Morgunblaðið - 31.12.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.12.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1976 53 — Sigrún f,rS“d við hjónin höfðum eignazt og útbúið sjálf eftir eigin smekk. Annað sem mér verður lfka minnisstætt frá árinu er lítið atvik úr umferðinni í Reykja- vík. Ég var svo óheppin að keyra aftan á nýjari og glæsi- legan Kópavogsbíl. Bjóst ég við óbótaskömmum frá eigand- anum þegar hann stökk út úr bílnum sínum og hljóp að gömlu Fíatdruslunni minni. En . stað þess að ausa yfir mig skömmum, spurði hann hvort ég hefði meitt mig. Síðan dró hann ógangfæran Fíatinn á verkstæði og kórónaði það góð- verk með því að bjóðast til að keyra mig heim í Breiðholtið. Þetta atvik sannaði fyrir mér, að það eru enn til góðar taugar í íslendingum. Svör við innlendri FRÉTTA- GETRAUN 1. B 10. C 19. C 28. B 2. D 11. C 20. D 29. B 3. B 12. B 21. A 30. B 4. A 13. C 22. C 31. C 5. C 14. B 23. C 32. A 6. C 15. A 24. C 33. A 7. B 16. C 25. A 34. D 8. D 17. A 26. B 35. A 9. A 18. B 27. D 36. C 37. B 38. Jón Kjartansson, forstjóri Afengis- og Tóbaksverzlunar rfkisins 39. Björn Jónsson, forseti ASt, og gjöfin er ein margra, sem ASt bárust á 60 ára afmælisþinginu I vetur. 40. Jakob Jakobsson fiskifræðingur 41. Guðlax 42. Krafla að sjálfsögðu 43. Haukur Guðmundsson — Leikir Framhald af bls. 55 Lausn á gátum. 1. Til þess að hann nái niður á jörðina. 2. t myrkrinu. Á höfuðið (á hausinn á naglanum.) 4. Ertu sofandi? 5. Kvenmaður. 6. Sjóveiki. 7. Skalli. 8. Grænland — hefur alltaf verið stærst. 8. Allir mánuðirnir hafa a.m.k. 26 daga. 10. Aðeins eitt, því að þá er hann ekki lengur fastandi eftir það. — Helgi Framhald af bls. 38 að lokaóperunni, og hvað hon- um við kemur þá eru manni eftirminnileg þau ummæli sem höfð voru um Geir og Einar þess efnis að þeir hefðu setið þar að svikráðum. Raunveru- leikinn hefur þó sýnt að þeir skutu sigurskotunum í Ösló, skotum sem kannski urðu til þess að annað verra hlaust ekki af öðrum skotum annars staðar. Persónulega er mér það eftirminnilegast héðan frá Raufarhöfn að allt virðist vera að fara á betri veg fyrir staðn- um en hér hefur verið almenn velgengni á árinu 1976. Af- koma fólks er og hefur verið góð, og sennilega er rekstur frystihússins Jökuls orðinn léttari. Þá er það ánægjuleg staðreynd ársins sem er að lfða að þorpsbúum hefur fjölgað en það er auðvitað ánægjuefni. Þá er manni það minnisstætt að hér hefur verið veðurblíða undanfarið og hér hefur verið geysilega gott veður í ár. Síðast en ekki sízt er manni minnisstæð jarðskjálftahrinan f lok síðasta árs og byrjun þessa, og koma nágrannanna hingað í neyð, en sem betur fór varð sú neyð ekki einS"mikil og útlit var fyrir að gæta orðið. — Halldór Framhald af bls. 38 verður, mjög minnisstætt fyrir margra hluta sakir. Það er erf- itt að velja í stutt svar, en eitt stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum: Aldrei fyrr á ævinni hef ég lifað ár eða tíma- bil, sem kjaftasögur svokallað- ar hafa jafn oft reynzt sannar. Kannski að þær hafi alltaf ver- ið sannar, en aldrei áður verið reynt að grafast fyrir um sann- leiksgildi þeirra. Þeir sem eru í sviðsljósinu vegna starfa sinna, eins og t.d. sakadómar- ar, hafa átt ákaflega bágt, ekki sízt þegar þeir eru beðnir um að staðfesta sannar „kjaftasög- ur“. Þeir vilja helzt láta eins og þær séu ósannar. Önefndur embættismaður í dómskerfinu svaraði spurningu kollega mins um lausafregnir svona: ,,Nú er ég farinn að skilja, þegar En'glandskonungur lét loka um 6000 kaffihúsum þar sem þau væru