Morgunblaðið - 30.10.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976
Guðni Hermansen listmálari með eina af myndum sfnum, sem hann
málaði eftir gos og kallar SIGUR. Það er Helgarfell f Eyjum sem
trónar hæst á Ifkamanum sem stendur á nýrri jörð. Vinstra megin er
mynd frá Búrfelli og hægra megin er mynd af bænum og Helgafelli.
sýnir á Kjarvalsstöðum
kom það fram í spjalli að myndir einstaklingum og söfnum bæði
eftir hann hafa verið keyptar af vestan hafs og austan.
Nefndaskipanin van-
traust á Kjaradóm
— segir formaður launamálaráðs BHM
GUÐNI Hermansen listmálari frá
Vestmannaeyjum opnar f dag kl.
3 málverkasýningu I Kjarvals-
stöðum. Guðni sýnir þar 75 mynd-
ir sem hann hefur málað á sfð-
ustu þremur árum. Myndefni
Guðna er sótt til Vestmannaeyja,
en Guðni teflir gjarnan saman
fantasfu og raunveruleika f
myndum sfnum. Þekktar eru
myndir Guðna sem hann málaði
fyrir eidgosið f Eyjum af eldfjalli
á þeim stað sem Eldfellið kom
sfðan upp. Guðni hefur haldið
margar sýningar á sfðustu 12 ár-
um, f gamla Listamannaskálan-
um, Vestmannaeyjum, Norræna
húsinu, á Suðurlandi og Vestur-
landi, samsýningum og f Lista-
skálanum f Færeyjum.
Sýning Guðna er opin til sunnu-
dagskvöldsins 7. nóv. á venjuleg-
um sýningartíma Kjarvalsstaða.
Á blaðamannafundi með Guðna
— 6 í varðhald
Framhald af bls. 32
fékk Þórir eftir nokkurra daga
málastapp í Hamborg, og varð að
kveða upp dómsúrskurð til að fá
aðila ytra til að afhenda þau.
1 lögum um meðferð opinberra
mála er ákvæði um bætur til
þeirra, sem saklausir eru settir í
fangelsi. Sagði Þórir að það væri
ákvörðunaratriði viðkomandi
manna, hvort þeir notfærðu sér
þetta ákvæði eða ekki.
r
— Alafoss
Framhald af bls. 2
eingöngu, röndótta eða einlita.
Ekki er Morgunblaðinu kunnugt
um það, hvort einhver gæðamun-
ur er á þessum treflum og þeim,
sem Álafoss selur til Sovétríkj-
anna fyrir 443 krónur trefilinn.
Þá hefur Hilda h.f. átt í erfiðleik-
um með að anna eftirspurn á
markaði í Bandarfkjunum eða
Kanada, en samt mun hafa tekizt
að afgreiða þær pantanir, sem
borizt hafa. Þá hefur Hilda einnig
selt til Þýzkalands og Danmerkur
nokkuð af treflum.
Jóhann Bjarmi Símonarson,
skrifstofustjóri Gefjunar á Akur-
eyri, kvað þetta sovézka fyrirtæki
vera hið sama og Samband fs-
lenzkra samvinnufélaga hefði
gert samning við og selt peysur og
ullarteppi. Hann kvaðst ekki geta
dæmt um þennan samning f ljósi
þeirra samninga, sem Sambandið
hefði gert, þar sem það hefði ekki
selt trefla til Sovétrfkjanna. Þetta
fyrirtæki, V/O Raznoexport, er
annað af tveimur fyrirtækjum,
sem keypt hafa peysur og teppi af
Sambandinu, en hitt er sovézka
samvinnusambandið, Sojustorg.
Hjörtur Eirfksson, framkvæmda-
stjóri Gefjunar, er nú erlendis og
um helgina heldur hann til
Moskvu, þar sem hann mun ræða
um frekari viðskipti við viðskipta-
aðila Sambandsins í Sovétrfkjun-
um.
Þess má að lokum geta að það
verð, sem Álafoss virðist fá fyrir
hvern trefil í Sovétrfkjunum er
aðeins um 4 til 5% af því verði,
sem Hilda h.f. fær fyrir trefla
sína f Bandarfkjunum og Kanada.
BANDALAG háskolamanna Iltur
á þá yfirlýsingu fjármálaráð-
herra um að hann ætli að skipa
nefnd til þess að kanna kjör opin-
berra starfsmanna sem staðfest-
ingu þess, sem BHM hefur haldið
fram, að Kjaradómur hafi ekki
farið að lögum við ákvörðun
launa opinberra starfsmanna. Jón
Hannesson, formaður launamála-
ráðs BHM, sagði I viðtali við Mbl.
