Morgunblaðið - 05.01.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1977
23
Minning:
Jón Kr. Þorsteinsson
húsasmíðameistari
Fæddur 28. júnf 1912.
Dáinn 24. des. 1976.
I dag kveðjum við hinstu
kveðju Jón Kr. Þorsteinsson,
Skjólbraut 6 f Kópavogi, en hann
andaðist á aðfangadag jóla.
Jón var fæddur að Ytri-
Þorsteinsstöðum í Haukadal i
Dalasýslu, foreldrar hans voru
hjónin Guðfinna Eýjólfsdóttir og
Þorsteinn Þorvarðarson bóndi
þar.
Jón var giftur Ingu Þorsteins-
dóttur, móðursystur minni. Þau
bjuggu alla tíð í Kópavogi, og
lengst af í húsi því sem Jón reisti
sjálfur að Skjólbraut 6. Þar bjó
hann þeim og syninum Þór Er-
ling, gott og fallegt heimili. Hús
þetta svo og allar innréttingar eru
góður minnisvarði, vandvirkni og
dugnaðar hans f iðn sinni.
Jón lauk sveinsprófi í húsa-
smíðum árin 1937, og varð sfðan
meistari f iðninni. Fyrst framan
af starfaði hann hjá öðrum, en
rak sfðan eigið verkstæði um ára-
bil. Hann vann lengi á vegum
ríkisspítalanna og þá mest við
Landspítalann.
Félagslyndur maður var Jón og
tók hann mikinn þátt í starfi
Breiðfirðingafélagsins, og var
lengi formaður Breiðfirðinga-
kórsins. Hann var einn af stofn-
endum Lionklúbbsins Muninn f
Kópavogi. Einnig var hann mjög
virkur f starfi Sjálfstæðisflokks-
ins i Kópavogi.
Jón var góður hagyrðingur og
eru þau mörg ljóðin sem hann
skildi eftir hjá mér og öðrum í
fjölskyldunni. Geyma ljóð hans
hlýhug og góðvild hans betur en
nokkuð annað.
Með þessum fáu línum langar
mig til að þakka Jóni fyrir allt, og
bið ég blessunar drottins ástvin-
um hans, sem nú eiga um sárt að
binda þessa jólahátfð.
Júlfus Kolbeins.
Skömmu eftir að kirkjuklukk-
urnar höfðu hringt inn hinn helga
jólaboðskap og við öll svo ánægð,
hringdi sfminn og tengdamóðir
mín sagði að Jón hefði verið að
skilja við. Augnablik stoppaði allt
og minningarnar hrönnuðust upp
um hinn hógværa, mæta mann,
hversu vel hafði hann reynst
þessari fjölskyldu er hún árið
1959 hafði misst fjölskylduföður
frá tfu börnum og sex þeirra í
heimahúsum. Á sinn hljóðláta
hátt kom hann ásamt konu sinni
Ingu Þorsteinsdóttur og var hin
styrka stoð, eins og alltaf í blfðu
og strfðu.
Jón tengdist fjölskyldu tengda-
móður minnar er hann giftist
Ingu Þorsteinsdóttur og áttu þau
einn son Þór Erling.
Við börn og tengdabörn Hildar
komum ekki svo saman að sjálf-
sagt væri að Inga og Jón væru þar
með, enda eigum við öll falleg
ljóð f minningabókum okkar. Nú
er skarð i hópnum, en minningin
lifir svo björt og hrein, það var
ekki hávaðinn heldur traustið og
gleðin.
Þannig var Jón, fylgdist með
öllu í fjölskyldunni, hvernig þeim
gekk f sínu lífsstarfi, þetta ber að
þakka að leiðarlokum. Fyrir hönd
fjölskyldunnar vil ég þakka allt
sem Guð gaf og fyrir góð kynni.
Við biðjum góðan Guð að varð-
veita sál Jóns Kr. Þorsteinssonar
og vera konu hans og fjölskyldu
ljós á framtíðarvegi.
r.
Guðlaug Gísladótt-
ir - Minningarorð
Áramótin eru um garð gengin.
