Morgunblaðið - 29.10.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976
15
takinu. Leikrit, tónlist eða hvaSa
nafni sem það nefnist.
Helga segir okkur að slðustu árin
hafi áhuginn fyrir leiklist aukist mjög
meðal ungs fólks á Sauðárkróki.
Þetta unga fólk hafi breytt félags-
skapnum mjög og hún segist að
sjalfsögðu vera ánægð með það, þvi
á timabili hafi henni fundizt sem
leikfélagið hafi verið orðið aII ein-
angrað fyrirbæri á Króknum.
Við spyrjum Helgu að þvl I lokin
hvað það kosti LS að setja upp
íslandsklukkuna og hvort farið verði
með verkið I sýningarför um landið.
— Það er ekki búið að gera
reikningana upp og við vitum þvl
ekki hvað þetta ævintýri okkar mun
kosta, segir Helga. — Ég hef þó trú
á miðað við önnur verk, sem við
höfum sett upp að kostnaðurinn halli
I eina milljon, en það eru ekki
öruggar tölur. Við munum sýna
verkið hér meðan við höfum aðsókn
og vonandi verður það lengi.
Sýningar verða þó ekki nema annað
hvert kvöld. þvi kvikmyndasýningar
eru I Bifröst hin kvöldin.
— Þvl miður getum við ekki farið
út fyrir Sauðárkrók með íslands-
klukkuna. Sviðsbúnaðurinn leyfir
ekki slik ferðalög, auk þess sem við
erum með mikið af kösturum og
sýningarmunum I láni og verðum að
skila þeim hlutum sem alira fyrst,
því það eru fleiri en við hér I LS. sem
höfum gaman af að leika, segir
Helga að lokum.
Við spyrjum Hafstein hvort hann
hafi leikið annars staðar en á Sauð-
árkróki og svarar hann þvi til að með
Leikfélagi Sauðárkróks hafi hann
leikið á ýmsum stöðum á landinu, en
aldrei með öðrum en Króksfólki. —
Það er mikill leiklistaráhugi hér á
Sauðárkróki og okkur hefur alltaf
gengið vel að fá fólk til starfa. segir
Hafsteinn. — Það er gaman að
vinna fyrir þetta félag og með þessu
fólki, — sérstaklega Gisla Halldórs-
syni leikstjóra.
JÓN HREGGVIÐSSON
UNDIR STÝRI
Hafsteinn sagðist ekki neita þvlað
sér liði illa fyrir frumsýningar og
frumsýningin á íslandsklukkunni
hefði ekki verið þar nein undan-
tekning. Sagði að sér liði eiginlega
illa fyrir allar sýningar. — Ég gat t.d.
ekkert borðað daginn, sem íslands-
klukkan var frumsýnd hér. fyrr en að
frumsýningunni lokinifi. Ég vissi af
þessum gestum, menntamálaráð-
herra og þeim hinum, og þó ég héldi
að ég kynni rulluna mlna sæmilega
þá fipaðist mér tvisvar sinnum bara
af taugaæsingi að ég held.
Hafsteinn segir okkur að hlutverk
Jóns Hreggviðssonar sé erfiðasta
hlutverk sem hann hafi leikið. Það
hafi þó um leið verið skemmtilegasta
verkfnið. — Mér llkaði það bezt við
Jón, vin minn, að hann var alltaf
hress, stóð beinn og lét ekki bugast
þó á móti blési.
Jón starfar við að keyra ollu til
Skagf irðinga. — Frumsýningardag-
inn var mikið að gera I keyrslunni og
ég var að vinna til klukkan sjö um
kvöldið en sýningin hófst klukkan
hálfnlu. Ég get þó varla sagt að það
hafi verið ég sem keyrði út olluna
þann daginn, það er réttara að segja
að Jón Hreggviðsson hafi verið undir
stýri. Ég þuldi mlna ruliu fram og
aftur og sannast sagna held ég að ég
hafi oft verið heldur lélegur bllstjóri
þennan dag.
— Eitt sinn mætti ég konu á bíl
hér úti I Skagafirði en eitthvað mun
ég vlst hafa verið seinn að átta mig
þvi ég var alveg kominn að bil
konunnar þegar ég tók eftir honum
og vék út I kantinn. Þá sá ég siðast
til konunnar á btlnum að hun hafi
staðnæmst á vegabrúninni og var
þar þegar ég sá síðast I baksýnis-
speglinum. Annars er gott næði til
að læra sitt hlutverk I bllnum þegar
Framhald á bls. 39
. . . daginn eftir . . .