I gær að I raun væri hér um
vantraust á Kjaradóm að ræða. Ef
Kjaradómur hefði farið að lögum,
hefði nefndarskipun þessi verið
oþörf.
Jón Hannesson sagði að það
hefði ávallt verið von bandalags-
ins að Kjaradómur hlustaði á rök
og færi að samningsréttarlögun-
— Fara til
Hollands
Framhald af bls. 2
með tfmanum fáum við aðstöðu
til að hýsa slfk dýr hjá okkur.
Það er búinn að vera langur
aðdragandi að þessum veiðum og
við höfum undirbúið þetta vel í
samvinnu við hollenzka aðila, sem
fjármagna leiðangurinn. Hol-
lenzkur Ifffræðingur, dr. Dudok
Van Hell, hefur stjórnað leiðangr-
inum, en hann er sérfræðingur í
hvölum og hefur hann um árabil
unnið eingöngu við rannsóknir á
þeim. Við fengum leyfi til þess að
veiða 4 dýr og höfðum verið á
miðunum f hálfan mánuðþegar
við fengum þessi tvö dýr..
Guðrún GK var leigð til veið-
anna og við komumst loks f gott
færi þegar sfldveiðibátur missti
niður sfld úr nótinni hjá sér. Há-
hyrningavaða fór f síldina og við
gátum kastað þorsknótinni á vöð-
una. 1 nótinni hjá okkur lentu
20—30 háhyrningar, sumir
sluppu út, en að sfðustu völdum
við dýrin tvö úr og miðuðum þar
við dýr ekki minni en 3tt metri og
ekki stærri en 5m. Þetta gekk allt
vel og það liðu ekki nema 5 stund-
ir frá því að við köstuðum og þar
til dýrin voru komin inn á þilfar.
Til Grindavfkur tók siglingin
sfðan 24 tíma. Þegar dýrin komu f
Sædýrasafnið f fyrrinótt voru þau
nokkuð dösuð, en þau jöfnuðu sig
fljótt og komust f eðlilegan ham,
önduðu reglulega og syntu f laug-
inni. Allt útlit er fyrir að annað
dýrið fari til Hollands en hitt til
San Diego f Bandarfkjunum. A
laugardagskvöld eða á sunnudag
verður byrjað að bjóða dýrunum
mat, en við ætfum hins vegar aft-
ur á miðin f kvöld til þess að
reyna að veiða önnur tvö dýr og
fylla kvótann eins og þeir segja."
um. En reynslan hefði fært opin-
berum starfsmönnum aðra mynd
og gert þeim ljóst að í raun væri
það pólitísk ákvörðun, hverjar
hækkanir þear hlytu. Vissulega
væri ljóst að staða ríkisvaldsins
væri erfið, þar sem þvf væri mikið
í mun að veita ekki slæmt for-
dæmi. í sjálfu sér sagði Jón að
BHM fagnaði þvf ef nefnd, sem
sú, er fjármálaráðherra boðar,
yrði til þess að rétta hlut opin-
berra starfsmanna. En hann benti
á að ráðherra hefði látið það
fylgja að tekið yrði tillit til niður-
staðna nefndarinnar við gerð
næsta kjarasamnings. Nú væri
nýlega búið að gera nýjan kjara-
samning til 2ja ára og ljóst væri
að opinberir starfsmenn væru
ekki reiðubúnir að bíða þann
tíma. Þeir gætu það ekki.
— Bretar
Framhald af bls. 1.
álitið að Healey muni auka óbeina
skatta.
Þegar iréttist um hugsanlega
lántöku brezku stjórnarinnar í
morgun hækkaði pundið á gjald-
eyrismörkuðum um 3.5 sent. Var
það skráð á 1.6070 dollar f morgun
en á fimmtudagskvöld var gengi
þess 1.5690, sem er það lægsta frá
upphafi. Hækkun pundsns ofli
einnig verðhækkun á verðbréfa-
markaðnum í London.
— Fundur EBE
Framhald af bls. 1.
skoðunar og leggja mest kapp á að
tryggja sjómönnum sfnum veiði-
réttindi innan 200 mflna fisk-
veiðilögsögu landa eins og tslands
og Noregs og enn fremur Kanada
og Sovétrfkjanna.
Á fundinum á morgun verður
reynt að sætta þetta sjónarmið og
sjónarmið tra. Hefur Gundelach
undirbúið drög að málamiðlunar-
samkomulagi.
