Morgunblaðið - 28.12.1976, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1976
27
Litlar líkur á ad olía
valditjóni vid ísland
MENN hafa borið nokkurn
kvfðboga fyrir þvf, hvað gerast
myndi, ef olfan frá risaolfu-
skipinu sem strandaði og brotn-
aði við strendur Bandarfkjanna
rétt fyrir jólin, bærist inn f
golfstrauminn. Þess vegna
hafði Morgunblaðið f gær
samband við sérfræðing á
þessu sviði og spurðist fyrir um
hættur þvf samfara hér við
land.
Unnsteinn Stefánsson, haf-
fræðingur, kvað erfitt að svara
þessu í fljótu bragði, þar sem
olían þyrfti að fara um langan
veg áður en hún bærist hingað
að ströndum Islands. Hann
kvað það mundu taka mánuði
fyrir olíuna að ná til Islands-
stranda og á þeim tíma gæti
mikill hluti olíunnar verið
sokkinn. Ekki vildi Unnsteinn
fullyrða að það gerist á þessari
leið, en hann kvaðst telja að
ástæða væri til að ætla, að
áhrifin yrðu ekki stórvægileg,
ef olian næði tal Islands. Ef
oliubrákin berst út í golf-
strauminn mun hún þynnast og
smám saman eyðast. Því kvað
hann frekar litlar likur á að
þessi olia ylli alvarlegu tjóni
hér.
Frá þeim slóðum, sem slysið
varð við strendur Banda-
ríkjanna, eru um 2 þúsund
mílur til Islands. Getur þvi
tekið olíuna marga mánuði að
ná hingað.
Jólagledi MR
Kveikt í
brennu
BÖRNIN í Álfheimum og
næsta nágrenni hafa af
miklum dugnaði undanfar-
ið unnið að gerð bálkastar,
sem ætlunin var að brenna
um áramótin. í gærkveldi
gerðist það svo, að allt i
einu urðu menn þess varir
að kösturinn stóð í björtu
báli. Þetta olli að vonum
miklum sársauka hjá
krökkunum, sem lagt
höfðu á sig mikið erfiði og
útsjónarsemi við gerð kast-
arins. Brennan stendur
vestan Álfheimablokkanna
og norðan Engjavegar.
1 gærkveldi voru krakkarnir að
reyna að bjarga einhverju úr
kestinum áður en eldurinn eyddi
þvi, svo að unnt yrði að byrja að
nýju. Ólafur Eggertsson, ábyrgð-
armaður brennunnar, bað I gær-
kveldi Morgunblaðið að koma því
á framfæri við þá aðila, sem
þyrftu að hreinsa til hjá sér, að
með þökkum yrði efni í brennuna
þegið. Með aðstoð slikra aðila von-
ast krakkarnir til að þrátt fyrir
allt geti þau skemmt sér við stóra
og mikla brennu á gamlárskvöld.
Ólafur sagði, að tekið yrði við
brennuefni alla daga fram til
gamlársdags.
Róleg jól
SAMKVÆMT upplýsingum lög-
reglunnar i Reykjavík voru jólin
einkar róleg og þægileg fyrir lög-
regluna. Annar f jólum var einnig
með ágætum, þótt um stutta
stund hafi verið talsvert annrfki.
„Jólin voru með ágætum í höfuð-
borginni," sagði varðstjóri lög-
reglunnar, „þegar frá er talið hið
sviplega slys, er varð á Hverfis-
götunni, er hjón brunnu inni. Það
var og eini skuggi þessarar
hátfðar.“
— Erlu sleppt
Framhald af bls. 28
örn Höskuldsson, fulltrúi við
sakadóm Reykjavikur, staðfesti i
gær við Mbl., að Erlu hefði verið
sleppt úr gæzluvarðhaldi. Þegar
Mbl. spurði örn hvort
framburður Erlu frá í vor hefði
ekki verið á rökum reistur eða
hvort einhverjar aðrar ástæður
lægju að baki þeirri ákvörðun að
sleppa Erlu, kvaðst örn engu
vilja um það svara.
