Morgunblaðið - 31.12.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1976
61
ju 1wrrr. w
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MANUDEGI
i\y í/jvunp\''U.f^'L) n
sem þeim tilheyra og við getum
farið að snúa okkur að venjuleg-
um störfum. Menn hafa tekið þátt
í fjölskyiduboðum, ef að líkum
lætur, og borðað sig vel sadda
oftar en einu sinni. Þar sem kom-
ið var í fjölskylduboðin var það
sums staðar tízkan að hafa alla
fjölmiðla sem eitthvað heyrðist í á
„fullu" og svo mátti maður reyna
að tala saman undir þessum
hamagangi. Þar á ég við útvarp,
sjónvarp og plötuspilara.
En hvað sem því líður reyndi
maður heima í rólegheitunum
svona inn á milli boðanna að
glugga í það sem borið var fram á
vegum útvarps og sjónvarps. Þar
var fjölmargt i boði, ehki vantaði
það og ekkert mjög fráleitt. Mér
sýnist það mun oftar gerast að
menn nöldri yfir hlutunum en ég
ætia að verða undantekning hvað
það snertir. Endursýndur var
þáttur frá Horni, rabbað við Jó-
hann Pétursson vitavörð og sýnd-
ar nokkrar myndir af nánasta um-
hverfi hans. Einhvern tíma hefði
nú verið kvartað yfir endursýndu
efni í sjónvarpinu, en ekki er
ástæða til þess hér. Þetta var
ágætur þáttur og vel þess virði að
endursýna hahn þótt á jólunum
sé. Hins vegar fannst mér í dauf-
ara lagi þátturinn hjá honum Eiði
þar sem rabbað var um jólin.
Þetta voru kunnir menn sem þar
komu við sögu, að undanteknum
rithöfundinum kannski, en varla
er hægt að segja að þetta hafi
verið líflegur þáttur. Það þarf
kannski alltaf að gefa mönnum
kost á að rífast um eitthvað tíl að
bragð sé að þáttunum og maður er
kannski bara vanastur því og
kann því ekki að meta gott þegar
þar að kemur. Skemmtiatriðiq á
milli voru svo sem ágæt og í heild
sinni var þetta sæmilefur þáttur,
þótt hann væri ekki mjög líflegur.
Varðandi aðra liði í sjónvarps-
dagskránni um jólin get ég litið
sagt þar sem ég horfði ekki á þá
nema með öðru auganu að heitið
geti. I útvarpinu var fjölbreytt
dagskrá að vanda um hátíðir og
það er alveg óhætt að láta það
koma fram að mér finnst að þeir
sem standa að því við þessar að-
stæður að halda úti dagskrá í
marga klukkutíma á dag eigi full-
ar þakkir skildar fyrir það verk-
efni sitt. Ég vil ekki nefna neínn
þátt eða efni sem mér finnst öðru
betra, þetta var flest allt í bezta
lagi. Endurflutningur þáttar um
Magnús Stephensen var bara
áhugaverður, ekki sízt fyrir þá
sem lítið vita um feril hans. En
sennilega hafa kannski ekki
margir hlustað.
Eitt atriði langar mig til að
nefna varðandi dagskrá bæði út-
varps og sjónvarps. Það er að mér
finnst eins, og fleirum að þessir
fjölmiðlar ættu að standa að skoð-
anakönnunum um efni sem fólk
óskar eftir að flutt verði. Það yrði
án efa mikil leiðbeining í því fyrir
útvarpsráð að fara eftir við drög
að dagskrá. Ég held að það þýði
ekki að bera fram sem mótrök að
það sé of mikið og dýrt fyrirtæki,
þó það sé of mikið og dýrt fyrir-
tæki, þó það sé dýrt þá er það
áreiðanlegt að sú fjárfesting mun
skila sér í ennþá ánægðari hlust-
endum útvarps og sjónvarps. Er
ekki alltaf verið að tala um að við
þurfum að fjárfesta í hinu og
þessu? Er þetta verri fjárfesting
en hvað annað?hvað annað?.
í>essir hringdu . . .
% Má ekki sjóða
of lengi
Kona í vesturbænum:
— Mig langaði til að nefna að í
sambandi við hangikjötsöguna,
sem var í Velvakanda í fyrradag
að það verður að gæta þess að
sjóða það alls ekki of lengi. Ég
held að marga hætti til að sjóða
það of lengi og mín reynsla er sú
að það sé alveg nóg að sjóða það í
45 mínútur. Ég er ekki endílega
að segja að það hafi verið soðið of
mikið í áðurnefndu tilfelli, en
þetta þarf að passa.
Faðir niinn var mikill kjöt-
vinnslumaður og hann kenndi
okkur að sjöða mat ekki of lengi.
Eg sauð t.d. tvær stórar hangi-
kjötsrúllur og það sá varla flot
ofan á pottinum að lokinni suð-
unni. Ég set það ofan í sjóðandi
vatnið, sýð kjötið í 45 mínútur og
tek pottinn af. Siðan læt ég það
standa i pottinum næstu 15 min-
útur. Ég hef stundum orðið vör
við að fólk, sém hefur sjaldan
hangikjöt, er ekki alveg visst
hvernig best sé að sjóða kjötið.—
SKÁK
/ UMSJÁ MAR-
GE/RS PÉTURSSONAR
A ítalska meistaramótinu 1976
kom þessi staða upp í viðureign
Paolis, sem hafði hvítt og átti leik,
og Tatai:
17. Bg6! fxg6 18. hxg6. Svartur
gafst upp, því að eftir 18.. . hxg6
19. Dxg6+ Kh8 kemur 20. Rf5 og
hvftur vinnur létt.
J ólahangik j öt-
ið sem hvarf
Einn hinna fjölmörgu sem
keyptu hangikjöt til að hafa á
borðum um jólin kom að máli við
Velvakanda og sagði sögu nokkra
af hangikjötinu sem hvarf:
hátiðinni, — var það augljóst að
það hafði minnkað verulega. Þaó
vó rúmlega 1.7 kg fyrir suðuna en
eftir aðeins 750 grömm. Það hafði
sem sé mmnkað um h.ill kiln vid
HÖGNI HREKKVlSI
Nú árið er liðið...
Óskum
viðskiptavinum okkar
farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin
á liðna árinu
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
Óskum viðskiptavinum okkar
árs og friðar.
Þökkum ánægjuleg viðskipti
á árinu
1976
1977
Laugalœk 2, REYKJAVIK. simi 3 5o 2o
&> S\G€A V/öGA £ t/LVEfcÁW
pro-
'matt
ENN EIN NÝJUNG
FRÁ MYNDIÐJUNNI ÁSTÞÓR H.F.
Nú bjóðum við allar litmyndir unnar á Pro-Mattan
pappír, sem aðeins atvinnuljósmyndarar hafa not-
að hingað til.
PRO-MATT tryggir yður besta fáanlega skarpleika
á litmyndum, og jafnframt endingargóða og fall-
ega liti.
Myndiðjan Ástþór hefur frá byrjun ávallt verið í
fararbroddi með nýjungar. Eruð þér ! takt við
tímann? Eru yðar myndir unnar á PRO-MATT HJÁ
Myndiðjunni Ástþór h.f ?
myndiðjan
HÁSTÞÓRf
LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI LJÓSMYNDAIÐNAÐAR