— Njósnir
Framhald af bls. 1.
hafði það f för með sér, að
Rússum var unnt að undir-
bjóða Finnana og þannig gert
millirfkjaviðskipti illmöguleg.
Þð er þó jafnvel enn þá alvar-
legra, að Rússum var með þess-
ari njósnastarfsemi gert kleift
að fylgjast með verðlagsbreyt-
ingum f viðskiptum Finna við
Bandarfkin, Frakkland og Hol-
land.
Yfirmaður finnsku tollgæzl-
unnar hefur ekki viljað tjá sig
um málið við dagblöðin, enda
hafa engar fréttir birzt um það
fyrr en nú, en blöðin hafa
fréttina frá sænska vikublað-
inu Vi, sem hafði í undirbún-
ingi grein um njósnirnar til
birtingar f næstu viku.
— Bólusetning
Framhald af bls. 14
þeim hætti, að þessar hópar fái
notið forgangs, var haldinn fund-
ur með heimilislæknum 25.
október s.l.
A fundinum var ákveðið, að
fólk, er tilheyrði hópunum hér að
ofan, ætti að hafa samband við
heimilislækna sfna og panta bólu-
setningu. Nauðsynlegt er að pönt-
un eigi sér stað fyrir föstudaginn
5. nóvember n.k. Munu þá heimil-
islæknar geta gert sér grein fyrir
þörfum þessara hópa og tryggt
þeim bólusetningu. Þeir sem ekki
eiga kost bólusetningar hjá heim-
ilislæknum sfnum verður gefinn
kostur á henni í Heilsuverndar-
stöðinni á tímabilinu frá 8.—19.
nóvember, virka daga, kl. 4.30—6
Sjúkrasamlag tekur ekki þátt i
greiðlsu kostnaðar og er verð
bólusetningarinnar kr. 1.200.00.
Það skal tekið fram, að ráðstaf-
anir þessar eru gerðar til að
tryggja þeim forgangshópum
bólusetningu, er heilbrigðisyfir-
völd mæla með. Það skal tekið
skýrt fram, að heilbrigðisyfirvöld-
um á Norðurlöndum hefur ekki
þótt nein ástæða til að mæla með
allsherjarbólusetningu gegn
svfnainflúensu.
Verði birgðir bóluefnis umfram
það, sem þörf áðurnefndra hópa
segir til um, ætti að hafa I huga,
að verkamönnum, sjómönnum og
öðrum þeim, er í starfi sfnu geta
mætt vosbúð og kulda, er hættara
við fylgikvillum inflúensu en öðr-
um.
Svo sem fram kom í tilkynningu
landlæknis er yfirleitt ráðið frá
því að bólusefja 18 ára og yngri.
Bólusetningin getur verið
hættuleg fólki, sem hefur ofnæmi
fyrir eggjum.
— Engar viðræður
Framhald af bls. 3
vegna 1. desember, en þá rennur
út fiskveiðisamningur íslendinga
og Breta, yrði að flýta samninga-
umleitunum við Islendinga. Sam-
kvæmt tfmaáætlun embættis-
manna EBE verður fyrst rætt við
Bandaríkin, en síðan er Island
númer tvö á lista.
Þá ber að geta þess að þetta mál
kom til umræðu á Alþingi í gær.
Einar Ágústsson utanrfkisráð-
herra sagði þar að hvorki væri
ákveðió að ræða við Efnahags-
bandalagið né Breta, enda hefði
engin ósk frá þessum aðilum um
viðræður borizt íslenzkum stjórn-
völdum.
— Ford
Framhald af bls. 1.
þessari könnun virtist Carter
hafa tryggt sér sigurinn með
273 kjörmönnum. Þetta hefur
nú hins vegar breytzt mjög
snöggt eins og fyrr segir og
vindurinn blæs nú f segl forset-
ans.
Carter kom f
skyndiferð
til New York
Fréttamenn sem hafa ferðast
með Jimmy Carter segja aó
spennan f þeim herbúðum hafi
aukist næstum áþreifanlega
sfðustu daga. Carter var f New
York f fyrradag í sfóasta skipti
að þvf er sagt haföi verið, en
sfðdegis f gær kom hann
skyndilega hingað aftur og fór f
tveggja tfma ferð um Brooklyn.
Fréttamenn spurðu Carter
hvort hann teldi að hann myndi
tapa kosningunum, ef hann
tapaði New York, en hann
svaraði þvf stuttaralega: „Nei.“
Enginn vafi er þó talinn að
ákvörðunin um aukaferð til
New York er til komin vegna
þess að skoðanakannanir hafa
sýnt að fylgi hans hefur
minnkað með degi hverjum.
