Morgunblaðið - 30.10.1976, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.10.1976, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976 V erndum börn gegn %r\ « eiturefnum Hvað gerir þú nú? Veist þú hvað ber að gera, ef barn gleypir eiturefni? Sjálf- sagt ert þú eins og þúsundir annarra, ruglaður þegar um er að ræða móteitur og önnur efni, sem notuð eru í neyðartilvik- um. Það er heldur ekki undar- legt, þegar tekið er tillit til hins ógnvekjandi fjölda tegunda hættulegra efna, sem börn geta náð í nú á dögum; lyf svo sem Magnyl, kvefmixtúrur, sára- áburður, sótthreinsandi efni, róandi lyf, vítamín og steinefni (t.d. járntöflur); hreinsi- og fægiefni svo sem þvottaefni, bakteríudrepandi efni, svita- lyktareyðir, bleikiefni, hreinsi- efni fyrir niðurföll, húsgagna- bón, alls kyns meindýraeyðandi efni, snyrtivörur, terpentína, málning — listinn er jafn iang- ur og hann er lífshættulegur. Sum efnanna eru eitruð, sum eru tekin i of miklu magni, sumt er ætandi (eyðandi, brennandi) annað er oliuefni — í sumum tilvikum er lífs- nauðsynlegt að kasta upp, í öðr- um tilvikum gæti það verið lifs- hættulegt. Töifræðin sýnir fram á að neyðartilvik geta ekki aðeins gerst, þau gerast. Árið 1972 taldi Öryggismálastofnun Bandaríkjanna (National Safety Concil) að 3700 manns hefðu iátist slysadauða af eitri þar í landi — talið var að slysa- listi þessi mundi tvöfaldast á næstu 10 árum. Samkvæmt nið- urstöðum miðstöðvar fyrir cft- irlit með eiturefnum í Banda- ríkjunum verða börn innan 5 ára aldurs fyrir % allra eitur- slysa. Verið róleg og... Eins og þið vitið er besta mót- efnið að afstýra slysinu. Geym- ið þess vegna öll lyf og eitur- efni þar sem börn ná ekki til í sinum upphaflegu umbúðum, greinilega merkt, helst undir lás og slá. Fleygið gömlum lyfj- um, látið þau aldrei safnast fyr- ir. Þrátt fyrir allar varúðarráð- stafanir, skulum við gera ráð fyrir að barn þitt hafi gleypt eiturefni. Hvað gerir þú — eða gerir ekki? Þótt nauðsynlegt sé að hafa snör handtök, er mikil hætta á að þú verðir gripinn skelfingu. Hvernig getur þú varist henni? Með þekkingu. Lestu og endur- lestu það sem hér fer á eftir þar til það er orðið þér vel tamt. Hafðu sama háttinn á um leið- beiningarnar um fyrstu hjálp við eitrun sem hér fylggja með. Klipptu leiðbeiningarnar út og festu þær innan á hurðina á lyfjaskápnum. Við hliðina á simanum skaltu að staðaldri hafa simanúmer Slysadeildar, læknis eða sjúkrahúss, einnig símanúmer lögreglu og slökkvi- stöðvar vegna sjúkraflutnings. Ef þú kemst að raun um að barn þitt hefur gleypt hættu- legt efni, skaltu vera rólegur en fljótur að framkvæma. Hríngdu strax í lækni eða Slysadeild. Gerðu grein fyrir því sem gerst hefur, og fáðu fyrirmæli. Ef mögulegt er, skaltu hefja skyndihjálp meðan einhver annar nær í hjálp. Eðli eitursins eða ofskammts- ins ákvarðar hvaða skyndihjálp skal nota — þar til næst í lækni. Skyndihjálp, eins og allt ann- að er einfaldlega spurning um kunnáttu. Ef barnið er meðvitundar- laust eða með krampa, þá neyð- ið ekki niður í það vökva og látið það ekki kasta upp. Vökvi eða uppsölur gætu kæft það. Ef um krampa er að ræða, reynið þá ekki að