Gamla árið hefur kvatt og hið
nýja hafið innreið sína. Á áramót-
um verða alltaf þáttaskil. Við vit-
um, að við erum að ljúka vissum
kafla, sem kemur aldrei aftur og
heilsa nýjum. Við þökkum Guði
fyrir allt hið góða sem hann hefur
gefið okkur á liðnu ári, og þótt við
vitum ekki, hvað hið nýja ár kann
að bera í skauti sfnu, horfum við
björtum vonaraugum fram á við.
Mörkum lífs og dauða mætti
líkja við áramót. Þann 28. des. s.l.
kvaddi tengdamóðir mfn, Guðlaug
Gísladóttir, þetta lff, og gengur
nú á vit hins nýja árs í nýjum
heimi. Ég veit, að hún kveið ekki
þessum þáttaskilum, enda var
með þeim bundinn endi á sjúk-
dóm þann og þjáningar, sem hún
hafði átt við að strfða um nokkurt
skeið.
Guðlaug fæddist að Meðalnesi f
Fellum I Fellahreppi, N-
Múlasýslu, þann 12. janúar 1907,
og hefði þvf orðið sjötug eftir
nokkra daga, hefði henni enzt
aldur. Hún var af þekktum aust-
firzkum ættum. Foreldrar hennar
voru Gísli Sigfússon, bóndi, og
kona hans, Bergljót Jónsdóttir.
Guðlaug ólst upp f Meðalnesi
ásamt stórum hópi systkina og
hálfsystkina til 17 ára aldurs, en
eftir lát Gfsla, fluttist móðir
þeirra með barnahópinn til ísa-
fjarðar. Þar höfðu áður setzt að
tvær systur Bergljótar, þær Þóra,
hjúkrunarkona, og Elln, ljós-
móðir. A ísafirði kynntist
Guðlaug eftirlifandi manni
sínum, Ölafi Júlíussyni, skip-
stjóra, og gengu þau í hjónaband
árið 1929. Þeim varð þriggja
barna auðið, en þau eru: Ólöf
Anna, gift Viktori Þorkelssyni,
Gísli Jón, kvæntur Margréti
Berndsen, og Júlíus Sæberg,
kvæntur Sigrfði Claessen. Barna-
börnin eru 10 og barnabarnabörn-
in 2.
Þau Guðlaug og Ólafur bjuggu
á Isafirði til ársins 1949, en þá
fluttust þau til Siglufjarðar. Árið
1959 lá svo leiðin til Reykjavíkur,
þar sem þau bjuggu æ síðan.
Guðlaug var gæfusöm
manneskja. Hún hafði fengið f
vöggugjöf margar þær gjafir, sem
ekki öllum eru gefnar, en sem
koma að hvað drýgstum notum í
leitinni að lffshamingju. Hjá
henni fóru saman glæsileiki, glað-
lyndi, góðvild og jákvæð afstaða
til lífsins og alls sem lifir. Hún
hafði þann sjaldgæfa hæfileika að
kunna að gleðjast yfir litlu og
mótlæti tók hún með stillingu og
æðruleysi, eins og bezt kom í ljós í
hennar löngu og erfiðu
veikindum síðasta árið sem hún
lifði.
Lífshamingjan er það sem við
öll erum að leita að f okkar dag-
lega amstri, þótt leiðirnar að
markinu séu æði margar og
margur leiti langt yfir skammt.
Sumum okkar væri hollt að
staldra við í „lífsgæðakapphlaup-
inu“ og íhuga, hvað það er, sem
gefur lífinu gildi og skapar hina
raunverulegu hamingju. Guðlaug
kom mér fyrir sjónir sem
manneskja, sem höndlað hafði
hina sönnu lífshamingju. Sú
hamingja byggðist á óeigingirni
hennar sjálfrar, gjafmildi og fórn-
fýsi í garð þeirra, sem henni þótti
vænt um. Hún fann gleði í að gefa
af sjálfri sér f stað þess að
krefjast sér til handa.