AUGI.ÝSINGASÍMINN ER:
^22480
NEMENDUR Menntaskólans f
Reykjavfk hafa enn á ný dustað
rykið af málningardollum sfnum
og penslum. Vinna þeir nú að þvf
að búa til skreytingar á jóla-
skemmtun skólans, „hnotskurðar-
myndir af þjóðfélaginu og ver-
öldinni f kringum okkur“ eins og
þeir orða það sjálfir.
teflt við nokkra sterkustu
mennina, svo sem Schussler og
Vladimirov. Flestir sterkustu
mennirnir eru 20 ára gamlir,
en Margeir er aðeins 16 ára
garnall og á ennþá eftir 4 ár í
unglingaflokknum.
I 5 fyrstu umferðunum vann
Jólagleði menntaskólanemend-
anna verður haldin I kvöld í Sig-
túni og verða skreytingar á veggj-
um hússins. Munu Stuðmenn
leika fyrir dansi til klukkan 03 í
nótt, en myndin er af nokkrum
menntaskólanemum með mynd-
skreytingarnar.
Margeir 4 skákir og tapaði
einni, gegn Vladimirov.
Margeir kvaðst afa verið mjög
óheppinn að tapa þeirri skák.
Upp hefði komið afbrigði, sem
hann þekkti vel en Rússinn
illa og hefði hann náð um tima
betri stöðu en tapað skákinni
niður í tlmahraki skömmu áð-
ur en hún for I bið.
Margeir lét mjög vel af að-
stæðum á keppnisstað.
— Afgreiðsla
Framhald af bls. 28
afgreiðslu. „Þannig er þetta, þvi
miður,“ sagði önundur.
Indriði Pálsson, forstjóri Olíu-
félagsins Skeljungs, sagði, er
Morgunblaðið spurði hann um
þetta ástand, að hann vonaði að
ekki þyrfti til þess að koma að
oliufélögin yrðu neydd til þess að
neita um afgreiðslu til skipa i
rekstri rikisins vegna vanskila
skipareksturs ríkisins við oliu-
félögin.
— Brennuefni
Framhald af bls. 2
Annar ókostur þessa er og sá að
ef eitthvað hreyfir vind, vill
brennuefnið fjúka út í veður og
vind. Það vill þó til að fram að
þessu hafa verið miklar stillur og
staðviðri. Stefán Jóhannsson
sagði, að ef hvessti xfyki elds-
maturinn út um allt og gæti orðið
tafsamt og erfitt að safna draslinu
.saman. Getur því skapazt vand-
ræðaástand, ef veður breytist.
Líkur benda til þess að brennur
í Reykjavik verði um þessi áramót
einhvers staðar á bilinu 20 til 30.
Eru þær af öllum stærðum og
gerðum.
Barðstrending-
ar kaupa bát
HLUTAFÉLAGIÐ Klöpp á
Barðaströnd keypti nýlega vél-
bátinn Hólmsberg frá
Keflavfk, sem er 100 rúmlesta
bátur og sökum hafnleysis á
Barðaströnd er ætlunin að
gera bátinn út frá Patreksfirði
I vetur á Ifnu alla vertfðina.
Skipstjóri á bátnum er
Kristófer Kristjánsson.
Ákveðið er að aflanum verði
ekið til vinnslu á Barðaströnd í
fiskverkunarhúsi Klappar,
sem er rétt utan við Hauka-
bergsós. Samkvæmt upplýsing-
um Páls Agústssonar, frétta-
ritara Morgunblaðsins á
Patreksfirði er mikill hugur í
Barðstrendingum að útvega
unga fólkinu vinnu.
Allir bátar, sem gerðir eru
út á iínu frá Patreksfirði hafa
aflað vel að undanförnu og
hefur aflinn verið allt að 10
lestir í róðri.