Fréttamenn segja einnig að
ljóminn sé að hverfa af sókn
Carters. Hugsanlegt sé að um
langvinna þreytu sé að ræða,
enda hefur álagið verið gífur-
legt, en það fari ekki á milli
mála að framkvæmdastjórar
Carters séu áhyggjufullir. Cart-
er var spurður að þvf á
Kennedyflugvelli f morgun, er
hann fór frá New York og
ætlaði í sfðustu yfirreið f Ohio,
Texas og Pennsylvaníu, hvort
hann teldi sig vera kominn f
sömu spor og Thomas Dewey
var á móti Harry Truman árið
1948. Carter svaraði þessu neit-
andi og sagði að hann hefði
aldrei gengið út frá því sem
vísu að hann myndi sigra. Hann
benti á að í kosningunum 1960
hefðu aðeins nokkur þúsund at-
kvæði ráðið því að Kennedy
sigraði Nixon og sömuleiðis
hefði Nixon sigrað Humprhey
með naumindum árið 1968.
Hann sagðist vera áhyggjufull-
ur yfir þvf hve útlitið væri
slæmt með þátttöku í kosning-
unum. Aðspurður um hvað hon-
um fyndist um fréttir um
minnkandi fylgi hans, sagði
Carter að hann væri ekki sam-
mála þeim. Þær fregnir sem
hann fengi frá sfnum mönnum
væru á þá leið að fylgi hans
færi vaxandi í ýmsum fylkjum
sem hann hefði ekki gert sér
miklar vonir um að sigra í. Hins
vegar sagði hann að demókrat-
ar yrðu að fjölmenna á kjör-
staði til að tryggja sigur sinn.
Ford gunnreifur
f ræðum
Ford forseti sagði í ræðu f
Ohio f gær að ástæðan fyrir
þverrandi fylgi Carters væri sú
staðreynd að hann hefði allt frá
þvf hann var kjörinn forseta-
efni demókrata stöðugt verið að
gefa út loforð um nýjar
kostnaðarsamar áætlanir, jafn-
vægi í rikisbúskap, endurskipu-
lagningu alrfkisbáknsins og
fleira sem kjósendur gerðu sér
grein fyrir að hann gæti ekki
staðið við. I sömu ræðu sagði
forsetinn að hann myndi á
næstu fjórum árum beita sér
fyrir enn frekari skattalækkun-
um og minnka útgjöld ríkisins.
Hann sagði að menn yrðu að
minnast þess að hann hefði
beitt sér fyrir og komið f gegn
mestu skattalækkun f sögu
Bandaríkjanna. Hann sagði að
það væri rétt að atvinnuleysi
væri alltof mikið, en fleiri
Bandaríkjamenn hefðu fengið
vinnu sl. 18 mánuði en nokkru
sinni áður og fyrir lægi, að
umtalsverður árangur hefði
náðst í baráttunni við verðbólg-
una. Hún væri nú helmingi
minni en fyrir-tveimur árum.
Ymsir kynnu að vera óþolin-
móðir yfir þvf hve hægt efna-
hagslff landsins tæki við sér
eftir kreppuna, en hagvöxtur-
inn og batinn væri jafn. Þegar á
þessar staðreyndir væri litið
kæmi í Ijós að það væri ekki
mikið sem Carter hefði upp á
að bjóða, nema ef menn hefðu
áhuga á nýrri verðbólguöldu
sem skapast myndi þó svo Cart-
er efndi ekki nema 10% af lof-
orðum sfnum, ef hann hlyti
kosningu.
önnur breyting virðist hafa
oröið á afstöðu stjórnmála-
fréttaritara til kosninganna sfð-
ustu tvo daga, þvf að nú eru
menn farnir að velta þvf fyrir
sér, hvort hin mikla tvfsýna um
úrslitin kunni ekki aö veröa til
þess að þátttakan f kosningun-
um verði meiri en talið hefur
verið fram til þessa. Repú-
blikanar og demókratar muni
fjölmenna til að styðja sina
menn en ekki láta helming eða
jafnvel minnihluta bandarfsku
þjóðarinnar velja næsta for-
seta. Gffurleg auglýsingaher-
ferð i sjónvarpi sem nú dynur
yfir landsmenn beinist að veru-
legu leyti að þvf að fá kjósend-
ur á kjörstað og hafa báðir
frambjóðendur fengið hæfustu
menn auglýsingaiðnaðarins til
liðs við sig. Verður óneitanlega
áthyglisvert að fylgjast með
árangrinum.