Ég gæti skrifað langa grein um
mannkosti tengdamóður minnar
en það væri ekki í hennar handa
svo látlaus sem hún var. Ætlunin
var aðeins sú, að þakka henni
fyrir samfylgdina þau ár, sem
leiðir okkar lágu saman. Þar bar
aldrei skugga á og ég tel þau
kynni hafa orðið mér óendanlega
mikils virði. Ég bið tengdaföður
mínum Guðs blessunar. Megi
minningin um góða eiginkonu
verða honum styrkur í sorg hans.
Sigrfður I. Claessen
+ Faðir okkar, tengdafaðir, af og langafi
RUNÓLFUR EYJÓLFSSON
Vorsab 1. Reykjavlk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju I dag miðvikudaginn 5 janúar
kl 1 5 00 e h
Jóhann Runólfsson, Guðrún Hinriksdóttir
Kristján Sveinn Runólfsson,
Helga Pálina Runólfsdóttir,
Kristján Runólfur Runólfsson,
Ingunn Runólfsdóttir. Bragi Norðdahl.
Hrefna Sigríður Runólfsdóttir, Gil Martinez.
Lára Laufey Loftsdóttir, Óskar Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför
KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR,
kennara,
frá Skáleyjum,
Breiðarfirði
Systkinin.
Móðir okkar
. PÁLÍNA M. PÁLSDÓTTIR,
Vesturbraut 23,
Hafnarfirði.
lést í Borgarspítalanum mánudaginn 3. janúar
Páll R. Ólafsson
Þorbjörg Ó. Morthens.
+
Elskulegir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, afi og amma,
ALBERT GUÐMUNDSSON,
GUÐRÚN OLGEIRSDÓTTIR,
er létust af slysförgm aðfaranótt 25 desember s I , verða jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 6 janúar kl 3 e h
Sonja Albertsdóttir. Aðalsteinn Helgason,
Elfsabet Albertsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Sævar O. Albertsson
og barnaböm.
t
Faðir minn,
JÓN HJALTALÍN JÓHANNESSON,
lézt á Elliheimilinu Grund, 30 desember
Ólafur Albert Jónsson.
+
Móðir mín og tengdamóðir
MARIE DAM
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6 janúar kl.
13.30
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Hjálparsjóð Dansk
Kvindeklub eða Krabbameinsfélag íslands.
Ellen og Viðar Pétursson.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
GÍSLI ÞÓRÐARSON,
Efstasundi 92,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 7. janúar kl.
13 30
Laufey Sveinsdóttir,
börn, tengdabörn og barnaböm.
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR EINARSSON,
fyrrverandi verzlunarstjóri,
Hringbraut 43,
verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 6. janúar kl. 1 3 30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á líknarfélög
Fyrir hönd sona minna og fjölskyldna þeirra,
Jóhanna Zoéga Henriksdóttir.
HREINN PÁLSSON,
frá Hrísey,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni. föstudaginn 7 janúar kl 10 30
Lena Figved Pálsson,
Erna Hreinsdóttir, Svan Friðgeirsson,
Hreinn Hreinsson, Þórey Sveinsdóttir,
Marfa Hreinsdóttir, Helgi Hjálmarsson
Eva Hreinsdóttir, Ágúst Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Kærar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu og vinsemd, vegna fráfalls
STEINS K. STEINDÓRSSONAR
og sérstakar þakkir til þeirra, sem veittu honum aðstoð og hjálp í
veikindum hans
Britt Steindórsson og synir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim vinum og vandamönnum. sem
vottuðu samúð slna við andlát og útför
SIGURLAUGAR A. SIGURÐARDÓTTUR,
Samtúni 12.
Einnig færum við sérstakar þakkir læknum, hjúkrunarfólki og öðru
starfsliði Borgarspitalans og Landspítalans fyrir frábæra aðhlynningu I
veikindum hennar
Agnar Gústafsson Inga Dóra Hertervig
Inga Dóra Gústafsdóttir Einar Lövdahl
Valur Gústafsson
og barnabörn.