Morgunblaðið - 30.10.1976, Qupperneq 32
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976
Ljósmynd Mbl. RAX.
Háhyrningarnir tveir sem Guðrún GK veiddi út
af Ingólfshöfða f fyrradag voru fluttir f laug f
Sædýrasafninu f gærkvöldi og þar verða þeir
næstu vikurnar þar til þeir verða fluttir til út-
landa, annar til Hollands og hinn til Bandaríkj-
anna.
Litsjónvarpsmálið:
13 starfsmönnum Eim-
skips sagt upp störfum
Háhyrningurinn nær á myndinni er kvendýr,
en í gær var ekki búið að ganga úr skugga um af
hvoru kyninu minna dýrið er, en það sést fjær á
myndinni. Slökkviliðsmenn úr Hafnarfirði
standa þarna og horfa á dýrin, en þeir aðstoðuðu
við að dæla sjó f laugina f gær.
Nizza, Frakklandi, f gær
frá Þórleifi Ólafssyni,
HÁHYRNINGURINN Jóhanna
neitaða staðfastlega að njóta þess
Gjaldeyrisstaðan:
1141 millj.
kr. bati
Versnaði um 5.767
millj. kr. í fyrra
GJALDEYRISSTAÐAN f
septemberlok, nettóstaðan, var
neikvæð um 2.644 milljónir
króna og hafði þá f mánuðin-
um versnað um 1.473 milljónir
króna. Hins vegar er batinn á
stöðunni frá áramótum sam-
tals 1.141 milljón króna, en
allar þessar tölur eru á
septemberlokagengi og þvf eru
þær fullkomlega sambærileg-
ar.
Breytingartölurnar f fyrra á
samsvarandi gengi eru þær, að
í september f fyrra versnaði
staðan um 1.025 milljónir
króna og frá áramótum
versnaði hún um 5.767
milljónir króna. Af þessu sést
að þróunin á þessu ári er mun
hagstæðari en hún var f fyrra.
Litsjónvarpsmálið
VEGNA rannsóknar litsjónvarps-
málsins voru úrskurðaðir f gæzlu-
varðhald 6 menn, sem ekki reynd-
ust við málið riðnir. Sátu menn-
irnir inni f Sfðumúlafangelsinu f
rúman sólarhring. Gæzluvarð-
haldsúrskurðirnir voru byggðir á
gögnum, sem fengust í Hamborg,
þar sem litatækin voru keypt, en
gögn þessi reyndust ekki eins
haldgóð og talið var í fyrstu.
matar sem starfsmenn Marinland
f Nissa buðu henni árla í dag, en
það var makríll sem fram var
borinn. Makrfll er aðalfæða hvala
f Miðjarðarhafi. Eftir að Jóhanna
hafði fussað við makrflnum sem
henni var borinn úr hendi De la
Pob eiganda sædýrasafnsins, var
brugðið á það ráð að kasta fs-
lenzkri sfld fyrir dýrið og tók
Jóhanna þá snarlega við sér og
gleypti sfldina á augabragði.
Siðan var hverri síldinni af ann-
arri hent til hennar og át hún þær
allar með beztu lyst. Virðist Jó-
hanna una sér hið bezta í sínum
nýju heimkynnum.
Þegar Iscargovélin lenti í
Frakklandi í gær var gífurlegur
fjöldi fréttaritara á flugvellinum
og fjöldi fólks sem hafði heyrt um
væntanlega komu háhyrningsins
flugleiðis frá Islandi.
Þegar flugvélin var í aðflugi,
kallaði einn flugstjórnarmaður úr
flugturninum í Hallgrím flug-
stjóra og spurði hvort einhver
þjóðhöfðingi, Brésnev eða ein-
hver slíkur, væri um borð og lokk-
aði alla fréttamennina á völlinn.
„Við erum aðeins með háhyrn-
ing,“ svaraði Kallgrimur, en al-
gjör þögn varð í flugturninum.
Þórir Oddsson, aðalfulltrúi
sakadóms, sem kvað upp þessa
gæzluvarðhaldsúrskurði, sagði að
mönnunum hefði verið sleppt
þegar er hið sanna kom í ljós.
Hann sagði að umrædd gögn
hefðu leitt í ljós rökstuddan grun
um að umræddir menn væru við
málið riðnir og hefði honum ekki
verið stætt á öðru en úrskurða
mennina í gæzluvarðhald. Stjórn-
13 starfsmönnum Eim-
skipafélags tslands, úr
hópi sjómanna og starfs-
manna í vöruafgreiðslu,
var sagt upp störfum hjá
Eimskipafélaginu í gær
samkvæmt ákvörðun
stjórnar Eimskips, en þess-
ir 13 starfsmenn eru allir
viðriðnir samvinnu í
skipulögðu smygli á lit-
endur svona rannsókna yrðu að
taka ákvarðanir um hvað gera
skyldi og ætíð að taka mið af þeim
gögnum sem fyrir lægju. „Réttar-
gæzlumenn þessara manna voru
að sjálfsögðu ekki ánægðir yfir
þessu en þeir skildu aðstöðu mína
og skildu að ekki var hægt annað
að gera en kveða upp úrskurðina
út fá þeim gögnum sem lágu fyrir,
þótt sfðar kæmi í ljós að þau stæð-
ust ekki,“ sagði Þórir.
