Morgunblaðið - 13.11.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1976
3
Fjölskyldu-
tónleikar
Sinfóníu-
hljómsveitar
SINFÓNlUHLJÖMSVEITIN heldur fjölskyldutónleika I Há-
skólabfói laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00, og eru þeir
tónleikar að venju ætlaðir börnum á skólaskyldualdri I fylgd með
foreldrum sfnum. Stjórnandi er Karsten Andersen og einleikari
Jónas Sen, en kynnir er Þorgerður Ingólfsdóttir. A efnisskránni
eru eftirtalin verk: Tsjaikovsky — Ur „Hnetubrjótnum": Rúss-
neskur dans Blómavalsinn — Copin — Andante spianato Grande
polonaise (einleikari á pianó Jónas Sen) — A. Dukas — Læri-
sveinn galdrameist arans.
Aðgöngumiðar eru seldir f eftirtöldum bókabúðum: Lárus
Blöndal. Skólavörðustfg, Eymundsson, Austurstræti, og Bóka-
versluninni Veda, Hamraborg, Kópavogi.
Síbrotamenn í
gæzluvarðhald
SlBROTAMENN hafa undan-
farna daga verið úrskurðaðir i
gæzluvarðhald hjá sakadómi
Reykjavíkur.
I gær voru tveir karlmenn og
éin kona úrskurðuð í gæzluvarð-
hald fyrir endurtekin afbrot,
þjófnaði og fals að undanförnu.
Einn mannanna fór í allt að 90
daga gæzluvarðhald, annar allt að
í 60 daga gæzluvarðhald og konan
í allt að 30 daga gæzluvarðhald.
Nýlega var svo 16 ára piltur úr-
skurðaður i allt að 60 daga gæzlu-
varðhald fyrir sfbrot. Hafði hann
þó fyrr á þessu ári setið í gæzlu-
varðhaldi i 107 daga fyrir margs
konar afbrot.
Lýst eftir öku-
manni og vitnum
MILLI klukkan 7 og 8 á fimmtu-
dagsmorgun var ekið á stjórn-
kassa umferðarljósanna á horni
Laugavegar, Suðurlandsbrautar
og Kringlumýrarbrauar, en kassi
þessi er f suð-austurhorni gatna-
mótanna. Miklar skemmdir urðu
á kassanum og þarf lögreglan að
ná tali af ökumanninum svo og
vitnum ef einhver eru.
Lagaprófessorar:
Aðgerðir BHM ólöglegar
— VIÐ teljum hvorki lagalegt né
siðferðílegt réttlæti fyrir aðgerð-
um Bandalags háskólamanna og
þvf munum við ekki taka þátt f
verkfallinu á mánudag, sagði Sig-
urður Lfndal, forseti lagadeildar
Háskólans, f samtali við Morgun-
blaðið f gær.
Sagði Sigurður, að lagaprófess-
orarnir, en þeir eru átta talsins,
hefðu skrifað Félagi háskóla-
kennara bréf, þar sem þeir benda
á að hér sé um ólöglegar aðgerðir
að ræða, og þar af leiðandi vildu
þeir ekki taka þátt í þessum að-
gerðum.
Þá mæltust lagaprófess-
orarnir einnig til þess, að Félag
háskólakennara hætti við fyrir-
hugaðar aðgerðir.
Jón L. Árnason
15 ára haust-
meistari TR
Mjög óhreinn fatnaöur þarf mjög gott þvottaefni...
LOKIÐ er haustmóti Taflfélags
Reykjavfkur með sigri Jóns L.
Árnasonar. Jón og Stefán Briem
ut-ðu efstir og jafnir að lokinni
aðalkeppninni og háðu einvfgi um
titilinn. Skákmeistari TR. Jón
sigraði í þremur fyrstu skákum
einvfgisins og er þar með meist-
ari. Jón L. Árnason er aðeins 15
ára gamall og yngsti maðurinn,
sem unnið hefur þeta mót. Guð-
mundur Sigurjónsson var 17 ára
þegar hann vann til fyrstu verð-
launa á þessu móti f fyrsta skipti.
