Morgunblaðið - 30.10.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 30.10.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 30. OKTÓBER 1976 X5 Erlichman saumar hanzka í fangelsinu Safford, Arizona 29. október — Reuter. JOHN Ehrlichman, sem áður var einn valdamesti maður í Hvíta húsinu I valdatíð Nixons, en sem siðan var dæmdur fyrir þátt sinn í Watergate- málinu, átti í dag sinn fyrsta dag í fangelsi. Ehrlichman var einn af helztu ráðgjöfum Nixons I innanríkismálum og orð hans voru lög. Hann fór I fangelsi af frjálsum vilja þar sem hann mun afplána 80 mánaða til 8 ára refsingu fyrir afbrot í sam- bandi við Watergate. Ehrlichman, sem er 51 árs, kaus að fara strax I fangelsið i stað þess að bíða eftir að hæsti- réttur kvæði upp úrskurð I áfrýjunarmáli hans. Yfirmaður Swift Trail- vinnubúðanna, John Haddin, sagði við fréttamenn að Ehrlichman fengi enga aðra meðferð, hvorki betri né verri, en aðrir fangar í búðunum. Vinnudagur hans í Swift Trail hefst klukkan 6 fyrir hádegi og mun hann starfa við að sauma leðurhanzka og buxur eða vinna við raforkuver. Auk þess fær hann möguleika á háskóla- kennslu í spænsku, listum og viðskiptafræðum, sem háskóli einn I Austur-Arizona sér um. N-írland: Ótti við hefndaraðgerðir vegna morðsins á Maire Drumm Flugvélarrán í Tékkóslóvakíu Flugmaðurinn leiddur fyrir rétt í Vestur-Þýzkalandi? Prag, Mtinchen 29. okt. Reuter. Belfast, 29. okt. Reuter. Ntb. TALIÐ er vlst að áætlanir um hefndaraðgerðir vegna morðsins á Maire Drumm, eins helzta for- vígismanns Sinn Fein, I gær- kvöldi hafi verið ræddar á ieyni- fundi Irska lýðveldishersins I dag að þvf er heimildir sem oftast eru áreiðanlegar töldu. Jarðskjálfti í Nýju Gíneu Uppsölum, 2. okt. Ntb. MIKILL jarðskjálfti varð I dag á stórum svæðum I Nýju Guineu að þvl er segir I frétt frá jarð- skjáiftastofnuninni I Uppsölum I Svfþjóð. Mun jarðskjálftinn hafa orðið um 7 stig á Richterkvarða og átti upptök sín í grennd við svæði þar sem um 500 manns fórust í jarð- skjáifta í júní. Fréttir um hvort manntjón hefði orðið nú höfðu ekki borizt. Maire Drumm sem var 56 ára var skotin til bana þar sem hún iá á sjúkrahúsi I Belfast eftir að hafa gengið þar undlr augnaupp- skurð. Taiið er að morðingjarnir hafi verið öfgasinnaðir mótmæl- endur og sá ótti fór vaxandi eftir þv( sem á daginn leið að stórkost- leg aida hermdar- og hryðjuverka myndi koma I kjölfar morðsins á henni. Maire Drumm sagði af sér sem varaforseti Sinn Fein fyrir fáein- um vikum af heilsufarsástæðum. Hún var þekkt fyrir mjög öfga- fullar ræður og tók oft svo djúpt i árinni að ýmsir kölluðu hana „ömmu hatursins". Þrlr menn dulbúnir sem læknar og hjúkrunarfræðingar komu í gær- kvöldi og spurðu á hvaða stofu hún væri. Þeim var vísað þangað og er þeir höfðu gengið úr skugga um að hún væri sú sem hún sagð- ist vera, skutu þeir hana til bana umyrðalaust. Lögregla og her- menn slógu þegar hring um sjúkrahúsið, en morðingjarnir komust undan I skjóli myrkurs. Lögreglan hefur einnig mikinn viðbúnað til að vernda háttsetta stjórnmálaforingja mótmælenda á Norður-íriandi og segir I frétt- um að morðið á Maire Drumm hafi vakið mikla skelfingu meðal fólks vegna þeirra ægilegu afleið- inga sm það kann að hafa. Bretar ráða London, 29. október. Reuter. BREZKA blaðið Financial Tim- es sagði I dag að stefna brezku