Morgunblaðið - 05.01.1977, Síða 12

Morgunblaðið - 05.01.1977, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1977 Iðnaði blandað í íbúðahverfi Tilraun með þátttöku byggj- enda í skipulagi hverfisins Viðtal við Hilmar Ólafsson, forstöðumann Þróunarstofnunar Reykjavíkur HVAR byggjum við næst? er sú spurning, sem fréttamaður lagði fyrir Hilmar Ólafsson, forstöðu- mann Þrðunarstofnunar Reykja- vfkur, eftir að hafa skoðað hina umfangsmiklu skipulagssýningu á Kjarvalsstöðum. Og svarið var I Breiðholti og á Eiðsgranda, þar sem úthlutun verður lokið fyrir 1980, auk fbúða f nýja miðbæn- koma við sögu, þegar rætt er um byggingar f Reykjavík á næstu árum. Næsta úthlutun í Seljahverfi — Skipulag íbúðarbyggðar fer nú mest fram í Breiðholtshverf- um og á Eiðsgranda, útskýrði hverfinu geti nýtt sér þessa vinnustaði og sparað þannig dag- legar ökuferðir milli heimilis og vinnustaðar. Sem kunnugt er, er Seljahverfið, Breiðholt II og lóð- irnar, sem við vorum að tala um, miðsvæðis í hverfinu. tbúðarhús með vinnuskálum — I Fella- og Hólahverfi í Breiðholti III hefur borgarráð þegar úthlutað lóðum undir verkamannabústaði f svokallaðri Þetta er Austurdeild svokölluð f Breiðholti III. Þar verða lððir fyrir fbúðarhús með vinnuskálum, þannig að handverksmenn geti komið sér upp verkstæðum við húsin. Þau er dökk á kortinu oddaform vinstra megin og sfðan þverlfnu þar út frá (svæðið dekkt á litla kortinu). Lóðum fyrir verkamannabústaði hefur þegar verið úthlutað þarna og eru þeir ofan við þetta svæði á kortinu. Þessi uppdráttur sýnir Nýja miðbæinn, þar sem verður rúm fyrir 50 — 60 fbúðir f fyrsta áfanga og 110 fbúðir f öðrum áfanga. Það verður fjölbýli, tengt verzlununum, eða sérstæð hús. Austurdeild. Þar er þá eftir að úthluta lóðum undir íbúðarhús með vinnuskálum, þar sem hand- verksmenn geta komið sér upp verkstæðum. En í svokallaðri Norðurdeild f sama hverfi á þá eftir að úthluta nokkrum lóðum undir iðnaðarhúsnæði við Krummahóla. En þar á að vera það sem við getum kallað þrifa- legur iðnaður. Og loks á hugsan- lega eftir að skipuleggja lóðir fyr- ir um 50 einbýlishús f Austur- deild. En þá eru lóðir í Breiðholti fullnýttar. — I Breiðholti þrjú verður þá komin um 12 þúsund manna byggð, en 24—26 þúsund manns munu búa í Breiðholtunum öll- um. Reiknað er mað þvf að búið " A*. v/ r.-^ v 4-- y V- - A Eiðsgranda verður komið fyrir um 600 fbúðum, aðallega f f jölbýli og þéttri byggð, og verður svæðið væntanlega fullnýtt um 1980. um, f Mjóddinni, Grjótaþorpi og við endurnýjun eldri hverfa. Um 1980 verður fyrsta fbúða- hverfið f framtfðarbyggð Reykja- vfkur þvf að taka við, svæðið við Keldur. Áður en þetta er skýrt nánar, er rétt að gera nokkra grein fyrir verkefni Þróunarstofnunar. Þar hefur undanfarin fimm ár verið unnið að aðal skipulagi fyrir Reykjavík og liggja tillögur um framtíðarbyggð allt til ársins 1995 frammi á sýningunni á Kjarvals- stöðum. Jafnframt hefur stofnun- in á hendi allt eftirlit með deili- skipulagi einstakra hverfa, sem unnið er á skipulagsskrifstofum úti í bæ. Er sú vinna líka kynnt á sýningunni auk þess sem arkitektarnir kynna einstaka þætti á auglýstum tímum. Þannig er verið að vinna að skipulagi i Seljahverfi hjá Teiknistofunni Höfða, að Fella- og Hólahverfi hjá Vinnustofunni f Veltusundi 3, þar sem einnig er verið að skipu- leggja Eiðsgrandasvæðið. Nýi miðbærinn er í vinnslu hjá Teiknistofunni örkum, Grjóta- þorpið á teiknistofu Guðmundar Kr. Guðmundssonar og Ölafs Sig- urðssonar og endurnýjun eldri hverfa hjá Teiknistofunni i Garðastræti 17. öll þessi svæði Hilmar Ólafsson. I Breiðholts- hverfum á eftir að úthluta um 600 íbúðum. Eftir áramót verður út- hlutað lóðum fyrir rúmlega 100 íbúðir í Seljahverfi en þar verða bæði einbýlishús og raðhús. Þetta verður nokkuð sérstæð úthlutun, þvf tilraun verður gerð á ákveðn- um reit til að fá fólkið til að vinna með skipulagsaðiium að innra skipulagi svæðisins. Fólk fær þá úthlutað lóðum, og vinnur siðan með vinnuhópi að staðsetningu og gerð húsanna á þessum tiltekna reit. Þetta verður fyrsta tilraunin f þessa átt. — Næsta úthlutun í Seljahverfi verður sambýlishúsabyggð, svo- kölluð þétt-lág byggð, heldur Hilmar áfram skýringum sfnum. Þarna er verið að falla frá hefð- bundinni blokkabyggð, en í stað- inn koma þarna samstæður af tveggja hæða húsum, sem raðað er saman á ýmsan hátt, og mynda margs konar rými og skjól. Garð- ar á milli eru sameiginlegir fyrir íbúana. Enn ekki er alveg búið að ganga frá skipulagiriu þarna. I þessari seinni lóðaúthlutun i Seljahverfi verður líka nokkuð af einbýlishúsum. Einnig á þarna eftir að úthluta lóðum fyrir iðnað- arhúsnæði, ekki þó mjög mörgum. En vonazt er til þess, að íbúarnir i t Seljahverfi eða Breiðholti II verður næsta lóðaúthlutun, raðhús og einbýlishús, og eru lóðirnar miðsvæðis f hverfinu. Þar verður f öðrum tilraunareitnum reynt að fá fbúana til að vinna með skipulagsaðilum að innra skipulagi svæðisins. 1 seinni úthlutun verða sambýlishús f þétt-lágri byggð. Eru það samstæður af tveggja hæða húsum, sem raðað er saman á ýmsan hátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.