Morgunblaðið - 30.10.1976, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976
Lánasjóður ísl. námsmanna:
Námsmenn óánægð-
ir með nýjar út-
hlutunarreglur
— haustlán tilbúin um 20. nóvember
Það var stjórn Lánasjóðs ís-
lenzkra námsmanna sem samdi
hinar nýju úthlutunarreglur, og
er það í samræmi við hin nýju lög.
Stjórn sjóðsins er skipuð 6 mönn-
um, 3 fulltrúum stjórnvalda og 3
fulltrúum námsmanna. Á fundin-
um með fréttamönnum kom fram,
að stjórnin hafði að mestu náð
samkomulagi um flest atriði
reglnanna, að undanskildum 1., 4.
og 5 grein en þær hveða á um
útreikning framfærslukostnaðar
o.s.frv. Fulltrúar ríkisstjórnar-
innar I stjórn sjóðsins sögðu um
þessar greinar, en þeirra tillögur
að þessum greinum urðu ofan á,
að við samning greina þessara
hefðu hjá þeim ráðið þau sjónar-
mið, að lán ættu einungis að vera
styrkir til framfærslu, en náms-
lán ættu alls ekki að vera einhver
fjárfestingarlán námsmönnum til
handa. Fulltrúar námsmanna í
sjóðnum kváðu greinar 4 og 5 fela
í sér beina og ódulda tilraun til að
beina framhaldsnámi fólks til
ákveðinna landa.einnig væru þær
uppspretta vís misréttis þar sem
nánast ekkert tillit væri tekið til
barna námsmanna, og þá sögðu
þeir greinar þessar einnig hegna
þeim sem veldu skóla þar sem
skólagjöld væru lítil, þar sem
reglurnar beinlínis fælu það í sér
að ef skólagjöld væru allt að 60
þúsund krónum þá yrðu náms-
menn að greiða þau sjálfir.
Fram kom á fundinum gagn-
rýni á menntamálaráðherra, en
námsmenn töldu hann vera fljót-
ari að skrifa undir reglur sem
stefndu að illum kjörum náms-
manna, en reglur, sem fælu í sér
einhverjar bætur á hag þeirra.
Sögðu námsmenn úthlutunar-
reglurnar nýju vera fjandsamleg-
ar námsmönnum að mörgu leyti,
hvað viðkemur framfærslukostn-
aðinum. Kváðu þeir svo fast að
orði, að ef fulltrúar ríkisvaldsins
litu á þessar nýju reglur sem tæki
til jafnaðar og jafnréttis I þjóðfé-
laginu, þá væri nú ekki lengur
töluð íslenzka á tslandi.
Fram kom á fundinum að haust-
lán til námsmanna yrðu að likind-
um ekki tilbúin til afgreiðslu fyrr
en um 20. nóvember n.k. en þá
yrðu lánum fyrst úthlutað náms-
mönnum erlendis.
Stykkishólmur:
Tónlistar-
skóli settur
í 12. sinn
Stykkishólmi 26. október.
TÓNLISTARSKÓLI Stykkis-
hólms hefir nú hafið sitt 12.
starfsár og eru nemendur nú um
70. Kennt er á tveim stöðum, f
Hljómskálanum og Samkomu-
húsinu, en þar hefir verið gengið
frá kennslustofu. Víkingur
Jóhannsson hefir kennt við
skólann frá upphafi og nú og i
fyrra hefir Hafsteinn Sigurðsson
kennt við skólann ásamt Vikingi.
Hafsteinn hefir um mörg ár verið
mjög liðtækur í hljómlistarmálum
Hólmara og Vikingur er auk þess
að kenna við skólann, organisti
kirkjunnar hér.
Aætlunarbifreiðin sem gengur
á milli Reykjavfkur og Snæfells-
ness — hefir nú byrjað vetrar-
ferðirnar. Verða þrjár ferðir í vet-
ur i viku hverri fram og til baka
og verður farið frá Reykjavik á
þriðjudögum fimmtudögum og
laugardögum kl. 10 en frá
Stykkishólmi á sunnudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
9.30.