halda barninu. Setj- ið það þess i stað í þá stöðu að það skaðist ekki við að rekast á húsgögn eða aðra hluti (höfuð er sérstaklega viðkvæmt), helst á barnið að liggja á hliðinni svo munnvatn eða annað renni ekki ofan í lungu. Losið um þröng föt við háls og mitti. Þröngvið ekki hörðum hlut eða fingri milli tanna þess. Hvort sem barnið er meðvit- undarlaust eða hefur krampa, haldið á því hita, veitið þvi hjálp við öndun, ef nauðsyn ber til, og farið þegar í stað með það á sjúkrahús. Hafið meðferðis ílátið undan eiturefninu, merkimiða þess, það sem eftir er af innihaldinu eða sýnishorn af uppsölu, ef fyrir hendi er, til hjálpar við að greina eitrið. Uppköst — eða ekki Komið ekki af stað uppsölu, ef barnið hefur gleypt eyðandi efni s.s. vítisóda eða olíuefni s.s. steinoliu. I fyrra tilvikinu geta uppköst aukið alvarlega á bruna í hálsi og munni. Ef kast- að er upp olíuefnum getur or- sakast lungnabólga af efna- fræðilegum toga og gegn henni duga engin fúkkalyf. Auk þess sem eiturílátið seg- ir til um, gefa brunasár kring- um munn til kynna eyðandi efni og lykt af andardrætti gef- ur vísbendingu um oliuefni. Dæmi um eyðandi efni: Sýrur (saltpétursýra, ediksýra, brennisteinssýra, o.fl.). Lútar (þvottaefni, vítisódi, salmíak, naglalakkseyðir (aceton) o.fl.). Dæmi um olíuefni: Steinolia, bensin o.fl. Ef barnið er með meðvitund, fær ekki krampaköst og þarf ekki hjálp við öndun, er fyrsta viðfangsefni þitt að þynna hið hættulega efni án tillits til hvert það var. Hvort sem efnið er eyðandi eða ekki, olíuefni eða of stór lyfjaskammtur, þynntu þá efn- ið með því að gefa barninu vatn eða mjólk (sjá í leiðbeiningum um fyrstu hjálp um magnið). Ef barnið hefur gleypt eyð- andi efni eða oliuefni (og eftir að þú hefur þynnt það með mjólk eða vatni) er næsta skref að koma því á sjúkrahús þegar í stað, — og taka með þér ílát eitursins, merkimiða og af- gangsinnihald til þess að að- stoða við að greina efnið. Ef stutt er til næsta læknis eða slysa- deildar: Eyðið ekki tima i að fram- kalla uppköst sjálf — leggið alla áherzlu á aað koma barn- inu undir læknishendur sem fyrst. Ef langt er til næsta læknis eða slysa- deildar: Þar sem rétt er að koma af stað uppköstum er besta aðferð- in að gefa eina matsk. af ipecacsaft og að minnsta kosti einn bolia af vatni. Ef ekki er kastað upp innan 20 mínútna, má endurtaka skammtinn — aðeins einu sinni. Ipecacsaft er fáanleg hjá lyfsölum og ætti að vera til á heimilum, sem eru þannig í sveit sett, að langt er í læknishjálp. Hægt er að kaupa lítinn skammt af ipecacsaft án lyfseðils. Ipecacsaftin er búin til úr suður-amerískri plöntu og veld- ur svo til örugglega uppköstum, því hún orsakar að heilinn seg- ir maganum að tæmast. Ef ipecacsaft er ekki við höndina, komið þá af stað upp- köstum með því að stinga skeið- arskafti eða fingri ofan í kok á barninu. Til þess að varna því að uppsala lendi í öndunarpíp- um og lungum barnsins, er best að leggja það á grúfu með höf- uðið lægra en mjaðmir; lítil börn er best að leggja yfir hnén í „flengingarstellingu“. Gefið ekki saltvatn til að koma af stað uppköstum. Sann- ast hefur að salt er hættulegt sem uppsölulyf. Ef