Morgunblaðið - 30.10.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976
7
Talnaleikir og
og talna-
skylmingar
Tölur eru eðlilegur og
óhjákvæmilegur mæli
kvarði á stærðir, bæði I
fjármálum og á öðrum
vettvangi. Talnasaman-
burður er þó varhugaverð-
ur, ef þess er ekki sam-
vizkusamlega gætt. að
verið sé að bera saman
sambærilega hluti. Stjóm-
málamenn hafa I vaxandi
mæli fallið I þá freistni að
bera saman tölur á röng-
um forsendum, til að villa
um fyrir hinum almenna
borgara. Þá er gjarnan
horft fram hjá þeirri stað-
reynd, að þorri fólks hefur
sem betur fer bæði þekk-
ingu og þroska til að sjá I
gegnum blekkingarnar,
greina rétt frá röngu og
lesa sannleikann milli lln-
anna. Eftir stendur það
eitt, að almenningur tekur
talnaleiki stjórnmála-
manna með varúð. svo
ekki sé meira sagt.
Glöggt dæmi um þetta
var samanburður Ragnars
Arnalds á hækkun milli
fjárlagafrumvarpa áranna
1974 og 1977. Hann
þagði vendilega yfir þvi að
fjárlög ársins 1974, sem
hljóðuðu upp á 27 millj-
arða, urðu i raun, er rikis-
reikningur þess árs lá fyr-
ir, 41’/2 milljarður. Það
var þvi hin endanlega
rauntala rikisútgjalda
þess árs. sem marktækur
samanburður hlaut að
miðast við. Sú tala, 41 Vi
milljarður, yfirfærður á
verðgildi peninga eins og
það verður á árinu 1977
(eða a.m.k. eins og það er
í dag). er þvl hin eina rétta
viðmiðun við fjárhæð fjár-
laga komandi árs. Spurn-
ingin um niðurstöðutölur
fjárlaga og svör við henni,
hljóta að taka mið af þvi,
hvort fjárlög hafa hækkað
umfram það, sem verð-
lags- og kaupgjaldsþróun I
landinu segir til um; og
ekki síður, hvort rikisút-
gjöldin hafa vaxið I hlut-
falli af þjóðartekjum eða
þjóðarframleiðslu.
Þakið á
fjárlögunum
Núverandi fjármálaráð-
herra hreyfði þeirri hug-
mynd i eina tlð, hvort ekki
væri rétt að setja „þak á
fjárlög" miðað við þjóðar-
tekjur, þann veg, að þau
færu ekki yfir ákveðið
hlutfall af þeim. Þetta
þýðir annars vegar að rik-
isútgjöld væru hverju
sinni sniðin eftir raungetu
þjóðarinnar i efnalegu til-
liti og hins vegar, að rikið
tæki aldrei stærri hlut af
vinnutekjum borgaranna
en svo. að þeir hefðu eftir
viðunandi ráðstöfunar-
tekjur.
Menn geta að sjálf-
sögðu deilt um árangur
núverandi ríkisstjórnar i
efnahagsmálum — og
vissulega mætti hann
vera meiri. Á sviði rikis-
fjármála hefur hann þó
verið umtalsverður. sem
bezt sést af þvi, að I ár
verður hallalaus rikisbú-
skapur i fyrsta sinn um
árabil, þrátt fyrir viðfeðm
lögbundin útgjöld. sem
erfitt er að ráða við. Í
þessu sambandi má t.d.
minna á, að útgjöld rikis-
sjóðs i tveimur málaflokk-
um: 1) heilbrigðis- og
tryggingamálum og 2)
niðurgreiðslum á vöru-
verði og skyldum útgjöld-
um, spanna meira en
helming allra rikisút-
gjaldanna, skv. framlögðu
f já rlagaf rum varpi.
Hlutur rikisútgjalda i
þjóðartekjum var um 31%
árið 1975. Á yfirstand-
andi ári er hann talinn
verða 29.5% og sam-
kvæmt framlögðu fjár-
lagafrumvarpi verður
hann hinn sami á næsta
ári. í umræðum um fjár-
lagafrumvarpið sagði fjár-
málaráðherra að þetta
væri það „ þak" sem hann
hefði sett á frumvarpið.
Það kæmi svo I Ijós i með-
ferð þingsins. hvort þing-
menn vildu „lyfta" þessu
þaki sem þýddi það, að
rikið tæki þeim mun
meira til sin af þjóðartekj-
unum i einhvers konar
skattheimtu af almenn-
ingi.
Fyrrverandi fjármála
ráðherra, Halldór E. Sig-
urðsson, sagði að hver út-
gjaldaliður ríkissjóðs, út
af fyrir sig skoðaður, væri
i sjálfu sér góður talinn;
a.m.k. vildu flestir þing-
menn gjarnan hækka ein-
hvern þeirra, sumir
marga. En i heild. saman
komnir I niðurstöðutölum
fjárlaga. væru þeir máske
varhugaverðir eða i það
minnsta erfiðir viðfangs,
enda rikisútgjöldin og
skattheimtan i raun tvær
hliðar á sama hlutnum.
