Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 37

Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKT0BER 1976 37 VELVAKAIMEDI Velvakandi svarar I sfma 10- 100 kl. 10—11 f.h. frá mánu-: degi til föstudags. 0 Utanferðir aldraðra Hér fer á eftir bréf frá elli- lífeyrisþega: „Nýlega var frá því skýrt aö hópur ellilífeyrisþega úr Kópa- vogi hefði farið i sólarlandaferð, sem sérstaklega var skipulögð af bæjarfélaginu. Þetta leiðir hug- ann að vanræktum þætti ferða- málanna, sem eru sérstakar ferðir fyrir aldrað fólk. Ferðalöngum minnkar ekki með árunum, og þeir sem aldraðir eru hafa oft rýmri tíma til að vera á faraldsfæti heldur en aðrir. Aft- ur á móti er margt annað en heils- an, sem dregur úr eða kemur í veg fyrir utanlandsferðir aldr- aðra. Gamla fólkið ólst upp við minni skólagöngu og því er tungumála- kunnátta þess yfirleitt lakari en hjá þeim sem yngri eru. Ferð um flugvelli og innritun á hótel getur því orðið vandamál, og reyndar þarf ekki háan aldur til að ruglast í ríminu í nútíma flughöfnum. Þá fylgja aldrinum oft lúnir fætur og því þarf að sjá hópum aldraðra fyrir meiri akstri en yngra fólk- inu. Töluverður akstur og góð leiðsögn eru því höfuðatriðin.“. 0 Allaþarfekki ad styrkja „Aftur á móti er fjarri lagi að styrkja þurfi alla ellilífeyris- þega, sem áhuga hafa á utanferð- um. Margt aldrað fólk hefur ein- mitt sæmilega rúman fjárhag, þar sem það telur sig ekki þurfa að eyða í jafn margt og á fyrri árum. En hópferðaafsláttur af flugferð- um og hótelum kemur sér auðvit- að vel fyrir alla. Ferðir vor og haust yrðu efa- laust bestar, bæði vegna hitastigs- ins og hópferðaafsláttar. Vonandi taka fleiri sveitarfélög, eða ein- hver samtök, málið til athugunar og skipuleggja svona ferðir, en það ber að hafa í huga, að gamla fólkið langar til fleiri landa en sólarlanda. Ellilífeyrisþegi í Reykjavík." 0 Ekki aðeins í orði Sem betur fer virðist sem þjóðfélagið sé að vakna upp af værum blundi hvað hina öldruðu snertir — þó betur megi ef duga skal. Æskufólkið hefur verið svo hávært, að köll þess hafa yfir- gnæft rödd hinna öldnu. En nú er samvizkan farin að segja til sín. — Þú ert viss um það? — Já. .. Víð sjáumst... Hún snerist á hæli og gekk f brott. En gleðisvipurinn þurrkaðist af andliti hans þegar hann gaf fylgdr arliði sfnu skipun um að stfga aftur upp < bflana. — Allt f lagi, Miguel. Gefðu Jesus skipun um að leggja af stað. Bfllinn ðk af stað niður hlfðina. — Hvað gerðist eiginlega? Yvonne leit spyrjandi á hann. — Þetta mistókst. Þau hafa náðst. — En fyrst Helene kom og tal- aði við þig... Yvonne sneri ástúð- lega upp á stóra demantshringinn sinn. — Þetta var ekki Helene, þetta var staðgengill hennar. — Ertu viss? Yvonne hafði að- eins séð stúlkunni bregða fyrir við iúguna, en hún hefði getað svarið... — Vina mín, mér skjátlast aldrei að þvf leyti. Röddum gleymi ég aldrei. Auk þess voru andlitsdrættir hennar öðruvfsi en hinnar réttu Helene. — Guð minn góður, sagði Yvonne. — Og skothrfðin... — Heldurðu að þau séu dáin, sagði einn aðstoðarmannanna. Öllum er að verða ljóst, að okkur er ekki stætt á því lengur að búa aðeins vel að hinum rosknu í orði, við verðum að gera það á borði. Bréf ellilífeyrisþegans hér að framan er hógvært og full ástæða til þess að gefa því gaum. Það er á vissan hátt táknrænt fyrir þá kyn- slóð, sem nú er að ljúka eðlilegu dagsverki. Hér er ekkert verið að heimta — aðeins beðið um sjálf- sagða fyrirgreiðslu. % Ferðir um landið 1 þessu sambandi má gjarn- an minna á að roskið fólk hefur engu siður ánægju af að ferðast um landið en til útlanda. Hér fyrir nokkru birtist t.d. í blaðinu bréf frá „öldungi" á Akranesi sem þakkaði fyrir ánægjulega hópferð aldraðs fólks til Reykja- víkur. Sú ferð var öllum þátt- takendum til mikillar ánægju. Hversu oft heyrist ekki gamall maður eða kona segja: „Nei, ég hef aldrei komið til Akureyrar, aldrei austur á Fljótsdalshérað, aldrei vestur á Firði o.s.frv., en mig hefur lengi langað til þess“. Eða þá: „Ég hef aldrei komið til Reykjavíkur eða ekið um Suður- landsundirlendið" Væri ekki hægt að skipuleggja ferðir fyrir aldraða úr hinum ýmsu byggðarlögum um landið. Ég hef enga trú á öðru en það yrði vel þegið. Ferðin yrði að sjálf- sögðu að vera vel undirúin og dagleiðir ekki of langar. Þá þyrfti fararstjóri og að vera sögufróður, því að margt af þessu fólki hefur drukkið i sig íslendingasögurnar með móðurmjólkinni ef svo má að orði komast. Q Barnaheimilið í Ólafsvík Helgi Kristjánsson hafði samband við blaðið og bað fyrir eftirfarandi: „Nýlega birtist í Velvakanda bréf frá Ó.S.K. varðandi barna- heimilið í Ölafsvík. Ég ætla ekki að blanda mér í þau skrif frekar en gera skyldi um nafnlausar greinar yfirleitt. En það er eitt atriði í bréfinu, sem útilokað er að leiða hjá sér. Gefið er i skyn á lævísan hátt að börnin séu tuktuð til í skjóli þess að þau séu of litil til þess að geta sagt frá heima hjá sér. Þetta er mjög óveiðskuldað og særandi fyrir þær konur, sem að barna- heimilinu standa. Ég tel mér skylt að biðja Vel- vakanda að geta þess að ég hef nú í tvö ár komið nær daglega í barnaheimilið með snáða, sem við hjónin eigum þar i gæzlu og hef aldrei orðið var við óánægju foreldra sem trúa þessum konum fyrir börnum sínum — öðru nær. Ég veit ekki betur en að allir þeir foreldrar sem börn eiga þarna i gæzlu, vilji hvenær sem er votta gæzlukonunum traust og þakk- læti, hvað sem öllum prófum líður. Reynslan er ævinlega bezti skólinn og ólygnust. Foreldrar í Ölafsvík hafa verið lánsamir að þessar konur réðust til starfa á barnaheimilinu. Helgi Krist jánsson." HOGNI HREKKVISI Kemur ekki Anna frænka, sem gaf Högna plast- músina! 83? SlGGA V/öGA £ VLV Þaðpassarfiá Lec

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.