Bréf til Morgunblaðsins frá APN:
Ógna Sovétríkin íslandi?
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi bréf frá einum rit-
stjora APN-fréttastofunnar f
Moskvu:
Herra ritstjóri
Snemma i október birtist í blaði
yðar grein, þar sem gagnsemi
áframhaldandi þátttöku Islands í
NATO er rökstudd með þvf að
nauðsynlegt sé að verja landið
gegn „sovésku hættunni".
En eru nokkrar raunverulegar
ástæður til að óttast slíka hættu?
Utanríkisstefna Sovétríkjanna
gefur ekki ástæðu til þess. Friðar-
löngun sovétmanna kemur best
fram í tillögu þeirra um að 31.
Allsherjarþing SÞ taki á dagskrá
sfna „gerð alheimssamkomulags
um bann við valdbeitingu f
alþjóðlegum samskiptum" sem
mikilvægt og knýjandi mál, og
einnig í tillögu þeirra um að
bundinn verði endir á víg-
búnaðarkapphlaupið og afvopnun
hafin. Sovétríkin höfðu frum-
kvæði að báðum þessum málum f
lok september s.I., stuttu áður en
áðurnefnd grein birtist í blaði
yðar.
Allar yfirlýsingar sovéskra leið-
toga bera vitni um þá ósk þjóðar-
innar að draga úr spennu, koma I
veg fyrir styrjöld og hefja
almenna afvopnun. 1 viðtali sinu
við franska sjónvarpið 5, október
s.l. sagði Leonfd Brésnjef, aðal-
ritari miðstjórnar sovéska
kommúnistaflokksins: „Sovét-
rfkin ógna engum og eru reiðu-
búin hvenær sem er að draga úr
hernaðarmætti sfnum ef aðrir
gera slíkt hið sama".
Engu að sfður reyna ýmsir f jöl-
miðlar á Vesturlöndum, og þ. á m.
blað yðar, að telja lesendum trú
um hið gagnstæða. Eitt af
trompunum í þessu vestræna spili
er kenningin um „hernaðarlega
yfirburði" Varsjárbandalags-
ríkjanna, og þá fyrst og fremst
Sovétríkjanna.
Lítum á nokkrar staðreyndir.
Sovétrfkin eru eina stórveldið
sem auka ekki hernaðarútgjöld
sín frá ári til árs. Á s.l. fimm
árum féllu þessi útgjöld úr 17,900
milljónum rúblna (1971) í 17.400
milljónir rúblna (1975). Sovét-
rfkin ætlast til þess að Vesturlönd
dragi einnag úr sfnum hernaðar-
útgjöldum, einsog samið hefur
verið um. En öllum má þó ljóst
vera ð Bandarfkin auka þessi út-
gjöld sin stöðugt. Þau eru nú
þegar komin upp í 112.000
milljonir dollara og hvað snertir
önnur NATO-rfki hafa þau rúm-
lega tvöfaldað hernaðarútgjöld
sfn á undanförnum fimm árum.
Þær staðreyndir og tölur sem
hér hefur verið vitnað f benda
varla til þess að öryggi tslands og
annarra Vesturlanda sé f hættu
vegna „ógnunar Sovétfkjanna".
Mér þykir vel við hæfi að nefna
hér einnig ummæli franska viku-
ritsins Le Nouvel Observateur. I
desember í fyrra sagði timaritið
að ef svara ætti spurningunni um
hvort Evrópu stafaði hætta af
rússum þyrftu menn að setja sig
eitt andartak f spor rússa. Sovét-
menn vita sagði Le Nouvel
Observateur, að dag og nótt er
beint gegn landi þeirra nær 2000
eldflaugum sem bera kjarnavopn
og hæfa hvað sem vera skal á
löngu færi, 450 sprengjuflugvélar
hlaðnar kjarnasprengjum eru
reiðubúnar að birtast á sovéskum
himni og 1500 slfkar vélar f viðbót
eru staðsettar í Evrópu og geta
hvenær sem er slegist í hópinn.