ekki er kastað upp innan 20 minútna af einhverjum ástæðum, má endurtaka ipecacinngjöfina — aðeins einu sinni eins og þegar hefur verið sagt. Hringdu i næsta iækni eða sjúkrahús og fáðu frekari fyrir- mæli. Munið að við komuna til sjúkrahúss á að hafa meðferðis eiturílátið, merkimiða og af- gang eitursins ef fyrir er eða sýnishorn af uppsölu. Leiðbeiningarnar um fyrstu Framhald á bls. 10 Leiðbeiningar um fyrstu hjálp við eitrun: Komið harninu strax und- ir læknis hendur. Hringið á slysadeild, sjúkrahús eða í næsta lækni og gerið grein fyrir hvað gerst hefur, fáið frekari fyrirmæli. Ef annar aðili getur kaliað á hjálp, byrjið þá strax fyrstu hjálp. Eiginleikar eitursins ákvarða hvaða fyrsta hjálp er veitt — eins og bent er á hér að neðan — þar til lækn- ishjálp fæst. EF BARNIÐ ER MEÐVIT- UNDARLAUST EÐA MEÐ KRAMPA: — Reynið ekki að gefa barninu vökva og framkallið ekki uppköst. — Hefjið öndunarhjálp, liggi barninu við köfnun. Haldið því heitu og komið því á sjúkrahús strax. — Takið með umbúðir eit- ursins, merkimiða, afgang eitursins ( ef einhver er) eða sýnishorn af uppsölu til hjálpar við að greina eitrið. EF BARNIÐ HEFUR TEK- 1» INN ÆTANDI (EYÐ- ANDI, BRENNANDI) EFNI, EÐA OLlUEFNI: — Framkallið ekki upp- köst. — Gefið barninu vatn eða mjólk. Skammtur: 1 til 2 bollar fyrir barn undir 5 ára aldri — allt að 1 lítri fyrir börn 5 ára og eldri. — Komið barninu strax á slysadeild eða sjúkrahús — takið með umbúðir eiturs- ins, merkimiða eða afgang til hjálpar við að greina eitr- ið. EF BARNIÐ HEFUR TEK- IÐ INN LYF I OF STÓRUM SKAMMTI EÐA EITUR, SEM EKKI ER ÆTANDI (EYÐANDI, BRENNANDI) EFNI EÐA OLIUEFNI: — Gefið barninu vatn eða mjólk. Skammtur: 1 til 2 bollar fyrir börn 5 ára og yngri — allt að 1 lítri fyrir börn 5 ára og eldri. — Komið af stað uppsölu með því að stinga fingri eða skeiðarskafti ofan í kok barnsins. Gefið ekki salt- vatn. — Komið barninu strax á slysadeild eða sjúkrahús, takið með umbúðir, merki- miða, afgang eiturs eða sýn- ishorn af uppsölu. Ef langt er í næsta lækni eða sjúkrahús. Gefið 1 mat- skeið af ipecacsaft, með a.m.k. 1 bolla af vatni (ef engih uppköst verða innan 20 mínútna, má endurtaka skammtinn einu sinni). Ymsar stærðir snjóhjólbarða fyrirliggjandi -—Hagstæð verð — Affelgum Hjólbarðaþjónustan Laugavegi 172 — Simi 21245. ORYGGI Laugavegi 170—172 — Sfmi 21240 Rætt um breyt- ingu á skráning- arkerfi bíla NlUNDA landsþing Félags íslenzkra bifreiðaeigenda verður haldið um helgina á Hótel Sögu og munu 50 fulltrúar víðs vegar að af landinu sækja þingið.m.a. • mun Guðni Karlsson, forstöðu- maður bifreiðaeftirlits ríkisins, flytja framsöguerindi um breytt skráningarkerfi. í gæzluvarð- hald fyrir amp- hetaminsölu MAÐUR var handtekinn í fyrra- dag á Keflavíkurflugveili, þar sem hann var með 28 grömm af amphetamin-dufti og var að gera tilraun til þess að selja það. Nærri lætur að söluverðmæti á svörtum markaði í Reykjavík á þessu efni sé um 300 þúsund krónur. Maðurinn, sem handtekinn var f fyrradag, var í gær úrskurðaður í gæzluvarðhald meðan á rann- sókn málsins stendur. ASÍMINN ER: 22480 Jflt>rfliinl>Inbib

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.