gróðrarstía spillingar og samsæris. Allar þessar sögur eru spunnar upp á Tröð, og Borginni." Sjálfur hef ég litillega kannað sann- leiksgildi kjaftasagna á árinu og ánægjulegustu tíðindin af þeim vettvangi fyrir mig var ákvörðun rikissaksóknara að óska eftir framhaldsrannsókn númer 2 á svokölluðu Leir- vogsármáli, sem ég skrifaði greinaflokk um í vor. Ég held ég megi segja að það sé tiltölu- lega sjaldgæft, að gagnrýni á subbuskap i embættisfærslu beri árangur. Fréttamenn og blaðamenn skrifa gjarnan fyrir ruslakörf- una en i þessu tilviki fékk karfan að bíða um sinn a.m.k. Þvi má svo bæta við að mér þótti það skemmtileg tilviljun að lesa I nýrri bók eftir Lax- nes, að hann lærði að rífast um listir í kjallaranum á Laufás- vegi 34. í þessum sama kjall- ara lærði ég nefnilega að rífast EKKI um listir á árinu. Svör vid erlendri FRÉTTA- GETRAUN (1)3 01)4 (21) 3 (31) 1 (2) 2 02) 3 (22) 2 (32) 2 (3) 3 (13) 2 (23) 1 (33) 4 (4) 2 (14) 4 (24) 4 (34) 2 (5) 3 05) 3 (25) 2 (35) 3 (6) 2 (16)4 (26) 3 (36) 1 (7) 1 (17) 2 (27) 3 (37) 4 (8) 4 (18) 1 (28) 4 (38) 2 (9) 2 (19) 3 (29) 1 (39) 3 (10) 4 (20) 3 (30) 3 (40) 4 (41) Ali er Bandariskur, en hinn kappinn er japani, Antonio Inoki að nafni. (42) Það er verið að hylla Hiro- hito Japanskeisara á 50 ára af- mæli valdatöku hans. (43) Myndin er tekin af Mars úr geimfarinu Vfkingi I. (44) Bernharð Hollandsprins og Júlíana drottning við komuna til hallar sinnar eftir að tengsl urðu kunn f Lockheedmútuhne.vksl- inu. (45) Margret Thateher leiðtogi brezka thaldsdlokksins. (46) Jimmy Carter og kona hans við komuna til Plains eftir kosn- ingasigur hans í forsetakosning- unum. — Slagbrandar (a) spá fyrir framan helztu danshúsin með fletrunum eins og þessum: • Minnst klukkutíma töf á hverjum hljómleikum • Minnst eitt hljóðfæri úr sambandi í hverju lagi • Bannað verði að ráða sérfróða menn til að sjá um hljóðstjórn • Söngur heyrist helzt aldrei fyrir væli og ýlfri í mögnurum • Rótarar fái mynd af sér í hverri ballauglýsingu og á forsíðum plötuumslaga • Hljómsveitirnar hætti að nota sérstök nöfn, heldur verði kennd- ar við rótarana, t.d. Sextett Gústa rótara, eða Hljómsveit Dodda, Svenna, Kidda og Gauja rótara. .. • AUGLVsiNGAR... „Ég sé félög og fyrirtæki fara að dæmi Kvartmiluklúbbsins og reyna að ná sér í hagstæða kynningu á poppplötum. ..“ Og Slagbrandur sér i hendi sér, að ýmsir aðilar gætu gert plötuheiti að einkunnarorðum sínum, eins og t.d.: • „Götuskór" — Félag skókaupmanna. • „Sólskinsdagur“ — Veðurstofan. • „Hanastél" — ÁTVR. • „Speglun" — Glerslípun og speglagerð hf. • „Grásleppu-Gvendur" — Fiskifélag íslands. • „Einu sinni var. ..“ — Sagnfræðingafélagið. • „Skyggni ágætt“ — F’élag veðurfræðinga. • „I kreppu“ — Þjóðhagsstofnun. • „Eins og fætur toga. ..“ — Samtök trimmara. • THEY’RE COMING TO TAKE ME AWAY... „Ég sé sálfræðinga og geðlækna lesa grein í áramóta- Slagbrandi og kætast mjög yfir nýju og áhugaverðu tilfelli. . .“ Ég klikkaður? Nei, það hljóta að vera lesendurnir, sem entust til að lesa þetta rugl. .. —sh. //ein vtnnm Það er svo <$ýrt að vera með í happdrætti SÍBS að í rauninni borgar sig að kaupa ársmiða strax, ístað ‘ esj. að gera sér ferð lánaðarlega með 400 krónur - þeir sem eiga árs- miða.bíða bara rólegir og fylgjást með vinninga- skránni. Vinningafjöldi er nú 18.750 - fjölgar um .250. Fjorot hver miði hlýtur vjnning og í júní verður dregið um aukavinninginn í ár: fullkominn Volks- wagen ferðabíl ásamt ferðabúnaði að verð- mæti u.þ.b. 3,5 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.