Tímaritið fullyrti að Sovétrfkin
væru beinlinis umkringd her-
stöðvum NATO og bandarfkja-
hers, bæði flughers og sjóhers.
Eftir að hafa birt þessar tölur
velti Le Nouvel Observateur þvf
fyrir sér hvort rússar væru í raun
og veru ógnun Við friðinn f
Evrópu. „Séð út frá þessu sjónar-
miði þ.e. sjónarmiði hættunnar á
gjöreyðingu, virðist þessi
spurning næsta fáránleg".
Þessi niðurstaða franska tíma-
ritsins er fullkomlega rökrétt.
Það er þvf miður, að kenningin
um „sovésku hættuna“ sem Le
Nouvel ' Observateur álftur
„fáránlega“ skuli enn vera f
notkun á í^esturlöndum, að
Islandi meðtoldu. Þessi kenning
stuðlar alls ekki að bættum
skilningi meðal Evrópuþjóða,
heldur er hún þrándur f götu
slökunar spennu á alþjóða-
vettvangi.
Virðingarfyllst,
ÉvgénfBarbúkho
Aths. ritstj.: Ekkert er sjálf-
sagðara en birta þetta áróðurs-
plagg eins af ritstjórum APN í
Moskvu, enda þótt það sýni (að
sjálfsögðu) einungis aðra hlið
málsins, þá sovézku. En Morgun-
blaðið hvetur hér með íslenzk
stjórnvöld til að lækka útgjöld
tslendinga til hermála, svo að við
verðum ekki eftirbátar Rússa f
þeim efnum. Annars ætti APN-
Novosti njósnastofnunin í fram-
tfðinni að leita til sinna málgagna
á Islandi.
Ritstj.
NVLEGA voru kynntar nýjar út-
hlutunarreglur námslána úr
Lánasjóði fslenzkra námsmanna.
Reglur þessar koma f beinu fram-
haldi af nýjum lögum um náms-
lán og námsstyrki, sem samþykkt
voru á Alþingi f vor. Nýju úthlut-
unarreglurnar eru frábrugðnar
þeim reglum sem giltu fyrir ári
að þvf leyti að nú breytist hlutfall
lána og styrkja, og einnig eru ný
ákvæði um endurgreiðslur.
Varðandi lánshlutfall, þá var
námsmönnum áður tryggð ákveð-
in prósenta af fjárþörf umfram
tekjur, en hin nýja reglugerð seg-
ir að lánshlutfall af framfærslu-
kostnaði verði ákveðin samkvæmt
endurskoðaðri fjárhagsáætlun,
fjölda umsókna, bráðabirgðaút-
reikningi þeirra og samkvæmt
fenginni reynslu um breytingar
vegna breyttra forsendna og skv.
fjárþörf vegna haustlána. Þá seg-
ir einnig í úthlutunarreglunum
að samtímis ofangreindu verði
einnig tekin ákvörðun um mis-
munandi lánahlutfall eftir náms-
stigi ef ástæða þykir til.
Nokkrar eru þær forsendurnar
sem geta breytt tilkynntri ákvörð-
un um upphæð námsaðstoðar á
aðstoðartímabilinu. Þeirra á með-
al er sú forsenda að verði breyt-
ing á fjárhag sjóðsins frá upphaf-
legum áætlunum, þá verði í sam-
ræmi við það breyting á upphæð-
um lána. Segir í reglugerðinni að
i slíkum tilvikum skuli eitt yfir
alla ganga.
Ákvæðum um endurgreiðslur
hafa verið gerð skil áður, en sú
breyting sem helzt hefur á orðið
þar frá því sem áður hafði gilt, er,
að nú verða lán vaxtalaus, en
verðtryggð, og greiðast á 20 árum.
Aður hafa lán borið 5% vexti og
borguðust á 15 ára tfmabili sem
hófst 5 árum eftir námslok, og þá
með jöfnum greiðslum. Þau lán
voru ekki verðtryggð, og að sögn
munu námsmenn nú eiga eftir að
greiða til baka talsvert hærra
hlutfall af raungildi lána en þeir
sem lokið hafa námi hingað til.