— Móðir stökk
Framhald af bls. 2
þrir þar inn en íbúðin var auð.“
Slökkviliðið réð niðurlögum
eldsins á skömmum tima,
nokkrum mínútum, en mikill
reykur var í íbúðinni. Bruna-
skemmdir urðu aðallega i
barnaherberginu, bæði á rúm-
um og veggjum.
— Handtakan
Framhald af bls. 2
Haukur Guðmundsson, rannsókn-
arlögreglumaður, neitar að hafa
átt hlutdeild I að leggja neina
slíka gildru fyrir Guðbjart, en tel-
ur ekki óhugsandi að gildra hafi
verið lögð fyrir þá lögreglumenn-
ina í Keflavík í því skyni að
klekkja á þeim.
Samkvæmt framburði Guð-
bjarts og ökumanns hans eiga
tvær stúlkur að haía komið að
máli við Guðbjart og beðið hann
um að komast yfir gjaldeyri, og
það leitt til þess að hann ók þeim
til Suðurnesja. Stúlkurnar hafi
síðan horfið skömmu áður en lög-
reglan handtók Guðbjart og öku-
mann hans. Stúlkur þessar virð-
ast þannig vera lykillinn að lausn
þessarar ráðgátu, og er þeirra nú
leitað.
— Ford
Framhald af bls. 1.
kosningaloforð Carters séu
„eingöngu pólitísk."
Hann kvest vona að næsta
stjórn geti byggt á árangri Sinai-
samnings ísraels og Egyptalands
sem hafi verið gerður I tíð
fráfarandi stjórnar. í sambúðinni
við Rússa er hann óánægðastur
með að ekki hefur verið gengið
frá nýjum samningi um tak-
mörkun kjarnorkuvígbúnaðar.
Slíkan samning og nánari
samvinnu í efnahagsmálum og
menningarmálum telur hann I
þágu beggja aðila og heimsfriðar.
Ford leggur áherzlu á að eina
ástæðan til þess að hann náðaði
Nixon hafi verið sú að hann hafi
viljað fá málið úr sögunni svo
hann gæti einbeitt sér að aðkall-
andi málum. Hann segir að 25%
tíma sins hafi farið í að hlusta á
lagaleg rök um hvað ætti að gera
við skjöl Nixons þegar hann hafi
þurft að einbeita sér 100% að
Víetnam og efnahagsmálum."
Ford kveðst hafa vitað að
náðunin mundi kosta hann fýlgis-
tap og segir hann hafa átt þátt í
ósigrinum i nóvember. Hann
kveðst hafa haldið sambandinu
við Nixon en aldrei rætt náðunina
við hann I einstökum atriðum.
Ford kveðst ekki sjá eftir nokkru
í sambandi við kosningabaráttuna
og telur sig hafa brugðizt eins
rólega við ósigrinum og unnt hafi
verið.
— Aukinn
undirróður
Framhald af bls. 1.
ur Austur-Evrópuríkja í
Vestur-Þýzkalandi. Hann segir,
að aukin ferðalög Vestur-
Þjóðverja til Austur-
Þýzkalands hafi leitt til þess, að
KGB hafi skipað starfsmönnum
sinum þar að færa sér þau í nyt.
Höfundurinn tekur sem
dæmi um árangur undirróðurs
KGB á Vesturlöndum þá
ákvörðun Frakka 1968 að draga
sig út úr hernaðarsamvinnu
NATO. Hann segir að KGB hafi
notað starfsmenn sina úr hóp-
um sovézkra blaðamanna og
starfsmanna ýmissa stofnana í
Frakklandi og auk þess félaga
úr vináttufélagi Rússa og
Frakka til þess að halda uppi
öflugum áróðri á þá leið að
aðild Frakka að NATO kæmi
niður á sjálfstæði þeirra.
Ákvörðun Frakka var notuð
sem kennslubókardæmi á nám-
skeiðum KGB að sögn
Myagkovs. Yfirmaður KGB-
skóla nr. 311 sagði foringjaefn-
um i fyrirlestri að það væri
skoðun stjórnmálaráðsins að at-
burðir í Frakklandi væru beinn
árangur starfs Sovétstjórnar-
innar og KGB, segir Myagkov.
