Morgunblaðið - 05.01.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLACIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1977
31
íslenzka flugstjórnarsvædið:
Flugumferð
jókst um 15%
ALÞJÖÐLEG flugumferð um
fslenska flugstjórnarsvæðið jókst
um rúm 15% á árinu 1976 miðað
við árið áður. Síafar þessi aukn-
ing aðallega af yfirtöku fslands á
flugumferðarstjórn í efra loft-
rými Grænlands-svæðisins, en við
þá breytingu varð fslenska svæðið
þrefalt stærra að flatarmáli en
áður var. Kemur þetta fram f árs-
yfirliti Flugmálastjðrnar um
flugumferð árið 1976. Fram kem-
ur f yfirlitinu að lendingum far-
þegaflugvéla f millilandaflugi á
Keflavfkurflugvelli hefur f jölgað
umtæp4%.
Á Reykjavíkurflugvelli varð
fjöldi lendinga nánast hinn sami
og verið hefur undanfarin tvö ár,
Vestmannaeyjar:
Viltu hætta
reykingum?
NAMSKEIÐIÐ fyrir fðlk, sem
vill hætta reykingum, verður
haldið f Vestmannaeyjum dagana
9—13. janúar n.k. en slfk nám-
skeið hafa að undanförnu verið
haldin vfða um land með mikilli
aðsðkn og gððum árangri.
íslenzka bindindisfélagið held-
ur námskeiðið f Eyjum fyrir fólk
sem vill hætta reykingum og verð-
ur námskeiðið haldið í Félags-
heimilinu við Heiðaveg kl. 20.30
hvert kvöld.
Sigurður Bjarnason prestur og
Hallgrímur Magnússon læknir
munu stjórna námskeiðinu, en
þeir sem hafa áhuga geta látið
skrá sig i síma 1167 og 1439.
en „hreyfingar", þ.e. samtals
fjöldi flugtaka og lendinga, urðu
16% fleiri, aðallega vegna aukn-
ingar í kennsluflugi. Lendingum
á Akureyrarflugvelli fjölgaði um
rúm 20% á árinu og á Húsavíkur-
flugvelli um rúm 16%. A flestum
Framhald á bls. 18
Helgí Ólafeson
f ékk 6 vinn-
inga af 9 í
Stokkhólmi
ÞEIR Helgi Ólafsson og Jðn L.
Arnason hafa að undanförnu
tekið þátt f skákmóti f Slokk-
hðlmi, sem nefnist Rilton-Cup
og voru alls 300 þátttakendur f
mðtinu, sem tefldu f tveimur
flokkum, A- og B-flokki.
Helgi Ólafsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að hann og Jón hefðu
báðir teflt í A-flokki og náð
allsæmilegum árangri. Alls
hefðu verið tefldar 9 umferðir
eftir Monrad-kerfi og hefði
hann hlotið 6 vinninga, en Jón
514. Sagði Helgi að ljóst væri að
sigurvegari mótsins yrði stór-
meistarinn Mariorti frá ftalíu,
en hvar hann og Jón yrðu í
röðinni, sagði hann að væri
óljóst, 130 keppendur hefðu
verið í A-flokki, en öllum skák-
um væri ekki lokið enn.
Ljósm. Mbl.: Ól. K M.
Þessa dagana er verið að útbúa bátana á vetrarvertíð af miklum krafti. Fyrst
leggja loðnuskipin úr höfn, en línu- og netabátar hefja veiðar á næstunni.
Reydarfjördur:
Hörku slagsmál á jólaballi
Eslrifjarðarlögreglan kölluð tfl, en kærleikur óx um áramót
Reyðarfirði 4. jan.
BEZTA veður var hér á
jólunum þar til á 2. í jól-
um. Þá fór að snjóa. Dans-
leikur var haldinn í félags-
heimilinu á 2. í jólum og
lék hljómsveitin ýölundur
fyrir dansi. Allmikil ölvun
var á ballinu.
Löggæzlumenn hér fóru á Eski-
fjörð með mann til læknis, en
maðurinn hafði meiðzt um nótt-
¦~
n
1
. :
L'TLiV PYlTW Pfi»YTIM(atí
1 ;
»fc«æ*shs Issfei'í®
:•:;¦¦ .;:.-::".....- ........... -
.„,::,,;,:.:_,::s;.sa ¦*~*~ *. t.-. . ~~-:-:---- ¦ ... , „,. ¦„ yý^-------
tsafoldarhúsin séð Austurvallamegin samkvæmt teikningu sem byrjað er að vinna eftir. Inngangurinn
í Vallarbúðirnar verður þar sem inngangurinn var f tsafoldarbúöina, en bókaverzlunin flyzt f
austurenda hússins. Kaffi-og veitingastofa Kökuhússins verður á milli og verður innangengt ur öllum
búðunum og einnig úr bókabúðinni f veitingastofuna. Um þessar mundir er verið að smfða giuggana
sem sjást á myndinni.
