Morgunblaðið - 05.01.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1977
íslendingar hörku-
tól í samningum
segir Fish Trader
BREZKA blaðið Fish Trader
skrifaði fyrir áramót all ítarlega
grein um landhelgismál og var
þar vikið nokkuð að viðræðunum
við Islendinga.
Sagt er að hegðun Islendinga í
landhelgismálinu hafi enn einu
sinni valdið fjaðrafoki innan
brezks fiskiðnaðar og stjórnvalda.
Slðustu samningaviðræður, við-
ræður EBE fyrir hönd Breta, hafi
leitt enn einu sinni f ljós, að þegar
sezt er niður við erfiða samninga
séu íslenzkir leiðtogar hörkutól.
Hins vegar verði að segjast með
allri sanngirni að áframhaldandi
fiskveiðar erlendra þjóða á Is-
landsmiðum geti haft jafn alvar-
legar afleiðingar fyrir Islendinga
og það muni hafa fyrir íbúa Hull,
Grimsby og Fleetwood ef ekki ná-
ist samkomulag um áframhald-
andi fiskveiðiréttindi. Svo sé nú
komið eftir margar aldir, er fisk-
urinn í sjónum var talinn allra
eign, að hann sé nú alþjóðlegt
mál. Hinir góðu gömlu tfmar séu á
enda og hreint efnahagslega séð
sé fiskur verðmætur gjaldmiðill.
„All the
Presidents
Men” bezta
myndin 1976
New York — 4. janúar — NTB.
KVIKMYNDAGAGNRYNEND-
UR í New York hafa valið „AII
the Presidents Men“ beztu mynd
ársins 1976, og af sjö verðlaunum,
sem þeir veita árlega, fékk þessi
kvikmynd þrenn. Jason Robards,
sem lék ritstjóra Washington
Post í myndinni, fékk verðlaun
fyrir bezta aukahlutverkið og Al-
an J. Pakula fékk verðlaun fyrir
bezta kvikmyndahandritið.
Liv Ullman var valin bezta leik-
kona ársins fyrir leik sinn í mynd
Ingmar Bergmans, „Augliti til
auglitis", og var valin bezti leikar-
inn fyrir frammistöðu sína í
myndinni „Leigubflstjórinn".
Fyrir bezta leik í aukahlutverki
konu hlaut Talia Shire í mynd-
inni „Rocky“.
Liv Ullman
Carterhœttir jarðhneturœkt
Plains — 4. janúar — Reuter.
JIMMY Carter, næsti forseti Bandaríkjanna, lýsti þvf
yfir f dag að hann ætlaði að leggja jarðhneturæktina á
hilluna meðan hann gegndi forsetaembætti til að koma f
veg fyrir að mismunandi hagsmunir gætu rekizt á, og lét
hann svo um mælt, að þessi ákvörðun hefði reynzt sér
mjög erfið.
Birtar voru ýmsar upplýsingar
um fjármál Carters í Plains í dag
um leið og fram komu strangar
kröfur á hendur ráðherrum og
öðrum háttsettum embættis-
mönnum í stjórn Carters um að
gera grein fyrir fjármálum sínum
opinberlega áður en þeir taka við
embættinu.
Carter ætlar að fela sérstökum
umsjónarmanni eignaumsýslu
meðan hann er í embætti, en í
kosningabaráttunni kom fram, að
eignirnar væru virtar á um 800
þúsundir dala. Enn er óráðið
hvort forsetaefnið selur hluta
sinn í fjölskyldufyrirtækinu, sem
verzlar með jarðhnetur, eða hvort
hann legir það, en hann hefur
þegar tekið ákvörðun um að leigja
jarðhnetuekrur sínar.
Fjölskyldufyrirtækið á Jimmy
Carter ásamt móður sinni og
bróður. Þegar faðir hans lézt fyrir
rúmum tuttugu árum var fyrir-
tækið lítið að vöxtum, en
blómstraði mjög upp frá því.
Laun Jimmy Carters eftir að
hann tekur við forsetaembætti
verða um 200 þúsund dalir á ári,
eða sem nemur um 38 milljónum
ísl. króna.
The
Economist
Finn Olav Gunde-
lach stórstiarna
BREZKA tfmaritið Economist birti nýlega stutta grein
um í'inn Olav Gundelach undir fyrirsögninni „Finn
Olav superstar“ Er þar farið mjög iofsamlegum orðum
um þennan danska framkvæmdastjóra hjá EBE og sagt,
að hann sé næstur þvf að geta kallazt Henry Kissinger
bandalagsins. Sfðan segir: „Gundelach talar reiprenn-
andi ensku með hreim, hann kann vel við ferðalög og er
aðlaðandi maður. Hins vegar er hann ólfkur Kissinger að
því leyti, að frægðarstjarna hans er rétt að byrja að rísa.
Svo virðist, sem hann hafi á undanförnum mánuðum
stjórnað framkvæmdaráði bandalagsins einn síns liðs.
Hann fékk Íslendinga til samningaviðræðna um fisk-
veiðimál, fékk Japani til að lofa að draga úr hagstæðum
viðskiptajöfnuði sfnum við EBE-ríkin, skipaði skriffinn-
um EBE að falia frá áætlunum um samræmda matvæla-
áætlun, kom í gegnum ráðherraráð bandalagsins nýrri
reglugerð til að opna útboð á opinberum framkvæmdum
og flaug til Belgrað til þess að koma af stað nýrri
samstarfsáætlun Júgóslava og EBE. Þetta er ekki svo
slæm byrjun.
Þegar hin nýja framkvæmda-
stjórn bandalagsins tekur til
starfa I byrjun janúar er talið
líklegt, að Gundelach verði falin
yfirstjórn landbúnaðarmála, ekki
það að hann kæri sig svo mjög um
þann málaflokk heldur vegna
þess, að hann er einn af fáum
mönnum í aðalstöðvunum í
BrUssel, sem allir treysta og
kunna vel við. Ef honum tekst vel
upp I því starfi er talið líklegt að
hann verði líklegastur arftaki
Roy Jenkins sem forseti fram-
kvændaráðsins árið 1981.
Gundelach er talinn einn bezt
gefni og hæfasti maðurinn hjá
EBE. Hann er hagfræðingur að
mennt og eftir að hafa starfað hjá
hinu opinbera í Danmörku um
skeið var hann skipaður fram-
kvæmdastjóri hjá Gatt f Genf og
fór með stefnu i viðskiptamálum.
Hann gegndi mjög mikilvægu
hlutverki í Kennedyviðræðunum
um tollamál um miðjan sjötta ára-
tuginn. 1967 var hann skipaður
sendiherra Dana hjá EBE og 1973
framkvæmdastjóri með yfirum-
sjón yfir innbyrðis markaðsmál-
um aðildarríkjanna. Reynsla hans
f utanrikisviðskiptamálum varð
til þess að hann var sjálfkjörinn
staðgengill sir Christophers
Soames framkvæmdastjóra utan-
ríkismála EBE og eftir að Soames
veiktist hefur Gundelach gegnt
báðum embættum með miklum
sóma.
Hvernig getur hann þetta allt?
Erfitt er að láta sér líka illa við
Gundelach en hann hefur meira
til brunns að bera en að vera
myndarlegur og aðlaðandi. Þegar
brezkir fiskimenn komu öskureið-
ir til Briissel f nóvember til að
mótmæla stefnu bandalagsins f