Með Ajax þvottaefní verður misliti
þvotturinn alveg jafn hreinn og
suáuþvotturinn.
Hinir nýju endurbættu
efnakljúfar gera þaó kleíft
aó þvo jafn vel meó öllum
þvottakerfum.
Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og
viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og biettalaus.
Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvitur.
Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótviræða
kosti sina, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatiminn er
stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir
skýrast.
Hreinsandi efm og nýjr, endurbættir efnakljúfar ganga alveg
inn í þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i
forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni.
Ajax þvottaefni þýóir:
gegnumhreinn þvottur meó ölium
þvottakerfum.
Mokveiði í reknetin
REKNETABÁTAR frá Höfn f
Hornafirði mokfiskuðu f fyrri-
nótt, og fengu þá 22 bátar yfir
5000 tunnur. Fóru margir bátar
til Austf jarðahafna, en flestir
fóru til Hafnar f Hornafirði og
Vestmannaeyja. Aflahæstu bát-
arnir voru Hringur GK með 500
tunnur og Gissur hvfti SF með
400 tunnur.
— Hér á Höfn eru allir í vinnu,
sem vettlingi geta valdið, og alls-
staðar vantar fólk, sagði Jens
Dregið
r
1
kvöld
I KVÖLD verður dregið i
hausthappdrætti Sjálfstæð-
isflokksins og eru þvi síð-
ustu forvöð að tryggja sér
miða. Vinningarnir hljóða
upp á fólksbifreið, sólar-
landaferðir, hljómflutnings-
tæki o.fl. óg má ætla, að
margir vilji eiga kost á að
hreppa einhvern slíkan
vinning. Drætti verður ekki
frestað 'og eru þvi þeir, sem
enn eiga ógerð skil, hvattir
til að gera það nú þegar.
Skrifstofa happdrættisins
f Valhöll, Sjálfstæðishúsinu,
Bolholti 7, er opin til kl. 23 f
kvöld. Sfminn er 82900 — og
geta þeir, sem ekki eiga
heimangengt hringt f þann
sfma, óski þeir eftir að láta
sækja greiðslu á miðum,
sem hafa borist. Munið: Það
verður dregið f kvöld.
Mikaelsson f frystihúsinu f sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Hann
sagði að átt hefði að salta 1000
uppsaltaðar tunnur I gær og milli
600 og 700 tunnur voru teknar til
frystingar.
Skipstjórar reknetabátanna
breyttu nokkuð um veiðiaðferð í
fyrrinótt. Vegna mikils tungl-
skins að undanförnu hefur síldin
verið mjög neðarlega og dreifð. I
fyrrinótt fækkuðu skipstjórarnir
belgjum á netunum og sökktu.
netunum allt að 30 metrum neðar
en venjulega og lét árangurinn
ekki standa á sér.
Eins og fyrr segir var Hringur
með mestan afla, 500 tunnur, en
hann fór til Eskifjarðar með afl-
ann, Gissur hvíti SF var með 400
tunnur og fór til Djúpavogs,
Steinunn SH fór með 320 tunnur
til Fáskrúðsfjarðar, Æskan fór
með 300 tunnur til Stöðvarfjarð-
ar, Lyngey með 250 tunnur til
Stöðvarfjarðar, Hásetahlutur út
úr 500 tunna veiði mun vera um
160 þúsund krónur.
Vélbáturinn Jón Helgason frá
Höfn, sem stundar spærlingsveið-
ar kom að landi í gærmorgun með
110 lestir af spærlingi eftir tæp-
lega sólarhrings útivist.
Óbreytt líðan
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við gjörgæzludeild Borg-
arspítalans og spurðist fyrir um
líðan þeirra þriggja ungmenna,
sem liggja á deildinni eftir slys.
Þetta eru tvær stúlkur, sem slös-
uðust í umferðinni í Reykjavík og
Vestmannaeyingur, sem slasaðist
á björgunarsveitaræfingu á Glg-
jökli um s.l. helgi. Fékk Mbl. þær
upplýsingar, að líðan ungmenn-
anna væri óbreytt, þau væru öll
meðvitundarlaus og þungt haldin.