Þau taka öll fjögur þátt i sýningu LS
á íslandsklukkunni, en snemma
daginn eftir frumsýninguna voru
þau mætt til vinnu hjá bilaverkstæði
kaupfélagsins á Sauðárkróki Frá
vinstri: Sigurður Ottósson sviðs-
maður, Þorsteinn Vigfússon, er leik-
ur mann, sem missti glæpinn,
Kristin Dröfn Árnadóttir skrifstofu-
stúlka, sem leikur Snæfriði, og
Kjartan Erlendsson, sem leikur
blindan glæpamann
Jón Hreggviðsson eða Hafsteinn
Hannesson við vinnu sina á oliubíln-
um. (Ijósm. —áij)
Guðjón Sigurðsson, sem gerður var
að heiðursfélaga LS á frumsýningu
íslandsklukkunnar á Króknum, hefur
brugðið sér inn fyrir kjötborðið hjá
Kristjáni Skarphéðinssyni kaup-
manni oq lögmanninum i leikritinu.
Upphaf leikmenntar
á Sauðárkróki
KRISTMUNDUR Bjarnason
ritari í leikskrá „Nokkur orð
um leikmennt á Sauðárkróki
1876—1941“ og birtum við hér
stutta kafla úr grein hans um
upphafsár leiklistar á Sauðár-
króki:
„Árið 1871 samdi skagfirzkur
skólapiltur, Indriði Einarsson,
Nýársnóttina, sem var leikin f
desember sama ár. Þá var og
annað leikrit tekið til sýningar í
lærða skólanum: Heimkoman.
Höfundurinn var einnig skag-
firzkur, skólabróðir Indriða,
Ölafur Björnsson. Einn
snjallasti leikari í Nýárs-
nóttinni var Gunnlaugur Einar
Gunnlaugsson, skólabróðir
þeirra félaga og sýslungi. Hann
tók Gvend snemmbæra.
Gunnlaugur var bráðfyndin,
eftirherma ágæt og hafði mikla
frásagnagáfu. Upp úr honum
gat runnið árstraumur af lyga-
sögum, en aldrei voru þær öðr-
um til hnjóðs. Þegar hann lék
Gvend bætti hann stundum
„inn f frá sjálfur sér“.
Gunnlaugur Gunnlaugsson
hvarf frá námi í 4. bekk sökum
fjárskorts. Næstu ár fékkst
hann m.a. við kennslu i Skaga-
firði. Veturinn 1875—1876 var
hann um skeið heimiliskennari
hjá fyrsta kaupmanninum á
Sauðárkróki, Halli Ásgríms-
syni.
Þá voru bæjarbúar innan
við 20 manns. Þennan vetur
samdi Gunnlangur leikrit, sem
tekið var til sýningar á Sauðár-
króki. Víkur þá sögu til Sauðár-
króks. Hinn 4. febrúar kveður
Eggert sýslumaður skagfirzka
öldunga til sýslufundar á
Reynistað. Daginn eftir hefjast
leiksýningar á Sauðárkróki.
Svo segir m.a. f blaðinu Norðan-
fara, er getið hefur verið sýn-
ingarinnar á Reynistað:
„Aftur frá 5.—10 febr. var á
hverju kvöldi í húsi Halls Ás-
grímssonar... leikinn Dauðinn
og Maurapúkinn, er hr. stud.
art. Gunnlaugur E. Gunnlaugs-
son hefur samið. Höfðu leik-
endur ort kvæði, er sungin voru
á leiksviðinu. Inngangurinn
kostaði 35 aura... Skemmtu
menn sér oftast stundarkorn á
eftir leiknum með söng, dansi
og samræðum... Af þessu getið
þér séð, að það er dálitið lff f
okkur Skagfirðingum með
fleira en vesturfarir, þó hátt á
þriðja hundrað manns sé nú
búið að skrifa sig til
Ameríku....“
Helga Hannesdóttir, formaður
Leikfélags Sauðárkróks, við af-
greiðslu I bakarfinu daginn eft-
ir frumsýninguna.
Innréttinga tÉS
búðinni höfum ^
við nú hafið
sölu á glæsilegum
ganga og stfga
dreglum,
sem ekki hafa sést
hér á landi
f alltof
mörg
-
SERVERZLUN MEÐ GOLFTEPPI