stjórnarinnar I fiskveiðilögsögu- málum væri ekki rétt og að Bret- ar væru ef til viii á leið inn f nýja fiskveiðideilu við lslendinga. Segir blaðið I leiðara að tfminn sé að renna út. Bent er á að utan- rfkisráðherrar Efnahagsbanda- lagsins hittist I Holiandi um helg- ina og muni þeir helga fund sinn fiskveiðimálum. TÉKKNESKRI vél, sem rænt var I innanlandsflugi þar I gærkvöldi og flogið til Vestur-Þýzkaiands var skilað I dag aftur til Prag, að þvf er taismaður Miinchenfiug- vallar sagði f dag. Vélin var af gerðinni Ilyushin 18 og rændi henni vopnaður ungur maður skömmu eftir flugtak frá Prag- flugvelli. Skipaði hann flugstjór- anum að fljúga til Vestur- Þýzkalands og var lent f Miinch- en. Allir farþegarnir 105 að tölu og sex manna áhöfn fór á ný um borð I vélina eftir að lögregla hafði yfirheyrt það og stefnt var til Prag á nýjan leik. Tékknesk yfir- völd kröfðust þess að flugræning- inn yrði framseldur, en þeirri kröfu var hafnað að þvf er segir í Reuterfrétt. Þá segir í fréttum af máli þessu að vestur-þýzkur diplómati hafi „Ef þeir ná ekki samkomulagi er fundur æðstu manna EBE í lok nóvember aðeins einum eða tveim dögum áður en samkomulagið við tslendinga rennur út, síðasti möguleikinn," sagði blaðið. „Það sýnir hvað stefnan er mik- ið úr böndunum að utanríkisráðu- neytið f London hefur þegar haft á orði möguleikann á þvf að gera tvfhliða samkomulag við Islend- verið kvaddur í tékkneska utan- rfkisráðuneytið þegar fregnin barst um að flugvélin myndi lenda í Vestur Þýzkalandi. Diplómatinn, dr. Manfred Giesd- er, neitaði að skýra nokkuð frá þvf hvað honum og starfsmönnum utanrfkisráðuneytisins hefði farið á milli, en sagði að stjórnir land- anna myndu hafa beint samband sin f millum. Sfðasta flugrán f Tékkóslóvakfu var f júnf 1972 og var flugmaður- inn þá *skotinn til bana. Þeirri flugvél var einnig flogið til Vestur-Þýzkalands. Þar sem flugræninginn talar að- eins tékknesku hófust yfirheyrsl- ur yfir honum ekki fyrr en í dag, þar sem útvega þurfti túlka. Enn er á huldu hvort hann verður leiddur fyrir rétt í Vestur- Þýzkalandi, en talið er vist að hann muni biðja um hæli sem pólitfskur flóttamaður. inga, eins og það sé einhver hót- un“. Segir blaðið staðreynd málsins vera þá að Bretar geti ekki fram- kvæmt 200 mflna stefnu sina einir frekar en þeir gátu einir ráðið við Islendinga. Þeir þurfi aðstoð Efnahagsbandalagsins. „Og til að vinna stuðning EBE, veðrum við að fallast á tillögur bandalagsins og sfðan vinna að því að bæta þær.“ ekki við íslendinga einir OKKAR FRAMTÍÐ í REYKJAVÍK HVERFAFUNDIR BORGARSTJÓRA 1976 Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri flytur ræðu og svarar fyrirspurnum fundargesta Laugarneshverfi og Langholt Fundarstjórí: Fundarritari Hulda Valtýsdóttir. húsfrú Garðar Ingvarsson. hagfræðingur Laugardagur 30. október kl. 14.00. GLÆSIBÆR /------------------\ UMHVERFIÐ ÞITT Á fundunum verður: 1. Sýning á likönum og upp- dráttum af ýmsum borgar- hverfum og nýjum byggða- svæðum. 2. Litskuggamyndir af helztu framkvæmdum borgarinn- ar nú og að undanförnu. 3. Skoðanakönnun um borg- armálefni á hverjum hverfafundi og veröa nið- urstöður birtar borgarbú- um eftir að hverfafundum lýkur. V__________________J Reykvíkingar — tökum þátt í fundum borgarstjóra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.