Og þar er komið að kjarna
málsins. Óábyrg stjórnar-
andstaða heimtar sum sé
hvort tveggja, að meira sé
lagt til einstakra mála-
flokka. sem i sjálfum sér
eru góðra gjalda verðir, og
að skattheimtan sé lækk-
uð. sem á að risa undir
útgjöldunum. Allur al-
menningur sér að þetta
kemur ekki heim og sam-
an fremur en sá talnasam-
anburður, sem höfðar til
þeirra fáu og þeirra einna,
er hvorki hafa greind né
yfirsýn til að sjá I gegnum
látbragðsleikinn.
iHeööuc
á morgun
Guðspjall dagsins:
Matt. 22, 1—14: Brúðkaups-
klæðin. Guðspjallið á Allra
heilagra ntessu, sem er 1. nóv.,
á morgun, er Matt. 5,1—12.
Litur dagsins: Grænn táknar
vöxt, einkum hins andlega lffs.
DÓMKIRKJAN
Messa kl. 11 árd. Séra Oskar J.
Þorláksson dómprófastur setur
inn í embætti nýkjörinn Dóm-
kirkjuprest, séra Hjalta
Guðmundsson. Barnasamkoma
kr. 10.30 í Vesturbæjar-
skólanum við Öldugötu. Séra
Þórir Stephensen.
NESKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Kristján Búason dócent
predikar. Séra Frank M.
Halldórsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN
Safnaðarguðþjónusta kr. 2 síðd.
Almenn guðþjónusta kr. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
HALLGRÍMSKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Séra Karl
Sigurbjörnsson. Fjölskyldu-
messa kr. 2 síðd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN
Messa kl. 10 árd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
FRlKIRKJAN
Reykjavík Barnasamkoma kl.
10.30. Guðni Gunnarsson.
Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn
Björnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. í
Breiðholtsskóla. Messa kl. 2
sfðd. í Breiðholtsskóla. Séra
Lárus Halldórsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Árelíus Níelsson.
FELLA- OG HÓLASOKN
Barnasámkoma i Fellaskóla kl.
11 árd. Guðþjónusta í skólanum
kl. 2 síðd. Séra Hreinn
Hjartarson
ASPRESTAKALL
Fermingarguðþjónusta kl. 2
siðd. í Laugarneskirkju. Séra
Grímur Grímsson.
LAUGARNESKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Ferming. Alt-
arisganga. Séra Garðar Svav-
arsson.
HATEIGSKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Kveðjuguð-
þjónusta. Séra Jón Þorvarðs-
son.
ELLI OG hjúkrunarheimilið
Grund.
Messa kl. 10 árd. Séra Lárus
Halldórsson prédikar.
DÓMKIRKJA KRISTS
Konungs Landakoti.
Lágmessa kl. 8.30 árd.Hámessa
kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2
síðd.
GRENSASKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 siðd. Séra Halldór S.
Gröndal.
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta i
skólanum kl. 2 síðd.
Aðalfundur safnaðarins að lok-
inni messu. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastig.
Guðþjónusta i Kópavogskirkju
kl. 11 árd. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
KÁRSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnessskóla
klukkan 11 árd. Mefesa i Kópa-
vogskirkju kl. 2 síðd. Á
aðalsafnaðarfundi eftir messu
verður rætt um byggingu
safnaðarheimilis. Séra Árni
Pálsson.
GARÐAKIRKJA
Barnasamkoma I skólasalnum
kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síðd.
Ferming. Altarisganga. Séra
Bragi Friðriksson.
MOSFELLSPRESTAKALL
Lágafellskirkja Messa kl. 2
síðd. Sóknarprestur
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Rúnar Egilsson guðfræðinemi.
FRlKIRKJAN Hafnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Karl Sigurbjörnsson prestur
við Hallgrimskirkju i Reykja-
vík prédikar. Nemendur 3
bekkjar kennaradeildar
Tónlistarskólans syngja. Eftir
guðþjónustuna verður hin ár-
lega kaffisala safnaðarins i
Góðtemplarahúsinu. Séra
Magnús Guðjónsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA
Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
UTSKALAKIRKJA
Messa kl. 2 síðd. Séra Erlendur
Sigmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA
Kirkjudagur safnaðarins. Guð-
þjónusta kl. 2 siðd. Samkoma I
kirkjunni að lokinni guð-
þjónustu. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA
Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 siðd. (kirkjudagur-
inn). Séra Björn Jónsson.
Z 325
Electrolux
ryksugan hefur
ýý 800 watta mótor,
ic Snúruvindu,
if Rykstillir
o.fl. o.fl. kosti
Armúla 1A,
VERÐ AÐEINS
KR. 55.400 -
vefnaðarvörud. s. 86-113.
heimilistækjadeild s. 81680.
Breytt símanúmer
Frá og með mánudeginum 1. nóvember verð-
ur símanúmer
SKRIFSTOFU RÍKISSPÍTALANNA
24160
Gjaldkeri, launadeild og innkaupastjóri
verða þó áfram með sima
11765
Skrifstofa ríkisspítalanna
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Kalmar!
Skápamarkaður —
Hurðamarkaður
Nú er tækifærið til þess að eignast skápa í öll
horn eða þar sem þörf krefur. Við seljum næstu
daga á niðursettu verði eftirfarandi:
Stakar furuhurðir fyrir fataskápa, ódýra skápa f
geymslur eða f bflskúrinn, fataskápa.
Ennfremur — og til afgreiðslu fyrir jól baðskápa
og síðast en ekki síst „Kalmar“ eldhús.
Komið og sjáið hvað við höfum.
Intenor
mar
innréttingar
Grensásvegi 22, Reykjavík.
s: 82645.