„Markaðstorg" í
ísafoldarhúsunum
Veitingastofa og 5—6 verzlanir í endurnýjuðu húsnæði
VERIÐ er að gera talsverðar
breytingar innan húss á gömlu
tsafoldarhúsunum sem standa
milli Austurstrætis og Austur-
vallar. Samkvæmt upplýsingum
Jóns Guðmundssonar, eins af eig-
endum hússins, verður bðkaverzl-
un lsafoldar flutt I húsnæði
Rfmu, en Rfma mun hins vegar
flytja f annað húsnæði. Inn f fsa-
foldarhúsnæðið munu koma 5—7
aðilar m.a. kventfzkufataverzlun-
in Sonja, gjafavöruverzlun,
snyrtivöruverzlun og Davfð Jð-
hannesson gullsmiður, en einnig
verður þar til húsa Austurvallar-
megin f hiísinu kaffi- og veitinga-
stofan Kökuhúsið. Þar verða sæti
fyrir 50 manns og er áætlað að
opna fyrir bolludaginn.
„Hugmyndin," sagði Jón, „er að
lífga þessi hús við með þvi að búa
til nokkurs konar markaðstorg
inni f húsinu, ná sem mestu lífi i
umf erð um húsið með því að haf a
það opið á alla vegu innan dyra og
eins verður áfram gengt i gegn
um húsið milli Austurstrætis og
Austurvallar. Þá er einnig verið
að undirbúa að setja myndarlegri
svip á húsið Austurvallarmegin
svo sómi verði að og m.a. verður
húsið klætt þar að utan og nýir en
gamaldags gluggar settir í það."
ina, en nokkru eftir að dansleik
lauk upphófust mikil slagsmál
milli dyravarða og. dansgesta.
Dyraverðir leituðu aðstoðar lög-
reglunnar á Eskifirði og komu
þrír lögreglumenn hingað til að
skakka leikinn
Á gamlárskvöld var bezta veður
hér. Ein áramótabrenna var um
kvöldið og áramótadansleikur í
Félagsheimilinu og var dansað
eftir tónlist af hljómplötum tíl kl.
5 um morguninn og fór allt frið-
samlega fram.
Kvenfélagið hér hélt jólatrés-
skemmtun 28. des. og voru allir
velkomnir á skemmtunina, en
kvenfélagskonur hafa staðið fyrir
þessari jólaskemmtun í mörg ár
og bjóða þær upp á veitingar og
skemmtunin öllum að kostnaðar-
lausu.
—Gréta
Lokið við að byggja yf-
ir þilfar Jóns Finnssonar
SÍÐUSTU átta vikurnar hefur
verið unnið að þvi að byggja yfir
aðalþilfar Jóns Finnssonar GK
hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar og
mun burðargeta skipsins vera allt
að 600 lestir af loðnu á eftir.
Verkinu lýkur i kvöld og heldur
Jón Finnsson þá til Keflavíkur
þar sem nót skipsins verður tekin
og þaðan verður haldið beint til
loðnuveiða.
Næstu verkefni
Leikf. Akureyrar
LEIKFÉLAG Akureyrar hefur að
undanförnu haft leikritið
„Sahfnu" eftir Hafliða Magnús-
son til sýninga við ágætar undir-
tektir og er þvf ætlunin að halda
sýningum áfram um sinn. Þetta
er söngvaleikur og sér Ingimar
Eydal um útsetningu og undar-
leik en Saga Jónsdóttir er leik-
stjðri. Fyrsta sýning á Sabfnu á
nýja árinu er á föstudaginn kem-
ur kl. 20.30.
Næsta verkefni Leikfélags
Reykjavíkur verður „öskubuska"
eftir Evgení Schwarz, í leikstjórn
og þýðingu Eyvinds Erlendssonar
og er þetta barnaleikrit fyrir fólk
á öllum aldri. Þar næsta verkefni
verður „Sölumaður deyr" eftir
Arthur Miller og verður Herdis
Þorvaldsdóttir leikstjóri þess.
Leikfélagið hefur séð sér fært
að gefa áhorfendum 20—25% af-
slátt af áskriftarkortum og hóp-
ferðum og hefur það verið notað í
ríkari mæli nú en áður.
Þðrir Steingrfmsson, Heimir Ingimarsson, Gestur E. Jónasson ok
Sigurveig Jðnsdðttir í hlutverkum sínum f „Sabfnu".
_2~