Stjórnendur Flugleiða gerðu á fundi i gær starfsfólkinu, sem vinna á við flutningana, grein fyrir fyrirkomulagi þeirra og
tilhogun á viðkomustöðunum erlendis. Ljósm Mbl RAX
Flytja 10 þúsund pílagríma
milli Nígeríu og Saudi-Arabíu
— 109 íslendingar vinna við flutningana
Á MANUDAG, 1. nóvember, hefjast
flutningar Loftleiða á pílagrlmum
milli Nigeríu og Saudi Arabíu. Samn-
ingar um þessa flutninga voru undir-
— Verndum
börnin
Framhald af bls. 12
hjálp voru unnar í samráði við
barnala-kni. La>rið þær vand-
lega þar til fthðbeiningarnar
verða hluti af þekkingu ykkar í
fyrstu hjálp. Af því að leíðbein-
ingarnar eru unnar fyrir neyð-
artilvik eru þær einfaldar og
auðveldar að skilja.
En eftir að þær eru orðnar
tamar, þá gleymið ekki einfald-
asta og auðveldasta mótefninu
af þeim öllum: NOKKUR
GRÖMM AF GÆTNI. Enn
betra væri að auka skammtinn í
kíló af gætni.
Eina aukaverkunin er öryggi.
ritaðir f Lagos f Nígeriu f ágústmán-
u8i sl. og er gert ráS fyrir a8 lág-
markstala þeirra pilagrfma. sem
fluttir verSa milli landanna, verði 10
þúsund. Alls vinna 109 manns viS
þessa flutninga og er þar um a8
ræSa áhafnir LoftleiSa og afgreíSslu
fólk Flugleiða. Í gær var haldinn
kynningarfundur fyrir áhafnirnar og
annað starfsfólk en meginhluti
starfsliðsins. 70 manns, heldur utan
á sunnudag.
Allir sem þátt taka f flutningunum
og dveljast í Nigerfu og Saudi-Arabiu
hafa veriB bólusettir gegn ýmsum
hitabeltissjúkdómum, svo og gegn
„lifrarvirus" sem þar hefur orðiS
vart a8 undanförnu. Næstkomandi
sunnudag heldur aðalhópurinn, um
70 manns, frá islandi og flýgur til
Kano með viBkomu i Luxemborg.
Tvær DC-8-63 þotur verða nota8ar
við flutningana og verða farnar þrjár
ferðir á sólarhring. Milli Kano i
Nigeriu og Jeddah i Saudi-Arabiu eru
rúmlega 2 þúsund sjómilur og tekur
flugíð milli staðanna rúmlega fjórar
og hálfa klukkustund. Frá Kano er
flogið yfir N'djamena, yfir Súdan og
Kartoom, yfir Rauða hafið og til
Jeddah. Áhafnir munu hafa sama-
stað i Kano. en á báðum stöðum
verða afgreiðslumenn félagsins
starfandi.
Ráðgert er að flutningur þeirra 10
þús. pílagrima til Jeddah. sem samið
hefur verið um, taki 16 sólarhringa
og koma þá áhafnir og flugvélar til
Evrópu. Flutningar pilagrímanna til
baka til Nigeriu hefjast svo aftur
hinn 5. desember og lýkur seinni
hluta desember. Verði hins vegar
fleiri en 10 þúsund manns fluttir
framlengist dvöl áhafna og af-
greiðslufólks syðra um nokkra daga i
hvort skipti.
Alls munu 109 manns taka þátt i
þessum flutningum — áhafnir Loft-
leiða og afgreiðslufólk Flugleiða. Yf-
irstjómandi flutninganna verður Þór-
arinn Jónsson, yfirmaður flugliðs
Guðlaugur Helgason, yfirflugfreyja
Erla Ágústssdóttir, rekstrarstjóri
Baldur Mariusson, stöðvarstjóri i
Jeddah Jón Óskarsson og yfirflug-
virki Jóhannes Jónsson.