusar og hefur verið virkur leikari hjá LS siðastliðin 25 ár. — Því er ekki að neita að þetta hefur verið anzi mikið álag hjá okkur að undanförnu og fólk hefur lagt mikið á sig sérstaklega sfðustu vikurnar, segir Helga f viðtali við Morgunblaðið. — Við byrjuðum Iftillega f júnf f sumar og vorum þá saman f viku undir stjórn Gfsla. Sfðan byrjuðum við af fullum krafti 13. september og segja má að æft hafi verið á hverjum degi fram að frumsýningunni. Það var jafnvel æft f matartfmunum og eina reglan, sem við höfðum á æfingatfmunum var að reyna að fara ekki mikið fram yfir miðnætti með æfingarnar, en sú regla var að sjalf- sögðu brotin sfðustu dagana fyrir frumsýninguna. Leikfélag Sauðarkróks býr að þvf leytinu vel að félagið á sitt eigið húsnæði, gamalt trésmfðaverkstæði, sem kallað er Leikborg. Þar eru bún- ingar og sviðsmyndir geymdar og á loftinu er sæmilegt pláss til æfinga. Er það Ifka eins gott því t.d. vikurnar fyrir Sæluviku að vori er þröngt á þingi f Félagsheimilínu Bifröst. Félögin á Króknum þurfa þá öll að komast þangað inn með æfingar á þeim verkum sem þau eru með f

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.