Morgunblaðið - 05.01.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.01.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1977 5 Grindavík: Björgunarsveit- armenn f á hús- næði að gjöf UTGERÐARFELAGIÐ Þorbjörn í Grindavfk afhenti á gamlársdag slysavarnadeildinni og björgunarsveitinni í bænum húseign til afnota fyrir starf- semina. Tómas Þor- valdsson, forstjóri Þor- björns, sem jafnframt hefur í áratugi verið formaður björgunar.- sveitarinnar í Grinda- vík, afhenti Árna Magnússyni, gjaldkera slysavarnadeildar- innar, gjöfina, en þeir Tómas og Árni hafa um árabil verið nánir samstarfsmenn að slysavarna- og björg- unarmálum í Grinda- vík. í hófi vegna afhendingar- innar rakti Tómas sögu slysa- varnadeildarinnar Þorbjörns og rifjaði upp ýmsa atburði við bjarganir, sem staðið hefur verið að frá Reykjanesi austur á Hraunsfjöru. Deildin var stofnuð 1 930, en fyrsta björgunin sem framkvaemd var hér á landi með flugllnu- tækjum, var þegar björg- unarsveit Þorbjörns bjargaði 38 mönnum af franska togaranum Cap Fagnet, sem strandaði austan Grindavíkur á Hraunsfjöru. Alls hefur þessi björgunarsveit bjargað 193 Islenzkum og erlendum sjómönnum úr strönduðum skipum fram til þessa dags. ÍOftBÍÓU *S? ÚKÍfiT&avitC. Sjömönnum öjmrqmð frm fjténduðum SKipum. SKOlí fCOf T!, v , WCOOÍSO. X ’. cun. <v«rl. xi’xtH twö. *■.***<, MlfíVlWý-. tú. fa.ítoiákK; N, Oit*m W.ftWúWk, MÍVSiWtí, W. »<kúkh<f w ' “ ii* » * • Á fyrstu árum sveitarinnar var reist tækjageymsla og er nú löngu orðin ónóg vegna vaxandi tækjabúnaðar. Með tilkomu hins nýja húsnæðis batnar aðstaðan til muna og hyggjast björgunarsveitar- menn breyta húsinu og inn- rétta þannig að það komi betur að notum fyrir starf- semina I dag. Fyrirhuguð er viðbótarbygging, sem ætlað er að hýsa björgunar- og sjúkrabifreið sveitarinnar og einnig nýfenginn slöngubát, sem formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Kjartan Kristófersson, til- kynnti við þetta tækifæri að færður yrði sveitinni. Viðstaddir afhendinguna voru Gunnar Friðriksson, for- seti SVFÍ, Baldur Jónsson, formaður slysavarnadeildar- innar Ingólfs I Reykjavlk og Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri SVFÍ. í stuttu ávarpi forseta SVFÍ vék hann að hinum margháttuðu björgunarstörfum Grindvík- inga og þakkaði þeim giftu- samlegt framlag til slysa- varna- og björgunarmála hér á landi. 8—10% aukning framleiðslu í iðnaði NIÐURSTÖÐUR hagsveifluvogar iðnaðarins fyrir 3. ársfjórðung ársins 1976 benda til þess, að auknang framleiðslu f iðnaði hafi orðið 8—10%, ef miðað er við sama ársfjórðung ársins 1975. Þetta kemur fram f fréttatilkynn- ingu frá Landssambandi iðnaðar- manna. Framleiðslan var einnig heldur meiri á 3. ársfjórðungi 1976 en á 2. ársfjórðungi ársins, en sumar- frí falla aðallega á 3. ársfjórðúng og dregur þvf nokkuð úr fram- leiðslunni af þeim sökum í ýms- um iðngreinum. Búizt er við nokkurri aukningu framleiðslu á 4. ársfjórðungi árs- ins 1976 og er það í samræmi við reynslu fyrri ára. Fyrirliggjandi pantanir voru í samræmi við þetta talsvert meiri við lok 3. árs- fjórðungs en um mitt ár 1976. Salan á 3. ársfjórðungi 1976 virðist hafa aukizt mun meira en framleiðslan, hvort sem miðað er við 3. ársfjórðung 1975 eða 2. árs- fjórðung 1976. Birgðir fullunn- inna vara minnkuðu í samræmi við þetta, en hins vegar jukust birgðir hráefna nokkuð. Nýting afkastagetu var talin betri í iðnaðinum í heild í byrjun október en á miðju ári 1976, og áhrifa sumarleyfa virðist gæta minna á árinu 1976 en oft áður. Starfsmannafjöldi var lítið eatt minni við lok 3. ársfjórðungs 1976 en um mitt ár, en á móti kom að venjulegur vinnutími var nokkru lengri. Búizt var við auknum starfsmannafjölda á síðustu mánuðum ársins. Talsvert meira var um fjár- festingaráform fyrirtækja á 3. ársfjórðungi 1976 en á sama tima árið 1975 og hugðu fyrirtæki með yfir 50% mannaaflans á fjárfest- ingu á móti tæpum þriðjungi árið 1975. Þær upplýsingar, sem bárust um magnbreytingu, gefa til kynna að aukning miðað við árið áður hafa mest orðið I kexgerð, ullariðnaði, plastiðnaði, veiðar- færaiðnaði og sælgætisgerð. Sam- dráttur eða kyrrstaða er hins veg- ar í drykkjarvöruiðnaði, prjóna- vöruframleiðslu og kemiskum iðnaði. Hagsveifluvogin er tekin saman af Félagi íslenzkra iðnrekenda og Landssambandi iðnaðarmanna. Gæru-málið Athugasemd frá Iðju á Akureyri UNDANFARIÐ hafa átt sér stað all illvfg blaðaskrif f sambandi við verksmiðjuna Loðskinn h.f. á Sauðárkróki, vegna skiptingu hráefnis á milli verksmiðjunnar annars vegar og Sútunarverk- smiðju Sambandsins á Akureyri hins vegar, og sölu á söltuðum gærum til erlendra aðila. Að verulegu leyti má rekja máls- atvik til þess, að minna magn af gærum kom nú fram en áætlað var og gaf þvf ekki ástæðu til pólitfskra árásaskrifa á Samband fslenzkra samvinnufélaga eins og raun varð á. Að hinu leytinu vill stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur- eyri, að það komi skýrt fram, að hún telur það með öllu eðlilegt að Sútunarverksmiðjunni á Akur- eyri séu tryggð hráefni til full- vinnslu á skinnavöru, sem veitir um 130 manns vinnu I verk- smiðjusal og um 120 manns á saumastofum. Verksmiðjan hafði til vinnslu á s.l. ári um 360 þús- und gærur en Loðskinn h.f. 272 þúsund, en hefur aðeins 20 manns I vinnu, enda gærur seldar úr landi næstum sem hrávara. Stjórn Iðju harmar það, að Sam- band íslenzkra samvinnufélaga skuli hafa orðið fyrir þessum pólitízkum árásum í opinberum blöðum, og lýsir yfir fyllsta stuðn- ingi við Sambandið í gjörðum þess I þessu máli. Virðingarfyllst f.h. Iðju, félags verksmaðjufólks, Jón Ingimarsson Allt á stórafslætti nýjar sem nýlegar vörur Flauelisbuxur Flauelisvesti Gallabuxur 5 gerðir Skyrtublússur Prjónakjólar Kápur Peysur gífulegt úrval. Hljómplötur Kodak vasamyndavélar Myndaalbum ÁSTÞÓR BANKASTRÆTI 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.