Myagkov lýsir ævintýraleg-
um flótta til Vestur-Berlinar í
febrúar 1974 þar sem hann gaf
sig fram við lögreglu borgar-
innar og kom seinna fram í
sjónvarpi. Hann kveðst ekki
hafa getað sætt sig við ofbeldi
og ómannúðlega kúgun Sovét-
kerfisins og ofsóknir gegn öll-
um sem stjórninni sé ekki að
skapi.
Hann segir frá tilraununum
sem notaðar séu til að brjóta
nióur andófsmenn og „innri
óvini“ í Sovétrikjunum. Hann
segir að ekki sé aðeins barizt
gegn „innri óvinum" heldur
reynt að halda landsmönnum i
stöðugum ótta. Hann segir að
110.000 menn starfi fyrir KGB í
Sovétríkjunum og þeir hafi á
sinum snærum geysifjölmennt
lið uppljóstrara sem séu ómiss-
andi í starfi KGB.
KGB hefur sérstök fyrirmæli
um að fylgjast með sovézkum
borgum sem eru ekki af rúss-
neskum uppruna að sögn
Myagkovs. Enginn Gyðingur
fær að starfa erlendis fyrir so-
vézkar stofnanir og KGB hefur
fyrirmæli um að finna ráð til að
flytja úr landi konur sovézkra
leyniþjónustumanna sem starfa
erlendis ef þær eru af Gyðinga-
ættum.
, Myagkov tekur mál andófs-
mannsins Pyotr Grigorenkos
hershöfðingja sem dæmi um að-
ferðir KGB. KGB-ofurstinn
Ivan Tarasovich Shilenko, sem
varð yfirmaður Myagkovs í
Austur-Þýzkalandi, fjallaði um
mál hans. Shilenko sagði ótví-
rætt að Grigorenko hefði aldrei
verið geðveikur, en hann væri
andsovézkur og því verið lýstur
geðveikur og sendur I geð-
sjúkrahús þar sem hann yrði
gerður geðveikur, segir hann.
SVAR MITT ö|
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg sá auglýsingaspjald, sem á var letrað: „Hreinlæti er
betra en guðhræðsla“. Haldið þér, að hreinlæti á llkamanum
sé meira metið meðal þjóðar okkar en andlegur hreinleiki?
Eg hef aldrei séð þetta auglýsingaspjald.
Hvergi stendur í Biblíunni, að hreinlæti sé betra
en guðhræsla. Jesús sagði t.d. við Farísea: „Þér
hreinsið bikarinn og diskinn að utan, en að innan eru
þeir fullir ráns og óhófs“ (Matt. 23,25). Hann sagði
líka í Mark. 7,15: „Ekkert er það fyrir utan manninn,
sem inn í hann fer, sem geti saurgað hann, heldur
það, sem út fer af manninum, það saurgar manninn“.
Samt ætti hver maður að leitast við að vera hreinn
á líkamanum. Allt eðlilegt fólk vill hreinan mat,
hrein rúm og að líkaminn sé hreinn. En það, sem
Jesús lagði áherzlu á, var, að líkamlegur hreinleiki
þurfi ekki út af fyrir sig að fela í sér andlegan
þrifnað. Með öðrum orðum: Maður getur verið
hreinn á líkamanum, en óhreinn í anda sínum, og
öfugt: Hann getur verið óhreinn á líkamanum, en
hreinn í anda sér. Auðvitað ættum við að sækjast
eftir hvoru tveggju. Sápa er það, sem hreinsar
líkamann, en hið hreinsandi blóð frelsarans er það,
sem hreinsar sálina. Biblían segir: „Ef vér játum
syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að
hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu
ranglæti“ (1. Jóh. 1,9). Guð hefur bæði séð okkur
fyrir því, sem hreinsar líkamann og sálina.
Fórnaði
Framhald af bls. 28