Þess má geta að umrædd gögn
Framhald á bls. 18.
sjónvarpstækjum til lands-
ins og hefur rannsóknar-
lögreglan lagt hald á 29
tæki sem varða þetta mál.
Ekki virðist hér um auð-
gunarmál að ræða.
Á undanförnum tveimur
árum hefur Eimskipafélag
Islands sagt upp alls 70
6 ungir menn
í gæzlu vegna
fíkniefnamála
ARNAR Guðmundsson ffkniefna-
dómari úrskurðaði f gær 22 ára
gamlan mann f allt að 30 daga
gæzluvarðhald vegna rannsóknar
ffkniefnamálsins mikla. Sitja þá
inni 5 ungir menn vegna þessa
máls.
Þá hefur Fíkniefnadómstóllinn
einnig með að gera mál 22 ára
gamals manns, sem var í vikunni
handtekinnn á Keflavíkurflug-
velli með 30 grömm af amfeta-
mfni, sem hann var að reyna að
selja, en söluverðmæti þess
magns er talið vera um þrjú
hundruð þúsund krónur. Var sá
maður úrskurðaður í allt að 15
daga gæzluvarðhald. Sitja þvi 6
ungir menn í gæzluvarðhaldi
vegna ffkniefnamála.
starfsmönnum vegna
áfengissmygls.
Morgunblaðið hefur
fregnað að þegar starfs-
mönnunum bárust upp-
sagnarbréfin í gær hafi
starfsmenn í véladeild lagt
niður vinnu um stund. og
einnig hluti starfsmánna í
vöruskemmu í Sundahöfn.
Starfsmenn í véladeild
hófu aftur vinnu þegar
málsatvik höfðu verið út-
skýrð.
Fjórir bankar
búnir ad svara
FJÓRIR bankar hafa nú svarað
bréflega ósk Hrafns Bragasonar
umboðsdómara í ávfsanamálinu
um nákvæmar skýrslur um þær
yfirdráttarheimildir, sem bank-
arnir hafa veitt þeim aðilum, sem
tengjast málinu. Slíka ósk bar
Hrafn fram við alla banka lands-
ins og tvo sparisjóði. Hrafn sagði
við Mbl. að hann væri ekki búinn
að kynna sér nákvæmlega inni-
hald bréfanna og gæti þvf ekkert
um það sagt nú sem stæði. Stöð-
ugt er unnið að öðrum þáttum
þessa máls.
6 menn í gæzluvarðhald sem
ekki voru viðriðnir málið
„Ekki annað hægt að gera samkvæmt þeim
gögnum sem lágu fyrir,” segir dómarinn
15 mánaða fangelsi og
600 þúsund kr. sekt
fyrir fíkniefnasmygl
Harðasti fíkniefnadómur til þessa
ASGEIR Friðjónsson fíkniefna-
dómari dæmdi nýlega f máli
tveggja bandarfskra varnarliðs-
manna, sem viðriðnir voru hið
umfangsmikla flkniefnasmygl á
Keflavfkurflugvelli, sem upp
komst skömmu eftir áramótin.
Var annar þeirra dæmdur f 6
mánaða fangelsi og 300 þúsund
króna sekt og hinn f 15 mánaða
fangelsi og 600 þúsund króna
sekt. Að sögn Asgeirs er þetta
harðasti fíkniefnadómur. sem
kveðinn hefur verið upp á tslandi
til þessa. Eftir er að dæma f máli
eins Bandarfkjamanns, en sá er
talinn vera „aðalmaðurinn" f
málinu. Eins og lesendur rekur
eflaust minni til, varð það uppvíst
í janúar s.l. að tugir kílóa af ffkni-
efnum höfðu farið um Keflavfk-
urflugvöll seinni part ársins 1975.
Inn í málið flæktust 15 bandarísk-
ir varnarliðsmenn á vellinum.
Dæmt hefur verið í málum 14
þeirra. Fyrr er getið tveggja
dóma, en 12 af þessum mönnum
voru dæmdir til að greiða sektir á
bilinu 100—500 þúsund krónur.
Þá voru 20 íslendingar viðriðnir
þessi mál, en aðeins sem kaupend-
ur smárra skammta. Fengu þeir
allmiklu lægri sektir.
Að sögn Ásgeirs Friðjónssonar
er ekki ljóst hvort fyrrnefndir
tveir menn áfrýja til Hæstaréttar.
Ennfremur liggur það ekki ljóst
fyrir, hvar mennirnir munu af-
plána refsingu sina, hér eða í
Bandaríkjunum.
Jóhanna:
Neitar franska
matseðlinum